Morgunblaðið - 30.12.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
15
Flatarmál núverandi bygginga Landspítalans aðeins
tœplega fimmti hluti fyrirhugaðra bygginga
UNDANFARIN ár hafa þó
nokkrar framkvæmdir átt sér
stað á Landspítalalóðinni, en
óhætt er að segja að þær séu
aðeins örlftiil hluti af fyrirhug-
uðu framtfðarskipulagi þessa
svæðis. Eins og mönnum er
kunnugt var farið að þrengja
að lóð spftalans og var þvf
hafizt handa um að leysa
þennan vanda og vinna að
framtfðarskipulagi lóðarinnar.
Niðurstaðan varð sú að samið
var um viðhót við lóð Land-
spftalans með landsvæði
sunnan núverandi Hring-
brautar og einnig var samþykkt
að flytja Hringbrautina suður
fyrir þetta svæði. Lauk þessu
verki á árinu 1975 og hlaut
skipulagið endanlega
staðfestingu sfðsumars 1976 og
gat vinna við fyrstu byggingu
sunnan núverandi Hringbraut-
ar (bygging 7) þá hafizt.
Samkvæmt þessu framtfðar-
skipulagi verður heildarflatar-
mál Landspftalalóðarinnar
168.702 fermetrar. Þar af er
flatarmál núverandi bygginga
á lóðinni norðan Hringbrautar,
sem standa munu f framtíðinni,
aðeins tæplega 31 þús.
fermetrar. Þessar tölur gefa
góða vfsbendingu um endan-
lega stærð Landspftalalóðar-
innar. Þess má geta að flatar-
mál nýbygginga á lóðinni
norðan Hringbrautarinnar, þar
sem 1. áfangi geðdeildarinnar
er m.a. staðsettur, er rúmlega
56 þús. fermetrar. Flatarmál
nýbygginga á lóðinni sunnan
núverandi Hringbrautar
verður hins vegar rúmlega 81
þús fermetrar.
Stærstu verkefnin við Land-
spftalann á undanförnum árum
eru tvfmælalaust bygging nýrr-
ar kvennadeildar, bygging
bráðabirgðahúsnæðis fyrir
rannsóknastofur og bygging á
fyrsta áfanga geðdeildarinnar,
sem enn er þó ólokið. Verður
hér nánar fjallað um tvær
sfðast nefndu framkvæmdirnar
en frá nýju kvennadeildinni er
sagt á bls. 3 f blaðinu.
Geðdeildin
Framkvæmdir við Geðdeild-
ina hófust í janúar 1974, en þá
hafði verið ákveðið að byggja
hana í áföngum. Nú sfðla
sumars var uppsteypu hússins
lokið og í desember var tekið
tilboði Ármannsfells h.f. um
múrhúðun og annan frágang
innanhúss í svonefndum U-
hluta, en sá hluti nemur rúm-
lega 68% af heildarrúmmáli
byggingarínnar, sem alls er 793
fm á þrem hæðum og hástæðum
kjallara. Gert er ráð fyrir að
þessi hluti verði tekinn i
notkun í áföngum þ.e. að
göngudeildin og 30 rúma legu-
deildarrými njóti forgangs með
nýju áfangaútboði á næsta ári.
Er vonazt til að göngudeildin
geti tekið til starfa í byrjun
ársins 1978.
Þegar framkvæmdum við
þennan svonefnda U-hluta geð-
deildarinnar verður endanlega
Lfkan af framtfðarskipulaga Landspftalalóðarinnar. Fremst á
myndinni sést hvert fyrirhugað er að flytja Hringbrautina en
núverandi Hringbraut er vegurinn, sem liggur undir byggingarn-
ar á miðri myndinni. Það sem er hvftt á myndinni eru byggingar,
sem þegar hafa verið reistar, en gráu húsin tilheyra framtfðinni.
Lengst til hægri á Landspftalalóðinni sést hvernig geðdeildin
kemur til með að Ifta út fullkláruð.
lokið verða þar fjórar legu-
deildir á tveimur hæðum, sem
búnar verða samtals 60 sjúkra-
rúmum, en auk þess verður
aðstaða til að taka á móti 20
dagsjúklingum. Einnig verður
þar göngudeildin og marg-
háttúð þjónustustarfsemi fyrir
geðsjúka.
Þar sem fyrirhugað er að
taka geðdeildina f notkun f
áföngum óttast forráðamenn
hennar ekki að erfiðleikar
skapist við að fá sérhæft fólk til
starfa við deildina en það verða
fyrst og fremst geðlæknar,
geðhjúkrunarfræðingar og
félagsráðgjafar.
Erfitt hefur verið að gera
áætlun um heildarkostnað við
geðdeildarbygginguna, en
heildarkostnaðurinn var
seinast áætlaóur í lok júná á
þessu ári og var þá talinn
mundu nema um 591 milljón
króna.
Brýnn vandi
leystur með bráða-
birgðahúsnæði.
Um árabil hafa rannsókna-
greinar í líffærameinafræði og
sýklafræði búið við mjög
þröngan kost i rannsóknastofu-
byggingunni við Barónsstfg og
á árinu 1973 þótti sýnt að brýnt
var að leysa þann mikla vanda
sem þrengsli þessi orsökuðu.
Niðurstaðan varð sú, að ákveðið
var að reisa bráðabirgðabygg-
Ur einni rannsóknastofu Land-
spftalans.
Hin nýja geðdeild Landspftalans eins og hún stendur nú.
Hin nýju bráðabirgðahús fyrir rannsóknir f Ifffærameinafræði
og sýklafræði.
ingar fyrir þessar greinar og nú
í desember var þessum hús-
byggingum endanlega talið
lokið. Húsin eru tvö, um 835
fermetrar að grunnfleti ásamt
tengibyggingunni og er heildar-
kostnaður þeirra með búnaði
um 123 milljónir króna. Sú
starfsemi, sem fram á að fara í
bráðabirgóahúsunum, er
annars vegar sýklarannsóknir á
vegum bakterfufræðadeildar
Rannsóknastofu háskólans
(hús A), en hins vegar rann-
sóknir í meinafræði (hús B).
Hefur hús A þegar verið tekið í
notkun og hús B mun verða
tekið í notkun innan skamms,
aðeins er eftir að flytja þangað
tæki og húsgögn.
Ný deild fyrir veik,
nýfædd börn.
Af meiriháttar framkvæmd-
um að undanförnu er einnig
vert að geta þess að í febrúar
s.l. var opnuð ný deild fyrir
veik, nýfædd börn við Barna-
spítala Hringsins og nefnist
hún Vökudeild. Er hér um að
ræða nokkurs konar gjörgæzlu-
deild fyrir bráðveik, nýfædd
börn og geta 14 börn dvalið
samtímis á deildinni.
Lionsklúbburinn Baldur gaf
deildinni tæki til að fylgjast
með hjartslætti, öndun og blóð-
þrýstingi hjá þessum börnum
og Kvenfélagið Hringurinn gaf
deildinni tæki, sem veita börn-
um í andnauð makilvæga
öndunaraðstoð þannig að deild-
in er nokkuð vel búin tækjum.
Með tilkomu þessarar deildar
hefur einnig skapazt góð að-
staða til eftirskoðunar á börn-
um.
Aðrar meiriháttar
framkvæmdir á
undanförnum árum.
Mikil áherzla hefur verið lögð
á að endurnýja röntgendeild
spitalans á undanförnum árum
og hefur verið ráðstafað um 170
milljón krónum til þessara
framkvæmda. Þá má geta þess
að á þessu ári var komið fyrir á
spítalanum nýrri sfmstöð, sem
nauðsynleg var vegna fyrn-
ingar og ofálags, en símstöð
þessi mun þjóna heildarlóðar-
svæðinu og allri starfsemi spít-
alans á komandi árum. Heildar-
kostnaður vegna þessara fram-
kvæmda er nú áætlaður 75
milljónir. Árið 1974 réðst spít-
alinn i kaup á norsku húsi fyrir
barnaheimili og var kostnaður
við kaup og frágang á þessu
heimili rúmlega 9 milljónir
króna.
Þá er þess einnig að geta að
það hefur alllengi verið ríkj-
andi viðhorf að hagræða mætti
og flytja til ýmsa aðstöðu, svo
að ná mætti betri nýtingu hús-
næðis án þess að stefnt yrði að
byggingu nýs húsnæðis og á
næsta ári nemur fjárveiting til
þessarar hagræðingar 10 millj-
ónum króna.
Leggja áherzlu á
samfellda heild.
Það sem vakti fyrir þeim sem
að hinu nýja framtáðarskipu-
lagi unnu, var fyrst og fremst
að Landspítalinn yrði einn
heildarspitali með fjölda deilda
og sem sinnti kennslu og rann-
sóknastörfum, en ekki margar
sundurslitnar deildir, sem
störfuðu án tengsla hver við
Framhald á bls. 16
Hringbrautin flutt suður fyrir Umferðarmiðstöð