Morgunblaðið - 30.12.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
+
Móðir okkar
EIRNÝ GUÐLAUGSDÓTTIR,
Laugarnesvegi 64,
lést i Borgarspitalanum 28 desember
Elsa Jóhannesdóttir,
Dagmar Jóhannesdóttir,
Katrin Jóhannesdóttir,
Guðlaugur Þórir Jóhannesson.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
SIGURÐUR EINARSSON,
fyrrverandi verzlunarstjóri
lézt að heimili sinu, að morgni 29 desember
Jóhanna Zöega Henriksdóttir.
+
Eiginmaður minn
EDWARD PENSEL
North Lauderdale
Flórida
andaðist 1 9 desember Jarðarförin hefur farið fram.
Kristin Pálsdóttir Pensel.
/ minningu góðrar konu:
Antonie Lukesova
Fædd 22. 11. 1886.
Dáin 14. 12. 1976.
Antonie var fædd i Prag í
Tékkóslóvakíu, þar sleit hún
barnsskónum, lifði sín æskuár og
þar stóð heimili hennar. Atvikin
höguðu þvi þó þannig, að hún
fluttist hingað til íslands fyrir
nítján árum, átti hér heima æ
siðan, og var til grafar borin hér i
Reykjavik, skemmsta dag ársins,
hinn 21 desember siðastliðinn.
Antonie var og er i minum aug-
um góðvild, gleði og auðmýkt fyr-
ir lifinu, séu þessir eiginleikar
þess umkomnir að holdgast í
einni persónu. Trúlega hefur hún
þolað sitt af hverju í tveim heims-
styrjöldum, í þessu fallega en
marghrjáða landi í Mið-Evrópu,
enda leit hún á smáræði með
+
Eiginkona mín
GUÐRUN
HAFLIÐADÓTTIR
Kaplaskjólsvegi 69.
lést 22 desember Að ósk
hinnar látnu hefur útförin farið
fram í kyrrþey
Fyrir hönd vandamanna.
Björn Björnsson.
þolinmæói. Ég held, að hún hafi
aldrei á þessum 19 árum skilið til
fulls lífs- og hugsanaháttu okkar
hér í tryggu steinhúsunum og
kalda landinu með smáu áhyggj-
urnar.
Ég var krakki þegar ég kynntist
henni fyrst, og mér verða alltaf
sérlega minnisstæð augun henn-
ar, sem margt höfðu séð og um-
báru allt. Auk þess lumuðu þau á
glettni, og áttu létt með að tárast í
þökk yfir rpörgu þvi, sem okkur
hér þykir kannski ekki mikils-
vert. Einkennilegt að hugsa til
þess, að aldrei gátum við talað
saman, hún kunni aðeins nokkrar
setningar islenskar, sum dugðu
henni, ég var enn ver að mér í
móðurmáli hennar. En allt skild-
ist og komst til skila, sem þurfti, á
báða bóga.
Það var einkar notalegt og lær-
dómsrikt fyrir stressaðan táning
að dvelja nokkra stund í návist
þessarar rólegu og mildu konu.
Svo liðu árin og sama tryggðin og
umhyggjan fylgdi börnum min-
um, þegar þar að kom.
Antonie sætti því að missa sjón-
ina og verða hjálparvana að
mestu síðasta árið, sem hún lifði,
en naut þá einstakrar umhyggju
dóttur sinnar og barnabarna. Þá
hugsaði ég stundum um það, að
bágt ættu blindir íslendingar, en
+ Maðurinn minn + Faðir minn.
MAGNÚS JONSSON HARTMANN JÓHANNESSON,
frá Snjallsteinshöfða Kleppsveg 72,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag 30 desember sem lézt 22 des , verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4 janúar kl 1 30 n
Sigurjóna Sigurjónsdóttir. Rúnar Hartmannsson.
17
bágar þó útlendingar, búsettir
hér, sem sæta sömu örlögum, og
hafa ekki einu sinni not af bless-
aða Ríkisútvarpinu okkar. En
þessu tók Antonie æðrulaust eins
og öðru.
Nú er hún horfin þessi elsku-
lega babúska, sem lengst af stóð
eins og klettur úr umhverfi sinu
og lét hvergi haggast. Skarð er nú
fyrir skildi hjá hálfsystkinum
mínum og móður þeirra. Ég finn
sárt til með þeim, svo og stjúp-
systkinum mlnum, þeim Marcelu
og Beno.
Ég og börnin mín þrjú kveðjum
Antonie Lukesovu í ástúð og
þökk. Guðrún Ægisdóttir.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á I mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.
ÚRVALIÐ ALDREI FJÖLBREYTTARA
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS, rauð og blá
FALLHLÍFARRAKETTUR ☆
SILFURSTJÖRNUFLAUGAR
☆
☆
TUNGLFLAUGAR
ELDFLAUGAR
JOKER-
STJÖRNU-
ÞEYTAR
JOKERBLYS
BENGALBLYS
RÓMÖNSK BLYS
FALLHLÍFARBLYS
GULL- OG SILFURREGN
BENGALELDSPYTUR
. ☆
VAX-ÚTIHANDBLYS, loga 1/2 tíma
rauðar og grænar
STÓRAR SÓLIR — STJÖRNUGOS
STJÖRNULJÓS, tvær stærðir
HENTUG FYRIR UNGLINGA vax-garðblys, loga 2 tíma
ajiijjuiiaaaaa a?
ÁNANAUSTUM. SÍMAR 28855.