Morgunblaðið - 30.12.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
21
fclk í
fréttum
Ljósm. Ól.K. Mag.
+ Það er ekki ofsögum sagt af greiðvirkni lögreglunnar í Reykjavík. Þessi
föngulegu ungmenni af Seltjarnarnesi komust ekki inn í Tónabæ á dögunum, þar
sem þau voru ekki talin nægilega vel klædd. Fyrir utan skemmtistaðinn var
lögreglubifreið og báðu krakkarnir lögregluna að aka sér heim. Það var auðsótt
mál og lögreglumennirnir gerðu betur en það. Þeir hvöttu ungmennin til að skipta
um föt í flýti og sögðust mundu sækja þau aftur og aka þeim upp í Tónabæ. Fóru
lögreglumennirnir síðan í eftirlitsferð, komu aftur út á Seltjarnarnes, sóttu
ungmennin og óku þeim upp i Tónabæ. Komust krakkarnir strax inn og voru þeir
mjög þakklátir lögreglumönnunum fyrir greiðann. Á myndinni eru ungmennin
ásamt lögreglumönnunum hjálpsömu.
+ Þetta glæsilega mann-
virki er olíuborpallur
sem er í smíðum hjá olíu-
félaginu Chevron Oil’s
Ninian í Norðursjó. Þeg-
ar það er fullgert mun
það vega rúmlega
400.000 tonn og verður
því stærsta og þyngsta
mannvirki sem flýtur á
sjónum. Aðeins ísjakar
eru stærri og þyngri.
Holurnar sem sjást á
hliðinni eru gerðar til að
borpallurinn haldi betur
jafnvægi og verði stöð-
ugri í sjónum.
+ Eftir útkomu nýjustu breid-
skffu sinnar, „Blue Movies“,
hefur einn af vinsælustu
skemmtikröftum heimsins í
dag, Elton John, dregið sig I
hlé. Hann hefur leyst upp
hljómsveit sfna og lokar sig að
mestu inni f fbúð sinni í hinu
glæsiiega hðteli „Hotel Sherry-
Netherlands" f New York. „Ef
ég sýni mig utan dyra ráðast
stúlkurnar bókstaflega á mig“,
segir hinn 29 ára gamli eng-
lendingur. „Ég ætla að draga
mig f hlé f eitt ár og Ifklega sest
ég að f Englandi. Næst þegar ég
kem opinberlega fram verður
það sem klassiskur pfanóleik-
ari í kjól og hvftt og gleraugna-
laus.“
Minning:
Magnús Jónsson
frá Snjallsteinshöfða
Magnús Jónsson fæddist 29.
ágúst 1890 á landnámsjörð Þor-
steins lunans, sem síðan hefur
heitið Lunansholt. Foreldrar voru
hjónin Ragnhildur Bárðardóttir
og Jón Magnússon frá Snjall-
steinshöfða í Landsveit.
Strax á fyrsta ári var hann tek-
inn í fóstur af föðurfólki sfnu á
Snjallsteinshöfða og var hann hjá
þvi til 18 ára aldurs. Þá hleypti
hann heimdraganum og fluttist til
Reykjavíkur. Þegar þangað kom
gekk hann að þeirri vinnu sem
bauðst og var jafnan trúr hús-
bændum sínum. Skömmu eftir
komu sína til Reykjavíkur tók
hann þátt í tónlistarstörfum i
söng og hljóðfæraleik og var hann
meðal stofnenda Lúðrasveitarinn-
ar Svans og Karlakórs alþýðu og
fleiri áhugamannafélaga á sviði
tónlistar. Á heimili sinu lék hann
bæði á fiðlu og orgel. Útskurð
stundaði hann sér til gamans og
fékk verðlaun erlendis frá fyrir
þær „tilraunir“ eins og hann kall-
aði það sjálfur. Bókband stundaði
hann fram á síðasta dag og hefur
fáum tekizt að gera betur á því
sviði. Skömmu eftir að Thor Jen-
sen stofnaði togaraútgerðina
Kveldúlf réðst Magnús sem kynd-
ari að útgerðarstöðinni. Þar starf-
aði hann meðan sú útgerð var og
hét. Þegar Spánska veikin geisaði
hér i bænum árið 1918 varð hann
fyrir þvi að veikjast og hlaut af
hennar völdum nokkra bæklun á
öðrum fæti og háði hún honum æ
síðan.
Hinn 16. desember 1922 gekk
hann að eiga eftirlifandi konu
sína Sigurjónu Soffíu Sigurjóns-
dóttur frá Saltvík á Kjalarnesi.
Þau eignuðust 6 börn, sem flest
eru gift og öll búsett hér á landi.
Lengst af hafa Magnús og Sigur-
jóna búið að Freyjugötu 17 B hér
í borg. Magnús andaðist hinn 16.
desember síðastl. á Landakosts-
spítala eftir mjög stutta sjúkra-
húsvist. Er hann sárast syrgður af
eiginkonu sinni og börnum, og
barnabörnum, sem sjá á bak kær-
leiksríkum afa, sem alltaf var
fljótur að hugga og laða fram bros
á brá.
Nánir ættingjar og vinir biðja
Guð að styrkja Sigurjónu i sorg
hennar. Blessuð sé minning
Magnúsar.
Útför Magnúsar fer fram í dag
frá Fossvogskirkju kl. 1.30.
Gestur Hallgrímsson.
Sigurður Jóns-
son - Minningarorð
F. 3/8 1904
D. 25/12 1976.
í dag kveðjum við hinstu
kveðju Sigurð Jónsson, Berg-
staðastræti 49. Hann var elstur af
fimm systkinum, og er eitt þeirra
fallið i valinn á undan honum og
bíður hans. Veit ég þar verður
fagnaðarfundur.
Sigurður Jónsson var borinn og
barnfæddur i Þingholtunum,
Reykvikingur í húð og hár og bar
þess sterk merki alla tíð. Eftir-
lifandi eiginkona hans, Hulda
Þorvaldsdóttir, er einnig
Reykvíkingur og má því segja, að
jafnræði hafi verið með þeim þar,
svo sem á flestum öðrum sviðum.
Reyndust þau hvort öðru mikil
stoð og stytta í straumkasti
lífsins, svo sem vera ber.
Þó börnin yrðu ekki fleiri en
tvö urðu barnabörnin fleiri og
áttu þau öll öruggt athvarf á afa-
hné. Og mörg erum við orðin, sem
hann þræddi i Iestrarkúnstina
með bandprjónsaðferðinni. Og
þegar barnabarnabörnin komu til
sögunnar lyfti hann þeim upp i
fang sér gekk með þau um gólf og
sýndi þeim leyndardóma tilver-
unnar.
Sigurður Jónsson var samvisku-
samur og vinnusamur starfskraft-
ur og skapaði sér ekki frístundir
að ástæðulausu. En þegar tóm
gafst til sinnti hann áhugamálum
sínum. Hann hafði alla tíð yndi af
stangaveiði. og hafði þá trú að
handan jarðvistar rynnu ár,
fegurri og fiskmeiri en þær er
hann átti þess kost að renna færi
i, í lifanda lifi. Hann varði mikl-
um tima i lestur góðra bóka, og
bar þar hæst þjóðsögurnar sem
hann átti mikið og gott safn af.
Mest hafði hann gaman af
huldufólkssögum og sýnir það þa
trú hans að fleira væri til en það
sem augað sér.
Öllum, sem kynntust honum
ber saman um að þar færi mikill
heiðursmaður og ekki varð hann
til þess að skapa sér hatursmenn.
Þó gat honum sárnað, ef honum
fannst hann órétti beittur.
Brottför hans skilur vissulega
eftir tóm í lifi okkar, en það tóm
reynum við að fylla með góðum
minningum, sem nóg er af. Ber
kveðju okkar yfir á hin eilífu
veiðilönd. F'ar vel, afi minn.
S.E.R.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á i mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
linubili.