Morgunblaðið - 30.12.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
25
VELVAKANDI
£ SVARAR í SÍMA
ja 0100 KL. 10 — 11
r' FRÁ MÁNUDEGI
út höndunum til að vekja á sér
frekari athygli.
Þetta er ekki eina dæmið sem
ég sá af þessu tagi. Og ég held að
þetta sé ekki um að kenna sof-
andahætti viðkomandi öku-
manna. Það er miklu fremur því
að kenna að lögregluþjónarnir
sjást illa. Þeir eru dökkklæddir
og þessi dökkrauðu ljós sem þeir
hafa sjást ekki mjög vel heldur og
ég held að það sé alger nauðsyn
að þeir hafi þau í báðum höndum.
Sumir þeirra voru ekki alltaf með
hvíta hanska og dregur það enn
frekar úr því að þeir sjáist. Þetta
er stórhættulegt og það verður að
gæta að þessu. Vil ég því hvetja
stjórnendur lögreglumála í borg-
inni til að huga að þessu og það
væri vissulega jiauðsynlegt að
fleiri létu heyra frá sér um þetta
því það er auðvitað hugsanlegt að
þetta hafi bara atvikast svona í
þau skipti sem ég sá til. En mér
finnst það samt harla undarlegt
ef svo hefur verið.
Eitt að lokum. Umferðarljósin
við gatnamót Suðurlandsbrautar
og Grensásvegar hafa ekki verið i
gangi undanfarna tvo þrjá daga.
A kannski að leggja þau niður?
Það held ég að væri misráðið en
mér finnst heldur seint við brugð-
ið til að gera við þau ef það þurfa
að líða svona margir dagar áður
en farið er að eiga við þau. En
vonandi verður búið að lagfæra
það er þetta kemst á prent.
Já, undir það getur Velvakandi
tekið og vonar að þetta komist hið
bráðasta í lag.
Þessir hringdu . . .
0 Kvartar ekki
yfir unglingunum
Húsmóðir í Garðabæ:
— Ég sá á Þorláksmessu í Dag-
blaðinu skrif um það að unglingar
í Garðabæ væru einhver ribbalda-
lýður og þeir væru skemmdar-
vargar sem ekki væri hægt að
hafa eitt eða neitt til skrauts eða
fegurðarauka fyrir. Mig langar til
að geta þess að ég hef búið hér i
Garðabæ i 30 til 40 ár og allan
þennan tíma hefur enginn ung-
lingur gert nokkuð á minn hluta
eða skemmt fyrir mér. Það hefur
ekki komið fyrir að ég hafi orðið
fyrir nokkurri óreitni af völdum
unglinga og þeir hafa ekki orðið
til vandræða hvað mig snertir, og
það er allt gott um unglingana að
segja.
Hitt er annað mál að mér
gremst hvað löggæzla er lítil hér í
bænum — hún er í algeru lág-
marki og hana þarf með ein-
hverju móti að efla og auka ef
mögulegt er. —
Það virðast fara tvennum sög-
um af hegðun unglinga í Garða-
bænum og við skulum vona að
sem flestir geti tekið undir þessi
orð húsmóðurinnar að ungling-
arnir séu til fyrirmyndar.
0 Enginn
jólaboðskapur
fyrir börnin
Sjónvarpsnotandi:
— Mér fannst það nokkuð und-
arlegt að mjög lítið var gert fyrir
SKÁK
í UMSJÁ MAR-
GE/RS PÉTURSSONAR
Á IBM-skákmótinu I HoIIandi I
sumar kom þessi staða upp f skák
Sax, Ungverjalandi, sem hafði
hvftt og átti leik, gegn Hollend-
ingnum Donner!
börnin í sjónvarpinu að því leyti
að þau fengu að heyra um jóla-
boðskapinn. I Stundinni okkar á
jóladag var t.d. enginn sem kom
og sagði frá þvi sem þá gerðist,
svipað og var í útvarpinu, þar var
sr. Hjalti Guðmundsson fenginn
til að annast þann þátt. Það hefði
tvímælalaust átt að flytja hug-
vekju fyrir börnin i Stundinni
okkar, þau hlusta ekki á messurn-
ar i útvarpi eða sjónvarpi.
I nokkur skipti hefur verið i
sjónvarpinu, í Stundinni okkar,
sagðar bibliusögur og sýndar
myndír um leið, svonefndar flón-
elmyndir og það væri ekki úr vegi
að huga að einhverju slíku efni
fyrir þau.
Annars var margt gott efni i
sjónvarpinu um jólin og ber að
þakka fyrir það.
Eitt mætti þó nefna að lokum
og það er að sjönvarpið, sem á að
vera menningartæki, ætti að
leggja meiri áherzlu á vandað
málfar og mér finnst t.d. alveg
óþarfi að láta blótsyrði heyrast
eða sjást i texta. Blótsyrði og klúr-
yrði — og sennilega mættu þýð-
endur t.d. samræma nokkuð sín á
rnilli hvernig ráða eigi fram úr
slikum tilfellum.
HÖGNI HREKKVÍSI
1976
McNaught Synd., Inr.
Geriö honum þaö skiljanlegt aö þaö sé ekki
svínainflúensan!
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
10. f6! — Rxf6 (Svörtum er nauð-
ugur einn kostur að gefa mann, ef
10... gxf6,11. Bxh7+ — Kxh7, 12.
Dh5+ — Kg8, 13. Rf3 og svartur
er varnarlaus gegn 14. Hgl) 11.
exf6 — Bxf6, 12. Dh5 — g6, 13.
Bxg6! — De7, 14. Rb5 — Rc6, 15.
Bd3 — e5, 16. Re2 — Kh8, 17. Rc7
— Dxc7, 18. Bxf6. Svartur gafst
upp.
. 50
Ingvar Sveinsson
Minningarorð
Þegar maður i blóma lifs sins
andast finnst manni sem
tilgangur hins jarðneska lífs vors
hljóti að vera annar og meiri en
flestir gera sér grein fyrir. Þegar
ungur og efnilegur maður er
kallaður brott frá konu og ungum
syni hlýtur að vakna sú spurning
hver sé tilgangur þessa.
Tengdasonur • okkar, Ingvar
Sveinsson viðskiptafræðinemi og
kennari við iðnskólann I
Reykjavfk verður til moldar bor-
inn i dag, fimmtudaginn 30.
desember. Að hans eigin ósk fer
athöfnin fram i kyrrþey. Sú ósk
hans lýsir vel þeim manni sem
Ingvar hafði að geyma. I rúmt ár
átti hann við hræðilegan sjúkdóm
að stríða, en bar sig á þann hátt að
mjög fáir vissu hversu alvarlega
sjúkur hann var. Ingvar var mjög
heilsteyptur maður sem ekki
flikaði sinum tilfinningum að
óþörfu.
Það er trú okkar að hinum
megin móðunnar miklu er skilur
að heimana tvo bíði hans mikið
starf. Það starf mun Ingvari án
efa farnast giftusamlega, en það
var staðföst trú okkar hjóna af af
honum mætti mikils vænta í
framtfðinni. Okkur óraði ekki
fyrir því að það hlutverk biði
hans hinum megin.
Við viljum þakka honum af
heilum hug góða viðkynningu.
Við viljum þakka honum af öllu
hjarta þá umhyggju og ást er
hann veitti eftirlifandi konu sinni
og dóttur okkar Elisabetu
Kristinsdóttur og ungum syni
sinum Kristni.
Blessuð sé minningin unt góðan
dreng. Hún mun ætið skipa hóan
sess i hugum okkar.
Tengdaforeldrar.
Urvals
kjötvörur
Ný reykt 1/1 hangilæri ........
Ný reyktir 1/1 hangiframpartar .
Utbeinuð hangikjötslæri........
Utbeinaðir hangikjötsframpartar
Goða London lamb...............
Nýslátrað svínakjöt læri ......
Nýslátrað svínakjöt bógar......
Nýslátrað nautakjöt snitchel...
Urvals nauta Roast Beef........
Nauta lundir- og fillet.......
Odýru sviðin ..................
Rjúpur — Rjúpur
Aligæsir ......................
Kjúklingar „Grill" ...........
Kjúklingalæri.................
Kjúklingabringur .............
prkg
prkg.
stk.
•<9
1054
829
1590
1390
2190
1155.
1216
1450
1380
1850
290
750
2140
1140
1320
1290
Opið til kl. 6 í dag
Föstudag opið 7 —12
Verið velkomin
DX<JJ®TTDéH0®æTjÍ2j{MIM
Laugalœk 2. REYKJAVIK. simi 3 5o 2o