Morgunblaðið - 30.12.1976, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
Skemmtilegur og lærdómsríkur tími
sagði Sigurður Jónsson sem æft hefur að undaförnu
með Ingemar Stenmark og keppt á Evrópubikarmótum
— Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt tfmabil og ég tel mig
hafa lært mikið, sagði Sigurður
Jónsson, skfðamaðurinn ungi frá
tsafirði, sem frá þvf í október
hefur dvalið ytra við æfingar með
sænska landsliðinu. Sigurður
kom hingað heim um jólin og var
vestur á tsafirði f gær er við
náðum sambandi við hann. Strax
eftir áramótin fer Sigurður utan
að nýju og heldur þá til Frakk-
lands þar sem hann mun keppa f
Evrópubikarkeppninni f alpa-
greinum og sfðan f heimsbikar-
keppninni.
— Við fórum strax i æfingabúð-
ir í haust þegar ég kom út sagði
Sigurður, og höfum aðallega verið
á ítaliu. Einnig dvöldum við um
tima i Frakklandi og i Austurríki
og síðustu dagana fyrir jól fór ég
til Nóregs og tók þar þátt i nokkr-
um mótum. Til að byrja með vor-
um við 10—15 í æfingabúðunum,
en eftir að mót vetrarins nálg-
uðust fóru flestir heim — aðeins
fimm urðu eftir og þegar heims-
bikarkeppnin hófst fóru Ingemar
Stenmark og annar Svii me ð
honum i þá keppni, en ég og þrír
Sviar fórum hins vegar til keppni
i Evrópubikarkeppninni. Ég er
búinn að taka þátt í 10 mótum til
þessa.
Sigurður sagði að gengi sitt í
umræddum mótum hefða verið
nokkuð misjafnt. Bezt hefði sér
gengið á mótunum í Noregi nú
fyrir jólin, en þar hefði hann
orðið i sjötta sæti í einni svig-
keppni og í 10. sæti í annarri.
Bezti árangur sinn í Evrópubikar-
keppni væri hins vegar 13. sæti,
en því hefði hann náð í svig-
keppni í Frakklandi. Sagði
Sigurður að yfirleitt væru kepp-
endur í svona mótum frá
100—120. Hefur Sigurður færzt
töluvert framar í rásröð en hann
var áður , en slíkt hefur gífurlega
mikið að segja í mótum sem þess-
um, þar sem brautirnar eru orðn-
Tómas Leifsson — dvelur ytra við
æfingar um þessar mundir.
Van Noessel — hann og menn hans vildu allt til vinna að lenda
ekki í riðli með tslendingum og Þjóðverjum.
Mikilvægara að
tapa en sigra
— Við gátum ósköp vel unnið
Portúgala, en það hefði þýtt að
við hefðum lent í C-riðlinum 1
B-keppninni með Austur-
Þýzkalandi og Íslandi, og við
vissum að þar með áttum við
engar vonar um að komast 1
A-keppnina. Þess vegna tókum
við þvf rólega 1 leiknum við
Finnlandi 1 lokakeppni C-
keppninnar, töpuðum og lent-
um 1 þriðja sæti.
— Þannig lét Van Noesseí,
stjórnandi hollenzka landsliðs-
ins í handknattleik, ummælt 1
Norgegi fyrir skömmu er hann
var þar á ferð til þess að taka
myndir af norska landsliðinu í
leik, en Hollendingar leika í
C-riðli ásamt Norðmönnum og
Spánverjum.
Van Noessel sagði, að þegar
séð var hvaða lið kæmust í B-
keppnina í Austurríki hefði sú
staða komið upp að mikilvæg-
ara hefði verið að tapa en sigra.
Enginn hefði viljað sigra í C-
keppninni og lenda með Þjóð-
verjum og Islendingum í riðli.
Því hefði verið hálfgerður
skrípabragur á úrslitaleikjum
keppninnar, en Portúgalar
hefðu síðast staðið uppi sem
sigurvegarar, mest vegna þess
að þeir léku á heimavelli, og
áhangendur liðsins kröfðust
þess að það sigraði í C-
keppnin'ni.
— Við gerum okkur auðvitað
vonir um að sigra Norðmenn í
D-riðlinum sagði Van Noessel 1
viðtali við norsk blöð og komast
þannig í undanúrslit keppninn-
ar. Hins vegar tel ég engar lík-
ur á þvi að okkur takist að sigra
Spánverja, þar sem þeir eru
með mjög gott landslið um þess-
ar mundir. Takist okkur að
verða í öðru sæti í riðlinum og
komast í undanúrslitin verða
möguleikar okkar að komast i
A-keppnina þó að teljast tak-
markaðir. Til þess eru lið
Islendinga og Austur-Þjóðverja
alltof sterk.
ar hálfónýtar þegar fjöldi kepp-
enda er búinn að fara þær. Sagði
Sigurður að rásröð sin væri yfir-
leitt um 30 á Evrópubikarmótum,
en á mótunum í Noregi hefði
hann komizt í fyrsta ráshóp.
— Ég tek sennilega í fyrsta sinn
þátt i World Cup keppninni 22.
janúar n.k. sagði Sigurður en þá
verður keppt i Frakklandi.
Sigurður er ekki eini íslenzki
skíðamaðurinn sem dvalið hefur
erlendis að undanförnu, eða ætlar
sér utan eftir áramótin. Að sögn
Hákonar Ölafssonar, formanns
Skiðasambands Islands, fór
Tómas Leifsson frá Akureyri
utan skömmu fyrir jól og keppti
þá á mótum í Noregi. Hann ætlar
sér að dvelja ytra allan janúar-
mánuð og keppa þá á mótum í
Evrópu. Þá hefur Gunnar Jóns-
son, bróðir Sigurðar, dvalið er-
lendis við æfingar að undanförnu,
og Haukur Jóhannsson frá Akur-
eyri mun væntanlega fara utan
1' ■« . v,*
.
i
kigurður Jónsson — keppir 1
heimsbikarkeppninni 22. janúar.
fljótlega eftir áramót. Ætlar hann
sér að stunda nám og æfa jafn-
framt. Þá mun það hugmyndin að
Arni Óðinsson, skíðamaður frá
Akureyri, fari til Bandaríkjanna
á næstunni og dvelji við æfingar í
Sun Valley, en þar er starfandi
íslenzkur skíðaþjálfari, Magnús
Guðmundsson frá Akureyri.
Bolton í
annað sætið
i FYRRAKVÖLD fóru fram
fjórir leikir I ensku 2. deildar
keppninni i knattspyrnu og
urðu úrslit þeirra þessi:
Burnley — Blackpool 0:0
Fulham — Millwall 2:3
Hull City — Oldham 0:1
Sheffield Utd. — Bolton 2:3
Eftir leiki þessa er staðan í
2. deild sú, að Chelsea hefur
forystuna með 30 stig að lokn-
um 21. leik. Bolton Wanderes
er f öðru sæti með 28 stig eftir
21 leik, Wolverhampton
Wanderes er í þríja sæti með
26 stig eftir 20 leiki, og sama
stigafjölda hefur einnig
Blackpool eftir 21 leik.
I 3. deild urður úrslit þessi í
fyrrakvöld:
Rotherham —
Chesterfield 1:0
Tranmere — Walsall 0:0
Chester — Shrewsbury 1:2
Grimsby — Sheffield Wed 1:1
Mansfield — PortVale 2:1
Þá fór fram einn leikur í
skozku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, Kilmarnock og Patrick
Thistle gerðu jafntefli 0—0.
Leik með Southampton 11. deild
áður en skórnir fara' á hilluna
-sagði Alan Ball, er hann fór frá Arsenal
— ÉG MUN minnast Arsenal
með hlýjum hug alla mlna ævi.
Þar var allt skipulagt frá
smáatriðum til aðalatriða.
Félagið á nú lið sem tvlmælalaust
er það efnilegasta 1 Englandi, —
það er spurning hvort það
blómstrar f vetur, en verði það
ekki segir trúa mln að liðið verði
á toppnum næsta vetur.
Þannig lét hinn kunni knatt-
spyrnugarpur Alan Ball ummælt
er hann yfirgaf Arsenalliðið og
gekk til liðs við 2. deildar liðið
Southampton á dögunum. Sout-
hampton greiddi upphæð sem
svarar til 180 milljóna króna fyrir
Alan Ball, en sjálfur fékk hann
ekki nema lítinn hluta af þeirri
upphæð í sinn hlut, eða um 4,5
milljónir króna.
Þegar það spurðist 1 Englandi
að Arsenal hefði áhuga á að selja
Alan Ball, sem nú er orðinn 32
ára að aldri, sýndu mörg félög
þegar í stað áhuga, enda talið að
Ball eigi enn mikið eftir sem
knattspyrnumaður, og sem
baráttumaður er hann annálaður
og mörg félög vantar einmitt
slfkan leikmann. — Það var úr
vöndu að velja, sagði Ball, —
helzt af öllu hefði ég viljað fara til
Blackpool, þar sem ég hóf knatt-
spyrnuferil minn, en úr því að
það stóð ekki til boða vildi ég lang
helzt fara til Southampton, fyrst
og fremst vegna þess að ég hef
mikið álit á framkvæmdastjóra
félagsins, Lawrie McMenemy.
Hann er sannur atvinnumaður í
fagi sínu og er með báðar fætur á
jörðinni.
Talið er að miklu hafi ráðið að
Ball ákvað að fara til
KLAMMER BEZTUR
NÝLEGA var birt niðurstaða austur-
ríska iþróttafréttamanna í kjöri
þeirra á „ íþróttamanni ársins" í
Austurrlki. Fyrir valinu varð Franz
Klammer, skiðamaður. en næstir i
röðinni urðu skiðastökkvararnir Karl
Schnabl og Toni Innauer og kapp-
aksturmaðurinn Niki Lauda.
íþróttakona ársins" var kjórin
skiðastúlkan Brigitte Habersattel-
Totschnigg og i öðru sæti varð önnur
skiðastúlka: Nicola Spiess.
Southampton að félagið er enn
með í Evrópubikarkeppni bikar-
hafa, en leikir I þeirri keppni geta
fært leikmönnum mikið í aðra
hönd, ekki sízt þegar komið er
jafn langt i keppninni og raun ber
vitni. Auk þess vekja slíkir leikir
jafnan mikla athygli, en Ball
hefur alla tíð haft mikla ánægju
af þvi að vera í sviðsljósinu.
— Ég hlakka mikið til þess að
leika með Mike Channon, sagði
Ball, — hver vill ekki vera í liði
sem hefur svo frábæran leikmann
í sinum röðum.
— Það segja margir að ég hafi
aldrei verið betri en nú, sagði
Ball, — og ég þori sjálfur að
fullyrða að ég er ekki verri en
þegar ég lék úrslitaleikinn I
heimsmeiatarakeppninni á
Wembley. — Ef til vill ekki alveg
eins léttur á mér og ég var þá, en
hins vegar miklu klókari, og ég tel
klókindi eiginleika sem knatt-
spyrnumaður þarf að hafa mikið
af.
Ball sagði að það hefðu óneitan-
lega orðið sér mikil vonbirgði að
þurfa að fara frá Arsenal einmitt
nú. — En þegar bezti vinur minn í
liðinu, John Radford, var seldur
til West Ham var ég viss um að
röðin kæmi næst að mér. Við því
var ekkert að segja en ég óska
hinum ungu leikmönnum liðsins
gæfu og gengis í framtíðinni.
Sem kunnugt er gengur
Southamptonliðið undir gælu-
nafninu „Dýrlingarnir". — Ég
þori ekki að lofa að við komust í
himnaríki, en eitt er víst — ég
ætla að leika með liðinu i 1. deild,
áður en ég legg skóna á hilluna,
sagði Alan Ball.
Alan Ball — ætlar sér stórt hlntverk f Southampton.