Morgunblaðið - 30.12.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
27
6tt skemmtHegasta
verkefni sumaráns
- segja Danir um kastlandskeppnina
Kastlandskeppnin við íslendinga
verður eitt skemmtilegasta
viðfangsefni danskra frjáls-
íþróttamanna á árinu, segir í
nýútkomnu fréttablaði danska
frjálsfþróttasambandsins, en sem
kunnugt er mun danska lands-
liðið I köstum sækja íslendinga
heim næsta sumar. Verður þá
keppt í kúluvarpi, spjótkasti,
sleggjukasti og kringlukasti. —
Ef það verða tveir þátttakendur í
grein, eins og talað er um, má-
reyndar búast við að Is-
lendingarnir rassskelli okkur, en
ef tekst að semja um að þrír
keppendur verði I hverri grein
ætti að geta orðið um skemmti-
lega keppni að ræða, segir blaðið.
Þá segir blaðið einnig, að
kastararnir hafi oft kvartað yfir
því að vera settir til hliðar, og eigi
þær kvartanir nokkurn rétt á sér.
Með þessari Iandskeppni verði
hins vegar ráðin bót á þessu.
Blaðið birtir einnig beztu afrek
Islendinga f kastgreinum á árinu
og verða þau rakin hér, ásamt
þremur beztu afrekum Dana í við-
komandi greinum á árinu.
Kúluvarp
Danmörk
17.55 m
17,38 m
15,52 m
Spjótkast
Danmörk
72.55
68,30
66,87
Sleggjukast:
Danmörk
60,60
59,64
55,01
Kringlukast:
Danmörk
54,63
52,49
48,71
Island
20,24m
17,83 m
17,56 m
tsland
75,86
64,82
62,60
Island
58,42
49,98
47,12
Island
62,00
55,22
54,30
Þótt árangur íslenzkra liða f Evrópubikarkeppninni f fyrra væri yfirleitt ekki góður var jafntefli lBK við
Hamburger SV þó skrautfjöður f hattinn, en þýzka liðið er nú komið f undanúrslit. Myndin er úr
jafnteflisleiknum á Laugardalsvelli og er það markvörður Keflvfkinganna, Þorsteinn Olafsson. sem
þarna tekur til sinna ráða.
Belgía að taka við forystuhlutverkinu
9 AMINNTIR
EINNÚTAF
ÞAÐ VERÐA annað hvort Kanada
eSa Mexikó sem komast úr „N-
Ameríkuriðli" undankeppni
heimsmeistarakeppninnar I
knattspyrnu I úrslitakeppnina I
Argentlnu. Leikið var I riðlum I
undankeppninni og tókst Mexikó
að sigra I öSrum riðlinum eftir
hörð átök við lið Haiti. Banda-
rikjamenn og Kanadamenn skildu
hins vegar jafnir i hinum riðlinum
og urðu að leika aukaleik á hlut-
lausum velli. Var sá leikur á Haiti
og lauk með sigri Kanadamanna
3—0. Þeir skoruðu fyrsta mark
sitt snemma i leiknum og freist-
uðu þess siðan að halda marki
sinu hreinu. Sóttu Banda ríkja
men ákaft og hljóp gífurleg harka
í leikinn. Varð dómarinn,
Velasquez frá Kolombiu a8 gefa 9
leikmönnum áminningar og einn
var rekinn af velli. Steve Pechei
frá Bandarikjunum. Þegar Banda-
ríkjamenn voru orðnir einum
færri tóku Kanadamenn leikinn i
sinar hendur og skoruðu tvö
mörk á lokaminútunum.
EINS og frá var skýrt f
Morgunblaðinu f gær varð tsland
f 21. sæti á Evrópu-Iista FIFA um
árangur f landsieikjum sfðasta
keppnistfmabils. tsland fær þó
ekki alls staðar eins góða eink-
unn. Svissneskt knattspyrnutfma-
rit hefur tekið sér það fyrir
hendur að reikna út árangur
knattspyrnuliða f Evrópu á þessu
ári, og tekur þar bæði með f
reikninginn landsleiki og þátt-
töku f Evrópubikarkeppni.
Verður þetta til þess að Island
lendir f næst neðsta sæti á listan-
um — aðeins Kýpur er fyrir
aftan. Samkvæmt lista svissneska
blaðsins, eru Belgfumenn með
beztu knattspyrnulið Evrópu,
þrátt fyrir að belgfska landsliðið
hafi ekki náð sérstökum árangri á
árinu.
Fyrir nokkrum árum voru það
jafnan Hollendingar sem skipuðu
efsta sætið sem knattspyrnuþjóð.
I Evrópubikarkeppninni voru
hollenzk lið jafnan í fremstu röð
og fjórum sinnum I röð sigruðu
t.d. hollenzk lið f Evrópubikar-
keppni meistaraliða. Fyrst
Feyenoord og síðan Ajax. Ekki
má heldur gleyma því að Hol-
lendingar komust i úrslit í heims-
meistarakeppninni I knattspyrnu
árið 1974.
Eftir að veldi Hollendinga
minnkaði tóku Vestur-Þjóðverjar
við og hafa þeir náð mjög góðum
árangri í Evrópubikarkeppni
félagsliða, auk þess sem landslið
þeirra hefur verið nær ósigrandi.
Aðeins þrjú af sjö
En í Evrópubikarkeppninni að
þessu sinni hafa verið ýmsar
blikur á lofti fyrir Vestur-
Þjóðverja. Alls tóku sjö vestur-
þýzk lið þátt 1 keppninni, og
aðeins þrjú þeirra eru enn eftir:
Bayern Miinchen, Borussia
Mönchengladbach og Hamburger
SV-liðið sem mætti Keflvíkingum
í 1. umferðinni, og varð að gera
sér jafntefli að góðu á Laugar-
dalsvellinum, svo sem flestir
muna.
AP valdi Viren og Comaneci
AP-FRETTASTOFAN birti nýlega úrslit f kjöri sem hún gekkst fyrii
um „lþróttamann ársins 1976“. Tóku þátt f kjöri þessu fþróttafrétta-
menn fréttastofunnar um vfða veröld og urðu úrslit þau að í karla-
flokki hlaut finnska langhlauparinn Lasse Viren flest atkvæði, en f
kvennaflokki rúmenska fimleikastúlkan Nadia Comaneci. Bæði sigr-
uðu Viren og Comaneci með nokkrum yfirburðum f atkvæðagreiðsl-
unni, einkum þó Viren, en sem kunnugt er hlaut hann gullverðlaun á
Ólympfuleikunum f Montreal bæði f 5000 og 10.000 metra hlaupi, og
varð að auki sjötti f maraþonhlaupinu.
Tfu efstu f atkvæðagreiðslu AP urðu eftirtalin:
KARLAR:
1) Lasse Viren, Finnlandi
2) Alberto Juantorena, Kúbu
3) John Naber, Bandarfkjunum
4) Björn Borg, Svfþjóð
5) Ingemar Stenmark, Svfþjóð
6) Bruce Jennar, Bandarfkjunum
7) Freddy Maertens, Belgíu
8) James Hunt, Bretlandi
9) Franz Klammer, Austurrfki
10) Muhammed Ali. Bandarfkjunum
KONUR:
1) Nadia Comaneci, Rúmenfu
2) Kornelia Ender, A-Þýzkalandi
3) Rosi Mittermaier, V-Þýzkalandi
4) Chris Evert, Bandarfkjunum
5) Irena Szewinska, Póllandi
6) Tatiana Kazankina, Sovétrfkjunum
7) Annegret Richter, V-Þýzkalandi
8) Ulrike Richter, A-Þýzkalandi
9) Sheila Young, Bandarfkjunum
10) Nelli Kim, Sovétrfkjunum
mms
Andy Gray
mundir.
talinn
sóknarleikmaður f Englandi
þessar
10 beztu í Englandi
— frjálsar fþróttir
— frjálsar fþróttir
— Sund
— tennis
— skfðafþróttir
— frjálsar fþróttir
— hjólreiðar
— kappakstur
— skiðafþróttir
— hnefaleikar
fimleikar
— sund
— skfðafþróttir
— tennis
— frjálsar fþróttir
— frjálsar fþróttir
— frjálsar fþróttir
— sund
— skautafþróttir
— fimleikar
BREZKA þ]aðið Sunday People
birti nýlegá kjör sitt á 10 beztu
leikmönnum ensku knattspyrn-
unnar, eftir þeim stöðum sem
þeir leika á vellinum. Urðu eftir-
taldir fyrir valinu:
Markverðir:
Clemence (Liverpool), Keelan
(Norwich), Platt (Middles-
brough). Shilton (Stoke), Harvey
(Leeds), Parkers (Q.P.R.),
Rimmer (Arsenal), Corrigan
(Manchester City), Latchford
(Birmingham) og Wallinton
(Leicester)
Varnarmenn:
Clarke (Sunderland), Gallagher
(Birmingham), Gidman (Aston
Villa) McFarland (Derby),
Thompson (Liverpool), Doyle
(Manchester City) Cooper
(Middlesbrough), Beattie
(Ipswich), Nicholl (Aston Villa)
og Dodd (Stoke).
Miðsvæðismenn:
Currie (Leeds), Kennedy
(Liverpool) Towers
(Sunderland), Callaghan
(Liverpool), Giles (West
Bromwich), Brady (Arsenal),
Talbot (Ipswich), Brooking
(West Ham), Hartford
(Manchester City) og Train
(Sunderland).
Framherjar:
Gray (Aston Villa), Keegan
(Liverpool), Francis
(Birmingham) Bowles (Q.P.R.)
Armstrong (Arsenal), Whymark
(Ipswach), Gowling (Newcastle),
Tueart (Manchester City), Mill (
Middlesbrough) og Burns
(Birmingham).
Arangur Belgiumanna í
Evrópubikarkeppninni að þessu
sinni hefur vakið mikla athygli,
svo var reyndar einnig I fyrra er
Anderlecht varð Evrópumeistari
bikarhafa og FC Briigge komst f
úrslit I UEFA keppninni, en
tapaði þar fyrir Liverpool.
Að þessu sinni tóku fimm
belgisk lið þátt I Evrópubikar-
keppninni og eru þrjú þeirra eftir
enn: FC BrUgge i meistara-
liðakeppninni, Anderlecht í
bikarhafakeppninni og Racing
White Moolenbek I UEFA-
keppninni.
Árangur Spánverja er raunar
sá sami — þrjú lið eftir af famm
sem upphaflega kepptu. Það eru
Atletico Madrid, FC Barcelona og
Atletico Balbao. Það voru
Spánverjum þó mikil vonbrigði
að það lið sem þeir bundu mestar
vonir við, Real Madrid, var slegið
út er það mætti FC Briigge.
önnur lönd sem eiga enn þrjú
lið I keppninni eru England (sex
tóku þátt) og V-Þýzkaland (sjö
tóku þátt).
Austur-Þýzkaland og ítalia eiga
tvö lið eftir I keppninni, en
margar rótgrónar knattspyrnu-
þjóðir eiga ýmist eitt lið eða
ekkert eftir. Meðal þeirra er
Rúmenía, en knattspyrnumönn-
um þess lands hefur ekki vegnað
vel að undanförnu. I Evrópu-
keppninni léku þeir t.d. 12 leiki,
unnu aðeins einn og markatalan
var 7—21.
Fljótlega verður dregið um
hvaða lið mætast í undanúrslitum
keppninnar, en ekki er úr vegi að
rifja upp hvaða lið verða i hattin-
um.
Evrópubikarkeppni meistaraliða
Borussia Mönchengladbach og
Bayern MUnchen frá Vestur-
Þýzkalandi, Liverpool frá
Englandi, FC BrUgge frá Belgíu,
Dynamo Kiev frá Sovétrikjunum,
Dynamo Dresden frá Austur-
Þýzkalandi, FC ZUrich frá Sviss
og St. Etienne frá Frakklandi.
Evrópubikarkeppni bikarhafa
Hamburger SV frá Vestur-
Þýzkalandi, Southampton frá
Englandi, Anderlecht frá Belgiu,
Atletico Madrid frá Spáni, Napoli
frá Italiu, MTK Budapest frá
Ungverjalandi, Levsky frá
Búlgariu og Slask Wroclaw frá
Póllandi.
UEFA-bikarkeppnin
Queen Park Rangers frá
Englandi, Racing White frá
Belgiu, Magdeburg frá A-
Þýzkalandi, FC Barcelona frá
Spáni, Atletico Balbao frá Spáni,
Juventus frá ítalíu, AEK frá
Grikklandi og Feyenoord frá Hol-
landi.