Morgunblaðið - 16.01.1977, Page 1
48 SÍÐUR
ll.tbl.64.árg.
SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
22 fórust i
flugslysi í
Svíþjód
Hér má sjá hve litlu munaði að Viscountvélin lenti á raðhúsum við bílastæðin, en
talið er að flugmaðurinn hafi skellt vélinni til jarðar á þessum stað til að forðast
að lenda á húsunum.
Stokkhólmi, 15. janúar.
NTB—Reuter.
22 FARÞEGAR og flugliðar fór-
ust með Viscountflugvél frá
sænska flugfélaginu Linje
flyg. Flugvélin hrapaði til
jarðar I Spanga fyrir NV Stokk-
hólm f morgun. Var flugvélin I
innanlandsáætlunarflugi á leið
frá Bromma til Jönköping er slys-
ið varð. Vélin hrapaði 10 metra
frá fbúðarhúsi og kviknaði f gafli
þess vegna hitans frá brennandi
Gilmore
skotinn
á morgun
Salt Lake City,
15. janúar. Reuter
BANDARÍSKI afbrotamaður-
inn Gary Gilmore verður
tekinn af lifi í dögun á
morgun, mánudag. Verður
hann nánar tiltekið skotinn til
bana um kl. 12.49 að fsl. tíma.
Siðustu tvær tilraunir mann-
réttindasamtaka til að fá af-
tökunni frestaó fóru út um
þúfur i gær en tveir dómstólar
vísuðu slikum beiðnum frá. Þá
hefur fylkisstjórinn i Utah
einnig útilokað að náðun komi
til greina. Bendir því allt til að
Gilmore fái loksins vilja sínum
framgengt, að dauðadómnum
yfir honum verði framfylgt.
flakinu, en fljótlega tókst að
slökkva eldinn.
Skv. lýsingum sjónarvotta virð-
ist sem flugmaðurinn hafi átt í
erfiðleikum með stjórn vélarinn-
ar og að hann hafi af ásettu ráði
skellt henni til jarðar á þessum
stað, þvi að þar sem vélin kom
niður var stórt bílastæði við
verzlunarmiðstöð en hús allt í
kring. AIls eru þarna 103 raðhús.
Einn sjónarvottur segist hafa séð
eld í flugvélinni áður en hún skall
til jarðar. Vélin hefði komið út úr
þokubakka í um 200 metra hæð og
er hún hafi verið að koma að
bilistæðinu hafi hún skyndilega
hallazt og skollið til jarðar með
miklum hvin. Viscountflugvélarn-
ar eru 4 hreyfla og taka um 80
farþega. Þeir voru aðeins 19 i
þessari ferð og þriggja manna
áhöfn.
AP-simamynd.
Formlegar handtökur hafnar
vegna „Mannréttinda 77”
Vinarborg, 15. janúar. Reuter
LEIKRITAHÖFUNDURINN Vaclav Havel og blaðamaðurinn Jiri
Lederer, sem báðir hafa verið í stöðugum yfirheyrslum f Prag undan-
farna daga, hafa nú verið handteknir, en það eru fyrstu formlegu
handtökur þeirra, sem standa að „Mannréttindum 77“ í
Tékkóslóvakiu.
Eiginkona Havels sagði i dag,
að hún hefði haft samband vað
Smith gagnrýn-
ir I vor Richard
New York, 15. janúar. Reuter.
IAN Smith, forsætisráðherra
Rhódesíu, sagði í dag að ferð Ivor
Richards, formanns Genfarráð-
stefnunnar um framtíð Rhódesfu,
um suðurhluta Afrfku virtist ætla
að verða algerlega árangurslaus.
Smith gagnrýndi harðlega þá
afstöðu, sem Bretar hafa tekið,
sagði þá hikandi og veika og til-
búna til að gefa eftir og þóknast
hverjum sem væri hvenær sem
væri, oft mönnum sem hefðu ekki
minnsta áhuga á að árangur næð-
ist á ráðstefnunni.
Smith sagði að öryggi Rhódesiu
og vesturlanda yrði stefnt í hættu,
ef Jimmy Carter, kjörinn Banda-
ríkjaforseti, léti viðgangast til-
raunir Sovétmanna til að koma á
róttækri stjórn blökkumanna í
Rhódesiu. Smith sagði þetta i við-
tali við bandaríska stórblaðið The
New York Times og að ef róttækir
menn kæmust til valda í Rhódesiu
myndu Sovétríkin taka landið og
Peter Finch
þá yrði það upphafið að endinum
fyrir allan suðurhluta Afriku og
gífurlegt áfall fyrir framtíð hins
frjálsa heims.
lögregluna þegar hana var farið
að lengja eftir manni sínum úr
yfirheyrslu í gærkvöldu og hefði
henni þá verið tjáð að handtaka
hefði farið fram. Síðdegis í gær
var vitað að Lederer hefði verið
andtekinn. Frú Havel sagðist ekki
hafa upplýsingar um hverjar for-
sendurnar fyrir höndtökunum
væru.
Þeir Havel og Lederer voru
báðir handteknir eftir innrás
Sovétrikjanna í Tékkósióvakíu
árið 1968 en var sleppt skömmu
siðar. Havel var rekinn frá starfi
sinu við Balustade-leikhúsið í
Prag. Siðan hafa verk hans ekki
fengizt sýnd opinberlega, og
honum hefur hvað eftir annað
verið neitað um vegabréfsáritun
til að fylgjast með því sem er að
gerast i leikhúslífi erlendis.
Havel hefjur jafnan verið
ómyrkur í máli um álit sitt á vald-
höfum í Tékkóslóvakíu og i opnu
bréfi til Husaks forseta árið 1975
segir hann að tékkóslóvakískt
þjóðfélag sé grundvallað á
hræðslu og sinnuleysi. „Það er
satt að kyrrð ríkir í landinu —
kyrrð eins og í grafhýsi, finnst
yður ekki?“
Framhald á bls. 47
Daoud kveðst vilja koma
fyrir rétt í V-Þýzkalandi
Paris, 15. janúar. AP.
t SÍMTALI við AP-fréttastofuna í
dag sagðist Abu Daoud, sem nú er
f aðalstöðvum Al Fatah-
hreyfingarinnar I Alsfr, reiðubú-
látinn
Los Angeles, 15. janúar.
Reuter.
PETER Finch, kvikmyndaleikar-
inn heimskunni, lézt af hjarta-
slagi f Beverly Hills f gær, sextug-
ur að aldri. Hann hefur mjög ver-
ið nefndur f sambandi vð úthlut-
Framhald á bls. 47
Bukovski um sprenginguna í Moskvu:
Útilokar hvorki
KGB né andófsmenn
París* 15. janúar. AP.
RÚSSNESKI andófsmaðurinn Vladimir Bukovsky, sem kom til
Parísar f dag, segist vera sammála Andrei Sakarov um að KGB
hafi ef til vill sett á svið sprenginguna, sem varð f neðanjarðar-
járnbrautarstöð f Moskvu fyrir skömmu, en hann kvaðst ekki
geta útilokað þann möguleika. að andófsmenn hefðu verið þdr að
verki.
I viðtali við franskan frétta-
mann við komuna til Parísar
kvaðst Bukovsky þeirrar skoð-
unar að KGB væri að undirbúa
réttarhöld yfir ýmsum þekkt-
um andófsmönnum, þar á með-
al Yuri Orlov, Alexander
Ginzburg og Ludmillu
Alexeyeva. Hann sagði að vest-
rænar þjóðir yrðu að vera á
varðbergi gegn tilraunum
Sovétmanna til að koma fram
vilja sínum i sambandi við túlk-
un Helsinki-yfirlýsingarinnar.
Um sprenginguna í neðan-
jarðarstöðinni sagði Bukovsky:
„Það er hvorki hægt að útiloka
aðild KGB né andófsmanna að
sprengingunni, en hvernig sem
á málið er litið er ábyrgðin hjá
sovézkum yfirvöldum. Meó af-
stöðu sinni verða þau þess vald-
andi að ábyrgðarlausir meðlim-
ir andspyrnuhreyfingarinnar
beiti ofbeldi. KGB sakar okkur
um ofbeldi til að sverta okkur í
augum fólksins í landinu, en
fólkið þekkir okkur og á endan-
um munu vopnin snúast i hönd-
Framhald á bls. 47
inn til að koma fvrir rétt f Vestur-
Þýskalandi til að standa fyrir
máli sfnu.
„Ég færi eins og skot. Eg tæki
fyrstu vél,“ sagði Daoud. „Ég er
saklaus og held því fram að
ásakanirnar á hendur mér séu
uppspuni frá ísraelsmönnum og
Zionistum. Ég vil fara til Þýzka-
lands til að sýna heiminum að ég
er saklaus, en fyrst verður stjórn-
in þar að tryggja mér vernd, og
þessu verður að koma i kring með
milligöngu PLO.“.
Þetta skilyrði Daouds virðist
eiga að vera þrýstingur um viður-
kenningu vestur-þýzku stjórnar-
innar á PLO. Samtökin hafa ekk-
ert stjórnmálalegt samband við
Vestur-Þýzkaland, og i ljósi þessa
virðist ekki liggja alvara á bak vió
tilboð Daouds um að koma fyrir
rétt.