Morgunblaðið - 16.01.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANÚAR 1977
3
Geta myndsegulbönd
leyst sjónvarpsvanda-
málið á miðunum?
SAMKVÆMT áætlun, sem gerð
hefur verið um dreifingu sjón-
varps, mun það kosta um það
bil hálfan annan milljarð
króna að koma sjónvarpssend-
ingum út á hin hefðbundnu
mið fslenzkra fiskiskipa um-
hverfis landið. t þvf sambandi
hafa menn velt þvf fyrir sér,
hvort ekki gæti verið ódýrara
og hagkvæmara að setja um
borð í fslenzk skip myndsegul-
bandstæki, sfðan sé dagskrá
sjónvarpsins tekin upp á mynd-
segulbönd og þau send um borð
f skipin.
Slíkt myndsegulband mun
vera til í nokkrum íslenzkum
skipum, en tækið kostar um
hálfa milljón króna. Rafn
Johnson, forstjóri Heimilis-
tækja h.f., sem selur slík tæki,
teiur að slíkt kerfi yrði mun
ódýrara en að koma á fót send-
ingum út á miðin og sagði hann
í viðtali við Morgunblaðið að
vel mætti hugsa sér, að sjón-
varpið kæmi á fót þeim þjón-
ustulið, að dreifa slikum mynd-
segulböndum til íslenzkra
skipa. Gætu menn þá sent inn
þær spólur, sem menn væru
búnir að skoða og fengið nýjar í
staðinn með nokkurra daga
millibili, eða þegar viðkomandi
skip kæmi i höfn. Rafn sagði að
sá óhemjukostnaður, sem lagð-
ur yrði í dreifingu sjónvarps-
efnis úr strandstöðvum myndi
aldrei geta náð til allra skipa,
hvar sem þau væru staðsett og
þegar skipin væru komin eitt-
hvað frá landi, yrði að setja upp
dýr stefnuloftnet og annan út-
búnað til þess að ná sending-
unni. Jafnframt væri ekki
tryggt að allir skipverjar hefðu
möguleika á að sjá dagskrána
þá er hún er send út. Hins
vegar væri unnt að skoða það
efni, sem áhöfnin fengi á mynd-
segulböndum, þegar það hent-
aði viðkomandi. Hver spóla,
sem efnið er tekið upp á kostar
um 25 þúsund krónur, en hana
má nota alloft, þannig að Rafn
taldi þetta ekki vera mikinn
kostnað fyrir útgerðarfyrir-
tæki.
Rafn kvað þessi myndsegul-
bönd gefa kost á litmyndum.
Ekki taldi hann nauðsynlegt að
senda allar fréttasendingar
sjónvarpsins, þar sem þær yrðu
orðnar of gamlar og sjómenn-
irnir hefðu þegar fengið þær úr
útvarpi. Hins vegar væri hægt
að sýna þeim á segulbandi alla
áhugaverða þætti. Með þessu
kvað Rafn unnt að spara stórfé
fyrir rikið i stofnkostnaði end-
urvarpsstöðva og koma upp
kerfi, sem fullnægði kröfum
sjómannanna enn betur.
Sveinn Ingólfsson á Skaga-
strönd, sem gerir út Arnar, hef-
ur frá því i fyrra haft segul-
bandstæki um borð í skipi sinu
og tekur hann upp heima hjá
sér dagskrá sjónvarpsins og eru
böndin siðan send um borð.
Hann kvað þetta hafa gefizt
mjög vel, en þeir þurfa að hafa
tvö tæki annað um borð og hitt
til þess að annast upptökuna i
landi. Skipið kemur i land á um
það bil viku fresti til 10 daga og
er þá skipzt á spólum. Þegar
þessi tæki voru keypt fyrir ári
kostuðu þau um eina milljón
króna. Hafa þeir aðeins miðlað
áhöfninni íslenzku
sjónvarpsefni, en hins vegar
munu möguleikar á að gerast
áskrifendur að ýmsum þáttum
erlendis og ganga menn þá í
sérstaka klúbba til þess að
verða sér úti um það efni.
Sveinn kvað þetta kerfi hafa
reynzt vel hvað við kemur
fræðslu- og kvikmyndir, en
áhuginn sagði hann mestan á
fréttum yfirleitt. Eru þær orðn-
ar allt of gamlar, þegar þær
koma út á sjó. „Því er undan-
tekning ef ég tek þær upp,“
sagði Sveinn, sem sagðist jafn-
framt velja úr helztu menning-
arþættina eins og hann komst
að orði. Þá minntist Sveinn á
það að í hvert skipti sem brælir,
liggja um 10 til 40 skip í vari
t.d. undir Grænuhlíð. Er það
rétt andspænis Bolungarvík, en
þrátt fyrir það eiga þessi skip
ekki möguleika á að sjá sjón-
varp þar. Taldi Sveinn að það
væri litil fyrirhöfn að beina
geislanum þangað.
Sveinn Ingólfsson kvað þetta
framtak útgerðarinnar hafa
verið ákaflega vinsælt um borð
í Arnari. Á 12 til 14 spólum fær
áhöfnín i hvert skipti um 10
klukkustunda myndefni. Hið
eina sem hann setti út á þetta
var að spólurnar væru of dýrar,
hver kostar 25 þúsund krónur
og getur tekið upp klukku-
stundar efni. Er unnt að nota
hana frá 50 og upp í 100 skipti.
Einstaka efni er spilað oftar en
einu sinni, svo sem t.d. iands-
leikir og eru þá spólurnar oft
fljótar að fara eins og Sveinn
sagði.
Um það, hvort þetta kerfi
gæti verið framtiðarlausn í
sambandi við sjónvarpssend-
ingar út á miðin — sagði
Sveinn, að sér hefði oft fundizt
þetta æsa upp i sjómönnum
sjónvarpssult. „Þeir eru
kannski úti i 8 daga og á þess-
um dögum er 20 klukkustunda
dagskrá. Ég sendi þeim ekki
nema helminginn og aldrei
fréttir. Missa þeir því af tals-
verðu. Hafa þeir því talað mikið
um það að sendingar þyrftu að
komast út á miðin beint."
Kínverskar myndir
1 Norræna húsinu
„MYNDIR frá Kína“ er heiti
fyrirlestrar, sem dr. fil. Olov
Isaksson, forstöðumaður við
Ilistoriska Museet f Stokkhólmi,
heldur f Norræna húsinu ð mánu-
daginn, 17. janúar. Með fyrir-
lestrinum verða sýndar litskugga-
myndír.
Dr. fil. Olov Isaksson er hér á
landi f boði Norræna hússins og
heldur hann tvo fyrirlestra þar.
Isaksson er þekktur á tslandi m.a.
vegna bókarinnar Is och Eld, sem
út kom 1971 og 1973 . Bók þessa
samdi hann f tengslum við
Islandia, Ijósmyndasýningu, sem
hefur farið um öll Norðurlönd og
Framhald á bls. 47
Nefnd skipuð til að gera úttekt
á loðnu- og lifrarbræðslum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
skipað sérstaka nefnd til að gera
úttekt á loðnu- og lifrarbræðslum
f landinu. Hlutverk nefndarinnar
er að gera heildaráætlun um af-
kastaþörf loðnuverksmiðja, sem
byggð er ð áætlun um hráefnis-
öflun miðað við þann loðnuveiði-
skipaflota, sem nú er til staðar,
svo og á ástandi loðnustofna. Þá
skal nefndin gera tillögur um
stækkun og breytingar þeirra
verksmiðja sem fyrir eru kanna
möguleika á að minni verk-
smiðjur, sem unnið geta feitfisk,
verði hagnýttar til loðnuvinnslu
og gera tillögur um byggingu
nýrra verksmiðja, stærð þeirra,
gerð og staðarval.
í fréttatilkynningu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu segir, að við
gerð heildaráætlunar sem
þessarar verði áherzla lögð á að
samræma sem bezt veiðar og
vinnslu i þeim tilgangi að stytta
flutningsleiðir. Jafnframt er
nefndinni falið að kanna hvar
lifrarbræðslur eru starfræktar nú
og hvar sé þörf fyrir nýjar með
það fyrir augum að nýta alla lifur
svo sem kostur er.
Aherzla verður lögð á að
nefndin hraðí störfum sinum og
skili áliti svo fljótt sem unnt er en
í nefndina voru skipaðir eftir-
taldir menn: Björn Dagbjartsson,
forstjóri Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, formaður, Ingólf-
ur Ingólfsson vélstjóri, Július
Stefánsson, verkfræðingur og
Þorsteinn Gislason skipstjóri.
Með fyrirhyggju tekst enn að gera
draumaferðma að veruleika Aðeins
6—8 þúsund króna
sparnaður á mánuði er allt sem þarf til
að komast í-eftirsóttustu sólarferðirnar t
suðurlondum —
- ÚTSÝNARFERÐIR — en þær selj-
ast upp löngu fyrirfram — þvi að allir
mæla með Útsýnarferðum
Spánn: Costa del Sol: Costa Brava: Ítalía: Lignano:
Apr. 6., 17.
Mai 8., 29. 20 11.
Júni 19. 10. 1 . 22.
Júli 3., 17., 24., 31. 1., 15.. 29. 6 . 13 , 20., 27.
Agúst 7., 14., 21., 28. 12., 19., 26 3., 10., 1 7., 24., 31.
Sept. 4., 11., 18., 25. 2., 9 7
Okt. 9.
Kanaríeyjaferðir vikulega Vikuferðir til London á þriðjudögum og laugardögum
Ódýrar Ódýrar helgarferðir til
Kaupmannahafnar Glasgow
ferðir
Flugfarseðlar um allan heim, gefnir út af kunnáttufólki,
sem tryggir hagstæðustu fargjöld og beztu þjónustu.
Fe rða sk rif stof a n
ÚTSÝN
Einkaumboð á Islandi:
Tjæroborg - American Express.
Austurstræti 17,
sími 26611