Morgunblaðið - 16.01.1977, Page 7

Morgunblaðið - 16.01.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANÚAR 1977 7 í siðustu sunnudagsgrein minni lét ég tjörguðu glugga- hlerana, sem áður fyrr voru notaðir til að loka úti sólar- birtuna við jarðarfarir en nú eru faldir gleymskunni og rykinu undir rjáfri Dómkirkj- unnar, minna okkur á, hve stórkostlega hafa breytzt við- horf manna til dauðans. Nú vendi ég mínu kvæði i kross, og mig langar til að eiga orðastað við þá, sem þessa þætti lesa, um lífið og barátt- una í annarri mynd. Skammt er liðið siðan við spurðum með sra Matthíasi: ,,Hvað boðar nýárs blessuð sól?" Þótt „skyggi Skuld fyrir sjón" þegar til hins ókomna er horft er víst að til baráttu i ýmsum myndum mun kalla hver morgunn á nýju ári, og þess vegna kýs ég okkur samfylgd manns, sem að báráttuþreki og karlmennsku stendur flestum framar. Hver er hann? í ægiljóma stígur fram myndin af Páli postula Við sjáum hann fara land úr landi, borg úr borg, á furðu- legri ferð. Margfaldur háski beið hans á landi og sjó. Árin risa, árin hniga, en þaðer eins og ekkert fái heft för þessa hamslausa manns, og þegar hann lætur lifið i of- sókn Nerós í Rómaborg lýkur hann sögu, sem lítt er hugsanlegt að geti gleymzt. Frásögnin, sem ég hef eink- um i huga nú, gerir mynd hans ennþá stærri en hún væri ella. Hann er að skrifa vinum i Korintuborg, vinum sem hann hafði bundið miklar vonir við en eru nú að bregð- ast. Hér er mikið í veði og honum svellur móður. Hann grípur til þess að bregða upp fyrir þessum mönnum mynd úr því auðuga vitranalifi, sem hann hafði lifað. Sál hans skelfur, er hann segir frá þeirri náð, sem Guð hafði veitt honum á slíkum stund- um, en segir um leið frá því aðjafnframt þessum stóru gjöfum hafi Guð lagt á sig sjúkdómsfjötur, sem hann kallar „flein í holdi", „satans engil" til að slá sig. Það er tilgangslaust að reyna að geta sér til um það, ar ekki margir, sem nú lesa þýðingu sra Jóns á Bægisá á Paradísarmissi Miltons. En það meistaraverk leysti Milt- on af hendi eftir að hann var orðinn blindur. í myrkri sat hann við að mála þessar töframyndir tungunnar Gæti hún ekki verið gagn- leg á erfiðum vegi samfylgd- in við menn eins og þá, sem nú var minnzt? En hverjir eru hinir „erfiðu vegir"? Menn tala um erfiðleika hér. Árið hófst með einstakri árgæzku til lands, sjórinn kringum landið var fullur af fiski og atvinna var nægileg fyrir ná- lega hverja starfsfúsa hönd Vitanlega búa margirvið skarðan hlut og hafa eðlileg- ar áhyggjur af afkomu sinni. Þeirra hlut þarf að rétta, og það er hægt að rétta hann. Hitt er ískyggilegra, að marg- ir þeir kvarta, sem siður hafa ástæðu til þess, eða enga. Sé um erfiðleika að ræða í efna- hagsmálum þjóðarinnar er það okkar sjálfra sök, þá hafa hvorugir kunnað sér hóf, stjórnarvöld né borgararnir. Væri ekki okkur öllum hollt að eiga samfylgd á veginum þeirra manna, sem sýnt hafa það, að þrátt fyrir erfið ytri kjör er hægt að risa hátt og vera maður? En erfið ytri kjör geta verið smámunir einir hjá vanda- málum einkalífsins, sorgum og örlögum, sem oft þarf mikinn manndóm til að bera án þess að brotna eða bogna Þá byrði bera margir fallega. Ekki þarf til þess fjörutíu ára prestsþjónustu að sjá það, sjá og dást að þvi Þeim, sem þá erfiðu vegi ganga, gæti verið lærdóms- rikt að minnast manns, sem „með flein f holdi" bar erfiðan sjúkdóm á sinni sigurgöngu og barðist þann- ig, að blóðugur píslarvættis- dauði varð ófölnandi sigur- sveigur á ævilokum hans. Um það langar mig að mega eiga við þig orðastað næsta sunnudag. Svo stór- kostleg er sú saga. Svo lær- dómsrik eru þau fáu orð í bréfum Páls, sem segja frá því, hvernig hann barsina byrði, hvernig hann barsinn kross. Með flein r i holdi hver þessi sjúkdómur var. Um það er Páll hljóður sjálf- ur. Hann skrifar nálega öll bréf án þess að vikja orði að þessari þungu byrði, nefnir hana aldrei, nema í þetta eina sinn, þegar honum verð- urákaflega þungt í skapi við Korintumenn og vill brýna þá. Það er gott að eiga sam- fylgd slikra manna á erfiðum vegi og fleiri eru þeir en Páll postuli, sem við andstæð kjör hafa barizt til sigurs. Allur heimur mætti dást að afreki Pasteurs. Hann var innan við miðjan aldur þegar hann fékk heilablóðfall og vann eftir það sjúkur maður afrek sin til blessunar sjúkum mönnum æ siðan. Beethov- en var sjúkur maður og kvaldist auk þess af ótta við heyrnarleysið, sem varð hans örlagadómur um miðjan ald- ur, en hann skóp við þær aðstæður sum þau tónverk, sem lyft hafa hvað hæst hljómlistinni á jörðu og síðar eru örlagadómur yfir öllu i þeirri listgrein, sem er ómerkilegt, litið og lágt. Líklega eru þeir íslending- C ELDHÚSINNRÉTTINGAR L KLŒÐASKÁPAR AF LAGER OG BAÐSKAPAR (L VIÐ nú getum við afgreitt heilu eldhúsin I Ennfremur fyrirliggjandi 40 og 50 mælum skipuleggjum og teiknum af lager með nokkurra daga fyrir- cm fataskápar Hæðin er 210 cm ykkur að kostnaðarlausu og án allra vara Staðlaðar skápaeiningar I úr Mismunandi innréttingar Baðskáp skuldbmdmga af ykkar hálfu vah Tvö útlit — brúnbæsuð fura ar með frönskum hurðum úr Ijósri „exklusic" og eikarliki úr plasti _furu ____________ Komið og sjáið hvað við höfum. H Kalmar innréttingar hf. V Intcrtér Grensásvegi 22 Reykjavtk stmi 82645 Fyrirlestrar í Norræna húsinu: Sunnudaginn 16.janúarkl. 16.00 ANTERO KARE, listfræðingur: „Hándelser och mánniskor í finlándsk konst'' (m/ kvikmynd). Mánudaginn 1 7. janúar kl. 20.30 DR. OLOF ISAKSSON: „Bilder frán Kina'' (m/ litskyggnum). fimmtudaginn 20. janúar kl. 20.30 DR. OLOF ISAKSSON: „Frán Olaus Magnus til Hasse Alfredsson" (um sænskar íslandsbæk- ur). Finnska listsýningin er opin daglega kl. 14.00—19.00 í sýningarsölunum í kjallara. Norræna húsið. Veriðvelkomin NORFÆNK HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS Höfum kaupendur aS eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPAISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS Kaupgengi pr. kr. 100 - 1966 1 flokkur 1605 24 1966 2 flokkur 1505 48 1967 1 flokkur 141627 1967 2 flokkur 1406 95 1968 1 flokkur 1231 07 1968 2. flokkur 1 1 58 49 1969 1 . flokkur 856 94 1970 1 flokkur 796 95 1970 2. flokkur 587 22 1971 1 flokkur 556.30 1972 1 flokkur 485 46 1972 2 flokkur 420 45 1973 1 flokkur A 326 79 1973 2 flokkur 302.05 1974 1 flokkur 209 79 1975 1 flokkur 17151 1975 2 flokkur 130 88 1976 1 flokkur 123 82 HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐ: Kaupgengi pr. kr. 100 - 1972 A 369 72 (10% afföll) 1974 E 169 74 (10% afföll) Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPAISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Solugengi pr. kr. 100.- 1965 1 flokkur 2025 47 HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100 - 1974 D 244 14 (8 4% afföll) VEÐSKULDABRÉF: 2ja mánaða ríkistryggt skuldabréf (7% afföll) 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (36% afföll) 5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (45% afföll) HLUTABRÉF: Almennar Tryggingar HF Kauptilboð óskast PJflRPEfTinGARPÉIflG ÍStflflDS HP. Verðbréfamarkaður Lækjargötu 12, R (Iðnaðarbankahúsinu) Sími20580 Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.