Morgunblaðið - 16.01.1977, Blaðsíða 27
MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.JANUAR 1977
27
Sjötugur:
Árni Einarsson
fr amkvæmdast j óri
Árni Einarsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuheimilisins að
Reykjalundi verður sjötugur á
morgun.
Árni er fæddur að Hvoli á Akra-
nesi þann 17. jan. 1907, sonur
hjónanna Einars Tjörvasonar og
Sigríðar Sigurgeirsdóttur.
Hann ólst upp I föðurhúsum á
Akranesi en fluttist til
Reykjavíkur 17 ára til frekara
náms.
18 ára eða 1925 veiktist hann af
lungnaberklum og var af og til
sjúklingur á berklahælum fram
til ársins 1933.
Á þessum árum var berkla-
veikin i hámarki hér á landi og
möguleikar til lækninga af skorn-
um skammti.
Engin lyf er að gagni mættu
verða voru þá til, skurðaðgerðir
voru fábreyttar og árangur þeirra
oft vafasamur. (
Þeir sem þá dvöldu árum 'saman
á berklahælum hlutu þvi að verða
fyrir djúpstæðum og varanlegum
áhrifum af því hörmungarástandi
er þar ríkti, af þvi vonleysi og
þeirri beiskju er gjarnan greip
um sig meðal ungmenna er sáu
vini og góða félaga verða undir i
lífsbaráttunni án þess að nokkur
fengi rönd við reist.
Árni mun hafa verið einn af
þeim mörgu er þá strengdi þess
heit að ljá baráttunni gegn
þessum skæða óvini unga fólksins
lið ef hann á ný fengi starfskrafta
og möguleika til liðveislu við þá
er gegn berklunum börðust. Er
Árni hafði öðlast heilsu á ný, þá
tók hann þegar til starfa á félags-
málasviði, og valdi sér einnig
aðalstarf er gaf honum aðstöðu til
snertingar við fjöldann og þar
með aðstöðu til þess að kynnast
félagslegum vandamálum sam-
tíðarinnar. Hann gerðist árið 1934
afgreiðslumaður verkalýðsblaðs
og slðar Þjóðviljans.
Hann starfaði sfðan um árabil
sem framkvæmdastjóri
prentverksmiðju Þjóðviljans,
hann var virkur félagi í
Kommúnistaflokki Islands árin
1934—1938 og einn af stofn-
endum socialistaflokksins.
Árið. 1938 stofnuðu berkla-
sjúklingar samtök sín, SIBS.
Árni var einn af stofnfélögum
Reykjavíkurdeildar SÍBS og
stjórnarmeðlimur þar frá
upphafi. Árið 1942 var hann siðan
kosinn I miðstjórn sambandsins
og átti þar sæti nær óslitið uns
hann nú nýverið lét af þeim
störfum að eigin ósk.
í stjórnarstarfi sambandsins
naut Árni sín sérlega vel, draum-
ur hans um liðveislu I baráttunni
gegn berklaveikinni var orðinn
veruleiki. Hann nauðþekkti vand-
ann, hann vissi hvar skórinn
kreppti sárast og þess vegna átti
hann ásamt þeim öðrum berkla-
sjúklingum er með honum
störfuðu á bernskuárum SÍBS
auðvelt með að ákveða sam-
bandinu þau verkefni er brýnast
var að leysa og þau verkefni er
mundu verða þeim berklasjúku
til mestra hagsbóta.
Þar var að sjálfsögðu brúin
milli hælisins og atvinnulifsins,
það er vinnuheimili og þjálfunar-
stöð fyrir berklasjúka, fyrsta og
aðalverkefnið. Árna var svo sem
öðrum forvígismönnum SÍBS
ljóst að erfið félagsleg staða
sjúklinganna er þeir komu út af
hælunum, óhentug atvinna og
fátækt voru megin orsakir þess
hve batinn entist illa hjá öllum
fjöldanum, hve margir þurftu að
fara inn á hælin hvað eftir annað
og þá máske með lélegri batahorf-
um en við fyrstu innlögn. Vinnu-
heimili skyldi byggja og þá var að
hefjast handa.
Fyrri hluta ársins 1944 varð
I stjórn SÍBS tíðrætt um þá
staðreynd að nokkur hundruð
afsláttur
af öllum vörum verzlunarinnar
frá 15.—25. janúar.
Gerið nú virkilega
góð kaup í
byggingavörum.
Nýborg (%)
BYGGINGAVÖRUR
ÁRMÚLA 23 SlMI 86755
NAFNNR. 6612-8830
Pantaðu „Hús & híbýli"
% Tlmaritið „Hús & híbýli" er banki hugmynda um húsa- og híbýlagerð, húsbúnað,
heimilistæki, farartæki, tómstundir, orlof, mat, drykk, heilsuna, heimilislífið, barna-
uppeldið.
# í 4. áskriftarárgangi eru fjögur blöð, tvö komin út og hin tvö á leiðinni. Áskrift
kostar aðeins 1.1 80 krónur. Og þó fylgja tvö eldri blöð I kaupbæti. Snedið pöntun og
áskriftargjald í ábyrgðarbréfi — eða hringið í síma 10678.
Ég panta öer meS áskrift aS tlmaritinu „Hús og hfbýli", Borgartúni 29,
Reykjavlk. Ég sendi áskriftargjald fyrir 4. áskriftarárgang, kr. 1.180,
hér með, en greiði áskriftargjaldið framvegis gegn giróinnheimtu.
Nafn:
Heimili:
Póststöð:
Nafnnúmer: Sfmi:
HÚSogHÍBÝLI
Svefnherberglð Baðherberglð
Hvernig getum við Innréttað
Raunhæf teið til að léttast
þúsund krónur voru í sjóði þeim
er sambandið hafði stofnað og
nefndist Vinnuheimilissjóður.
Þótti mönnum illt til þess að vita
að aurar lægju á vöxtum I
bönkum en berklasjúklingar
héldu áfram að búa við heilsu-
spillandi aðstöðu.
Þess vegna var farið I landaleit
og nú skyldi hafist handa. Sú leit
endaði á melbarði I landi Suður-
Reykja í Mosfellssveit. Lengi mun
mér minnisstætt er við Árni
ásamt fleiri SÍBS-félögum stóðum
á melbarði þessu á útsynnings-
éljagangi vorið 1944 og hugsuðum
til framtíðarinnar.
Þar eð afmælisbarn dagsins
kemur þar mjög við sögu, þá
finnst mér hlýða að minnast
aðeins á'atburðarás ársins 1944
varðandi SÍBS. Eins og áður er
sagt, þá lá okkur á vegna þess að
sjúklingarnir biðu.
1 mars 1944 festi miðstjórnin
kaup á landi undir vinnuheimilið.
5. apríl samþykkti miðstjórnin að
fá húsameistarana Bárð isleifsson
og Gunnlaug Halldórsson til þess
að teikna vinnuheimilið og skyldu
þeir skila tillögum fyrir 5. maí
það ár.
Þessi stutti frestur var þeim
settur, þrátt fyrir það að vinnu-
heimili fyrir berklasjúklinga væri
mjög óvíða til i heiminum og
varla nema eitt I Evrópu sem
sækja mætti fyrirmynd til.
6. maf samþykkti 4ða þing SÍBS
að byggja vinnuheimili
samkvæmt teikningum arkitekt-
anna og 10. mai kaus miðstjórn
þriggja manna byggingarnefnd
úr sinum hópi, þá Árna Einars-
son, Odd Ólafsson og Sæmund
Einarsson.
Árni Einarsson var kosinn for-
Framhald á bls. 37
Fyrirtæki Stjórnendur
15 námskeið
verða haldin á næstu mánuðum á vegum
Stjórnunarfélags íslands.
Nú er rétti tíminn til að skipuleggja fræðslu
starfsmanna. Athugið hvort einhver af eftirfar-
andi námskeiðum eigi ekki erindi til fyrirtækis
yðar.
h R IMA T R11) I R F; K ST R A R H .\ <. F R >: ÐI
haidið 7.—II. frbrúar. Samlals 22 klsl.
LrWbeinandi: Br> njvlfur SiKurdsson dósrnt
BðKFÆRSLA 1
haidtó 7.—10. febrúar. Samtals 22 kls|.
l.rMbrinandi: Kristján Aóalslcinssun viðskiptarrædinKur
FJ.VRMAL I
haldió U.—22. febrúar. Samtals2-t klst.
I.eióbeinandi: A rni \ ilh jálmsson prnfessor
FRAMI.FIHSM STt Rl\<i & \ FRKSMIt)Jl SKI»'I I A<.MRNAR
haldió 23.-25. fehrúar. Samtals 12 kist.
I.rióheinandi: llrlj*i hórðarson vrrkfræðingur
I>F A P-STJÓ R\l'N.\R\A MSKF.II>
haldið 2<».—27. frhrúar. Samt als H klst.
I eiðhrinandi: Árni Árnasnn rekstrarhagfra-ðingur
FVÐtBIADAT/TKNI
haldið 2*. frhrúar — 4. mar/.. Samtals 15 klst.
I.eiðbetnandi: Sverrir Júllusson rekstrarhagfra^ðingur
BOKF.FRSI.A II
haldið 7. —10. mar/_ Samtals 22 klst.
l.eiðhrinandi: Kristján Aöalstrinsson viðskiptafra'ðingur
KNSK VIÐSKIPTABRÉF
haldið 7.—9. marz. Samtals 6 klst.
I.eiðheinandi: Pétur Snrland \ iðskiptafra'ðingur og löggiltur dómtúlkur
STJÓRNl’N II
haldið 14.—18. marz. Samtals2SH klst.
I.eiðbeinandi: Brv njólfur Bjarnason rekstrarhagfra ðingur
t’M ÞJÓOARBt SKAITW
haldið 14.—IX. mar/. Samtals 17H klst.
I.eiðheinendur: Jðn Sigurðsson hagrannsnknarst jóri. Ólafur Dav lósson hagfræð-
inKur og Ilallgrimur Snurrasun hagfræðingur.
SAI.A. VFRI>BÓl.<iA. ÓVISSA. AH/KTTA
haldið 29.—31. marz. Samtais 24 klst.
l eiðhemandi John W inkler frá Fnxlandi.
M ARKAOSSÓK.N
haldið IX.—25. aprll. Samtals iö klst.
I.túðheinandi: Rrvnjóifur Sigurðsson dósenl
SKJAiwWISTlN
haldið IX.—20. aprll. Samtals 9 klst.
I.eiðheinanrii: Þorstrinn Magnússon viöskiptafra*ðingur.
STJÓRNt \ III
haldið 3. —IX. mal. Samtals IX. klst.
I.etðhetnandi Wrir Finarsson. prófessor
STFFNI MÓTt \ FVRIHT FKJA
haldið 9.—13. mai. Samtals 20 klst.
I.eiðheinandi: Arni Vilhjálmsson. préfrssor.
Þekking og hæfni slarfsmanna og stjórnenda er
hluti af eignum fyrirtækisins.
Vanræksla við aukningu og viðhald þessara eigna
leiðir til versnandi afkomu.
Er mannauðurinn f fyrirtækinu í samræmi við
tölur efnahagsreikningsins?
Sími 32930.