Morgunblaðið - 10.02.1977, Side 14

Morgunblaðið - 10.02.1977, Side 14
14 MORGliNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1977 Um flúor 1 drykkjar- vatni og heilsufar Tannskemmdír f 4 ára barni. Ástand tannheilsu hér á landi er óhugnanlegt, einkum í börnum og ung- lingum. SL. TVÆR til þrjár vikur hafa verið birtar í dagblöðunum greinar um flúor, gagn það sem flúor gæti gert tannheilsu manna og svo sú hætta, sem neyzla þessa sterka eiturs gæti haft fyrir heilsu manna. Það er gagnlegt að ræða opinskátt um flúor sem eitur og heilsulyf og þeim mun gagnlegra sem um- ræðurnar eru málefnalegri. Ekki skal því leynt, að flúor er sterkt eitur. Banvænn skammtur er talinn einhvers staðar á bilinu 2—10 grömm. Langvinnar eiturverkanir af smáskömmtum eru ekki óal- gengar. Ekkí þarf meira en 2 mg i litra drykkjarvatns til þess að hætta geti verið á brúnleit- um blettum á glerungi tanna og 8 p.p (parts per million = 8 milligr. í lítra) í drykkjarvatni leiða til þess að 10% neytenda geti búizt við ofkölkun bein- vefja. Við 50 p.pm. getur verið hætta á breyttri starfsemi skjaldkirtilsins, 100 p.p.m. geta seinkað vexti. Við 125 p.pm. getur verið hætta á skertri nýrnastarfsemi. Það er því von að fólk spyrji hvaða vit sé f að taka svona áhættu. Hér skal gerð grein fyrir hvernig nokkr- ir heilsugæzlufulltrúar líta á málið. Tveir af fjórum mönnum, sem ritað hafa um málið, þeir Sigurður Herlufsen og Mar- teinn Skaftfeils, hafa mótmælt því harðlega að blandað verði flúor í drykkjarvatn okkar og telja að það gæti leitt til heilsu- tjóns og ýmissa hörmunga. Ber þar sérstaklega að geta um Rapaportskýrsluna frægu, sem Sigurður skrifar um. Dr. Rapaport birti árið 1954 skýrslu um rannsóknir í Wis- counsin í Bandaríkjunum, þar sem hann komst að þeirri nið- urstöðu, að mongolismi væri meir en helmingi algengari þar sem flúor hefur verið bætt í drykkjarvatn til þess að bæta tannheilsu, heldur en meðal þeirra, sem drekka flúorsnautt vatn. Það er óhætt að segja að þessi skýrsla kom eins og reið- arslag yfir talsmenn flúorsins. Visindamenn í ýmsum löndum fóru að kanna hvað væri hæft í þessari staðhæfingu því svo virðist sem alls staðar sé að finna einhverja staði, þar sem flúor í drykkjarvatni er 1 mg á 1 eða meira. Viðamestu rann- sóknirnar voru gerðar í Banda- ríkjunum, á ýmsum stöðum í Bretlandi, Sviss og víðar. Er skemmst frá þvi að segja, að hvergi fannst nokkurt samband milli flúors í drykkjarvatni og mongolisma. Árið 1963 birtir dr. Rapaport aðra skýrslu um sama efni, sem að mestu leyti var endurtekning á þeirri fyrri. Aftur var rokið til og vísinda- menn í ýmsum löndum beittu ýtrustu nákvæmni við könnun og skýrslugerð en allt kom fyrir ekki, þeir fundu ekkert sam- band milli flúorneyzlu og mongolisma. Var nú farið að gaumgæfa betur staðhæfingar dr. Rapaports. Kom þá I ljós ýmis óná- kvæmni bæði i könnuninni sjálfri, gagnasöfnun og úr- vinnslu þeirra. Létti þá mörg- um flúorsinnum, sem þetta hafði legið á eins og mara. „Ekki snefill af líkindum...“ G.E. Godaber lýkur greinar- gerð til brezka heilbrigðisráðu- neytisins um staðhæfingar dr. Rapaports með þessum orðum: „Það er ekki snefill af likindum til þess að ætla að ein einasta móðir fæði mongolita vegna hóflegrar flúorneyzlu.“ Sigurður Herlufsen segir: „Flúor er stórhættulegt eitur. Ef tankbíll, sem væri að flytja þetta efni yrði fyrir hnjaski og innihaldið rynni út í umhverf- ið, gæti það orðið milljón manns að fjörtjóni." Sannleikurinn er nú sá, að flúorinn er fluttur sem þurrt flúorsalt, eða sem upplausn. Það eina sem gerðist ef svona tankbíll yrði fyrir hnjaski og innihaldið rynni út, væri svið- inn gróður og ef það slettist á hörund ylli það brunasári. Það er víst Hka engin hætta á því, að ef flúorblanda væri virkari til manndráps en kjarnorku- sprengjur, að hermennsku- brjálæðingar hefðu ekki fyrir löngu nýtt þann eiginleika. Mér sýnist á greinum þeirra tveggja, sem eru mótfallnir þvi að blanda flúor í drykkjarvatn þannig að flúormagnið yrði ná- lægt 1 mg í lítra, að kveikjan að þeim tugþúsundum rannsókna, sem gerðar hafa verið á áhrif- um flúors á tannheilsu og heilsu almennt síðustu 3—4 áratugi, sé runnin undan rifj- um vestrænna auðhringja, stór- iðjuhölda eða spilltu tann- læknasamfélagi. Sé svo, þá hefur auðvaldinu sannarlega tekizt að leika So- vétmenn grátt, því að hvergi veit ég virkari eða betur skipu- lagða notkun flúors til þess að bæta tannheilsu manna en ein- mitt í Sovétrikjunum. I grein sem prófessor Ana- toly Rybakov, forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvarinnar í Moskvu, ritar og birt er í tíma- riti alþjóðaheilbrigðisráðsins, „World Health“, segir: Tann- læknar og aðstoðarmenn þeirra kanna munn- og tannsjúkdóma á því svæði, sem þeim hefur verið falin umsjón með og gera* við þær tennur, sem aðgerðar þurfa. Síðan er reglulega fylgzt með heilsufari fólksins af hverskyns sérfræðingum I læknisfræði. Varnir gegn tann- sjúkdómum mótast af jarðeðlis- fræði svæðanna. Allsstaðar þar sem flúor er undir 0.5 mgr í lítra er bætt flúor i vatnið þannig að það sé um 1 mg í litra. Þar sem ekki eru vatnsból með leiðslum sem hægt er að eftir JÓNSIG- TRYGGSSON prófessor blanda flúor i, eru gefnar flúor- töflur og ráðlagt að nota flúor- tannkrem.“ Það er erfitt að velja úr þeim nær óteljandi greinargerðum, sem samdar hafa verið 'um flú- orneyzluna, eitthvað sem gæti varpað ljósi á þetta umdeilda nauðsynjamál, flúorinn, og áhrif hans á tannheilsu og heilsu. Nokkrar álitsgerðir skulu þó til færðar. Árið 1964 sendi sænska heil- brigðismálaráðuneytið frá sér greinargerð um flúor sem vörn við tannskemmdum. Þætti þeim, sem fjallar um hugsan- legt heilsutjón vegna flúor- neyzlu, lýkur með þessum orð- um: „Reglubundið eftirlit hef- ur verið haft með nokkrum stöðum, þar sem flúor hefur verið blandað i drykkjarvatn. Sumsstaðar hefur þetta eftirlit staðið I áratug eða lengur. Kannaður var þroski unglinga, litið eftir sjón- eða heyrnar- breytingum, blóð og þvagsýni könnuð, breytingar á beinum athugaðar. Ekki hefur nokkur munur fundizt á stöðum þar sem lítið var af flúor I drykkjar- vatni og þeim, þar sem flúor hafði verið bætt I drykkjar- vatnið." 419 þúsund Sviar búa við drykkjarvatn, sem frá nátt- úrunnar hendi hefur 8.0—12 mg af flúor i lítra. Hafa margir þeirra búið þar áratugum sam- an og hefur ekki fundizt munur á heilsufari þeirra og annarra Svia. Ekki mælt með öðrum aðferðum Norska félagsmálaráðuneytið skipaði 21. júni 1967 nefnd 10 vísindamanna, sem jafnframt voru háskólakennarar í ýmsum greinum læknisfræði og tann- lækningum, og átti nefndin að kanna hver áhrif það hefði á tannheilsu og heilsufar að bæta flúor í drykkjarvatn svo að magnið yrði um 1 mg í lítra. í október 1968 skilaði nefndin viðamikilli greinargerð, rúm- um 100 bls. I stóru broti, og skulu hér aðeins raktar loka- niðurstöður, sem voru í þremur liðum. 1. Heimila skal fylkjum landsins að bæta þvi magni af flúor í drykkjarvatn, sem talið er veita mesta tannvernd. 2. Nefndin mælir ekki með öðrum aðferðum flúorneyzlu. 3. í þeim viðamiklu og ná- kvæmu rannsóknum, sem gerð- ar hafa verið víða um heims- byggðina hefur ekki sannazt að 1 mg I lítra drykkjarvatns valdi nokkurskonar heilsutjóni. í viðamikilli bók, sem Al- þjóðaheilbrigðisráðuneytið gaf út 1970 i samráði við 93 sér- fræðinga í læknisfræði og tann- lækningum og nefnist „Fluroides and human Health" er fjallað um flúor, feril hans í líkamanum og áhrif á ýmis líf- færi og starfsemi þeirra. Loka- orð bókarinnar hljóða svo.: Frábærir eiginleikar flúors Heparinvinnsla úr hvalgörnum og sauðfjárlungum lofar góðu Andstorknunarefni gegn blóðtappa o. fl. ÚT ER komin skýrsla um frumrannsóknir á vinnslu svonefnds heparíns úr íslenzku hráefni, sem er liður í rannsóknum á lyfja- og líefnavinnslu hér á landi úr innyflum fiska, hvala og sláturdýra. En víða erlendis eru verðmæt lyfja og lífefni unnin úr innyflum sláturdýra. Heparínrannsóknirnar eru unnar af Björgvin Guðmundssyni cand. scient. hjá Raunvísindastofnun háskólans. Niðurstöður tilraunanna voru að mörgu leyti jákvæðar, að þvi er segir í skýrslunni, og þá einkum átt við til- raunir með lungu úr sauðfé og garnir úr skíðishvölum Niðurstöður tilrauna með garnir og lungu úr nautgripum voru eins og vænta mátti ef miðað er við niðurstöður ýmissa erlendra aðila. Úr sauðf|árlungum fengust mest 20 þús. alþjóða einingar úr einu kg af vef Hms vegar aðeins um 10 þús IU pr kg úr görnum sauðf|ár. Úr görnum langreyðar fengust 22 þús IU úr kg af vef og 10 þús IU pr kg úr lungum þess sama hvals. Heildarmagn vinnanlegs heparins er áætlað um 27 milljarðar eininga Gerð- ar voru tilraunir til að vinna virk and- storknunarefni úr innyflum þorsksins, ásamt heilli loðnu og grásleppu Þær tilraunir báru ekki árangur Heparín er notað til lækninga. Það finnst í ýmsum vefjum og hefur m.a þá eiginleika að hindra að meira eða minna leyti storknun blóðsins, a m k hjá dýrum er hafa heitt blóð Annar þýðingarmikill eiginleiki herparíns er örvun lipoprotemlipasa, sem er lífhvati í blóðmassa Vegna þessara mikils- verðu líffræðilegu eiginleika heparíns hefur efnið verið unnið úr líffærum sláturdýra og notað til lækninga Vinnsla þess og hreinsun hefur þróast með árunum og notkun þess farið vaxandi hin síðari ár. Heparín er einkum hentugt sem and- storknunarefni vegna þess hversu fljót- virkt það er og brotnar hratt niður, þannig að áhrifin eru mikil og skamm- vinn Heparín er aðallega notað við skyndilega blóðtappa og við æða- og hjartaskurðaðgerðir, auk þess sem nefna má dæmi um notkun þess sem andstorknunarefnis fyrir blóðsýni á rannsóknastofum sjúkrahúsa. Heparín hefur einnig verið notað til að draga úr bjúg, þar sem efnið hefur áhrif á vökvajafnvægi líkamans. Að lokum má nefna notkun heparíns við lækningu ýmiss konar húðsjúkdóma og við græðingu brunasára í skýrslunni er fjallað um helztu vinnsluaðferðir. Nær undantekninga- laust er byrjað á því að láta vefinn sjálfmeltast fyrir áhrif meltingarhvata, sem eru fyrir í vefnum eða hann er meltur með próteinkljúfandi lífhvötum, sem unnir eru úr brisi og skeifugörn- um Markmiðið með þessari meltingu er að sjálfsögðu að kljúfa protein vefs- ins að einhverju leyti og auðvelda þannig útdrátt mucofjölsykrunganna. þ á m heparíns Verður ekki bér farið nánar út í vinnsluaðferðir Um verðgildi heparíns er þess getið Framhald á bls. 27 Áfengislausar skemmtanir með spilakeppni og dansi AÐ undanförnu hafa orðið nokkrar umræður um þörf fyrir skemmtistað, þar sem fólk skemmtir sér án áfengis. Ekki hefur þar komið fram að Templara- höll Reykjavikur hefur i mörg undanfarin ár rekið margskonar skemmtanir fyrir fólk á öllum aldri, þar sem gestir skemmta sér án afengis. Á föstudagskvöldum eru þann- ig haldin spilakvöld og dansleikir og hefst hver skemmtun kl. 21.00 Á föstudaginn kemur, 11. febrúar, hefst ný 8 kvölda spila- keppni. Aðalverðlaun eru glæsi- leg Sólarlandaferð auk góðra kvöldverðlauna hverju sinni. Gefst þar fóki á öllum aldri tæki- færi til að sækja áfengislausa skemmtun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.