Morgunblaðið - 10.02.1977, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.02.1977, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRL AR 1977 Evrópubikar í víðavangshlaupum: ÍR-INGAR í 17. SÆTI í AFAR STERKU HLAUPI 15. Evrópubikarkeppnin í víðavangs hlaupum fór fram í bænum Palencia á Spáni um síðustu helgi Kepptu þar 18 félagslið frá jafnmörgum þjóðum um titilinn Evrópumeistari félagsliða í víðavangshlaupum. Fyrir íslands hönd keppti lið ÍR en liðið varð að gera sér að góðu næstsíðasta sætið í sveitakeppninni, en hlaup þetta var mjög sterkt. Sigurvegari í hlaupinu varð silf urmaðurinn frá Montreal, Carlos Lopes frá Portúgal, og lið hans sigraði einnig í sveitakeppninni eftir harða keppni við spánska liðið. Alls voru 72 keppendur i hlaupinu sem var 10 kílómetrar Sigfús Jónsson varð fyrstur íslendinganna, í 49 sæti. Ágúst Ásgeirsson í 61 sæti. Hafsteinn Óskarsson í 67 sæti og Gunnar Páll Jóakimsson í 68 sæti Ekki voru teknir timar nema á fyrstu þremur keppendum Sigfús mun þó hafa verið um 700 metrum á eftir Lopes sem fékk tímann 30:03 mín , en Ágúst var svo tæpum 200 metrum á eftir Sigfúsi Af þessu bili má ráða að þeir Sigfús og Ágúst hafi hlaupið nokkuð vel þótt þeir séu aftarlega í hlaupmu Aðspurðir segjast ÍR ingar nokkuð óánægðir með keppmsbrautina sem hlaupm var, því hún var í engu lik þv? sem þeir hafa þurft að æfa við í vetur og ekkert á við það sem Spánverjar höfðu sagt í boðsbréfum sinum Braut- in byggðist upp á rúmum 6 hringium sem voru nánast eitt allsheriar forar- svað allan tímann. Eru slíkar aðstæður þó það sem jafnan viðgengst í erlend- um víðavangshlaupum, en hlaupararn- ir segjast ekki hafa aðstæður hér heima til að búa sig sérstaklega undir keppni á slikum brautum, en hinir erlendu keppendur hafa það að |afnaði Ekki bætti það úr skák að áður en þetta hlaup fór fram höfðu farið fram 3 hlaup og fór það mjög illa með upphaf legu leiðina sem sýndist ekki eins slæm í fyrstu og raun varð á Hlaupið var miög spennandi fyrir áhorfendur sem voru um 10 þúsund að sögn mótshaldara auk þess sem hlaupinu var sjónvarpað beint en þessi íþróttagrein er sú vinsælasta á norður- hluta Spánar Fyrirfram var vitað að keppnin myndi fyrst og fremst verða á milli þeirra Lopes og Spánverjans Mariano Haro sem hl|óp á „heima- velli" Ekki brugðust þeir heldur áhorf- endum og að sögn ÍR-mganna var mikil stemmning meðal þeirra Var Haro sem er mikil hetja í heimabæ sínum. ákaft hvattur en það dugði ekki því á síðasta kílómetra tryggði Lopes sér afgerandi sigur í hlaupinu. Þá var alltaf spenna í keppninni um önnur sæti í hlaupmu og komu keppendur miög þétt inn. Beztum árangri Norður- landabúa náði Norðmaðurinn Knut Kvalheim sem varð 9 i hlaupinu Finninn Seppó Heleníus (Kalott- sigurvegari í 3000 m hindrun á Laugardalsvellinum sl sumar) varð 14 og Lars Martin Kaupang frá Noregi í 20 sæti Félag Lopes, Sporting Club. Portúgal, sigraði í sveitakeppninni í öðru sæti varð svo heimaliðið, og v- þýzka liðið Quelle Furth varð svo þriðia Norðmenn komu mjög á óvart með að hreppa fimmta sætið. en brezka liðið Gateshead varð t d ekki nema í 8 sæti þótt Bretar séu mjög vamr keppni við slíkar aðstæður á þessum árstíma Fyrir Gateshead munaði þó miklu að lið þeirra var án Brendans Foster og Dennis Coates sem báðir eru meðal fremstu langhlaupara í heimi ÍR-ingar urðu sem áður segir i 1 7 sæti í sveitakeppninm. á eftir þeim kom lið Austurríkis. Með smáheppni hefðu þeir ef til vill orðið framar þvi rétt á undan urðu sveitirnar frá Skot- landi og Danmörku. Svíþióð og Finn- landi Segiast ÍR-ingar sennilega hafa staðið sig miklu betur og orðið framar í sveitakeppninm hefði hlaupið farið fram á þurrum velli eða beinni braut- um. því við þær aðstæður sem keppt var við hefðu þeir komið lítt þreyttir að marki. þar sem þeir gátu næstum aldrei náð upp rytma i hlaupinu þar sem allur tíminn fór ' að þræða forar- polla og að taka beygiur sem allar voru miög krappar í brautinni, en aldrei var um að ræða að hlaupið væri beint meira en 300 metra i emu Torfærur Framhald á bls. 24. Ólafur II. Jónsson f bafáttu við Vestur-Þjóðverja. Á hann mun mikið reyna f AusturrlKi. ROÐURINN VERÐUR ERFIÐURIAUSTURRIKI - en ísl. landsliðið á tvímælalaust góða möguleika AUSTLR-Þýzkaland og Tékkóslóvakfa eru einu lióin sem telja mð örugg um art komast áfram úr B- heimsmeistarakeppninni I hand- knattleik, I A-keppnina sem fram fer í Danmörku að ári. eftir því sem erlend blört sem fjallart hafa um B-keppnina í Austurríki virrtast sammála um. Er talirt art baráttan f B-keppninni verrti geysilega hörð, og um þart fjailart art bersýnilega muni rirtlaskipt- ingin í heimsmeistarakeppninni hleypa verulegu Iffi f handknatt- leikinn f mörgum löndum. Nú fái slökustu lirtin keppinauta við sitt hæfi í heimsmeistarakeppninni, og leggi kapp á art færast milli rirtla erta deilda, ð sama hátt og lirt leggi mikið í sölurnar til þess að falla ekki nirtur. I A-heimsmeistarakeppninni, sem fram fer i Danmörku eftir ár, munu leika sextán lið, og er þegar vitað um sjö þeirra. Það eru þau sex sem urðu í efstu sætunum á Olympíuleikunum í Montreal s.I. sumar: Sovétríkin, Rúmenía, Pól- land, Vestur-Þýzkaland, Júgó- slavia og Ungverjaland, og Dan- mörk sem gestgjafi í keppninni. Sex lið komast síðan áfram úr B-keppninni í Austurrfki, og að auki leika svo í A-keppninni eitt lið frá Asíu, eitt frá Ameríku og eitt frá Afríku. B-keppnin I B-keppninni í Austurríki leika tólf lið og hefur þeim þegar verið skipað í riðla. Verða riðlarnir þannig: A-riðill: Tékkóslóvakía, Sviss, Búlgaría B-rirtiil: Svíþjóð, Austurríki, Frakkland, U-riðiIl: Austúr-Þýzkaland, ísland, Portúgal D-rirtill: Spánn, Noregur, Uolland. Leikir þeirra liða sem eru í A- riðli munu fara fram í Krem og SUdstadt. Liðin í B-riðli leika í Graz, liðin í C-riðli í Klagenfurt og liðin í D-riðli leika í Schwaz og Innsbruck. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast síðan í milliriðla keppn- innar sem verða tveir. Þ.e. það verða fjögur lið í hvorum milli- riðli. Munu tvö efstu liðin úr A- og B-riðli skipa annan milli- riðilinn og tvö efstu liðin úr C- og D-riðli skipa hinn riðilinn. Stig úr innbyrðis leikjum liða í forriðlin- um gilda í milliriðlinum og er þannig unnt að hugsa sér til dæmis að Austur-Þýzkaland sigri ísland í forriðli og hafa Austur- Þjóðverjar þá þegar tvö stig er keppnin í milliriðlinum hefst. Þrjú lið úr hvorum milliriðli komast síðan áfram og tryggja sér rétt til þess að Ieika í A-keppninni að ári en neðsta liðið í milli- riðlinum heldur hins vegar stöðu sinni í B-keppninni. Að auki verður svo keppt um sæti i keppn- inni í Austurríki, þannig að efstu liðin í milliriðlunum keppa um 1. sætið, liðin sem urðu í öðru sæti keppa um 3. sætið í keppninni o. s.frv. Hvaða lið komast áfram? Sem fyrr greinir er mjög erfitt að spá um hvaða lið verða sigur- vegarar í B-keppninni, en augljós- lega verður gífurlega hart barist um sætin i A-keppninni. í A-riðli verður að teljast senni- legt að Tékkar komist áfram í milliriðilinn, en sjálfsagt verður hörð barátta milli Svisslendinga og Búlgara um hitt sætið og verða Svisslendingar að teljast þar sig- urstranglegri. 1 B-riðli eru Svíar og Austur- rikismenn taldir líklegir sigur- vegarar í riðlinum. en minna má á að Frakkar gerðu nýlega jafntefli við Pólverja í landsleik og eiga nú ágætu liði á að skipa. Í C-riðli er sennilegt að Austur- Þjóðverjar og Islendingar komist áfram, en fyrirfram má þó alls ekki afskrifa þann möguleika að Portúgal blandi sér í baráttuna. Má minna á að Portúgal bar sigur úr býtum í C-keppninni, en þar voru m.a. lið frá Sviss, Frakklandi og Hoilandi. í D-riðli má bóka Spánverja sem örugga sigurvegara en nokkur barátta verður sennilega um hitt sætið milli Norðmanna og HoIIendinga, og verða Norðmenn að teljast liklegri. Ef spá sú sem hér er gerð myndi standast lékju í fyrri milli- riðlinum lið Tékka, Sviss- lendinga, Svía og Austurríkis- manna og í hinum riðlinum lið Austur-Þjóðverja, íslendinga, Spánverja og Norðmanna. Möguleikar íslands Góður árangur íslenzka lands- liðsins að undanförnu eykur bjartsýni manna á að liðinu takist að komast áfram i keppninni í Austurriki. Því er hins vegar ekki hægt að horfa framhjá að þar verður við ramman reip að draga, og dálítið annað fyrir okkar menn að leika í Austurríki eða i Laugar- dalshöllinni, þar sem þeir eru dyggilega studdir af þúsundum áhorfenda. Unnt er að setja dæmið um möguleika íslands upp á margan hátt. T.d. þannig: Austur-Þjóðverjar vinna Is- lendinga og Portúgali í C- riðlinum og Ísland vinnur SLASK leikur hér fimm leiki -og æfir daglega með íslenzka landsliðinu PÓLSKA meistaraliðið SLASK var væntanlegt til landsins í gær- kvöldi og mun það dvelja hér- lendis í eina viku og æfa með islenzka handknattleikslandslið- inu. Verður þetta jafnframt loka- undirbúningur islenzka landsliðs- ins fyrir B- heimsmeistarakeppnina I Austur- rlki sem hefst nú slðar I mánuðinum. Mun SLASK-liðið leika hér opinbera leiki fimm daga I rört og fara þeir fram 1 Reykjavfk, Akureyri, Akranesi og Hafnarfirði. Veröur fróðlegt að sjá hvernig landsliðinu vegnar I keppni við þetta fræga lið, sem tvfmælalaust er eitt af betri félagsliðum I Evrópu. Komst það t.d. nú f átta-Iiða úrslit f Evrópu- bikarkeppni félagsliða, en var þá slegið út af v-þýzka liðinu Gummersbach, sem að margra dómi er álitið mjög sigurstrang- legt f Evrópubikarkeppninni að þessu sinni. Með pólska liðinu mun koma hingað hinn frægi handknatt- leiksmaður Klempel, en það var hann sem skaut FH-inga i kaf, þegar SLASK-Iiðið lék við FH í Evrópubikarkeppninni s.l. haust. í SLASK-liðinu eru einnig fleiri pólskir landsliðsmenn og auk þess kemur með liðinu markvörður sem er að sögn Janusar Cerwinski, íslenzka landsliðs- þjálfarans, bezti handknattleiks- markvörður Póllands, en sá gefur ekki kost á sér f landslið. Ætlunin er að íslenzka lands- liðið og Slask-liðið æfi saman einu sinni á dag, en leiki siðan opin- bera leiki á kvöldin. Fyrsti leikur- inn verður í Laugardalshöllinni í kvöld og hefst hann kl. 21.00. Síð- an fer SLASK-liðið til Akureyrar og leikur þar á morgun við úrvals- lið frá Akureyri, þ.e. úr félögunum KA og Þór. Á laugar- dag verður svo aftur leikið á Akureyri og eigast þá við SLASK- og íslenzka landsliðið. Á sunnu- dag verður svo leikur í Hafnar- firði milli liðanna og loks á Akra- nesi á mánudagskvöld. Leikurinn á laugardaginn hefst kl. 16.00, en aðra daga hefjast leikirnir kl. 20.30. Portúgal. Röð í riðlinum verður: A-Þýzkaland 4 stig, ísland 2 stig, Portúgal 0 stig. Spánn vinnur Noreg og Holland í D-riðlinum og Noregur vinnur Holland. Röð: Spánn 4 stig, Noregur 2 stig og Holland 0 stig. Fari þetta eftir, verður staðan þegar keppni í milliriðlinum hefst sú, að A-Þýzkaland og Spánn hafa þegar 2 stig en Noregur og Island 0 stig. Eftir því mætti búast við að leikur íslands og Noregs í riðlinum yrði hreinn úrslitaleikur um hvort landið kæmist áfram. En auðvitað getur ýmislegt annað komið upp í milii- riðlinum, t.d. það að þrjú lönd verði jöfn að stigum og ræður þá markahlutfall hvaða tvö komast áfram. AFTUR SKORAÐI JÓHANNES Jóhannes Eðvaldsson lék með aðalliði Celtic á mánu- dagskvöld er liðið mætti Hearts í skozku úrvaldsdeild- arkeppninni. Átti Jóhannes ágætan leik og skoraði mark fyrir Celtic, eins og i leiknum á laugardaginn. Vann Celtic leikinn 5 — 1, og hefur liðið nú hlotið 30 stig i 19 leikjum, tveimur meira en Aberdeen sem leikið hefur 21 leik. Aber- deen lék líka á mánudags- kvöldið og sigraði þá Kilmarnock mcð tveimur mörkum gegn engu. Þriðji leikurinn í skozku úrvalsdeild- inni á mánudag var milli Ayr Utd. og Dundee Utd. og sigraði Dundee f þeim leik 4—1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.