Morgunblaðið - 10.02.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.02.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1977 33 Niðurstaða bandarískar rannsóknar: NATO gæti naumast risið undir „aðild,, kommúnista Bandarísk rannsókn, er fór fram á vegum háskólanna í Cambridge og Miami, hefur leitt í ljós, aö aðild kommúnista að ríkisstjórnum Frakklands og Italíu leiddi að líkindum til þess að þessar þjóðir segðu sig úrNATO. Tvær rannsóknarnefndir voru settar á laggirnar til þess að athuga þessi mál, niðurstaða þeirra var sú þegar kommúnistar hefðu náð fót- festu í NATO mundu þeir róa að því öllum árum að veikja traust ríkisstjórna sinna á gildi bandalagsins, Nefndirnar halda því einnig fram að fullyrðing kommúnista um að Sovétríkin hafi engin áhrif á stefnu þeirra eigi við lítil rök að styðjast einkum er varðar erlend malefni.' I skýrslunni er og dregin í efa einlægni frönsku og ítölsku kommúnistaflokkanna þegar þeir heita þvi að helga sig lýð- ræðislegri stjórn í löndum sín- um og endurbótum á stjórnar- skrám þeirra. Þá eru menn vantrúaðir á að flokkarnir hafi skyndilega breytzt úr uppreisn- aröflum í ábyrga aðila er treyst- andi sé til þess að eiga hlut- deild í ríkisstjórnum lýðræðis- ríkja. Ströng afstaða Báðar þessar rannsóknar- nefndir njóta mikils trausts en þær hafa áður látið í ljós fremur neikvæða afstöðu til „detente“ stefnu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna og einnig lýst vantrausti á kommúnista að því er varðar afvopnunarvið- ræður milli þessara ríkja. Höfundar skýrslunnar, James Dougherty og Diane Pfaltzgraff, hafa komizt að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa grandskoðað stöðu stjórnmála á Italíu og í Frakklandi að mögu- leikarnir séu allmiklir á að Nato frá Evrópukommúnistum, þ.e. Vestur- Evrópukommúnistum, einkum þó í Frakklandi og á ítalíu. Bent er á langvarandi og djúpa andstöðu franska kommúnista- flokksins gagnvart Nato og að því megi telja sennilegast að flokkurinn krefjist úrsagnar úr Nato komist hann til valda. Nái það fram að ganga mun Nato verða fyrir þyngra áfalli en lík- legt er að bandalagið rísi undir. I skýrslunni er og vikið að þvíað ítalski kommúnista- flokkurinn hafi nýlega lýst þeirri afstöðu að hann sé reiðu- búinn til þess að taka aðild ítalíu að Nato „sem sjálfsögð- um hlut“. En þrátt fyrir það, segir í skýrslunni, líta franskir kommúnistar á aðildina sem „neikvæða og ógnun við frið og öryggi landsins". Þá má ekki gleyma fyrri yfirlýsingum þessara sömu aðila um nauðsyn þess að losa Evrópu undan „amerískum yfirráðum“, en einmitt þau ummæli gefa skýra mynd af afstöðu þeirra til Nató. Útkoman yrði því líklega að lokum verða algjört uppgjör. Neikvætt hlutleysi I skýrslunni er því haldið fram að hvort sem kommúnista- flokkarnir í samsteypustjórn kjósi að kollvarpa bandalaginu með því að vera áfram aðilar að því eða veikja pólitísk áhrif þess með því að hóta úrsögn, þá sé það víst að þeir muni vinna að því að: 1. gera lítið úr þörf á hervörnum í heimalöndum sínum; 2. vera mótfallnir hvers konar hernaðarsamvinnu Evrópulanda; 3. berjast fyrir „andbandarískum" hugsunar- hætti i löndum sínum. Þessar aðgerðir munu að lokum krefjast algerrar endur- skoðunar á þeim skilyrðum sem góðum samskiptum við Moskvu vilji þeir halda velli. Fyrir utan allt þetta, heldur skýrslan fram, er aðalatriðið að kommúnistaflokkarnir í Vestur-Evrópu hafa tekið að sér að stofna bandalag þar sem sovétríkin halda óskoruðum yfirráðum. Samkvæmt skýrslunni mundi þetta að lokum þýða að kommúnista- flokkar Frakklands og Italíu gætu ekki þjónað hagsmunum sinna eigin ríkja án fhlutunar frá Sovétríkjunum. Þessu mót- mæla kommúnistar þó harð- lega. Að lokum er reynt að brjóta til mergjar möguleika Banda- ríkjanna til þess að halda Natósamstarfi áfram komist kommúnistar til valda í Frakk- landi og á ítalíu. Möguleikarnir eru: 1. Samsteypta Nató og banda- rískra aðila í bandalagsríkjun- um er stuðlar að þvi að minna bera á beinum aðgerðum frá Nató. En þetta myndi líkast til ekki gera annað en seinka upplausninni lítillega. 2. Hvetja til úrsagnar þeirra ríkja sem eru undir kommúnistiskum áhrifum. Hvað Italíu varðar myndi þetta hafa alvarlegar pólitískar af- leiðingar, sérstaklega vegna mikilvægis hernaðarlegu lands- ins. 3. Einangra innan Nato þau ríki þar sem hagsmunir ríkis- stjórnar fara ekki saman með hagsmunum annarra aðildar- ríkja. 4. Brottvísun hinna kommúnistisku ríkisstjórna — en ekki landsins. Þetta myndi halda opinni leið til endur- nýjunar samninga við komandi ríkisstjórnir. 5. Að lokum, tvíhliða samninga um varnir við þau Evrópuríki sem kjósa að ganga að þeim — en það þýddi að Nató yrði leyst upp sem þjóða- Eftir Robert Siner Varnarmálaráðherrar NATO-ríkja þinga í Brússel kommúnistar komist til valda í löndum þessum, ekki með bylt- ingu, heldur kosningum og lík- legast sem aðilar í samsteypu- stjórnum með kristilegum demókrötum á Italíu og sósíal- istum í Frakklandi. Það er álit höfunda skýrsl- unnar að núverandi ástand í stjórnmálum og efnahagslífi landanna leiði sterkar líkur að því að þannig muni úrslitin verða. Þeir taka einnig ákveðna afstöðu á móti þeim er taka auknum völdum kommúnista með ró g líta svo á að meirihlut- inn í samsteypustjórnunum, kristilegir demókratar og sósíalistar í Frakklandi, geti haldið þessum „kommúnisku lærisveinum“ sínum í skefjum nógu lengi til að koma inn hjá þeim trú á lýðræðislega stjórnarhætti. Skýrslan leggur þunga áherzlu á að varast beri bjart- sýni og aðmaumast sé að vænta jákvæðrar afstöðu gagnvart bandalagið setur um þátttöku Atlantshafsríkja í Nató. I marg- nefndri skýrslu er fullyrt að sameiginleg yfirlýsing; þessara tveggja kommúnistaflokka er gerð var heyrinkunn í Moskvu 1975 hafi verið sett fram sem tálbeita fyrir væntanlega kjós- endur í heimalöndum flokk- anna og hafi tilgangurinn verið að sýna fram á samstöðu þeirra. Ennfremur er tálið í skýrslunni að þetta bendi til að utanríkis- stefna flokkanna tveggja sé ekki frábrugðin þeirri sovésku. Hliðarverkanir sjálfsstjórnar Skýrslan segir að „sjálfs- stjórn" frönsku og ítölsku kommúnistaflokkanna sé mjög takmörkuð vegna fjárhagslegra skuldbindinga þeirra gagnvart Sovétríkjunum og öðrum ríkjum Austur-Evrópu, einkum þó þeirra ítölsku. Þeir eru því nauðbeygðir til þess að halda bandalag. Slíkir samningar myndu skipta Evrópu í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn hefði ríkisstjórnir er störfuðu með Bandaríkjunum. Annar hlutinn væri bundinn Bandaríkjunum í viðskiptum, en væri ekki f varnarbandalagi með þeim og mögulega væru einnig í þeim hluta hálfhlutlausar ríkis- stjórnir. Og að lokum sá þriðji en í honum væru algjörlega hlutlaus ríki og meðal þeirra þá einnig þau er hefðu kommúnista í stjórnum sínum. Bandaríkin hafa varað við þeim aivarlegu afleiðingum sem geta hlotizt af því að kommúnistar nái aðild að ríkis- stjórnum Frakka og ítala og var fyrrverandi utanríkisráð- herra þeirra, Henry Kissinger, óþreytandi við að benda á þessar staðreyndir. En frekari aðgerðir á þessu sviði eru ekki á valdi Banda- ríkjanna eru lokaorð skýrslu þessarar. . . & . . SKIPAUTGCRB KIKISINS m/s Baldur fer frá Reykjavik fimmtudaginn 10. þ.m. til Breiðafjarðarhafna. Vörumóttaka til hádegis á fimmtudag. Orkla spónplötur . w A sérlega hagstædu verái vegna tollalækkana um sJ. áramót 8 m m 124 x 250 cm 10 m m 124 x 250 cm 12 m m 124 x 250 cm 12 m m 122 x 2 74 cm 19 m m 124 x 250 cm 22 m m 122 x 250 cm 25 m m 124 x 250 cm Ö/l verð ár á kr. 1 160 pr. stk. á kr. 1240 pr. stk. ákr. 1350 pr. stk. á kr. 1 710 pr. stk. á kr. 2050 pr. stk. á kr. 2300 pr. stk. á kr. 2620 pr. stk. söluskatts W TIMBURVERZLUNIN VOLUNDURhf Skeifunni19, Klapparstig 1, símar 85244 og 1 8430. ^SENDING Kommóður Hilluveggir Ólituð fura Skrifborð Brúnbæsað MJÖG HAGSTÆTT VERÐ irumarkaðurinn hf. aúla ia.( Sími 86112.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.