Morgunblaðið - 10.02.1977, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1977
43
ÍS í erfiðleikum með Stígánda
og UMSE tapaði tveimur leikjum
ÞAÐ var mikið um að vera I blak-
inu um helgina og I 1. deild karla
voru leiknir þrfr leikir, Vfkingar
og Laugdælir unnu UMSE 3—0
eins og búizt hafði verið við, en
hins vegar áttu stúdentar f mun
meiri erfiðleikum með Stfganda,
eina liðið I 1. deild sem enn hafði
ekki unnið hrinu, og lauk þeim
leik með naumum sigri stúdent-
anna 3—2.
En þau úrslit sem mest komu á
óvart var sigur kvennaliðs Þróttar
gegn Víkings-stúlkunum, 3—2, en
Víkings-stúlkurnar hafa verið
ósigrandi undanfarin ár. Að lok-
um var einn leikur í 2. deild á
milli b-liðs Vikings og b-liðs Þrótt-
ar og lauk honum með sigri Vík-
ings 3—2.
Fyrsti blakleikur helgarinnar
var á milli kvennaliða Þróttar og
Vikings og lauk honum eins og
áður sagði með óvæntum sigri
Þróttar, 3—2 (15—12, 15—12,
7—15, 8—15 og 15—12) og eins og
sjá má af úrslitatölum var þetta
spennandi og skemmtilegur
leikur, og brá fyrir ýmsum
skemmtilegum tilþrifum.
Næsti leikur var á milli Víkings
og UMSE og unnu Víkingar þar
öruggan sigur, 3—0 (15—8,
öruggir með sigur fyrir fram.
Ekki er hægt að segja að nokkur
laugdælanna hafi átt góðan leik,
en þó átti Tómas Jónsson nokkra
fallega skelli, sem eyfirðingarnir
réðu ekkert við.
Þrátt fyrir að eyfirðingarnir
hafi tapað báðum leikjum sínum
um þessa helgi er greinilegt að
þeir eru I talsverðri framför og
ekki er ólíklegt að þeir eigi eftir
að verða erfiðir á heimavelli það
sem eftir er vetrar.
Þá léku Stígandi og ÍS og fór sá
leikur fram á Laugarvatni og lauk
honum með afar naumum sigri
stúdentanna, 3—2 (15—13, 6—15,
12—15, 15—11 og 15—11). Stúd-
entarnir voru mjög slappir I þess-
um leik og má segja að þeir hafi
verið heppnir að vinna botnlið 1.
deildar enda var greinilegt að
stúdentarnir lögðu ekki mikla
áherzlu á leikinn og höfðu þeir til
Framhald á bls. 24.
FYLKIR
Aðalfundur Fylkis verður hald-
inn þriðjudaginn 15. febrúar n.k.
í samkomusal Arbæjarskóla.
Hefst fundurinn kl. 20.00.
15—11 og 15—11) og þrátt fyrir
að Eyfirðingarnir stæðu svona
lengi í Víkingunum var sigur
þeirra aldrei í hættu. Bezti maður
Víkings í þessum leik var Páll
Ölafsson, en þeir Elías Níelsson
og Kristján Aðalsteinsson áttu
einnig góðan leik.
Beztu menn eyfirðinganna voru
Jón Steingrímsson og Gunnar
Jónsson en það háir þeim afar
mikið hve uppspil og móttaka eru
slök, því að liðið hefur á að skipa
sterkum skellurum, sem að sjálf-
sögðu njóta sín ekki án þess að fá
gott uppspil.
Eyfirðingar léku svo á sunnu-
deginum við Laugdæli ofe lauk
þeim leik með 3—0 sigri Laug-
dæla (15—9, 15—9 og 15—11).
Þetta var fremur rólegur leikur
og var sigur laugdæla aldrei f
hættu og þurftu þeir litið að hafa
fyrir sigrinum og var það greini-
legt á leik þeirra að þeir þóttust
.OLDUNGALKT TEKUR ÞATT
IKVENNAMÓTINUISTAÐ
BANDARÍSKRA STÚLKNA
SEM KOMA EKKI i VETUR
1 fyrrakvöld hélt stjórn Hand-
knattleikssambands íslands og
landsliðsnefnd kvenna fund
með þeim stúlkum sem ritað
höfðu opið bréf til HSl um
landsliðsmál kvenna. Hefur
bréf þetta birst í Morgun-
blaðinu, svo og svör Handknatt-
leikssambandsins við þvl.
Allmargar stúlkur komu á
fundinn f fyrrakvöld, svo og
nokkrir þjálfarar 1. deildar
liða, og urðu þar töluverðar
umræður um málefni kvenna-
landsliðsins. Meðal þess sem
ákveðið var á fundi þessum var
það, að landslið skipað stúlkum
sem eru eldri en 23 ára, mun
taka þátt f handknattleiksmóti
þvf sem hefst nú seinni hluta
febrúarmánaðar, en auk þess
taka þátt f móti þessu landslið
Íslands, Hollands og Færeyja.
Kemur þetta „öldungalið" f
stað landliðs Bandarfkjanna,
sem hætt hefur við þátttöku f
mótinu. Stjórnendur liðsins
verða þeir Bjarni Jónsson, sem
þjálfar kvennalið Vals f hand-
knattleik, og Guðjón Jónsson,
sem þjálfar Framliðið.
Það sem einkum var gagn-
rýnt af handknattleiksstúlkum
þeim er sátu fundinn f fyrra-
kvöld, voru aldurstakmörk þau
sem landsliðsnefnd kvenna
setti, eða það að fslenzka lands-
liðið yrði aðeins skipað þeim
stúlkum sem væru 23 ára og
yngri. Svala Jörgensdóttir, for-
maður landsliðsnefndar
kvenna, skýrði sjónarmið
nefndarinnar og forsendur
þess að þessi ákvörðun var
tekin. Sagði Svala að þegar á
átti að herða s.l. haust og undir-
búningur kvennalandsliðsins
fyrir Norðurlandamótið átti að
hefjast, hefðu eldri stúlkurnar
sýnt þvf máli mjög Iftinn áhuga
og ekki mætt á æfingar, jafnvel
þótt boðið væri upp á jafngóðan
þjálfara og Janusz Cerwinski.
Stúlkurnar bentu aftur á móti
á, að æfingatfminn hefði verið
mjög óheppilegur og það hefði
fyrst og fremst verið þess
vegna sem þær mættu ekki á
æfingar — áhugann hefði ekki
vantað.
1 hinu opna bréfi sem
stúlkurnar 53 rituðu og vitnað
hefur verið til, köm m.a. fram
að þær óskuðu eftir pressuleik
við þær stúlkur sem nú skipa
landsliðið. Með þátttöku þeirra
f umræddu handknattleiksmóti
fá þær hins vegar tilvalið tæki-
færi, þótt undirbúningurinn
hljóti hins vegar að verða af
skornum skammti sökum þess
hvað skammt er til mótsins.
Þá var einnig ákveðið á
fundinum f fyrrakvöld að
stúlkurnar kysu fimm manna
nefnd, til framhaldsviðræðna
við stjórn Handknattleikssam-
bandsins um mál þetta.
Þrír góðir
ganga í Fram
FRÖMURUM hefur nú bætzt góð-
ur liðsauki og munu þrfr leik-
menn sem ekki voru með Fram-
lióinu f knattspyrnunni í fyrra
verða þeirra á meðal f sumar. Eru
það þeir Sumarliði Guðbjartsson
frá Selfossi, Elmar Geirsson, sem
kemur heim frá Þýzkalandi, og
fyrir helgina skipti Vestmannaey-
ingurinn Kristján Sigurgeirsson
um félag og mun leika með Fram
i sumar. Er ekki að efa að þess-
irimenn munu gera Framliðið
sterkara og skapa aukna breidd í
þessu harðjaxlaliði islenzkrar
knattspyrnu.
Gfsli Þorsteinsson hefur þarna náð góðu taki á einum andstæðing
sfnum. t úrslitaviðureign mótsins varð hann svo að lúta í lægra haldi
fyrir Viðari Guðjohnsen.
Viðar sigraði í opna flokknum
- og Suðurnesjamenn sigursælir í unglingaflokknum
EINS og skýrt var frá f Morgun-
blaðinu s.l. þriðjudag varð Viðar
Guðjohnsen sigurvegari f opnum
flokki á afmælismóti Júdó-
sambands tslands, en seinni hluti
móts þessa fór fram f Iþróttahúsi
Kennaraháskólans á sunnudag-
inn. Sigraði Viðar f úrslitaglfmu
sinni við Gfsla Þorsteinsson, og
var það vel af sér vikið, þar sem
Gísli er töluvert þyngri en Viðar.
1 þriðja sæti f flokknum varð svo
Halldór Guðbjörnsson úr JFR
sem sigraði Jónas Jónasson, Á, f
keppni um sætið.
Auk keppninnar f opna flokkn-
um var keppt f þremur þyngdar-
flokkum kvenna. í flokki þeirra
sem voru undir 61 kg sigraði
Magnea Einarsdóttir, Ármanni,
en Anna Lindal, Á, varð í öðru
sæti og Rut Sigurðardóttir, A, f
þriðja sæti. í flokki stúlkna
61—65 kg sigraði Anna Lára Frið-
riksdóttir, Á, en Rósa Össurar-
dóttir, Gerplu, varð í öðru sæti og
Hildur Einarsdóttir, Á, í þriðja
sæti. 1 flokki þeirra sem voru 65
kg og þyngri sigraði Sigurveig
Pétursdóttir, Á, Þóra Þórisdóttir,
Á, varð önnur og Hólmfríður
Garðarsdóttir, JFR, i þriðja sæti.
Á mótinu á sunnudaginn var
einnig keppt í þremur flokkum
unglinga 15—17 ára. í flokki
þeirra sem voru léttari en 60 kg
sigraði Ólafur Hermannsson,
UMFK, Arnar Þ. Sigurjónsson,
UMFK, varð í öðru sæti og
Kristján Másson, UMFG, varð i
þriðja sæti. í flokki 60—70 kg
varð Daniel Eyjólfsson, UMFK, i
fyrsta sæti. Þórarinn Ólafsson,
UMFK, i öðru og Guðmundur Þ.
Ármannsson, UMFG, i þriðja
sæti. Sigurður Hauksson, UMFK,
sigraði svo i flokki þeirra sem
voru 70 kg og þyngri, Sigurður G.
Ásgeirsson, Á, varð i öðru sæti og
Gunnar Rúnarsson, UMFG, varð
þriðji.
Valsstúlkurnar höfðu betur nyrðra
Lyftingasamb andið setur lágmörk
Á SÍÐASTA ársþingi Lyftingasambands tslands var ákveðið að
setja lágmörk f tvíþraut og kraftþraut til ákvörðunar þátttöku á
Íslandsmeistaramótum lyftingamanna. Sú regla gildir um lág-
mörkin að þeim þurfa keppendur að hafa náð á tímabilinu frá og
með siðasta meistaramóti til síðasta skráningardags. Lágntörkin
eru eftirfarandi (flokkur á við líkamsþyngd keppenda):
ÞÓR og Valur léku f 1. deild
kvenna í Skemmunni á Akureyri
á laugardag. Ekki tókst Þórsurum
að stöðva sigurgöngu Vals að
þessu sinni, Valur sigraði með 14
mörkum gegn 9. 1 leikhléi hafði
Valur skorað 4 mörk gegn 3 Þórs-
ara.
Leikurinn var fremur slakur og
lftt skemmtilegur fyrir áhorfend-
ur. Þórsstúlkurnar virtust óvenju
ragar að þessu sinni og létu Vals-
stúlkurnar hrekja sig um of út á
völlinn í sókninni og þvf nýttust
skytturnar ekki sem skyldi.
Valsliðið átti ekki heldur góðan
dag, helst að sjá sem æfingin sé
ekki upp á það besta. Þau eiga
það annars sammerkt þau lið sem
undirritaður hefir séð leika f
kvennahandboltanum i vetur að
mjög skortir á að stúlkurnar búi
yfir nægjanlegum krafti til að
leika handknattleik sem „bragð
er að“.
Mörk Vals: Björg Guðmunds-
dóttir og Ragnheiður Lárusdóttir
4 hvor. Björg Jónsdóttir og Oddný
Guðmundsdóttir 2 hvor, Harpa og
Halldóra eitt mark hvor.
Mörk Þórs: Anna Gréta og
Sofffa 3 hvor, Harpa Sigurðar-
dóttir 2 og Guðrún Stefánsdóttir
eitt mark. Sigb.G.
Tvíþraut Flokkur Kraftaþraut
90 kg 52,0 kg 260 kg
. 100 kg 56,0 kg 280 kg
120 kg 60.0 kg 300 kg
140 kg 67,5 kg 350 kg
160 kg 75.0 kg 400 kg
180 kg 82,5 kg 460 kg
200 kg 90,0 kg 520 kg
220 kg 100,0 kg 560 kg
240 kg 110,0 kg 620 kg
240 kg 110+ kg 640 kg