Morgunblaðið - 06.03.1977, Qupperneq 45
/
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10— 11
, FRÁ MÁNUDEGI
'f !\y (/Jvimroi''ujar/j if
þegar hann flýtti sér að skrifa
vini sínum að fyrir guðskuld
skyldi aldrei nokkur maður fara
þangað. Það vill heldur enginn
verkamaður á Vesturlöndum
flytjast til járntjaldslandanna.
Þeir vilja ekki vinna þar sem rétt-
lausir rikisþrælar heldur láta sér
nægja atvinnuleysisstyrkinn í von
um betri tíma.
Ég veit að þrælarnir í Róm á
sínum tima höfðu nóg að bíta og
brenna, en hver öfundar þá. Þetta
er gott sem Pravda segir,
kommúnisminn samræmist ekki
lýðræði og mælir með „friðsam-
legu ofbeldi." Hvaða hæstiréttur
á að skilgreina ofbeldið og hver á
að líta eftir framkvæmdinni. Er
það bjóðandi nokkrum manni að
eiga að sætta sig við þess konar
stjórnskipulag? Svari þeir nú
þessu, þessir sem ennþá trúa á
kommúnismann.
Húsmóðir."
1 lokin hér tökum við eitt bréf
um aðalmálið þessa dagana, sem
sagt bjórmálið:
0 Áfengi er ekki
alltaf gledigjafi
„Halló Velvakandi.
Vegna þáttarins með og móti
bjór vil ég skrifa: Ég vil benda
Hrafni Gunnlaugssyni á að fá sér
skemmtilegra starf ef honum leið-
ist í vinnunni, mér fannst þessi
skemmtilegi maður bera það mér
sér að honum leiddist. Ég álít að
hann oski eftir ölkrám til að
skemmta sér og öðrum — ég
bendi honum hér með á „heitu
pottana" á sundstöðunum í borg-
inni — og svo að koma við i
Templarahöllinni — ásamt öðrum
skemmtistöðum.
Einnig að starfa í klúbbum, ég
mæli með klúbbhúsum þar sem
fátt fólk kemur en ekki með öl-
krám. Jón Sólnes er svo þekktur
maður að hann fengi sennilega
hvergi frið fyrir „elsku vininum"
á hverri krá. Ég bendi honum á
Hótel Holt — þar er friðsælt. Ef
ölkrár yrðu opnaðar þyrftu þær
að ioka fyrr en skemmtistaðir, —
a.m.k. meðan „strætóar" ganga.
Annars myndu þær orsaka meira
öngþveiti fólksins í umferðinni.
Svo myndu menn undir áhrifum
sækja þangað og ungt fólk og þar
er hættan, að börn um fermingu
byrjuðu fleiri drykkju.
Til þess eru vítin að varast þau
er gamall málsháttur og með lög-
um skal land byggja. Mér finnst
sjónvarpið ætti að sýna og fræða
um áhrif alkóhóls eins og þættirn-
ir með AA-samtökunum. Það er
bara ekki nóg — það þyrfti ein-
hvern sem þekkir áfengisvanda-
mál að skrifa bók um alkóhólista
sem kennd væri í 12 ára bekk,
ekki til að vera prófuð í — heldur
sem væri lesin.
Alkóhólisti er maður sem ekki
hefur stjórn á drykkju sinni —
hann er sjúklingur. Ég hefi lesið
um sekt á almannafæri og þeir
sem veita manni sem er öfurölvi
eru sektaðir. Hvernig væri að
bæta einum þjóni við á barana
sem neitaði fullum mönnum um
vín?
Svava Valdimarsdóttir."
Leðurlíkisjakkar kr. 5.500
Nylonúlpur kr. 6.100
Gallabuxur kr. 2.270
Terylenebuxur frá kr. 2.370
Peysur, skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22.
Smíðið sjálf
Eigum nú fyrirliggjandi 12 mm reyklitaðar
glerplötur i eftirtöldum stærðum:
1 50 x 80 cm, 90 x 90 cm, 60 x 60 cm, 40
X 60 cm, 90 cm. hringplötur.
Plöturnar eru slípaðar og henta vel sem borð-
plötur eða í hillusamstæður. Ótal möguleikar
fyrir hugmyndaríkt fólk.
Kristján Knútsson, umboðsverslun,
Austurstræti 6 simi 26113.
Þessir hringdu . . .
% Varasamur
forgangur
Ökumaður:
— Mér finnst það nokkuð vara-
samur eða vafasamur heiður að
veita strætisvögnum Reykjavíkur
(og kannski Hafnarfjarðar og
Kópavogs) einhvern forgang
fram yfir okkur hina í umferð-
inni, eins og tillaga hefur komið
fram um á Alþingi. Það er rétt að
oft er erfitt fyrir blessaða menn-
ina að halda sinni tímaáætlun, en
hvers vegna er hún þá gerð þann-
ig að þeir þurfti helzt að brjóta
allar reglur til að geta haldið
áætluninni? Ég held líka að marg-
ir ökumenn sýni SVR það mikinn
forgang og tillitsemi i umferðinni
nú þegar að ekkert þurfi þar að
bæta úr. En ég held að það geti
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
1 HINU fræga heimsmeistara-
einvfgi þeirra Aljekíns og Capa-
blanca f Buenos Aires f Argen-
tfnu 1927 kom þessi staóa upp f
fyrstu einvfgisskákinni.
Aljekín hafði svart og átti leik.
E.t.v. var það i þessari stöðu þar
sem gert var út um einvígið:
• bcdofgh
16... Rxc2!, 17. IIxc2 (Eða 17.
Dxc2 — Dxc2, 18. Hxc2 — Bxf4)
Dxf4! og svartur vann peð og
skákina. Sigurvegari f einviginu
varð Aljekín. Einvígi þetta var
oftast ne.fnt einvfgi aldarinnar al-
veg þar til þeir Fischer og
Spassky tefldu f Laugardalshöll-
inni.
orsakað stóraukna hættu í um-
ferðinni ef maður á allt i einu að
stöðva á miðri akbraut ef strætis-
vagn er að aka út frá biðstöð
sinni. Maður á það á hættu að
einhver renni sér aftan á mann
(bifreiðina á ég við) og þar fram
eftir götunum.
HÖGNI HREKKVÍSI
Ég hélt að ekki fengi hver sem væri inngöngu í
gamla klúbbinn okkar.
G3? SIGGA V/öGA í \lLVt9AU
fis 1UWMf/ V/c'K’O^ \ <kR& /19 Éá V//Z.9/
LÁ\f\ *4LL/K\1lá 06 túÁIIXÁNNI i
VAéJW'fe V/L VOKI xjELVöZ LÁVA \<ALL4
M/6 GQGGAÍ
YÍONVOtt 610#ó
ÚAWÍEL^OK 0&
viuwwúmwo
VEL M ylöMVAQ-f