Morgunblaðið - 06.03.1977, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977
Anna Tauriala frá Fjnnlandi:
Fyrirlestur (á sænsku) með litskyggnum um
finnskar barnabækur og barnabókamyndskreyt-
ingu í Norræna húsinu SUNNUDAGINN 6.
MARS KL. 16:00.
í BÓKASAFNI OG ANDDYRI:
Sýning á myndskreytingum barnabóka eftir 13
finnska listamenn.
Litskyggnusýning um þróun myndskrdyting-
anna.
Verið velkomin Norræna húsið.
NORRÍHA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
LEÐUR:
★ Jakkar
★ Blússur
★ Frakkar
NÝ SENDING
H E R RA D E I LD
AUSTURSTRÆTI 14
Skodsborgarstóllinn
Hátt sæti. Háir armar, höfuðpúði og íhvolft
bak fyrir góða hvíld
Ný stóltegund hönnuð fyrir þá, sem erfitt eiga með að rísa upp úr
djúpu sæti, þurfa góðan stuðning og þægilega hvíldarstellingu.
Stóllinn er framleiddur fyrir áeggjan forstöðumanna elli- og endurhæf-
ingarstofnanna hér á landi.
Nafnið gáfum við honum, án nokkurrar hugmyndar um hvort svo
góður stóll sé til á því fræga hvíldarsetri.
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Mikið öryggi í
spilamennskunni
hjá sveit Hjalta
MEISTARAKEPPNI Bridge-
félags Reykjavíkur er lokið.
Eins og raunar var vitað fyrir-
fram sigraði sveit Hjalta Elfas-
sonar örugglega, hlaut 116 stig
af 140 mögulegum, sem er
mjög góður árangur. I sveit
Hjalta eru ásamt honum:
Ásmundur Pálsson, Einar Þor-
finnsson, Guðlaugur Jóhanns-
son og Örn Arnþórsson.
í öðru sæti varð sveit Eiríks
Helgasonar með 95 stig og kom
svejtin mjög á óvart. Hana
skipa ungir og lítt þekktir
spilarar og skutu þeir mörgum
þekktari spilurum ref fyrir
rass. í þriðja sæti varð sveit
Jóns Hjaltasonar með 77 stig.
í fyrsta sæti sigraði sveit
Ólafs H. Ölafssonar örugglega
en mikil keppni var um annað
sætið. Sveit Steingríms Jónas-
sonar hafði þó betur og hlaut
annað sætið, alls 96 stig. í
þriðja sæti varð sveit Sigurðar
B. Þorsteinssonar með 84 stig.
16 sveitir tóku þátt í keppn-
inni, átta 1 hvorum flokki, en
tvær efstu sveitirnar í hvorum
flokki fá rétt til þátttöku í
meistaraflokki næsta spilaár.
Framkvæmd mótsins var
keppnisstjóranum, Guðmundi
Kr. Sigurðssyni, til mikils
sóma.
Næsta keppni félagsins, sem
hefst næsta fimmtudag, verður
svokölluð „board a match“
keppni sem er sveitakeppni.
Þetta er skemmtilegt keppnis-
form, sem eflaust verður vin-
sælt. Þar vegur hvert spil
þyngra í úrslitum leiks en 1
venjulegri sveitakeppni. 2 stig
eru til skiptattna fyrir hvert
spil en þar að auki ræður
„saldómismunur" 12 vinnings-
stigum. Þannig verður t.d. í 10
spila leik 32 stig til skiptanna.
Enn er hægt að bæta við
sveitum I keppni þessa sem
verður í fjögur kvöld. Þátttaka
tilkynnist til stjórnarmanna
félagsins fyrir þriðjudag.
Síðastliðinn mánudag öttum
við kappi við Ásana i Kópavogi.
Var það mjög skemmtileg og
drengileg keppni sem lauk með
sigri okkar heimamanna — en
naumum þó.
Næsta keppni félagsins hefst
á mánudaginn en það er sveita-
keppni með Patton-
fyrirkomulagi og stendur yfir í
tvö kvöld. Allir eru velkomnir.
Naumur sigur
Kópavogsbúa yfir
Húnvetningum
S.L. fimmtudag heimsóttu
Húnvetningar Bridgefélag
Kópavogs og var spiluó sveita-
keppni 10 sveita frá hvoru
félagi. Urslit urðu þau að
Bridgefélag Kópavogs vann 5
leiki, Húnvetningar 4, en einn
varð jafntefli. Ileildarúrslit
vinningsstiga varð Kópavogur
108 stig, Húnvetningar 92 stig.
Næsta fimmtudag hefst tvi-
menningskeppni með baromet-
erfyrirkomulagi og verða
spiluð tölvugefin spil, sem sér-
staklega eru gefin fyrir þessa
keppni. Enn er hægt að bæta i
þessa keppni nokkrum pörum
og eru þeir sem áhuga hafa
beðnir að tilkynna þátttöku i
síma 40006 eða 41794 í siðasta
lagi á þriðjudagskvöld.
Keppnisstjóri er Vilhjálmur
Sigurðsson, en spilað er i Þing-
hól Hamraborg 11.
Ekið á konu
í Njarðvíkum
ALVARLEGT umferðarslys varð
á Reykjanesbraut í fyrrakvöld
um klukka 21.30 á móts við bið-
skýlið 1 Njarðvíkum. Þar var ekið
á gangandi konu, 37 ára. Hún var
flutt meðvitundarlaus í sjúkra-
húsið f Keflavík og þaðan í Borg-
arspftalann f Reykjavík. Konan
er höfuðkúpubrotin.
Hafnarstræti
22 til sölu
SVEINN Björnsson og Co hefur
boðið Reykjavíkurborg til kaups
húsið Hafnarstræti 22, en það
stendur við Lækjartorg og
Hafnarstræti. Borgarráð hefur
visað málinu til borgarverkfærð-
ings og er það til athugunar þar.
Leiðrétting
á grein Ingimars Erlends
ALLMARGAR prentvillur slædd-
ust inn í grein Ingimars Erlends
Sigurðssonar, „Hið andlega ilsig“,
í Mbl. í gær, en lesa má þó í þær
flestar. Um leið og beðist er vel-
virðingar á mistökunum, er birt
hér aftur sú efnisgrein, sem harð-
ast varð úti af þessum sökum:
„Hann getur ekki glaðzt yfir
að rithöfundur, starfsbróðir,
skyldi ásamt skáldinu Matthíasi
Johannessen hafa verið goðorðs-
maður þjóðhátíðar í þessu
landi skáldskapar, þar sem þó
er landlægt vanmat að skáld séu
aumingjar og þess vegna skáld.
Þeir skáldbræður afsönnuðu
þá afdalakenningu með glæsi-
brag, svo það er stærra að vera
skáld og rithöfundur I þessu
Iandi, eftir þá þjóðhátið. Pétur er
ekki einn um ógleði — öfundar-
innar. Það virðist þjóðlegt að þola
ekki stórbrotna menn í þessu
landi hárra fjalla. Mörgum þykir
óþolandi það náttúrulögmál and-
legt að fjöllin skapi dalina og öf-
ugt; talið bera lítinn vott um lýð-
ræði. Hvorki guð þessa lands né
guð andans eru guðir kommún-
ismans — flathyggjuguðir. Lýð-
ræði er ekki leiðin niður á við
heldur upp á við; leiðin til vaxtar
— jafnrétti til ólíks vaxtar.
Kommúnismi leitast hins vegar
við að jafna allt við jörðu. 1 and-
legu ríki hans má ekki lofta undir
il “
Verzjunarskóli Islands
Árgangur 1967 — 10 ára
nemendur útskrifaðir frá V.í. vorið 1967 —
Mætum öll í Snorrabæ (Austurbæjarbíó, uppi),
mánudaginn 7. marz, kl. 21.00
Nefndin
OEIGENDUR
OLYMPIA
SKRIFSTOFUVÉLA
Frá 1.1. 1977 höfum við tekið að okkur einkaumboð fyrir
Olympia International AG., hér á landi.
Fullkomin viðgerðar- og varahlutaþjónusta er nú þegar
fyrir hendi á verkstæði okkar.
Allar gerðir OLYMPIA rit- og reiknivéla verða á næstunni
til sýnis og sölu hjá okkur.
o
Olympia International • Búromaschinen • Burosysteme HýýÍIÆM^HNItU]^ KJARAN HF
Olympia Werke AG - Wilhelmshaven skrifstofuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8, sími 24140