Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 2

Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 Með Andrési önd á skíðum á Akureyri UM HELGINA fór fram á Akureyri skíðamót, sem kennt var við hetjuna Andrés Önd. Þátttakendur voru á aldrinum 7—12 ára viðs vegar að af landinu, alls 311 talsins og var skíðamót þetta meira en helmingi fjölmennara en nokkurt annað skiðamót, sem hér hefur verið haldið. Á myndinni sjást nokkrir ungir Akureyringar fylgjast með verðlaunaaf- hendingunni. Sff*. Svava Jakobsdóttir braut trúnað: Notaði frest til að semja og flytja frv. um sama efni! Úrskurður Hæstaréttar: Bílskúrinn við Gnitanes 10 fær að standa FRUMVARP Ranghildar Ilelga- dóttur o.fl. um afnám skerðingar- ákvæða (varðandi tekjur maka) í greiðslu fæðingarorlofs til úti- vinnandi kvenna í aðildarfélög- um ASl, var til umræðu í neðri deild Alþingis í gær. Flutnings- menn eru úr öllum þingflokkum utan Alþýðubandalagsins. t fram- sögu Ragnhildar Ilelgadóttur kom m.a. fram, að Svövu Jakobs- dóttur, þingmanni Alþýðubands- lags, hefði verið boðið að gerast meðflutningsmaður að frum- varpinu. Ilefði hún fengið frest til kvölds þess dags, er frum- varpið átti að leggja fram, og jafnframt afhent frumvarpið sem trúnaðarmál. Þennan frest hefði hún nýtt til að semja eigið frum- varp um sama efni að viðbættum ákvæðum um afnám skerðingar- ákvæða varðandi atvinnuleysis- bætur, sem hún hefði síðan lagt fram á undan því frumvarpi sem hún hefði haft undir höndum sem fúnaðarmál. Þetta væri skýring- Orðsending frá Barna- og fjölskyldusíðunni Barna- og fjölskyldusiðan óskar eftir að fá sent efni frá börnum og unglingum — og að þessu sinni sérstaklega í sam- bandi við páskana. Mega það vera teikningar, frásagnir, Ijóð eða stuttar sögur. Efnið verður að senda I þessari viku, merkt: „Barna- og fjölskyldusíðan, Morgun- blaðinu1'. Verður síðan valið úr því sem berst til birtingar í páskablaðinu. in á því hvers vegna fram væru komin tvö frumvörp um sama efni. Svava sagði í svarræðu, að hún hefði ekki fengið nægilega langan frest til íhugunar um, hvort hún yrði meðflutningsmaður að frum- varpi Ragnhildar o.fl., þar eð hún hefði þurft að ræða það mál í sínum þingflokki. Því hefði hún valið þann kost að flytja sjálfstætt frumvarp og tengja það einnig æskilegri breytingu á skerðingar- Gudbjartur Pálsson bif- reidastj. látinn GUÐRJARTUR Pálsson bifreióa- stjóri lézt á heimili sfnu I fyrri- nótt, 52 ára að aldri. Banamein hans er talið hafa verið hjarta- slag. Guðbjartur Þórður Pálsson, eins og hann hét fullu nafni, fæddíst á Stokkseyri 2. ágúst 1924. Hann hefur stundað ýmis störf um ævina en fyrst og fremst bifreiðaakstur. Um tíma var hann umsvifamikill í atvinnurekstri og fésýslu og rak m.a. um tíma bifreiðaleiguna Bílinn. Guðbjart- ur mun hafa átt við nokkra van- heilsu aðstríða undanfarið. (iuðbjartur lætur eftir sig fimm börn á lífi. ákvæðum vaðandi atvinnuleysis- bætur. Hún hefði því engan trúnað brotið þó að hennar frum- varp hefði fyrr verið fram lagt, enda hefði hún tilkynnt Ragn- hildi ákvörðun sína sama dag og hún lagði frumvarp sitt fram. Taldi hún því tanglega á sig hallað í málflutningi Ragnhildar varðandi umræddan frumvarps- flutning. Fjöldi þingmanna tók þátt í þessari umræðu, þ. á m. Eðvarð Sigurðsson og Guðmundur H. Garðarsson. Umræðu var ekki lokið klukkan langt gengin sjö i gær og búizt var við kvöldfundi um málið. Á mælendaskrá var m.a. Ragnhildur Helgadóttir. Þessi umræða öll verður lauslega rakin efnislega á þingsíðu Morgunblaðsins siðar. HÆSTIRÉTTUR kvað í gær upp dóm f Gnitanesmálinu svonefnda. Féll dómurinn á þá lund að héraðsdómur skuli vera órask- aður. Þetta þýðir, að bifreiða- geymsla við húsið Gnitanes 10 í Reykjavík fær að standa en ríkis- saksóknari hafði ákært eiganda umrædds húss til að sæta brott- námi bifreiðageymslunnar af lóð sinni. í ákæru ríkissasóknara sagði, að umrædd bifreiðageymsla bryti í bága við ákvæði byggingasam- þykktar Reykjavikur hvað varðaði flatarmál og hæð. Staðsetning hennar og afstaða hennar til hússins bryti einnig í bága við skipulagsuppdrátt og skipulagsskilmála og að siðustu að hún skerti rétt ibúa Gnitaness Spassky sýndar kvikmyndir frá einvíginu 72 Kemur Fischer? MORGUNBLAÐIÐ hefur fregn að, að Skáksamband tslands hafi undir höndum nýjar og áður ósýndar kvikmyndir frá heims- meistaraeinvfginu milli Fischers og Spasskys árið 1972. Mun vera ætlunin að sýna þessar myndir f fyrsta skipti næstkomandi mið- vikudag fyrir stórmeistarana Spassky og Hort, aðstoðarmenn þeirra og fslenzka blaðamenn. Það mun hafa verið aðeins á fárra vitorði að Chester Fox tók upp allar einvígisskákirnar í heimsmeistaraeinvíginu og að til séu filmur af öllum skákunum að undanskilinni hinni fyrstu. M.a. munu þessar filmur sýna vel við- brögð Bobby Fishers, þegar Lothar Smidt yfirdómari til- kynnti honum að hann væri orð- inn heimsmeistari. Eins og fram kom á sínum tíma, var Bobby Fischer boðið af Skák- sambandinu hingað til lands í til- efni þess að 5 ár eru liðin frá einvíginu hér í Reykjavík. Hafði Sæmundur Pálsson lögreglu- þjónn milligöngu í þessu máli. Ekkert hefur heyrzt frá Fischer, nema hvað hann mun hafa reynt að ná sambandi við Sæmund nótt eina fyrir skömmu. Sæmundur var þá að sinna skyldustörfum sínum í lögreglunni og bað eigin- kona Sæmundar fyrir skilaboð til Fischers að hringja seinna, hvað hann hefur ekki gert. 8 til sólar og birtu og það varðaði við skipulagslög. í sakadómi Reykjavikur var Arnbjörn Óskarsson, eigandi Gnitaness 10, sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins hinn 8. júlí s.l. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu, að bygginganefnd Reykjavíkur hefði gengið of langt með því að leyfa grunnflöt bif- reiðageymslunnar eins stóran og raun varð á en hins vegar taldi dómurinn ekki unnt að slá föstu að of langt hefði verið gengið með hæð bílskúrsins eða afstöðu milli ibúðarhúss og bifreiðageymslu. Þá taldi dómurinn ósannað að fullnægjandi birtu nyti ekki á aðalsólhlið hússins Gnitaness 8 og byggði það álit á niðurstöðum sér- fróðra manna, sem kvaddir voru til að gefa álit á þessu atriði. Dóm þann í sakadómi Reykja- víkur, sem Hæstiréttur lét standa óraskaðan, kváðu upp Haraldur Henrýsson, sakadómari, og með- dómendurnir Skúli Norðdahl, arkitekt, og Páll Hannesson, verk- fræðingur. í dómi Hæstaréttar er tiltekið, að áfrýjunarkostnaður skuli greiðast úr ríkissjóði og sömuleið- is laun verjanda ákærða, Bene- dikts Sveinssonar hrl., krónur 100 þúsund. Gnitanesmálið hefur vakið talsvert umtal og blaðaskrif og hafa eigendur Gnitaness 8, dr. Bjarni Jónsson og kona hans, Þóra Árnadóttir m.a. ritað itar- legar greinar um málið hér 1 Morgunblaðinu. Fundur utan- ríkisráðherra Norðurlanda í Rvík á morgun Á morgun verður haldinn I Reykjavfk fundur utanrfkisráð- herra Norðurlanda. Að sögn Harðar Helgasonar, skrifstofu- stjóra utanríkisráðuneytisins, verður til umræðu á fundinum almennt ástand i heimsmálunum og skipzt verður á skoðunum, en fundurinn stendur einn dag. Þessir fundir eru haldnir reglu- lega tvisvar á ári og var síðast fundur hérlendis fyrir þremur ár- um. Fundinn sækja utanríkisráð- herrar allra Norðurlandanna nema Finnlands. Á fimmtudag munu þeir ráðherrar, sem hyggj- ast dvelja lengur, fara í skoðunar- ferð til Vestmannaeyja. w Eg ætla að vanda mjög til þessarar sýningar Erró undirbýr 60-70 verka yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum MORGUNBLAÐIÐ hafði tal af Erró, listmálara f París, f gær, en eins og sagt hefur verið frá f Morgunblaðinu mun Erró hafa stóra sýningu á verkum sfnum á Kjarvalsstöðum á Listahátfð 1978. Erró er nýkominn til Frakklands frá Thailandi en þar hefur hann unnið undan- farnar vikur f vinnustofu sinni þar. „Ég er byrjaður að safna myndunum fyrir sýninguna heima. Ég ætla að reyna að koma upp yfirlitssýningu á verkum frá árinu 1961 til dagsins i dag og ég reikna með að sina milli 60 og 70 verk," sagði Erró," ég ætla að reyna að vanda mjög mikið til þessarar sýningar og útlit er fyrir að á sama tíma og sýniivgin verður heima komi út bók ra^eð verkum minum á vegum Iceland Review. Það er spennandi ef bókin kemst út á sama tíma og sýningin verður. Annars er ekkert nýtt. Þetia gengur sinn gang og ég vinn heilmikið. Framundan er skot- ferð til Egyptalands. Ég ætla að sigla upp Níl með vinum mín- um, en eftir það verð ég áfram í París fram í júní þar til ég fer til Spánar eins og venjulega á sumrin og þar mun ég vinna í sumar." Morgunblaðið hagði einnig samband við Harald J. Hamar hjá Icéland Review. Hann sagði að allt væri komið i fullan gang með bókina og kvað hann það álit sitt eftir að hafa kynnt sér efnið í bókina, að um feikilega spennandi bókarefni væri að ræða. Kvað hann stefnt að þvi að bókin yrði gefin út á Lista- hátið 1978 og yrði hún bæði gefin út á íslenzku og ensku, en alls verða miili 60 og 70 lit- myndir í bókinni. Bók um Erró kemur út í Reykjavík á sama tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.