Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 19
19
—MORG-U-Í4BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
- HORT — SPASSKY — HORT — SPASSKY — HORT — | Skák
I.jósm. Mbl. Ol.K.Mag. og Frióþjófur.
HORT leikur kóngspeðinu fram um tvo reiti og bardaginn er hafinn.
Eftir fimm klukkustunda baráttu er leiknum lokið og meistararnir
slappa af. Hort er glaður en Spassky hryggur yfir úrslitunum.
„Er maðurinn vit-
lausaðmætaekkií
köflóttu peysunni"
yfir skákina en Hort sat sallaró-
legur eins og hann biði eftir upp-
gjöf á hverri stundu. Þegar
Spassky sá að hann átti ekki eftir
nema 3 mínútur til að leika 6
siðustu leikina skildi hann að
ieikurinn var tapaður. Hann
stöðvaði skákklukkuna styrkri
hendi og rétti Hort hana siðan til
merkis um uppgjöf. Hort tók þétt-
ingsfast í höndina á Spassky og
gleðibros færðist yfir andlitið. Og
áhorfendur, sem fylgst höfðu með
skákinni með öndina í hálsinum,
klöppuðu Hort lof í lófa. Hann
hafði náð langþráðu takmarki,
hann hafði lagt Spassky að velli í
fyrsta skipti og nú þarf Spassky
að sækja á brattann.
Þessi úrslit geta haft ýmsar af-
leiðingar í för með sér og þau geta
dregið einvigið á langinn. Ef
kapparnir verða jafnir eftir 12
skákir, leika þeir tvær skákir til
viðbótar og síðan tvær og tvær
þar til hrein úrslit fást. Einar S.
Einarsson skáksambandsforseti
lýsti því yfir í veizlu hjá borgar-
stjóra á föstudaginn að fjárhags-
grundvöllur einvígisins væri
tryggður. Einar sagði á sunnudag-
inn að þetta stæðist nema einvígið
drægist mjög á langinn, þá gæti
dæmið breyzt.
Ellefta skákin verður tefld á
þriðjudaginn og hefst hún klukk-
an 17. Þá hefur Spassky hvítt og
nú er það hans að sækja. Væntan-
lega verða tvær siðustu skákirnar
miklar baráttuskákir og er viss-
ara fyrir áhorfendur að mæta
tímanlega.
SKAKSAMBAND
GENS UNA SUMUS
ÍSLANDS
framsókn og fæ óhindrað að spila á
ritvélina þeirra og jafnvel líka að nota
pappír merktan Timablaðinu Sumir
hér inni líta mig óhýru auga og segja
þetta vera ágæta sönnun um ástarsam-
band maddömunnar og ihaldsins Nú
er af sem áður var: ,,Allt er betra en
íhaldið' 0 tempora o mores sagði
Cicero forðum í ræðu sinni, sem við
lásum i fimmta bekk M A hjá Þórarni
heitnum Björnssyni
Sumir hafa orð á því að þessi skák
líkist dansi eftir Smetana hinum
tékkneska. Mikið af lifi í henni,
hneigingar og beygingar og alls kyns
tilbrigði. Björninn dansar af mikilli
kúnst enda þaulæfður eftir þrádans í
diskótekum borgarinnar Samþykkt er
með öllum atkvæðum gegn einu að
senda Hortinu blómvönd ef honum
tekst að leggja Ijómð að velli í þessari
skák Einn situr hjá, nafn ekki gefið
upp, enda atkvæðagreiðslan leynileg
Grandi — Vogar
Ég veit ekki hvort sönn er sú saga
sem flýgur hér um loftið en ég læt
hana samt flakka og ef einhver
véfengir, þá er ég reiðubúinn að geta
heimildarmanns.
Ég minntist hér fyrr í þessum stúf
minum á boð borgarstjóra. þar sem
gleymdist að bjóða okkur sem puðum
hér dag hvern í lok téðs boðs stóð
fyrir utan strætisbill merktur Grandi-
Vogar og að sjálfsögðu þyrptust veislu-
gestir inn i hraðreiðina, höfðu hátt og
sungu ..Kátir voru karlar " o.s.frv.
Sem vagninn rennur framhjá Skúla-
túni 2 kemur maður á kjóli og hvítu
stökkvandi út á götuna baðandi út
öllum öngum. Auðvitað varð strætóinn
að stoppa og var þar kominn einn af
yfirmönnum borgarinnar, en þau mis-
tök höfðu orðið, að vagninn sem átti að
sækja fyrirfólk í Skúlatún flæktist af
gömlum vana inn i Höfða og tíndi upp
veglausa skákfélagsstráka, sem voru
þar i reiðuleysi Ekki fylgir sögunni
hvort þetta mál verður tekið fyrir hjá
borgráði, en að Alfreð Þorsteinsson
hafi fullan hug á að gera athugasemd
vegna misnotkunar á strætisvögnum
borgarinnar.
Vitlaust
gefið
Klukkan er rúmlega fimm og hillir
enn undir jafntefli og þeir sem lengst
eru komnir eru búnir að setja upp
fýlusvip Skáksambandsmenn anda
léttar þvl nú ætti að aukast mögu-
leikarnir á þvi að þessum ósköpum
Ijúki fyrir sumarmál Auðvrtað gæti ein-
vigið hæglega staðið fram á sumar, ef
Hort vinnur þessa skák og i kjölfar þess
vinnings komið ca 50 jafntefli Maður
veit aldrei hvað kemur uppá I þessari
skákkúnst og að þvi leyti er hún lik
fótboltanum
Nú er kominn hingað i blaðamanna-
herbergið Ingvar menntaskólakennari
Ásmundsson og fer mikinn Ingvar er
hress og matimatiker, lærifaðir hans
Margeirs skákmeistara
Bragi á Dagblaðínu er fundinn en
hann hefur ekki sést hér í sérfræðinga-
herberginu siðan leikurinn hófst og nú
er klukkan að halla i sex. Einhver sá
flugfreyju bregða fyrir i dyrunum i
sömu mund og Bragi rak inn nefið, en
engin ástæða til að ætla annað en þar
hafi hendingin ein ráðið
Nú harðnar leikurinn og dansinn er
stiginn hraðar og nú a ekki að semja
um ótimabært jafntefli
Menn eru farnir að viðra þá hug-
mynd að næsta einvigi hér i Loftleiða-
sölum verði á milli Sigurjóns blaðafull-
trúa Skáksambandsins og aldurs-
forseta starfandi blaðamanna hér Sig-
urðar hjá fréttastofu hljóðvarps
Aðstoðararmenn verða fyrir Sigurð
Gunnar Steinn og Högni Torfason fyrir
Sigurjón Aðgangur ókeypis
Sprennandi
22 leikjum er lokið og Sfrassky
hugsar fast Alls staðar þrengsli varla
hægt að komast á klóið til að pissa
Gamli fótboltakappinn Björn Fr sýslu-
maður hefur komið með sveifluna að
austan. Leikurinn æsist Horteraðhafa
hann Spassky stynur nokkrar mínútur.
nei örfáar og Spassky sýr sér i hálf-
hring i stólnum réttir Hirtinum hönd-
ina Hort ruglaður uppgefinn úttaugað-
ur en glaður Lófatak Leiknum er lokið
og kapparnir standa jafnfætis Ég læt
skáldið Stein tala síðustu orðin til rúss-
neska Ijónsins um leið og ég sendi
tékkneska birninum hamingjuóskir
„Og þótt þú.tapir,
það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið
b.
ÞAÐ var mikið fjölmenni á einviginu á
sunnudaginn og spenna i loftinu. Blaðamaður
tók nokkra mótsgesti tali og spurði þá nokkurra
spurninga um einvígið:
Sögulegast
þegar Hort
f£11 á tíma
Ingvar Ásmundsson, mennta-
skólakennari og skákmaður:
— Þetta einvigi hefur fyrst og
fremst verið átakaeinvigi og það
hefur reynt mjög á taugakerfi
beggja Það sögulegasta i einviginu
til þessa var þegar Hort féll á tima í
þriðju skákinni. Spassky tók þá
meiri áhættu en eðlilegt mátti teljast
og það var mjög áhrifamikið augna-
blik þegar Hort fór yfir timamörkin
Kapparnir hafa teflt misvel en fyrst
og fremst skynsamlega Ég átti von
á þvi að Hort myndi tefla hvassara
fyrst hann varð vinningi undir en
það hefur ekki gerst fyrr en þá
kannski núna i þessari skák og ef
Hort vinnur hana, skapast gifurleg
spenna i einvíginu Ég hef haft
ánægju af öllum skákunum i einvig
inu Þetta hefur verið góð tilbreyting
og mér sýnist skipulag allt vera
mjög gott af hálfu Skáksambands-
manna
hrakinu og féll á tima Einnig var
skákin á fimmtudaginn nokkuð góð
Skipulagning einvigisins er ágæt og
það er mjög gott að fá skákirnar að
utan. Aðsóknin hefur orðið meiri en
ég bjóst við og nú vantar okkur
tilfinnanlega skákhöll Liklega er
bezt að flýta byggmgu Borgar-
leikhússins oq tefla þar i framtiðinni
Teflir lítið en
finnst gaman
að fylgjast með
Spennandi
þrátt fyrir
öll jafnteflin
Egill Valgeirsson rakari og skák-
maður
— Ég hef nú ekki komið oft á
einvigið en ég hef fylgst vel með þvi
í blöðunum Mér finnst þetta hafa
veið spennandi þrátt fyrir öll jafn-
teflin Maður hefur svo sem átt von
á meiri sviptingum en fram til þessa
hefur Spassky náð jöfnu án erfiðis-
muna Það er mikil tilbreyting i
skammdeginu að fá svona einvigi
hingað og ekki er það til að skemma
fyrir að fá hinar einvigisskákirnar
skýrðar Mér finnst aðstaðan góð á
Hótel Loftleiðum og sérstaklega er
ég ánægður með skýringarnar, þeim
hefur verið ábótavant á siðustu stór-
mótum.
Nú vantar
okkur bara
skákhöll
Sigurður Sigurðsson,
fréttamaður og skákséní:
— Það er min skoðun að
kapparnir Hort og Spassky hafi teflt
vel i þessu einvigi en Hort kannski
full varfærnislega Það er eins og
hann hafi lagst i skotgrafahernarð
og bíði eftir þvi að Spassky yfirspili
sig. En það hefur Spassky ekki gert
og i dag sýnist manni að Hort ætli
að láta til skarar skriða. en það
kemur væntanlega í Ijós. Fram til
þessa hefur 3. skákin verið sú
skemmtilegasta .Spassky fórnaði
skiptamun og Hort átti bara eitt
svar. Hann fann það ekki i tima-
Halldór E. Sigurðsson ráðherra.
— Ég hef nú ekki komið á nema
4 eða 5 einvigisskákir Ég lærði
mannganginn þegar ég var ungur
en hef sáralitið teflt siðan þá Mér
finnst gaman og mjög spennandi að
fylgjast svona með skákunum en ég
get -ekkert dæmt um taflmennsku
þeirra Spasskys og Horts, en mér
finnst þeir þó hafa farið fullrólega i
sakirnar Ég held að þetta einvigis-
hald sé okkur til sóma og að það
verði til þess að auka hróður okkar
erlendis og efla skáklif i landinu
Reyndar er skáklif hér með miklum
blóma og mér þóttu fréttirnar um
Friðrik Ólafsson. sem hmgað bárust
i síðustu viku, afar ánægjulegar Það
er stórkostlegt að skákmanni frá
svona litlu landi skuli boðin slik
virðingarstaða sem forsetaembætti
hjá Alþjóða skáksambandinu Þetta
sýnir það mikla traust sem Friðrik
Ólafsson nýtur i skákheiminum og
þetta er ennfremur mikill heiður fyrir
ísland
Hefði orðið
öðru vísi
einvigi ef
Spassky hefði
fallið á tíma
Ólöf Þráinsdóttir. skákmeistari
kvenna ■ Reykjavik:
— Einvigið hefur verið daufara en
ég bjóst við Ég átti von á meiri
spennu og meiri baráttu og ég veit
ekki betur en skákmeistararnir hafi
einmitt lofað hörkuskákum i blaða
viðtölum fyrir einvigið Mér finnst
Hort tefla eins og hann er vanur, en
Framhald á bls. 46