Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAÖUR 22. MARZ 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
25
FYLKIR BATT ENDA Á
VONIR KA-MANNA
VONIH KA manna um að hreppa f fyrsta sinn sæti f 1. deild
lslandsmótsins f handknattleik mínnkuðu verulega á laugar-
daginn, er liðið varð að bfta f það súra epli að tapa leik sfnum
fyrir Fylki f Laugardalshöllinní. Reyndar er enn fræðilegur
möguleiki þess að KA hreppi 2. sætið f 2. deildinni og fái að leika
við næst neðsta liðið f 1. deild, en telja verður heldur ólfklegt að
sú staða komi upp. Er KA-liðið einnig greinilega á niðurleið um
þessar mundir, og ekki næstum þvf eíns mikii barátta f vörn
liðsins og yfírvegun f sókn þess og var fyrst í vetur.
Ekkert efamái er að KA-menn voru ailtof vissir um sigur í
leiknum við Fylki fyrirfram. Það var ekki fyrr en undir lok
leiksins sem þeir virtust átta sig á þvf að leikurinn var að tapast,
og þá var orðið of seint að hefja baráttuna. Crslitin urðu 18—15
fyrir Fylki, eftir að staðan hafði verið 10—8 f hálfleik. Mestur
varð munurinn 6 mörk f leiknum er staðan var 18—12 og
skammt var til leiksloka. Skoraði Hörður HiJmarsson þrjú
sfðustu mörk KA úr vftaköstum og bjargaði þannig andliti
norðanliðsins að nokkru.
Ekki verður sagt að leikur þessi hafi verið tilþrifamikill, eða
boðið upp á fallegan handknattleik. Mest bar á hnoði inn f
varnirnar, og aukaköstin sem voru dæmd voru næstum óteljandi.
Helzt var það hinn hávaxnf leikmaður Fylkis-Iiðsins, Einar
Einarsson sem gerði eitthvað afgerandi, en hann er ieíkmaður
sem vafalaust ætti að geta komizt f fremstu röð, með meiri
æfingu. Markverðir Fylkísliðsins, Jón Gunnarsson og Ragnar
Árnason reyndust KA einnig erfiðir viðfangs, og varði t.d. sá
sfðarnefndi þrjú vftaköst KA f leíknum. öll voru þau reyndar
fremur kæruleysíslega tekin.
Það var rétt einstaka sinnum sem skemmtileg tilþrif sáust f
leiknum og áttu þar KA-menn heldur oftar hlut að máli, einkum
tveir þeirra, Hörður Hilmarsson og Þorleifur Ananafasson, sem
unnu skemmtilega saman.
Mörk Fylkis: Einar Einarsson 7, Sigurður Sfmonarson 3,
Steinar Birgisson 3, Einar Ágústsson 3, Gunnar Baidursson 2.
Mörk KA: Hörður Hilmarsson 7, Ármann Sverrisson 2, Albert
Ágústsson 1, Sigurður Sigurðsson 1, Guðmundur Lárusson 1,
Þorieifur Ananfasson 1, Jóhann Einarsson 1, Hermann Haralds-
son 1.
Maður ieiksins: Einar Eínarsson, Fylki. , — stjl.
Sigurður Sigurðsson, myndar sig þarna til þess að skjóta f
gengum glufu á Leiknisvörninni.
Norðanmenn áhugalausir
ÁHUGALAUST KA-lið mátti þakka fyrir að hreppa baaði stigin I leik
sinum við Leikni I 2. deildar keppni íslandsmótsins i handknattleik á
sunnudaginn. Virtist KA-liðið láta á leik þennan sem skylduverk, og var
þetta lang slakasti leikur sem undirritaður hefur séð til liðsirrs i vetur.
Var það aðeins einstaklingsframtak Harðar Hilmarssonar, sem bjarg-
aði KA-sigrinum, en Hörður lék oft ágætlega i leik þessum og skoraði
falleg mörk. Er ekkí vafi á þvi að hann gæti náð langt i handknattleikn-
um. ef hann sýndi iþróttinni meiri rækt, en siðan um áramót mun
Hörður sáralítíð hafa æft.
Leikurinn á sunnudaginn var lengst af i járnum. Um miðjan fyrri
hálfleik hafði KA þó náð tveggja marka forystu, 7—5, og tókst að
halda þvi forskotí og vel það í hálfleiknum. en staðan að honum
loknum var 11 — 8 fyrir KA. í seinni hálfleik sýndi Leiknir hins vegar
fljótt klærnar og tófcst að jafna á tölunni 13—13. Og eftir það var
mikill barningur i leiknum. Enn var jafnt er tvær minútur voru til
leiksloka, 19—19. en þá varð Leaknismönnum illa á I messunni og KA
níði að skora tvö mörk og sigra 21 —19.
Eftir þessi úrslit eru allar Iffcur á þvi að Leiknir verði i næst neðsta
sætinu ( 2. deitdinni og þurfi að leika um áframhaldandi keppnisrétt f
deildinni við það lið sem verður í öðru sæti i 3. deild. Leiknis á nokkuð
misjafna leiki. Þegar bezt lætur getur liðið gert vel, en tæplega er
hægt að segja að sá gallinn hafi verið á þvi á sunnudaginn. Bezti
leikmaður liðsins var Ásgeir Elfasson, en Finnbjörn Finnbjornsson
gerði einnig oft laglega hluti. Hörður Hilmarsson var áberandi bezti
leikmaður KA i leiknum, og raunar sá eini sem lék af fullri getu.
Mörk Leiknis: Hafliði Kristinsson 6, Finnbjörn Finnbjömsson 5.
Ásmundur Kristinsson 3, Guðmundur Vigfússon 2, Árni Jóhannsson 1,
Ásgeir Eliasson 1, Tómas Óskarsson 1.
Mörk KA: Hörður Hilmarsson 7, Jóhann Einarsson 4, Sigurður
Sígurðsson 3. Páll Kristjánsson 2. Þorleifur Ananfasson 2, Ármann
Sverrisson 1. Albert Ágústsson 1, Hermann Haraldsson 1,
Maður leiksins: Hörður Hilmarsson, KA.
ERKIFJENDURNIR DEILDU
STIGUNUM [ HÖRKULEIK
Þórarinn Kagnarsson kom-
inn í færi eftir hraðaupp-
hlaup og skorar án þess að
Hörður Sigmarsson eða
Ólafur Ólafsson komi við
vörnum. Guðmundur Árni
er greinilega við öllu bú-
inn.
ERKIFJENDURNIR í Hafnarfirði.
Haukar og FH, deildu stigunum þeg-
ar þeir mættust i 1. deildinni i hand-
knattleik í heimabyggð sinni á laug-
ardaginn. Lokatölur leiksins urðu
21:21 eftir að Haukar höfðu leitt í
hálfleik 13:12. Miðaðviðgang leiks-
ins voru þetta réttlát úrslit en FH-
ingar verða að teljast heppnir að
hafa náð i annað stigið. Jöfnunar-
markið skoruðu þeir nokkrum
sekúndum fyrir leikslok úr vægast
sagt mjög hæpnu vitakasti, sem
Ólafur Steingrímsson dómari dæmdi
á Haukana. Eins og alltaf þegar þessi
lið mætast í Firðingum var geysileg
stemmning i íþróttahúsinu þar og
var ekki laust við að meirihluti áhorf-
enda væri á bandi Haukanna.
A ýmsu gekk á upphafsmínútum
leiksins. FH-ingar byrjuðu leikinn mjög
vel en á sama tíma gekk allt á afturfót-
unum hjá Haukunum Skoruðu FH-
ingar fjögur fyrstu mörk leiksins og
það var ekki fyrr en á 8 mínútu að
Haukunum tókst að koma knettinum i
netið h)á FH-ingum En Haukarnir
gáfust ekki upp við mótlætið. Söxuðu
þeir smám saman á forskot FH-inga og
á 14 mínútu voru þeir búnir að jafna
metin 6 6 Hjálpaði það þeim mikiðað
Birgir Finnbogason í marki FH varði
varla bolta Mátti furðulegt teljast að
honum skyldi ekki skipt útaf miklu fyrr.
Bætti Birgir sannarlega gráu ofan á
svart í lokasekúndum fyrir hálfleiks
þegar hann sendi boltann í eigið mark
og kom Haukunum yfir 13:12! Þetta
fáheyrða atvik gerðist þannig, að Birgir
hljóp út fyrir vítateiginn og greip bolt-
ann Aðþrengdur af Haukaleikmanni
ætlaði Birgir að taka einhvers konar
platsveiflu áður en hann sendi frá sér
knöttinn en á óskiljanlegan hátt missti
hann knöttinn úr hendinni og i markið
sveif knötturinn öllum viðstöddum til
mikillar undrunar Þetta eru vissulega
viðburðaríkir dagar hjá Birgi, um fyrri
helgi skoraði hann gott mark á móti ÍR
og núna var það sjálfsmark
Seinni hálfleikurinn var mjög spenn-
andi. Lengst af var leikurinn jafn en um
miðjan hálfleikinn náðu Haukarnir
tve99Ja niarka forystu, 18 16, með
mörkum Harðar Sigmarssonar, en
hann reyndist fyrri félögum sínum í FH
ansi skeinuhættur í leiknum Þegar hér
var komið sögu ákváðu FH-ingar að
setja Hörð í stranga gæzlu Við þessu
bragði áttu Haukarnir ekkert gott svar.
Skotið var í tíma og ótíma og var Elías
Jónasson þar verstur og ekki bætti það
úr skák fyrir þá, að Magnús Ólafsson
varamarkvörður FH varði allt sem að
marki kom næstu mínúturnar. Skoruðu
Haukarnir ekki eitt einasta mark i heilar
1 2 mínútur en á sama tíma skoruðu
FH-ingar fjögur mörk og breyttu stöð-
unni í 2018. Nú voru aðeins eftir 8
minútur og sigur FH virtist blasa við
En svo fór nú ekki. Haukarnir skoruðu
þrjú næstu mörk en FH-ingunum gekk
ekkert i sóknarleiknum á þessum tima,
þvi Haukarnir voru mjög harðir í vörn-
inni og Gunnar Einarsson markvörður
gerði sér lítið fyrir og varði vitakast frá
Þórarni rétt undir lokin. Þegar nokkrar
sekúundur voru til leiksloka reyndi Þór-
arann Ragnarsson að brjótast inn i
horninu. en Gunnar markvörður varði
skot hans En öllum til mikilla furðu
kom Ólafur Steingrímsson dómari
hlaupandi utan af velli og benti á
vítapunktinn en Gunnar Kjartansson
dómari, sem stóð rétt hjá þar sem
atburðirnir gerðust, hafði ekkert flaut-
að Aukakast í þessu tilfelli kom vel til
greina en vítakast var fjarstæða En
ekki þýðir að deila við dómarann, víta-
kast var staðreynd og úr því skoraði
Viðar Símonarson örugglega og
trY99ði FH jafntefli
Haukarnir hafa nú tapað 6 stigum
og mega varla við þvi að tapa fleiri
stigum ef þeir ætla sér að verða með
áfram í baráttunni um íslandsmeistara-
tignina Það sama má reyndar segja
um íslandsmeistara FH, sem tapað
hafa 7 stigum, en toppliðið Valur hefur
aðeins tapað tveimur stigum en Víking-
ur hefur tapaðfjórum stigum Eins og í
fyrri leikjum Hauka stafaði langmest
ógnun af Herði Sigmarssym og það
sást vel fyrstu mitúturnar eftir að hann
var tekinn úr umferð hve mikilvægur
hann er liðinu. Gunnar markvörður átt
góða spretti og bezt stóð hann sig
þegar mest á reyndi undir lokin. í
vörninni var Sigurgeir Marteinsson
mjög sterkur en Haukarnir hefðu mátt
not hann meira i vörninni en gert var
í liði FH kom Magnús Ólafsson veru-
lega á óvart með góðri markvörzlu.
..Gömlu' mennirnir Viðar, Geir og
Þórarann komu vel frá leiknum en það
hlýtur að vera FH-ingunum áhyggju-
efni hve litið hefur bætzt i liðið af
ungum leikmönnum Burðarásar liðs-
ins eru menn um og yfir þrítugt — SS.
Framarar sloppnir fyrir horn
FRAMARAR ættu að vera slopnir
úr allri fallhættu f 1. deildinni I
handknattleik eftir sigur yfir
botnliðinu Gróttu f Hafnarfirði á
laugardaginn. Lokatölur leiksins
urðu 21:16, en f hálfleik hafði
Grótta yfir 8:7. Reyndar höfðu
Gróttumenn lengst af yfirhönd-
ina f leiknum en á lokamfnútun-
um sprungu þeir heldur betur á
limminu og Frammararnir sigu
þá örugglega framúr. Var sigur
þeirra alltof stór miðað við gang
leiksins. Tapið gerir stöðu Gróttu
á botninum enn verri en áður og
blasir nú fall við liðinu. Þokkaleg
barátta var f liðinu f þessum leik
en maður hefur það á tilfinning-
unni að leikmenn hafi ekki lagt
nógu mikla alúð við æfingarnar
upp á sfðkastið.
Leikur liðanna var frekar slak-
ur og lítið spennandi. Gróttu-
menn tóku forystuna í byrjun en
um miðjan fyrri hálfleikinn náðu
Framarar sér heldur á strik og
skoruðu þrjú mörk í röð og náðu
forystu 7:5. En Gróttumenn gáf-
ust ekki upp heldur skoruðu þrjú
síðustu mörk hálfleiksins og náðu
forystunni 8:7. í seinni hálfleik
héldu þeir uppteknum hætti og
þrisvar hafði Grótta tveggja
marka forystu, fyrst 10:8, síóan
11:9 og loks 12:10. En Framararn-
ir voru ekki langt undan og þeim
tókst að jafna metin 12:12. Fór
Pálmi Pálmason þá loksins að
skora, en hann hafði átt mjög
slakan leik fram að þessu og fóru
allar hans skotttilraunir í súginn.
Þegar 12 minútur voru til leiks-
loka var staðan 15:15 en þá
sprungu Gróttumenn alveg og
Framarar gerðu fjögur næstu
mörk og tryggðu sér sigurinn. Var
sóknarleikur Gróttu mjög ráð-
leysislegur á þessu tímabili, enda
höfðu Framarar gripið til þess
ráðs að gera helzta sóknarmann
Gróttu óvirkan með því að taka
hann í sérstaka gæzlu, nefnilega
Björn Pétursson.
Framarar voru nú miklu mun
slakari en gegn Þrótti á dögunum
og munaði þar mestu um, að
Pálmi Pálmason var ekki nema
svipur hjá sjón. Aftur á móti kom
Andrés Bridde vel frá þessum
leik alveg eins og leiknum gegn
Þrótti. Hefur Andrés sýnt miklar
framfarir og er hann orðinn einn
af máttarstólpum liðsins. Þá
sýndi Einar Birgisson markvörð-
ur það enn á ný, að hann er geysi-
lega efnilegur markvörður þótt
ekki sé hann hár í loftinu. Hæð-
ina bætir hann upp með snerpu
og góðum staðsetningum. Arnar
Guðlaugsson lék nú með Fram að
nýju og skoraði hann mörk á
mikilvægum augnabiikum.
Grótta lék þennan leik hvorki
betur né verr en aðra leiki í vetur,
liðið virðist einfaldlega ekki vera
betra. Og ekki bætir úr skák, að
sumir leikmanna liðsins virðast
vera í lltilli æfingu. Tveir menn
sýndu lagnbeztan leik í liði
Gróttu, Björn Pétursson og Gunn-
ar Lúðvíksson. Björn var aðal-
markaskorarinn þangað til hann
var tekinn úr umferð og Gunnar
skoraði mörg mjög falleg mörk í
horninu.
— SS.
ÞÓRSSTULKURNAR sem ieika f 1. deild Islandsmóts
kvenna f handknattleik létu sig ekki muna um aó leika
þrjá leiki f suðurferð sinni um helgina. Mættu þær fyrst
Framstúlkunum á föstudagskvöld, léku sfðan við KR á
laugardag og loks UBK á sunnudag. Var þetta gert I
sparnaðarskyni, og mótaðist einnig auðvitað af þvf að
Þórsstúlkurnar eiga ekki möguleika á Islandsmeistara-
titlinum f ár, né heldur eru f fallhættu. Annars má segja
að ekkert lið f 1. deild kvenna hafi komið meira á óvart f
vetur en Þórsliðið, þar sem flestir áttu von á því að það
yrði f botnbaráttunni eða félli.
Á föstudagskvöldið höfðu Þórsstúlkurnar betur framan
af f leik sfnum við Fram og var staðan f hálfleik 9—8, þeim
f vil. I seinni hálfleiknum voru Framstúlkurnar hins vegar
ákveðnar og tókst að vinna 18—13 sigur sem þær voru vel
að komnar, þar sem þær sýndu öðru hverju ágætan hand-
knattleik.
Á iaugardaginn var hins vegar annað upp á teningnum
f f
hjá Þór. KR náði snemma frumkvæði f leiknum og var
búið að ná 3 marka forystu f hálfleik 7—4. I seinni
hálfleiknum náði Þór hins vegar betri leik og tókst um
tfma að minnka muninn f eitt mark. En þá höfðu KR-
stúlkurnar heppnina með sér og náðu forystu að nýju.
Urslit leiksins urðu svo 13—11 sigur KR. 1 þessum leik
áttu beztan leik f KR-liðinu þær Hjálmfrfður Jóhannsdótt-
ir og Hjördfs Sigurjónsdóttir, en þær Sofffa Hreinsdóttir
og Magnea Friðriksdóttir áttu beztan leik norðanstúlkna.
Á sunnudaginn var leikur Þórs og Breiðabliks mjö^ jafn
framan af og staðan 6—6 f hálfleik. I seinni háifleiknum
náði Þórs-liðið sér hins vegar á strik svo um munaði og
vann 19—9 sigur f leiknum. Var það einkum frammistaða
markvarðar Þórs og Sofffu Hreinsdóttur sem lagði grunn-
inn að þessum sigri. Skoraði Sofffa 9 mörk, en næst
markhæst Þórs-stúlkna var Anna með 5 mörk. Alda Helga-
dóttir var sú eina sem upp úr stóð f Breiðabliksliðinu og
skoraði hún einnig fimm af nfu mörkum liðsins. — stj).
VALUR ATTII BASLI MEÐ FH
VALSSTULKURNAR hafa nokkur undanfarin ár átt f
hinu mesta basli með lið FH jafnvel þótt liðið hafi verið
með góða forystu í dcildinni. Leikur liðanna á laugardag-
inn, sem fram fór f Hafnarfirði, var engin undantekning.
Valur vann leikinn með einu marki, 15:14 eftir mikinn
barning.
Valsstúlkurnar byrjuðu leikinn vel og náðu öruggri
forystu 5:2. En FH-stúlkurnar náðu að jafna metin 5:5. Var
nú hart barizt, en i leik hálfleiksins tóku Valsstúlkurnar
góðan sprett og náðu öruggri forystu i hálfleik 9:6.
FH-stúlkurnar komu heldur betur ákveðnar til leiksins
eftir hlé og áður en menn vissu af höfðu þær jafnað metin
9:9. Jafnt var 11:11 en þó kom enn einn sprettur Vals-
stúlknanna, þær skoruðu þrjú mörk án svars frá mótherj-
unum, og þriggja marka forskot, 14:11, var of stórt til þess
að FH stúlkurnar næðu að vinna þaó upp i lokin, þegar
þær fóru að saxa ískyggilega á forskotið. Lokatölurnar
urðu sem fyrr segir 15:14.
Eins og markatalan gefur til kynna var sóknarieikur
látinn sitja í fyrirrúmi en varnarleikur og markvarzla var
með iakara móti. Beztar i liði Vals voru þær Ragnheiður
Lárusdóttir, Ágústa Dúa Jónsdóttir og Björg Jónsdóttir en
I liði FH voru beztar þær Katrín Danivalsdóttir og Margrét
Brandsdóttir. Svanhvit Magnúsdóttir átti þokkalegan leik
en hún fór illa með vitaköstin.
Mörk Vals: Ragnheiður Lárusdóttir 4 (2v), Ágústa Dúa
Jónsdóttir 3, Björg Guðmundsdóttir 3 (lv), Björg Jónsdótt-
ir 2, Elín Kristinsdóttir, Marpa Guðmundsdóttir og Hall-
dóra Magnússon gerðu eitt mark hver.
Mörk FH: Katrin Danivalsdóttir 4 (3v), Margrét Brands-
dóttir 3, Svanhvít Magnúsdóttir 3, Kristjana Aradóttir 2,
Brynja Guðmundsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir eitt
mark hvor.
Dómarar voru Guðmundur Kolbeinsson og Rögnvaldur
Erlingsson og hafa jafn ósammála dómarar ekki sést á
f jölunum i langan tima. — SS.
Fram tryggöi sér sigur í seinni háffleik
SU einkenniiega ráðstöfun mótanefndar HSl að láta lið
Vals og FH leika tvo leiki sömu helgina f 1. deild kvenna
bitnaði illa á FH-stúlkunum. Þær mættu Vai f erfiðum ieik
á laugardaginn og sfðan urðu þær að keppa við hitt
topplíðið, Fram, f Laugardalshöll á sunnudaginn. FH-
stúlkurnr stóðu sig vel f fyrri hálfleik á móti Fram, héldu
jöfnu 4:4 en f seinni hálfleik þvarr þeim gjörsamlega
þróttur og Fram-stúlkurnar sigruðu örugglega 13:7.
Sem fyrr segir var staðan 4:4 i hálfleik en fyrstu 10
mfnútur seinni hálfleiks skoruðu Framstúlkurnar 5 mörk
án þess að FH kæmist á blað. Ur þvf var sigur Fram aldrei f
hættu. Framstúlkurnar munu þvi eins og undanfarin ár
berjast við Val um Islandsmeistaratignina, en Fram er
núverandi íslandsmeistari I kvennaflokki.
Framliðið átti heldur slakan leik að þessu sinni. Beztan
leik sýndi Kolbrún Jóhannsdóttir markvörður. Kristin
Orradóttir, Bergþóra Asmundsdóttir og Oddný Sigsteins-
dóttir komu einnig sæmilega frá leiknum, en Oddný sýndi
alltof mikið kæruleysi I vftaköstunum. Lið FH lék langt
undir getu. Beztan leik sýndu markverðir liðsins ásamt
Sigrúnu Siguröardóttur.
Mörk Fram: Oddný Sigsteinsdóttir 4, Bergþóra Ás-
mundsdóttir 3, Kristín Orradóttir 2, Guðríður Guðjónsdótt-
ir 2 (lv), Guðrún Sverrisdóttir og Jóhanna Halldórsdóttir
eitt mark hvor.
Mörk FH: Svanhvít Magnúsdóttir 3, Sigrún Sigurðardótt-
ir 2, Sólveig Birgisdóttir og Katrin Danivalsdóttir eitt mark
hver.
Dómarar voru Valur Benediktsson og Magnús V. Péturs-
sn og dæmdu yfir höfuð vel. — SS.
<É
BJORG SKAUT ARMANNI KAF
Björg Jónsdóttir skorar f leik FH og Vals á laugardaginn.
■ ■
VALUR og Ármann mættust f 1. deild kvenna f handknatt-
leik f Laugardalshöilinni á sunnudagskvöldið. Leikurinn
var lengst af mjög jafn en góður kafli f seinni hálfleik
tryggði Val öruggan sigur 15:10, eftir að staðan hafði verið
jöfn f hálfleik, 4:4. Á þessum kafla átti Björg Jónsdóttir
stórleik með liði Vals og það var hún öðrum fremur, sem
lagði grunninn að sigri Vals á þessum mfnútum. Valur
hefur tekið þriggja stiga forystu f deildinni og er Fram
eina liðið, sem getur úr þessu ógnað Valsstúlkunum.
Hefur Valur nú 21 stig eftir 11 leiki en Fram hefur 18 stig
eftir 10 leiki.
Um miðjan seinni hálfleikinn í leik Vals og Ármanns var
staðan 9:8 Val í hag, en næstu 5 mínúturnar gerði Björg
Jónsdóttir þrjú mörk í röð, þar af tvö eftir fallegar
sóknarfléttur Valsliðsins og eftir það var sigri Vals ekki
ógnað.
I Valsliðinu var Björg langbezt en nafna hennar
Guðmundsdóttir og Ragnheiður Lárusdóttir áttu einnig
ágætan leik. I liði Ármanns bar mest á Guðrúnu Sigurþórs-
dóttur og Sigriði Rafnsdóttur en Magnea markvörður átti
einnig prýðilegan leik á meðan hennar naut við en hún
meiddist um miðjan seinni hálfleik.
Mörk Vals: Björg Jónsdóttir 5, Ragnheiður Larusdóttir 5
(2v), Björg Guðmundsdóttir 3 (2v), Harpa Guðmundsdótt-
ir og Oddný Siguröardóttir eitt mark hvor.
Mörk Armanns: Guðrún Sigurþórsdóttir 3 (lv), Sigriður
Rafnsdóttir 3, Auður Rafnsdóttir, Erna Lúðviksdóttir,
Anna Gunnarsdóttir og Anna Þ. Arnadóttir eitt mark hver.
Dómarar voru Jón Hauksson og Ólafur Jóhannesson og
dæmdu þeir þokkalega vel. — SS.