Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 48
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
AKa.VSIMíASÍMIW ER:
22480
IHorxiimblflöií)
ll.skák-
in í dag
Loðna þurrkuð í
verksmiðju Þör-
ungavinnslunnar
Danskt fyrirtæki
auglýsir norska
ull sem íslenzka
Uppsagnir hjúkrunarfræðinganna:
Hundrud sjúklinga verða send
heim ef til uppsagna kemur
ELLEFTA einvígisskák
Spasskys og Horts hefst á
Hótel Loftleiðum klukkan
17 i dag og hefur Spassky
hvítt. Á sunnudag bar Hort
sigurorð af Spassky í 10.
skákinni. Gafst Spassky
upp eftir 34 leiki. Leikar
standa því jafnir, 5:5,þegar
aðeins tveimur skákum er
ólokið í einvíginu. Sjá
nánar um skák á bls. 18, 19
og 30.
Góugróður
Veðurblíðan hefur verið ein-
stök vfðast hvar um landið í
vetur og það er ekki undarlegt
þó krókusarnir séu vfða farnir
að opna sig. Sigurgeir ijós-
myndari í Vestmannaeyjum
tók þessa mynd í garði á
Strembugötu í Eyjum um helg-
ina og hann segir okkur að
páskaliljurnar muni fylgja for-
dæmi krókusanna á næstu dög-
um. Ilvort þetta er aðeins
góugróður, sem fellur fyrir
sumar er svo spurning sem erf-
itt er að svara.
LJÓST er nú að mikil vandræði
verða á sjúkrahúsum á höfuð-
borgarsvæðinu, ef hjúkrunar-
fæðingar á Borgarspftalanum,
Landakotsspítala og Vffilsstöðum
láta verða að því að hætta störfúm
1. og 15. apríl n.k. Eftir þeim
Landssím-
inn myrkvar
Norðurland
Akureyri, 21. mar/.
MEGIN'HLUTI veitusvæðis Lax-
árvirkjunar varð rafmagnslaus
klukkan rúmlega 22 f gærkvöldi
og hélzt svo f röska klukkustund.
Frumorsök rafmagnsleysisins var
bilun f örbylgjukerfi Lands-
sfmans, en síðar urðu ýmsar
keðjuverkanir með fyrrgreindum
afleiðingum. Einnig tók af allt
sfmasamband á miklum hluta
Norðurlands.
Fjarmæling er um örbylgjusam-
band Landssímans á álaginu á
Hvalfjarðarstreng byggðalínunn-
ar og er unnt að stjórna þvi frá
Akureyri. Ef truflanir verða á
örbylgjusambandinu er hætta á
að rofi í Rangárvallastöð slái út og
við það leysist öll byggðalínan út.
Bilanir af þessu tagi eru því
taldar afar sjaldgæfar.
1 þetta sinn leystist byggðalinan
út og það olli því aftur að Laxár-
virkjun sló út, þannig að allt
veitusvæði hennar, nema
Mývatnssveit, myrkvaðist. Þar
sem símasamband rofnaði sam-
tímis náðist ekki samband milli
Akureyrar og vélavarðanna við
Laxá, svo að ekki varð hættandi á
að hleypa rafmagni á háspennu-
línurnar meðan svo var og enginn
vissi hvað hinn aðilinn var að
gera. Það var ekki fyrr en um
klukkan 23. að allt komst í samt
lag aftu-r og ljósin kviknuðu. Jarð-
gufustöðin í Bjarnarflagi starfaði
allan tímann eins og ekkert hefði
Framhald á bls. 46
upplýsingum, sem Morgunblaðið
fékk í gær, verður að líkindum að
tæma 200 rúm af 400 á Borgar-
spftalanum, starf á slysadeild
spftalans verður mjög takmarkað,
t.d. verður ekki hægt að leggja
fólk inn f sjúkrahúsið, sem kom-
ið verður með á deildina.
Á Vífilsstöðum verður að Ifkind-
um aðeins hægt að halda einni
deild af fjórum opinni og verður
það lungnadeild. Þar eru nú 80
rúm, en verða aðeins 20—30 ef
hjúkrunarfræðingarnir leggja
niður störf.
Á Landakotsspftala er öruggt
að loka verður gjörgæzludeild,
barnadeild og allar aðgerðir á
skurðstofugangi munu falla nið-
ur, en reynt verður að hafa eina
legudeildina opna. Hins vegar
verður reynt að hafa augndeild-
ina opna, þar sem hvergi annars
staðar er slfk aðstaða fyrir hendi
á sjúkrahúsum. Á Landakotsspít-
ala hafa 2/3 af starfandi
hjúkrunarfræðingum sagt upp
störfum. Samkvæmt þessu er
ljóst að á næstunni verður að
senda f jölda sjúklinga heim.
Morgunblaðinu var tjáð í gær
að hjúkrunarfræðingar hefðu rétt
um 110 þús. kr. mánaðarlaun að
meðtöldum greiddum kaffitíma,
en með vaktaálagi hefðu þeir
120—130 þús. kr. á mánuði og
ennfremur kom í ljós, að launa-
kröfur þessa fólks eru nú miklar.
TILRAUN til loðnuþurrkunar
var gerð f Þangmjölsverksmiðj-
unni á Reykhólum í sfðustu viku
og gafst svo vel, að ákveðið
var á stjórnarfundi verksmiðj-
unnar f gær að hefja loðnuþurrk-
un í stærri stfl, en fyrir liggur
pöntun á 100 smálestum af loðnu-
skreið, sem fara á til Svfþjóðar,
þar sem hún verður notuð til fóð-
urs fyrir hunda. Samanlagt út-
flutningsverðmæti þessarar
tSLENZKIR framleiðendur ullar-
og skinnavara hafa að undan-
förnu tekið þátt f kaupstefnunni
Scandinavian Fashion Week f
Bella Center f Kaupmannahöfn.
Það vakti sérstaka athygli þeirra
Islendinga, sem með sýningunni
Haukur Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans,
Framhald á bls. 46
ÍR og Vík-
ingur unnu
í GÆR fóru fram tveir leikir í 1.
deild íslandsmótsins f handknatt-
leik f Laugardalshöllinni. ÍR sigr-
aði Gróttu með 23:17 eftir að stað-
an hafði verið 13:7 í hálfleik.
Víkingur sigraði Val með 21:20 i
spennandi en frekar slökum leik.i
Staðan í hálfleik var 13:10 Val í
vil. I
loðnuskreiðar er um 37 milljónir
króna.
Vilhjálmur Lúðvíksson,
stjórnarformaður Þörungavinnsl-
unnar á Reykhólum, sagði i við-
tali við Morgunblaðið í gær, að á
föstudag og laugardag hefði verið
þurrkuð loðna, rúmlega 6 tonn, og
væri útflutningsverðmæti hennar
um 2 milljónir króna. Tókst þessi
tilraun ágætlega, en loðnan, sem
Framhald á bls. 46
fylgdust að þar sýndi danskt
fyrirtæki, Stobi, fatnað úr ull og
var hluti fatnaðarins auglýstur
með þeim hætti að hann væri
framleiddur úr fslenzkri ull. Þá
sýndi þetta fyrirtæki einnig
nokkrar flfkur, sem unnar voru
eftir fslenzkum fyrirmyndum og
mynztrum en þar á meðal var
ullarjakki, sem auglýst var að
væri úr fslenzkri u11 og var þar
um að ræða eftirlfkingu af ullar-
jökkum, er fyrirtækið Pólarprjón
á Blönduósi hefur framleitt og
selt á erlendum markaði. Starfs-
menn Stobi viðurkenndu f við-
tölum við tslendinga á sýning-
unni að ullin f frökkunum væri
norsk. Pétur Eirfksson, fram-
kvæmdastjóri Álafoss, staðfesti
að Alafoss hefði á undanförnum
árum selt Stobi nokkuð af ullar-
bandi og þá bæði til vélprjóns og
handprjóns en hins vegar hefði
Alafoss ekki selt fyrirtækinu
band, sem hægt væri að nota f
fyrrnefnda jakka, sem danska
fyrirtækið auglýsti að væru fram-
leiddir úr fslenzkri ull.
Eins og fram kom hefur Álafoss
selt fyrirtækinu Stobi ullarband
og hófst sá útflutningur um 1968.
Fyrirtæki þetta er rekið af Gunn-
ari Stockholm, sem á sínum tíma
vann að því að koma á fót fyrir-
tækinu Akraprjón á Akranesi.
Hefur Stobi, sem er i bænum
Hurup á Jótlandi, i þjónustu sinni
hóp kvenna, sem handprjónar
Framhald á bls. 34
Utanríkisráðherra Svíþjóðar í opinberri heimsókn:
Ahugaverðasta land,
sagði Karin Söder
við komuna til Rvíkur
Utanrfkisráðherra Svfa, Karin Söder, kom til Reykjavfkur f
gærkvöldi. Er hún hér í opinberri heimsókn, en sfðan mun hún sitja
fund utanrfkisráðherra Norðurlandanna sem verður í Reykjavfk á
morgun.
Klukkan 9:30 í dag hefjast viðræður hennar og Einars Agústssonar
utanríkisráðherra og kl. 11:00 mun Karin Söder hitta forseta
íslands dr. Kristján Eldjárn. Klukkan 12:15 er hádegisverður í boði
utanríkisráðherra og aó honum loknum mun hún skoða hitaveitu
Reykjavikur, en að sögn hefur hún áhuga á orkumálum. Klukkan 17
er fundur með blaðamönnuni, en síðan er móttaka í sænska sendi-
ráðinu, kl. 18 — 19.30, og lýkur þar með hinni opinberu heimsókn.
Við komuna til Reykjavikur í gær sagði Karin Söder, að hún væri
nú i fyrsta sinn á íslandi, hún hafði þó séð nokkuð af landinu áður
úr lofti, er hún var á ferð til Bandaríkjanna. Sagðist hún hafa
mikinn áhuga á að kynnast nánar náttúru landsins, en það væri án
efa það áhugaverðasta sem hún hefði komið til og í því sambandi
nefndi hún sérstaklega Vestmannaeyjaferð sem fyrirhuguð er á
fimmtudag.
(Ljósm. Mbl. Rax.)
Karin Söder, utanrfkisráðherra Svfþjóðar, við komuna til Reykja-
víkur f gær, ásamt Olof Kaijser, scndihcrra Svfa f Reykjavfk