Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 3

Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 3 Aðalfundur Iðnaðarbankans: AÐALFUNDUR Iðnadarbanka Íslands h.f. var haldinn s.I. laugardag 19. marz á Hótel Sögu. Heildarinnlán í bankan- um námu um s.I. áramót 3.524 millj. kr. og höfðu aukist á árinu 1976 um 872 millj. kr. eða 32,9% Heildarútlán bankans námu í árslok 1976 2.830 millj. kr. og höfðu aukist á árinu um 569 millj. kr. eða 25.2% Tekju- afgangur nam 29.4 millj. kr. og var samþykkt á fundinum að greiða 13% arð til hluthafa. Fundarstjóri á aðalfundinum var Þórður Gröndal, varaforseti Landssambands iðnaðarmanna og fundarritari Gísli Benedikts- son, útibússtjóri. Fundinn sátu um 200 hluthafar og meðal fundarmanna var dr. Gunnar Thoroddsen, Iðnaðarráðherra. Formaður bankaráðsins, Gunnar J. Friðriksson flutti skýrslu bankaráðs um starf- semi bankans á s.l. ári. Gerði hann fyrst nokkra grein fyrir almennri þróun efnahagsmála á árinu 1976. Áætlað er að þjóðarframleiðslan árið 1976 hafi verið svipuð og árið 1975 en að þjóðartekjur hafi aukist um 3% vegna batnandi við- skiptakjara. Árin 1975 og 1976 hefur fjárfesting dregist nokkuð saman og stafar sá sam- dráttur eingöngu af minni fjár- festingu atvinnuveganna, en bæði árin hafa opinberar fram- kvæmdir aukist. Þá ræddi hann um stöðu þjóðarbúsins við út- iönd og sagði, að nettó gjald- eyrisstaðan hafi batnað á árinu 1976 um 3.500 millj. kr. í stað þess að rýrna um 6.200 millj. kr. árið áður. Þá hafi halli á Frá aðalfundi Iðnaðarbanka tslands h.f. að Hótel Sögu Heildar- innlán hiHikfinQ jukust um 32,9% árið 1976 viðskiptajöfnuði verið mun minni árið 1976 en næstu tvö ár á undan. Þrátt fyrir þennan bata, þá væri gjaldeyrisstaðan ennþá neikvæð um 430 millj. kr. í árslok 1976. Þá ræddi Gunnar um greiðslubyrði, þ.e.a.s. vexti og afborganir af erlendum skuldum, og sagði að hún hafi numið 14.8% af út- flutningstekjum árið 1975 og áætlað væri að hún hafi verið komin í 17% i árslok 1976.Búast mætti við að á næstu árum muni greiðslu- byrðin enn aukast nokkuð, en það færi eftir ráðstöfun stjórn- valda nú, hvernig þróunin verði í lok áratugsins. Gunnar J. Friðriksson ræddi því næst um þróun iðnaðar á síðasta ári og sagði að af fyrstu tölum um framleiðslu iðnaðar- ins mætti ráða, að um verulega framleiðsluaukningu hefði verið að ræða í mörgum grein- um. Áætlað væri að heildar- framleiðsluaukningin í fram- leiðsluiðnaði hafi numið um 8% Hins vegar hefði hún verið mun meiri í einstökum grein- um og mætti þar nefna kex- og sælgætisgerð. Lauslegar áætl- anir bentu til þess að afkoma iðnaðarins á síðasta ári hafi verið svipuð og árið 1975. Ut- flutningur iðnaðarvöru tvöfald- aðist í krónum talið á síðasta ári, og munar þar mest um mikla aukningu í útflutningi á áli, en einnig varð veruleg aukning í leður- og skinnavöru- útflutningi og sömuleiðis i út- flutningi á ullarvörum. Hlut- fall iðnaðarvöru i útflutningi landsmanna var á síðasta ári tæp 24%. £ Bankamál í æsifréttastíl Gunnar J. Friðriksson vék því næst að umræðum um bankamál sem því miður höfðu oft á tiðum verið i æsifregna stil á s.l. ári. Hann sagði að fá fyrirtæki ættu jafnmikið undir trausti almennings komið og einkabankarnir. í raun og veru byggðist starfsemi þeirra og vöxtur á því trausti, sem inn- stæðueigendur hafa á þeim. Og þótt heilbrigð gagnrýni væri eðlileg og nauðsynleg þá gæti neikvætt umtal og fréttaflutn- ingur höggvið nærri þessari lifæð bankanna. Hann ræddi um svokallað ávísanamál, sem mikið hefði verið fjallað um í fjölmiðlum á siðasta ári. Vék hann sérstaklega að umræðum um yfirdráttarheimildir bankanna og til þess að skýra vinnubrögð í Iðnaðar- bankanum í þessum efnum las hann úr bréfi bankans til setu- dómarans í ávísanamálinu frá Framhald á bls. 34 Varnarliðið taldi að lögreglustjóri gæti veitt leyfið Málið rætt utan dagskrár á Alþingi í gær SIGLINGAMÁLASTOFNUNIN bíður nú eftir skýrslu frá varnar- liðinu um þann varning, sem sökkt var í fyrri viku, þ.e. hvell- hetturnar, sem notaðar eru til þess að leysa kafbátaleitardufl frá flugvélum yfir hafi. Voru þetta notaðar hvellhettur á stærð við litla spray-brúsa, opnir í ann- an endann. Blaðafulltrúi varnarliðsins Howard Matson, sagði að varnar- liðið hefði fengið leyfi lögreglu- stjórans á Keflavíkurflugvelli til þess að flytja hvellhettubrúsana frá þeim stað, sem þeir voru á, til þess að sökkva þeim í sjó. Við fengum leyfi frá þeim yfirvöld- um, sem við álitum hin réttu, en verið getur að um mistök hafi verið að ræða frá okkar hendi. Samt sem áður stóðum við I þeirri trú, að við værum að gera rétt — sagði Matson. Það magn, sem varpað var í sjóinn, vó rúmlega 19 tonn, að sögn Matsons og hann kvað það algjörlega skaðlaust. í þessum hvellhettubrúsum hefði hvorki verið sprengiefni né eiturefni. Mál þetta var tekið til umræðu á Alþingi í gær, er Gils Guðmundsson alþingismaður kvaddi sér hljóðs utan dagskrár: Hvorki varnarmálanefnd né varnarmáladeild var kunnugt um flutninga né losun í sjó á úrgangi frá varnarliðinu, sem hér er um spurt, og hefur þessari gjörð þeg- ar verið mótmælt við varnarliðið og óskað eftir ítarlegri greinar- gerð um málið, sem væntanleg er í dag, sagði Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, á Alþingi i gær, í svari ráðherra komu fram öll þau efnisatriði, sem greint var frá i frétt Morgunblaðsins í gær um þetta mál, bæði um hvers konar hylki hér er að ræða hvar þau voru sett i sjó; ennfremur að haft var samband við lögreglustjóra- embættið á Keflavikurflugvelli um flutning út af vellinum og að íslenzkur starfsmaður varnarliðs- ins hafi haft samráð við land- helgisgæzluna um það, hvar mætti henda farminum fyrir borð. Hylki þessi voru og sögð skaðlaus og ekki valda neins kon- ar tjóni á lífriki sjávar. Ólafur Jóhannesson, dómsmála- ráðherra, kvaddi sér og hljóðs, og gat þess, að ekki hefði verið haft samráð við landhelgisgæzluna um þetta mál, að sögn forstjóra henn- ar. Báðir ráðherrarnir tóku fram að mál þetta yrði rannsakað nán- ar en frekari frásagnir og vamstur væri rétt að biða með unz greinargerð varnarliðsins væri fram komin. Loðna finnst á ný við Hroll- augseyjar og Hjörleifshöfða Á laugardagskvöld fann Gfsli Árni RE mikið af loðnu við Hrollaugseyjar og fyllti báturinn sig þar á örskömmum tíma og fór með aflann til Hornaf jarðar. Siðan hefur lítið veiðzt á þessu svæði, en þó munu einhverjir bátar hafa fengið smáslatta þar. Þá fannst loðna við Hjörleifs- höfða og Kötlutanga á sunnudags- kvöld og fékk t.d. Kap 2. fullfermi þar, og tveir bátar fengu góða veiði þar í gær. Ekki er enn ljóst hvort þessi loðna er búin að hrygna en sýni voru væntanleg til Reykjavikur i gær. Eftirtalin skip hafa tilkynnt um aflasíðan ásunnudagskvöld: Freyja RE 200 lestir, Hilmir KR 260. Albert GK 420, Kap 2. VE 580, Helga RE 270, Ársæll SigurOsson GK 200. Eldborg GK 450, Sæberg SU 100, Andvari VE 150, Skógey SF 130, Svanur RE 200, Vonin KE 100, Þórður Jónasson EA 360, Keflvfkingur KE 220, Gunnar Jónsson VE 310, Vörður ÞH 100, og Sæbjörg VE 290 iestir. VORTÍZKA GLÆSILEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR! TÍZKA SEM TÖFRAR! — Og allt getið þér sniðið og saumað sjálfar — Svona bjart og fagurt er tízkuvorið í „NEUE MODE": Smekklegur khakifatnaður, tízkuklæðnaður við allra hæfi, nýstárleg pils og blússur, þægi- leg og klæðileg útiföt, aðlað- andi samkvæmiskjólar og sportlegur hversdagsklæðn- aður — allt hið nýjasta, sem vortízkan hefir upp á að bjóða getið þér auðveldlega sniðið og saumað sjálfar upp úr „NEUE MODE". Marz fæst nú Marzhefti „NEUE MODE" stærðunum 36 til 52 og handa byrjendum auk þess tvær myndskýrðar saumáleiðbein- ingar með sérlega handhægum sniðaörkum. Ef þér hafið ánægju af að sníða og sauma fatnað yðar sjálfar, þá verður sú ánægja margföld með notkun „NEUE MODE"; -hefti„NEUE MODE" á öllum útsölustööum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.