Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 7

Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 7 Tortryggni út í hvað? Þjóðviljinn gerir að um- talsefni svar Morgun blaðsins s.l. laugardag, við greinum þriggja kenn- ara um stjórnmálaáróður i skólum og segir m.a.: „Þegar til veruleika breytingastarfsins kemur er firna stutt I fordóma- laus og skilorðsbundin Ihaldsviðbrögð hjá stefnu- móturum Morgunblaðs. Utkoman verður oft þver- stæðukennd, eins og þeg- ar breytingar, sem i raun tákna aukið frelsi ein- stakra skóla og greiðari leiðir til framhaldsnáms, eru túlkaðar sem ofstýr- ing og tilræði við ein staklinginn i bömunum. I raun verða allar breyt- ingar tortryggilegar i með- förum Morgunblaðs af þeirri einföldu ástæðu að blaðinu finnst að baki hverrar og einnar leynist útsmoginn kommúnismi. Vinstri sinnar eru að „misnota skólakerfið" Morgunblaðinu virðist sem sagt ekki detta það i hug lengur að dómgreind- in, gagnrýnin hugsun, sjálfstæð viðhorf hljóti að efla það borgaralega sam- félag, sem það ber fyrir brjósti. Nei, það tekur með sinum hætti undir það viðhorf vinstri sinna, að „sannleikurinn er byltingarsinnaður". í ringulreiðarviðbrögðum Morgunblaðsins kemur upp á yfirborðið hinn ótta- legi grunur alls aftur- halds: að það sé stöðu þess háskalegt, ef fólki er kennt að hugsa." Um þetta er tvennt að segja: á viðreisnarárunum hafði Morgunblaðið for- ystu um þá sókn fyrir breytingum á skólakerf inu, sem þá var hafin og varð upphafið að þeim umfangsmiklu umbótum, sem síðan hafa staðið yfir og opnað margfalt fleiri unglingum og ungmenn um leið til framhalds- skólanáms en þá voru möguleikar á. Ekki fór mikið fyrir stuðningi Þjóð- viljans eða Alþýðubanda- lagsins við þá umbóta- stefnu I skólamálum og þarf ekki að hafa fleiri orð um þá staðhæfingu, að í augum Morgunblaðsins séu „allar breytingar" í skólakerfinu tortryggileg- ar. En jafnframt er rétt að þeir vinstri sinnuðu kenn- arar, sem hafa verið að hreiðra um sig I skólakerf- inu og haft uppi mark- vissa tilburði til þess að misnota aðstöðu sina tal pólitísks áróðurs geri sér alveg Ijóst, að Morgun- blaðið mun sjá til þess að þeim haldist ekki uppi sú iðja átölulaust. Morgun- blaðið er ekki andvigt þvi. að islenzk ungmenni temji sér sjálfstæða hugsun og gagnrýnin viðhorf. Raunar er það sjálfsagt i eðli hvers unglings að gagn- rýna það sem fyrir er. En það er ekkert nýtt, að kommúnistar noti falleg orð til þess að blekkja fólk og svæfa, svo að þeir get> stundað iðju sína af- skiptalaust. Það er fallegt orð „alþýðulýðveldi", en allir vita, að það er lýð- veldi fámennrar yfirstétt- ar kommúnistaflokkanna i Austur Evrópu. Þaðer lika fallegt orð „efnahagslegt lýðræði", sem kommúnistum er tamt að nota, en allir vita, að það er aðeins efnahagslegt lýðræði", hinna fáu, en i báðum tilvikum eru hug- tökin notuð til þess að fela kúgun fjöldans. Og það er i eðlilegu samræmi við þessa misnotkun kommúnista á orðum og hugtökum, sem Þjóðvilj- inn kemst að þeirri niður- stöðu. að Morgunblaðið óttist það að fólki sé „kennt að hugsa". í „alþýðulýðveldunum" hafa stjórnvöld náð lengra, en nokkur dæmi eru um i sögunni, i þvi að „kenna fólki að hugsa" aðeins eina hugsun. Morgunblaðið mun sjá til þess, hvað sem líður tauti Þjóðviljans að slík kennsla verði ekki tekin upp á íslandi. Verðbólga — eða öryggi í efnahagslífi Jón G. Sólnes alþingi- maður skrifar leiðara Í Akureyrarblaðið íslending um kaupgjaldsmál. Þar segir m a Ollum sem um launa kjör fjalla, kemur saman um, að laun þurfi yfirleitt að hækka og þá alveg sér- staklega þó hjá hinum lægstlaunuðu. Hin gifurlega eftir- og næturvinna, sem unnin er hjá okkur og sem hvergi þekkist í svipuðum mæli meðal annara frjálsra sið- menntaðra þjóða, bendir til þess að atvinnuvegirnir hafi yfir fjármagni að ráða sem þoli slikar greiðslur. Nú er öllum Ijóst sem til þekkja, að mjög er til efs, að sú mikla eftir- og næturvinna sem fram- kvæmd er hér á landi skili afköstum i nokkru sam- ræmi við það vinnuálag og kostnað sem slíkt fyrir- komulag ber með sér. Fjármagni sem varið er til þess að greiða fyrir- borgun á rándýra kaup- taxta og uppmælingataxta svo og taumlausa eftir- og næturvinnu, sem lítil sem engin vinnuafköst ega, er áreiðanlega miklu betur varað til þess að hækka laun almennt, en freista svo þess að reyna að koma betra skipulagi á alla vinnutilhögun en nú er, og þannig ná betri og raunhæfari afköstum. Ef vel tækist um breytta tilhögun eins og minnst hefur verið á hér að fram- an, myndi slikt fyrirkomu- lag ekki þurfa að skapa aukna verðbólgu, þvert á móti gæti slik fram- kvæmd stuðlað að meiri festu og öryggi i efna hagslifi þjóðarinnar al- mennt." AMIGO 105 - kr. ca. 860.000- AMIGO 120 L - - - 960.000,- AMIGO 120 LS - - - 1010.000,- þú gerir hvergi betri kaup Skoda Amigo er mjög falleg og stilhrein bifretó. Hún er búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggtó hefur verió auktó til muna. Komtó og skoðið þessa einstöku bifreið JÖFUR HF, Ti'ikrtóio bifieiðóuiTiboðió ó bbrdi AwÚBk'tKKJ -44-4Ö - KÚPAVOGí - 42ó00 Notaðar trésmíðavélar Bandslipivél m/blásara Þykktarhefill 50 cm Fræsari m/sleða Sambyggð vél Stenberg Fræsari án sleða Tveggjablaða sög Toppfræsari i borði Formpressa Tappavél Sogkerfi fyrir 5—8 vélar Kant-afskurðarvél Limvals m/2 völsum Kantlímingarpressa Hjólsög m/sleða Kantslip i vél IÐNVÉLAR HF. S: 52224. — ROSEMGREIVS E.TH.MATHIESEN H.F. ^DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888 ELDTRAUSTIR SKJALASKÁPAR 3ja og 4ra skúffu. SÆNSK GÆÐAVARA RO Y AL SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA . Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.