Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 10

Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 Frá afhendingu gjafarinnar. Doris Briem til vinstri og Hulda Jensdóttir. „Vinahjálp” aíhendir Fæðingarheimih gjöf MIÐVIKUDAGINN 16. marz 1977 fór fram I Átthagasal Hótel Sögu afhending gjafar „Vinahjálpar" til Fæðingar- heimilis Reykjavíkurborgar að Þorfinnsgötu 14. Gjafir þessar eru: 1. Sonic-aid Fetal Monitor ásamt fylgihlutum. Tæki þetta er til þess gert að fylgjast með hjartslætti móður og barns á meðan á fæðingu stendur, auk annars. 2. 3 Elliott fæðingabekkir ásamt fylgihlutum. 3. Segulbandstæki með 2 há- tölurum. Tæki þessi eru valin af læknum stofnunarinnar og i samráði við próf. Sigurð Magnússon. Andvirðið er arður af 2 bösurum „Vinarhjálpar“ á ár- unum 1975 og 1976. Formaður „Vinahjálpar", frú Doris Briem, afhenti gjöfina, en forstöðukona Fæðingar- heimilsins, frú Hulda Jensdótt- ir, veitti henni móttöku. Lækn- ar stofnunarinnar ásamt eigin- konum voru viðstaddir. Verkalýðsskóli Sjálfstæðisflokksins Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks- ins hefur ákveðið að Verkalýðs- skóli Sjálfstæðisflokksins verði haldinn 21.—24. aprfl n.k. Megintilgangur skólans er að veita þátttakendum fræðslu um verkalýðshreyfinguna uppbygg- ingu hennar, störf og stefnu. Enn- fremur þjálfa nemendur í að koma fyrir sig orði, taka þátt I almennum umræðum og ná valdi á hinum fjölbreyttu störfum f féiagsmálum. Meginþættir námsskrár verða sem hér segir: 1. Saga og hlutverk verkalýðs- hreyfingarinnar. Leiðbeinandi: Gunnar Helgason, forstöðumaður. 2. Kjarasamningar, fjármál og sjóðir verkalýðsfélaga. Leiðbein- andi: Björn Þórhallsson, við- skiptafræðingur. 3. Starfsemi og skipulag laun- þegasamtakanna. Leiðbeinendur: Pétur Sigurðsson, alþm., og Hers- ir Oddsson. 4. Stjórnun og uppbygging verkalýðsfélaga. Leiðbeinandi: Sverrir Garðarsson. 5. Vinnulöggjöfin — Trúnaðar- menn á vinnustöðum. Leiðbein- andi: Hilmar Jónasson, verka- maður. ö.Verkmenntun og eftir- menntun. Leiðbeinandi: Gunnar Bachmann, rafvirki. 7. Stjórn efnahagsmála Leið- beinandi: Jónas H. Haralz. Banka- stjóri. Kjörin feg- 0 urðardrottn- ing Vest- mannaeyja UNNUR Elíasdóttir var kjörin fegurðardrottning Vestmanna- eyja á Sunnukvöldi, sem haldið var í Vestmannaeyjum I fyrra- kvöld. AIls tóku fimm Eyjastúlk- þátt í samkeppninni, en áhorf- endur völdu síðan fegurstu stúlk- una í hópnum. Myndina tók Sigurgeir af Unni er úrslit höfðu verið tilkynnt. 8. Framkoma í sjónvarpi. Leið- beinandi: Hinrik Bjarnason, framkvstj., 9. Þjálfun i ræðumennsku, fundarstjórn og fundarreglum. Leiðbeinendur: Kristján Ottósson og P’riðrik Sophusson. 10. Panelumræður um sam- skipti aðila vinnumarkaðarins: Ágúst Geirsson — Barði Friðriks- son — Guðmundur H. Garðarsson — Guðmundur Hallvarðsson. Skólinn verður heildagsskóli meðan hann stendur yfir, frá kl. 9:00—19:00 með matar og kaffi- hléum. Kennslan fer fram í fyrir- lestrum, umræðum með og án leiðbeinenda og hringborðs- og panelumræðum. Skólinn er opinn sjálfstæðis- fólki á öllum aldri, hvort sem það er flokksbundið eða ekki. Þátttökugjald hefur verið ákveðið 3.000,- kr. Það er von skólanefndar, að það sjálfstæðis- fólk sem áhuga hefur á þátttöku i skólahaldinu, láti skrá sig sem fyrst í síma 82900 eða 82398, eða sendi skriflega tilkynningu um þátttöku skólanefndar, Bolholti 7, Reykjavík. í skólanefnd Verkalýðsskólans eru: Kristján Ottóson síma 31157, Sverrir Garðarsson sima 20255—31021, Guðmundur Hall- varðsson síma 11915—82307. „Heilbrigð skyn- semi í skák” Bókaútgáfan Iðunn hefur sent á markað bókina „Heilbrigð skynsemi I skák“ eftir Emanuel Lasker. fyrrum heimsmeistara í skák. Magnús G. Jónsson þýddi bókina og Guðmundur Arnlaugs- son ritar formála. Höfundur bókarinnar, Emanuel Lasker, lærði að tefla 12 ára gamall. Tuttugu og átta ára að aldri varð hann heimsmeistari i skák og hélt þeim titli í 27 ár. Og hann lagði ekki árar í bát þótt hann tapaði heimsmeistara- titlinum. Hátt á sjötugs aldri vann hann enn mikla sigra við skák- borðið. Lasker er einn um það að vera í hópi fremstu taflmeistara heims allt fram til æviloka. Lasker ritaði allmikið um skák og eru bækur hans í góðu gildi enn i dag. Bók sú sem hér birtist, er árangur fyrirlestrarferðar er Lasker fór um England þegar hann var nýorðinn heimsmeistari. Bókin hlaut þegar I stað miklar vinsældir og kom fljótlega út á mörgum tungumálum. Guðmundi Arnlaugssyni farast m.a. svo orð um höfundinn og bókina í formála: „... margir af fremstu skákmönnum vorra tima hafa sitthvað af honum lært. Og þessi litla bók er sígilt rit sem hefur ýmislegt að bjóða íhugulum lesendum enn í dag og um ókomin ár.“ Könnun LÍM á neyzlu vímugjafa: Fíkniefni eru meira notuð á Suðurnesj- um en annars staðar NIÐURSTÖÐUR könnunar þeirr- kvæmdu og tóku saman könnun- ar, sem Landssamband fslenzkra ina. Það er einnig 75% nemenda menntaskólanema lét gera á Framhald á bls. 46 neyzlu vfmugjafa, hafa nú verið birtar. Eins og fram kom í frétt f Morgunbiaðinu í sfðustu viku hafa 77.7% nemenda f mennta- og f jölbrautaskólum, sem þátt tóku í könnuninni, neytt áfengis. t þess- um skólum hafa 6.3% neytt fíkni- efna. Fer frétt frá Landssamb- andi íslenzkra menntaskólanema fier á eftir, en f framkvæmda- stjórn LlM eiga sæti þeir Kjartan Árnason, Páll Stefánsson og Sigurður E. Hjaltason. „Nýlega var gerð samræmd könnun á neyzlu vímugjafa í mennta- og fjölbr.skólum lands- ins. Könnunin var gerð að megin- hluta vegna þeirrar umræðu sem hafa farið fram um þessi mál. Þeir skólar er tóku þátt í henni voru MA, MK, MR, ML, FB (Fjölbr.skólinn í Breiðholti) og FS (Fjölbr.skólinn á Suðurnesj- um). Einnig ætluðu MH, MT, Ml og Flensborg að taka þátt í þess- ari könnun en sáu sér það ekki fært m.a. vegna tímaleysis. Könnunin var algerlega sam- ræmd og náði til tæplega 1800 nemenda á aldrinum frá 16—21. Ekki var leitað eftir neinum per- sónulegum upplýsingum og má þvf telja hana nokkuð marktæka. Einnig að það voru nemendur sjálfir í hverjum skóla er fram- 16180-28030 Digranesvegur Kóp. 2ja herb. jarðh. ca. 60 fm. 5,5 millj. Útb. 4 millj. Miðbraut Seltj. 2ja—3ja herb. jarðh. 78 fm. 7 millj. Útb. 4,7 millj. Eignarlóð. Sér mng. Sér hiti. Hraunbær 2ja herb. á 1. hæð. 65 fm. 6,7 millj. Útb. 5 millj. Falleg íbúð Hraunbær 4ra herb. íb. 117 fm. 1 0,5 millj. Útb. 7 — 7,5 millj. Álfheimar 4ra herb. íb. 117 fm. 10,5 millj. Útb. 7 — 7,5 millj. Vel um gengin. Kapplaskjólsvegur 5 herb. íb. 140 fm. 14 millj. Útb. 9 millj. Laugavegur 33 Róbert Árni Hreiðarsson lögfr. Sölum Halldór Ármann og Ylfa Brynjólfsd Kvs • 34873 FASTEIGNAVER »Zr Stórholti 24 s. 11411 Smáíbúðahverfi mjög gott einbýlishús um 85 fm. að grunnfleti hæð og rishæð. Á hæðínni eru tvær saml. stofur, eldhús, 2 herb. og snyrtiherb. í risi eru 4 herb. og bað. Stór bílskúr. Bragagata 3ja herb. íbúð urn 85 fm. á 2. hæð í steinhúsi. (búðin er öll nýstandsett og i mjög góðu lagi. Rauðarárstigur mjög góð 4ra herb. íbúð á tveim- ur hæðum 3. hæð og rishæð. Á hæðinni eru stofa, borðstofa, eldhús og snyrting. í risi eru 2 herb. og stórt baðherb íbúðin er sérlega vel innréttuð með miklu skáparými Safamýri kjallaraibúð um 95 fm. skáli, stór stofa, svefnherb. eldhús, baðherb. og geymsla. Bergþórugata góð 4ra herb. ibúð á 1. hæð i steinhúsi. íbúðin er öll nýstand- sett. í sama húsi lítil einstakl- ingsíbúð með sér snyrtingu. Hamraborg, Kóp. 2ja herb. ibúð á 2. hæð. Bil- geymsla. Álfaskeið 3ja herb. íbúð á 1. hæð um 86 fm. Bilskúrsréttur. Laus strax. Álfaskeið mjög góð 2ja herb. ibúð á 2. hæð. Sérlega vandaðar innrétt- ingar. Bílskúrsréttur, sökkull kominn. Æsufell glæsileg 2ja herb. ibúð á 7. hæð. Laus strax. Brekkutangi, Mos. glæsilegt endaraðhús um 225 fm. Selst fokhelt eða lengra kom- ið eftir samkomulagi. Reynisvatn 2ja hektara landsspilda úr Reyn- isvatnslandi til sölu. 2ja herb. góð ibúð á 4. hæð í háhýsi við Asparfell um 73 ferm. laus í maí. 2ja herb. við Hjarðarhaga á 2. hæð ásamt herbergi í risi útb. 4.6 til 5 milljónir. 2ja herb. um 7 7 ferm. við Arahóla á 3. hæð tvennar svalir vönduð eign útb. 5 til 5.5 milljón. 3ja herb. vönduð íbúð á 3. hæð við Dvergabakka 110 ferm. og að auki 1. herbergi í kjallara útb. 7 milljónir. 3ja herb. íbúðir við Hraunbæ á 2. og 3. hæð útb. 5.8 til 6 milljónir. Losun samkomulag. 3ja herb. við Maríubakka ekki alveg full- kláruð þvottahús og búr inn af eldhúsi verð 7 milljónir útb. 5 milljónir. 3—4ra herb. við Æsufell um 90 til 95 ferm. fallegt útsýni harðviðarinnrétt- ingar teppalagt útb. 6 milljónir. 4ra herb. 4ra herb. risibúð lítið undir súð við Kirkjuteig um 100 ferm. útb. 6.3 til 6.5 milljónir. 4ra herb. vönduð íbúð á 7. hæð við Hrafn- hóla um 100 ferm. útb. 6 til 6.3 milljónir. Laus strax. 4ra herb. vönduð íbúð við írabakka um 104 ferm. á 3. hæð harðviðar- innréttingar teppalagt flísalagt bað útb. 6.5 til 6.7 milljónir. 4ra herb. góð íbúð á 4. hæð við Vestur- berg um 100 ferm. sameign öll frágengin með bílastæðum útb. 6.5 til 6.6 milljónir. Laus maí — júní. Sérhæð um 135 ferm. við Álfhólsveg í Kópavogi. Bílskúr. íbúðin er á 1. hæð í tvíbýlishúsi. Útb. 10 milljómr. Hafnarfj. 5 herb. íbúð á 1. hæð i tvíbýlis- húsi við Fögrukinn um 1 12 ferm. Sér hiti og inngangur 9- 1 0 ára gamalt. Harðviðarinnrétt- ingar. Teppalagt. Laust sam- komulag. 5 herbergja íbúðir við Fellsmúla, Kaplaskjóls- veg, Gaukshóla og víðar. Raðhús Fokhelt raðhús 6 herb. á 2 hæð- um 2x75 við Flúðasel í Breið- holti II, pússað og málað að utan með tvöföldu gleri og öllum úti- hurðum, vill selja beint eða skipta á 4ra herbergja íbúð í Breiðholti. Verð 10 milljónir, útb. 7.7 milljónir áhvilandi 2.3 milljónir húsnæðismálalán. Raðhús við Byggðarholt i Mosfellssveit um 124 ferm. -F bilskúr, 4 svefnherb. 2 stofur og fl. frá- gengið að utan og að mestu að innan þó ekki alveg, vönduð eign. Útb. 9.5 til 10 milljónir. Losun samkomulag. Einbýlishús við Digranesveg 8 herb. á þrem- ur hæðum með 2ja herb. ibúð i kjallara. Útb. 11 til 12 millj. Skipti koma til greina á 5 herb. íbúð í blokk í Reykjavík eða Kópavogi, eða bein sala. ATH: Höfurh mikið af íbúðum á sölu- skrá sem ekki má auglýsa sem við erum með í einkasölu. mmm »HSTEIBNIB AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆO Sfmi 24850 og 21970. Heimasími 38157 Ágúst Hróbjartsson sölum. Rósmundur Guðmundsson sölum. Sigrún Guðmundsd. lögg. fast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.