Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 15

Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 15
15 TaORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 ar í Indlandi . . . Kosningarnar í Indlandi. . . Kosningarnar i Indlandi . . . Kosningarnar í Indland Indira Gandhi lét af virkri þátttöku í stjórnmál- um um 1950 til að helga sig félags- málastörfum. Það var Narayan, sem er þekktur undir stöfunum „JP“ sem hratt úr vör herferðinni gegn Indíru 26. júní 1976 eftir að hún hafði verið sek fundin um kosningasvik. Hann og Desai voru tveir fyrstu mennirnir, sem hand- teknir voru i dögun morguninn, sem neyðarástandinu var lýst yfir. Báðir hafa unnið þrotlaust, þrátt fyrir háan aldur og alvarleg- an nýrnasjúkdóm JP, að þvi að sameina lýðræðisflokkana fjóra í stjórnarandstöðunni. Það var Janata einnig mikill styrkur er Jagjivan Ram, landbúnaðarráð- herra í stjórn Indíru, sagði sig úr flokknum skömmu fyrir kosning- ar og stofnaði flokkinn Kongrss fyrir lýðræði, sem mun á nýju þing starfa með Janata sem ein heild. Ram sem er 69 ára að aldri er leiðtogi 80 milljón Indverja „hinna ósnertanlegu", sem fátæk- astir eru og lægst settir í þjóð- félagsstiganum í landinu. Þessar 80 milljónir Indverja urðu hvað mest fyrir barðinu á Sanjay, syni Indíru, meðan neyðarástandið var í gildi, því að hann var helzti hvatamaður vönunarherferðarinnar og eyðingar fátækrahverfa, en þetta tvenna olli mikilli skelfingu meðal fátækra í landinu. Telja stjórnmálafréttaritarar að er upp verði staðið muni aðgerðir Sanjays hugsanlega taldar helzta ástæðan fyrir fylgishruni Kongressflokksins. Þegar þetta er ritað liggja úr- slitin I Indlandi ekki fyrir, þótt flest bendir til að stjórnarand- staðan fái hreinan meirihluta á þingi. Talsmaður Indíru lýsti í kvöld yfir að hún myndi segja af sér á morgun. Fari hins vegar svo að Kongressflokkurinn haldi meirihluta þarf Indira ekki að segja af sér embætti næstu 6 mánuði, þrátt fyrir að hún hafi fallið og innan sex mánaða yrðu haldnar aukakosningar i kjör- dæmi hennar. Rae Bareli. Ef hún sigraði í þeim kosningum gæti hún haldið áfram sem forsætis- ráðherra. DESAI FORSÆTISRÁÐHERRA ? Sigri stjórnarandstaðan mun nýr forsætisráðherra ekki kjörinn fyrr en á fimmtudag eftir þriggja daga viðræður Janata og flokks Rams, en stjórnmálafréttaritarar telja vist að formaður Janata og opinber leiðtogi, Morariji Desai, verði einróma kjörinn. Talsmenn Janata hétu í kvöld stuðnings- mönnum sínum að reyna að ganga frá stjórnarmynduninni án ill- vigra átaka og deilna. Erfitt er að segja fyrir um hvað gerist, en stjórnmálafréttaritarar segja að Framhald á bls. 46 magnaði gagnrýni sína á Indriru Gandhi fyrir það að ætla að koma á rfkis- erfðum f landinu. Neyðarástandslögin gerðu það hins vegar ómögulegt að gagn- rýna Sanjay opinberlega. Hann hafði sjálfur forystu i vönunar- herferðinni og herferðinni fyrir hreinsun fátækrahverfa i stór- borgum. Báðar herferðirnar mættu andstöðu almennings og áttu ásamt neyðarástandslögun- um stærstan þátt í ósigri Kon- gressflokksins. Margir frambjóðendur stjornar- andstöðunnar notuðu ksoninga- baráttuna til að ráðast á Sanjay Gandhi og þegar fréttist i síðustu viku að honum hefði verið sýnt banatilræði var stjórnarandstað- an fljót að fullyrða, að hann hafi sett árásina á bil sinn á svið til að ávinna sér samúð fólks. Þess i stað varð hann byrði fyrir Kongressflokkinn og fréttamenn álita að honum eigi ekki eftir að skjóta aftur upp í stjórnmálum — ekki næstu árin að minnsta kosti. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU Al'GLVSINGA- SÍMINN EK: 22480 Fernandes: Sat í fangelsi — vann stórsigur Nyju-I)elhi 21. marz— reuler. FORMAÐUR flokks sósfalista, George Fernandes, var kjörinn á þing í dag með 300.000 atkvæða meirihluta, þó að hann gæti ekki tekið þátt í kosningabaráttunni þvf hann hefur setið í fangelsi síðan í júní í fyrra. Vann Fernandes þingsæti sitt f kjördæminu Muzzafarpur í Biharríki úr höndum frambjóðanda stjórnar Indiru Gandhi, Nitexhwar Prasadh Singh, sem setið hefur á þingi í 25 ár. Fernandes, sem er 47 ára gamall og þekktur verka- lýðsleiðtogi, vildi upphaf- lega að sósíalistar tækju ekki þátt f kosningunum, þar sem hann hélt að þær væru settar á svið. Hann sagði af sér sem formaður flokksins í mótmælaskyni við þátttöku hans í kosningunum. Hann fékkst þó til að taka afsögn sína til baka tveimur dög- um síðar og bjóða sig fram. Fernandes var ekki lát- inn laus eins og svo margir aðrir leiðtogar stjórnar- andstöðunnar, þegar Indira Gandhi boðaði til kosninganna og beið hann þess að réttarhöld hæfust yfir honum vegna ákæru um tilraun til að steypa stjórninni af stóli. Þúsundir stúdenta og lögfræð- inga ráku kosingabaráttuna fyrir hann. Lýstu þeir honum sem bar- áttumanni gegn kerfinu. Þeir söfnuðu í kosingarsjóði með þvf að bursta skó og seija te. Móðir hans, 66 ára gömul, en tveir aðrir synir hennar, Michael og- Lawrence, sitja einnig I fangelsi, fór til Muzzafarpur og talaði á fundum fyrir hans hönd. Fernandes öðlaðist frægð eftir að hafa stjornað verkfalli járn- brautarstarfsmanna 1974. Hann lét sig hverfa þegar farið var að RAJ Narain, sem sigraði Indiru Gandhi í kosningunum, var aldrei í neinum vafa um að því kæmi að hann bæri sigur- orð af henni. Honum tókst það loks í dag þegar hann vann þingsæti hennar í Rae Bareli með 177,729 at- kvæðum gegn 122,517, sem féllu í hlut Gandhi. Narain, sem er 60 ára, er hreinskilinn og harður sósíalisti. Honum var sleppt úr fangelsi í síðasta mánuði en þá hafði hann verið í haldi í 20 mánuði samkvæmt neyðar- ástandslögunum. „Ég var hafður I einangrun og missti 14 kíló, en ég er eins handtaka andstæðinga stjórnar- innar eftir að Indira Gandhi lýsti yfir neyðarástandi 26. júní 1975. Hann var handtekinn ári siðar og var ákærður ásamt öðrum fyrir að hafa gert tilraun til að steypa stjórninni af stóli með valdi. Eiginkona hans, Leila, og ungir synir ferðuðust um Evrópu og Bandaríkin til að afla honum stuðnings og Amnesty International reyndi án árangurs að fá hann lausan. ákveðinn og sterkur og áður. Eg er tilbúinn til að berjast við hana,“ sagði hann þegar hann losnaði úr fangelsinu. Narain var sjálfur ábyrgur fyrir að hafa komið af stað at- burðarás sem leiddi til þess að Gandhi kom á neyðarástandi. Hann neitaði að sætta sig við kosningatölur i siðustu kosningum, en þá sigraði Indira Gandhi með 110,000 atkvæóa meirihluta og kærði hann hana fyrir kosningasvik. Tveim vikum eftir að dómstóll í Allahabad sakfelldi Gandhi fyrir kosningasvik lýsti hún yfir neyðarástandi. Hæstiréttur breytti síðan þessum úrskurði. Narain var alltaf viss um að sigra Indiru Gandhi í Rae Barelie þó svo aö hún hefði haldið þing- sætinu síðan 1967 en áður var það i höndum eiginmanns hennar heitins, Feroze Gandhi. Framhald á bls. 46 Narain: Var aldrei í vafa um sigur Nýju-Delhi 21. marz — Reuter Ijósa og prent staf ir KR. 45.800 12 STAFIR 2 MIW'l SJALFV. o/o GRAADTOTAL EPC reiknivélar, án Ijósa med minni og sjálfv. ojoreikn., kosta frá KR. 34.100 SIMFSTOFIVELM H.F. Hverfisgötu 33 Sími 20560 > i* * '*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.