Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
17
árum, segja þeir er til þekkja.
Það er þvi eitt af baráttumál-
um Tónmenntarkennara-
félags íslands að kórstarfinu
verði afmarkaður starfs-
grundvöllur með ákvæðum
um lágmarks kórtimafjöla i
stundaskrá grunnskóla.
Sagði Egill Friðleifsson
ennfremur að það væri von
þeirra sem að þessu fyrsta
landsmóti islenzkra barna-
kóra stæðu, að það gæfi góða
myneruréttur skólakóra yrði
viðurkenndur I reynd.
Oðinn Valsson, sem er ellefu ára,
syngur með barnakór Húsavlkur.
Hann var svo óheppinn að detta á
skfðum á Húsavfk og fótbrjóta sig
rótt fyrir landsmótið.
Þörf á að gera dulsálarfræð-
ina aðgengilega þorra manna
MARTIN Johnson prófessor í dulsálarfræöi við háskól-
ann í Utrecht í Hollandi hélt í fyrri viku fyrirlestur í
boði Félags vfsindadeildar Háskóla íslands. Martin
Johnson skipar annað tveggja prófessorsembætta í þess-
ari grein í Evrópu. Mbl. hitti próf. Johnson að máli og
spurði hann lftillega um fræðigrein hans og starf.
Prófessorinn sagði, aö hann
hefði numið I Lundi og byrjað
upphaflega í stjörnufræði og
náttúruvisindum. Hann starfaði
um skeið sem stjörnufræðingur,
en sneri sér síðan að sálarfræði og
því næst dulsálarfræði. Að því
námi loknu varð hann lektor í
Lundi, en síðar fékk hann aðal-
þjálfun f dulsálarfræði á náms-
ferðum til Bandarikjanna.
— Fólk hefur yfirleitt heldur
takmarkaða þekkingu á dulsálar-
fræði. Dulsálarfræðin má segja að
fáist einkum við rannsóknir á
tveimur tegundum fyrirbrigða.
Hið fyrra má kalla dulskynjun,
þ.e meðal annars hæfileikann til
að sjá fyrir óorðna hluti og at-
burði. Hin tegundin er kölluð
psychokines, þ.e. að hafa áhrif á
hluti með huganum einum saman.
Undir þetta fyrirbrigði falla reim-
leikar- og hreyfifyrirbæri.
— Hefur dilsálarfræði öðlast
viðurkenningu almennt sem
alvarleg vísindagrein?
— Þessu má svara bæði játandi
og neitandi. Samtök dulsálarfræð-
inga hafa verið starfandi síðan
1959 og hafa þau nú nýverið feng-
ið aðild að Bandaríska vísinda-
félaginu — The American
Association for Advancement of
Science. — Hlýtur það að teljast
viðurkenning á greininni, enda
notar hún sömu rannsóknarað-
ferðir og skyldar vlsindagreinar.
Þó verður þvi ekki neitað að fáir
háskólar hafa viljað styðja við
bakið á rannsóknum í dulsálar-
fræði. Þar kemur ýmislegt fleira
til en að menn efist um hana sem
visindagrein, svo sem starfsað-
staða skólanna og fleira. Ef við
byrjum á Bandarikjunum starfa
þó nokkrir sérfræðingar í þessu
fagi við háskóla þar í allmörgum
ríkjum. Rannsóknir sem gerðar
eru við flesta þá skóla byggjast að
mestu á frjálsum framlögum
áhugamanna, en það gildir raunar
einnig um ýmsar aðrar vísinda-
rannsóknir í Bandarikjunum.
Nokkrar viðurkenndar rann-
sóknarstofnanir, svo sem í Norð-
ur-Karolinu, Virginíu og i Kali-
forniu hafa unnið merkt at-
huganastarf á þessu sviði, t.d. við
Stanfordháskólann.
Ef við snúum okkur að stöðu
dulsálarfræðinnar i Evrópu, má
Martin Johnson
hiklaust segja að hún eigi sterk
ítök í Englendingum og fyrsta
rannsóknarfélagið af þessu tagi
var stofnað þar í landi árið 1882.
Aftur á móti hefur heldur dofnað
yfir rannsóknum á dulsálarfræð-
inni í Englandi á síðustu árum.
Kannski fólk telji rannsóknir í
þessari grein ekki hafa hagnýtt
gildi, ef svo má orða það. Nú þarf
allt að vera meira og minna hag-
nýtt. Hér á íslandi er svo starf-
andi dr. Eriendur Haraldsson,
sem vinnur að merkum rannsókn-
um. í Hollandi er svo sérstök dul-
sálarfræðideild við Utrechthá-
skóla eins og við höfum vikið að.
Við deildina starfa þrir fastir
starfsmenn, þar sem lögð er stund
á ýmsar rannsóknir á dulskynjun
og þar starfar t.d. helzti sam-
starfsmaður minn Scybo
Schouten sem hefur sérhæft sig í
rannsóknum á dýrum og til dæm-
is því hvort hægt sé að finna
dulskynjun i músum. í Utrecht
eru tveir að búa sig undir að taka
doktorsgráðu í greininni. i Frei-
burg er Hans Bender einn helztur
dulsálarfræðinga og hefur hann
og menn hans þar meðal annars
lagt sig eftir reimleika- og hreyfi-
fyrirbærarannsóknum, þ.e. að
kanna hvaða áhrif valda þvi þeg-
ar hlutir virðast breyta um form
og lögun án þess :ð sjáanlegar
áþreifanlegar skýringar virðist
vera á því.
— Eins og ég vék að í upphafi
hefur þorri manna tiltölulega
litla raunhæfa þekkingu á dul-
sálarfræði. Margt það sem skrifað
er um greinina af leikmönnum
hef ég hyllzt til að kalla dulsálar-
fræðilegt pornó. En það er nauð-
synlegt að fá meira af bókum sem
skrifaðar eru á aðgengilegu og
skiljanlegu máii fyrir almenning
til að hann geti kynnzt þessari
vísindagrein, sagði Martin John-
son að lokum.
Rabbað vid Martin Johnson prófessor vid Utrechtháskóla
GRASKÖGGUUt
Auk venjulegra grasköggla höfum við nú á boðstólum feitiblandaða grasköggla.