Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
Tótf Islandsmet og ein metjöfnun
á sundmeistaramótinu innanhúss
EF að Hkum lætur og keppni á
sundmótum sumarsins verður
eins jöfn og spennandi og var á
Innanhússmeistaramóti tslands f
sundi, sem háð var I Sundhöll
Reykjavfkur nú um helgina, þá
má fastlega búast við þvf að mikl-
ar framfarir eigi eftir að eiga sér
stað f sundfþróttinni Rerlendis á
næstunni. Langflestir hinna f jöl-
mörgu keppenda eru enn mjög
ungir að árum, og fái þeir góða
aðstöðu og næga möguleika til
æfinga, þá er óhætt að fullyrða að
árangur eigi eftir að batna tölu-
vert frá þvf sem nú er þó svo að
mörg tslandsmet hafi verið bætt
stórlega á mótinu. Alls voru sett
12 tslandsmet og það þréttánda
jafnað, og auk þess voru sett
nokkur met f yngri aldursflokk-
um.
Keppnisgreinar voru alls 24 og
fór mótið fram á þremur dögum.
Undanrásir voru vanalega á
morgnana, og úrslitin síðan siðla
dags. Sjá má af fjölda keppnis-
greina að met hafa verið sett í um
helmingi þeirra. Sett voru met í
öllum boðsundunum og fyrri met
í þeim mörg hver stórbætt. Þótt
það komi svo ekki fram í úrslitum
sem her fylgja þá bættu menn sig
að jafnaði mjög frá undanrásum,
en bæði í þeim og úrslitum voru
sett gífurlega mörg persónuleg
met. Það er því nógur efniviður-
inn í afreksfólk í sundi hérlendis.
Spurningin virðist helzt vera sú
hvort þessu fólki skapist nógu góð
skilyrði til æfinga og keppni.
tslandsmetin
Eins og áður segir voru sett 12
íslandsmet á mótinu og hið þrétt-
ána jafnað. Ólympíufararnir Þór-
unn Alfreðsdóttir og Sigurður
Ólafsson, bæði úr Ægi, voru þar
eiginlega í algerum sérflokki.
Setti þróunn þrjú einstaklings-
met auk þess að vera í boðsunds-
sveitunum báðum sem settu met.
Met sín setti Þórunn í 800 metra
skriðsundi, 400 metra skriðsundi
og 400 metra fjórsundi. Átti hún
sjálf metin í lengra skriðsundinu
og fjórsundinu, en þau met bætti
hún umtalsvert. Sigurður setti tí-
vegis met í 400 metra skriðsundi
og jafnaði siðan eigið met f 100 m
skriðsundinu. Einnig var Sigurð-
ur í báðum sveitunum er settu
boðsundsmet.
önnur met auk boðsundsmet-
anna fjögurra, voru sett af Axel
Boðssundsveit Ægis, var ósigrandi á meistarmótinu og
bætti Islandsmetin verulega.
Alfreðssyni Ægi, bróður Þórunn-
ar, I 400 metra fjórsundi, Sonju
Hreiðarsdóttur Ægi i 200 m
bringusundi og Bjarna Björns-
syni Ægi i 200 metra baksundi
karla, en eldra metið i þeirri
grein átti hinn frægi kappi
Guðmundur Gislason.
Þórunn og Sigurður f góðri æf-
ingu
Svo sem sjá má af metaupp-
talningunni eru þau Þórunn
Alfreðsdóttir og Sigurður Ólafs-
son bæði i mjög góðri æfingu, en
fyrri met bættu þau mikið. í
spjalli við blm. sagðist Þórunn
hafa æft mjög vel í vetur, meira
en fyrir Ólympiuleikana í
Montreal, en þar var hún meðal
keppenda. Þórunn sagði að vana-
lega næðist betri árangur í 25
metra laug en í 50 metra, og því
væri erfitt að segja nokkuð um
sumarið að svo stöddu. Sagðist
hún ætla að halda áfram að leggja
hart að sér við æfingar, og þarf
þvi ekki að búast við öðru en að
þessi harða keppniskona bæri sig
talsvert í sumar. Aðspurður sagði-
st Sigurður ekki æfa eins mikið
nú og i fyrravetur, er hann undir-
bjó sig fyrir Ólympiuleikana i
Montreal. „En sú æfing situr þó
ennþá eitthvað í manni,“ sagði
Sigurður. Hann sagði ennfremur
að framundan væri hálfgert hlé
þar til kæmi að mótum sumarsins
sem hæfust að ráði í mai og júni.
„Þennan tíma mun maður
væntanlega nota til að æfa vel.
Við munum taka „törn“ í páska-
vikunni og æfa þá allt upp i þrisv-
ar á dag,“ sagði Sigurður.
Ægir mikið stórveldi
Það hlýtur að vekja nokkra
athygli þegar úrslit mótsins eru
skoðuð hve hlutur sundfélagsins
Ægis er mikill. Öll þau íslands-
met sem sett voru voru sett af
sundfólki úr Ægi, en það sem
vekur eiginlega meiri athygli er
að allir meistaratitlar nema einn
eru unnir af sundfólki Ægis. Þá
átti félagið gjarnan nokkra sem
voru í næstu verðlaunasætum,
svo óhætt er að fullyrða að þetta
félag er stórveldi sem vart verður
hnikað á næstunni. Sennilega er
það fleira en eitt sem veldur þess-
um góða árangri félagsins, en
fullyrða má að stóran þátt í þess-
um góða árangri og góðum afrek-
um sundfólks þessa félags á þjálf-
ari félagsins, Guðmundur Harðar-
son. Er Guðmundur án efa okkar
langfremsti þjálfari og kunnáttu-
maður' um leiðir til afreka i sundi,
og er það synd að svona menn
skuli ekki vera „þjóðnýttir" af
íþróttahreyfingunni. Eitt þeirra
oo atrifla,, sero „stmcÍHKw nsfpitegg,
afrekum i fþróttum fyrir þrifum
er skortur á fólki með góða þekk-
ingu til þjálfunar, og leitt til þess
að vita að þeir sem búa yfir góðri
þekkingu og miklum þjálfunar-
hæfileikum verði að starfa að
framgangi iþróttanna án þess að
fá sómasamlega greitt fyrir erfiði
sitt og þolinmæði.
Gott skipulag
Þetta sundmeistaramót fór í
alla staði mjög vel fram. Þá stund
sem blm. staldraði við á mótinu
var jafnan gífurleg stemming i
Sundhöllinni, enda keppni yfir-
leitt nokkuð jöfn og hörð og svo
hvatti hver sem betur gat sína
félaga í keppninni. Mótið gekk
mjög greiðlega fyrir sig og eiga
starfsmenn hrós skilið. Leikstjórn
Siggeirs Siggeirssonar var með
miklum ágætum og framsetning
Mörg ágæt afrek voru unn-
in á sundmeistaramótinu
sem fram fór í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina.
Þar tók ljósmyndari
Morgunblaðsins Friðþjóf-
ur Helgason, þessa mynd
af ungum mönnum sem
voru að hef ja sund. Það var
unga fólkið sem mest bar á
í þessu móti, og lofar það
sannarlega góðu um fram-
tfð fþróttarinnar.
hans á úrslitum einstakra sunda
góð. Eitt það sem löngu hefur
viljað gera mót einstaklings-
iþrótta frekar bragðdauf fyrir
áhorfendur er skipulag þeirra og
tímaröðun keppnisgreina. En þeg-
ar keppendur mæta til leiks eins
og tilkynnt hefur verið, þá verður
auðveldara að ráða við mótin og
þau verða siður gloppótt. Allt
hjálpaðist að við að gera þetta
mót skemmtilegt, þvi mæting var
góð og í samræmi við þátttökutil-
kynningar, og skipulag mótsins
gott. Er óhætt að segja að með
þessu áframhaldi og jafnari og
spennandi keppni, þá er framtíð
islenzkrar sundíþróttar björt.
— ágás.
Úrslit á sundmeistaramótinu
(JRSLITIN:
800 M SKRIÐSUND KVENNA: mfn.
Þórunn Alfreðsdóttir, Æ
tslandsmet 9:51,2
Guðný Guðjónsdóttir, Á 10:43,0
Ólöf Eggertsdóttir, IISK 11:08,5
1500 M SKRIÐSUND KARLA:
Sigurður Ólafsson, Æ 17:18,6
Bjarni Björnsson, Æ 17:32,8
Árni Eyþórsson, Á
400 M FJÓRSUND KVENNA:
Þórunn Alfreðsdóttir, Æ
Íslandsmet 5:24,9
Ólöf Eggertssóttir, HSK 6:03,1
Sigrún Ólafsdóttir, HSK 6:20,1
400 M SKRIÐSUND KARLA:
Sigurður Ólafsson, Æ
íslandsmet 4:16,0
Árni Eyþórsson, Á 4:25,4
Hafliði Halldórsson, Æ 4:35,0
100 M SKRIÐSUND KVENNA:
Guðný Guðjónsdóttir, Á * 1:05,5
Hrefna Rúnarsdóttir, Æ 1:08,2
Hulda Jónsdóttir, Æ 1:10,3
100 M BRINGUSUND KARLÁ:
Hermann Alfreðsson, Æ 1:11,6
Guðmundur Rúnarsson, Æ 1:12,3
Steingrfmur Davfðsson. UBK 1:12,3
200 M BRINGUSUND KVENNA:
Sonja Hreiðarsdóttir, Æ
Islandsmet 2:50,5
Elfnborg Gunnarsdóttir, HSK “:55,5
Þórunn Magnúsdóttir, tBK 2:58,3
200 M FLUGSUND KARLA:
Axel Alfreðsson, Æ 2:24,4
Brynjólfur Björnsson, Á 2:31,1
Árni Eyþórsson, Á 2:35,7
100 M FLUGSUND KVENNA:
Þórunn Alfreðsdóttir, Æ 1:10,4
Elfnborg Gunnarsdóttir, HSK 1:17,1
Þórunn Guðmundsdóttir, Á 1:20,0
200 M BAKSUND KARLA:
Bjarni Björnsson, Æ
Íslandsmet 2:23,2
Hugi K. Harðarson, HSK
met 14 ára og yngri 2:30,9
Sveinbjörn Gizzurarson, ÍBK 2:33,4
100 M BAKSUND KVENNA:
Sonja Hreiðarsdóttir, Æ 1:16,3
Guðný Guðjónsdóttir. A 1:19,8
Sigrún Bjarnadóttir. Æ 1:21.7
4x100 FJÓRSUND KARLA:
A-sveit Ægis, tslandsmet 4:19,5
UBK 4:39,2
A-sveit Ármanns 4:41.8
cVlrl AMnM U J 11U UT '4<5 I l A»0
4x100 FJÓRSUNI) KVENNA:
A-sveit Ægis, Íslandsmet 5:00,7
Ármann 5:22,9
UBK 5:38.9
400 M FJÓRSUND KARLA:
Axel Alfreðvson, Æ
Íslandsmet 4:55,6
Árni Eyþórsson. A 5:09,7
Brynjólfur Björnsson, Á 5:13,7
400 M SKRIÐSUND KVENNA:
Þórunn Alfreðsdóttir, Æ
tslandsmet 4:46.4
Hrefna Rúnarsdóttir, Æ 5:23,4
Sigrún Ólafsdóttir, HSK 5:33,1
100 M SKRIÐSUND KARLA:
Sigurður Ólafsson, Æ
ísl.met jöfnun 54,9
Bjarni Björnsson, Æ 57,2
Hafliði Halldórsson, Æ 58,2
100 M BRINGUSUND KVENNA:
Sonja Hreiðarsdóttir, Æ
met 14 ára og yngri 1:19,9
Elfnborg Gunnarsdóttir, HSK 1:22,5
Þórunn Magnúsdóttir. ÍBK 1:24.4
200 M BRINGUSUND KARLA:
Hermann Alfreðsson, Æ 2:35,7
Sigmar Björnsson, ÍBK 2:39,2
Guðmundur Rúnarsson, Æ 2:40,1
200 M FLUGSUND KVENNA:
Þórunn Alfreðsdóttir. Æ 2:32,2
ErlaGunnarsdóttir, HSK 2:56,5
Þórunn Guðmundsdóttir, Á 2:57,8
100 M FLUGSUND KARLA:
Axel Alfreðsson, Æ 1:05,1
Þorsteinn Hjartarson, HSK 1:07,1
Árni Eyþórsson, Á 1:07,4
200 M BAKSUND KVENNA
Sonja Hreiðarsdóttir. Æ
met 14 ára og yngri 2:40,5
Guðný Guðjónsdóttir, Á 2:49.0
Ólöf Eggertsdóttir, HSK 2:57,8
100 M BAKSUND KARLA:
Bjarni Bjönnsson, Æ 1:05,9
Sveinbjörn Gizzurarson, ÍBK 1:10,3
Þorsteinn Hjartarson, HSK 1:10,5
4x100 M SKRIÐSUND KVENNA:
A-sveit Ægis. Íslandsmet 4:30,6
SH 4:55,3
IISK 5:04.6
4x200 M SKRIÐSUND KARLA:
A-sveit Ægis. Íslandsmet 8:21.3
Ármann 9:12,5
^P’sve^(^P^bnt»íiioi mieoio öyt