Morgunblaðið - 22.03.1977, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
Islenzku Evrópumeistararnir þrír í frjálsum Iþróttum: Torfi Bryngreis-
son, Hreinn Halldórsson og Gunnar Huseby Svo skemmtilega vill til
að þeir eru allir í sama félaginu — KR, og eru orugglega ekki mörg
félög í Evrópu sem státað geta af þvíaðeiga þrjá Evrópumeistara.
„Sagði að Hreinn æld
strætó sem ég færi
með í vinnuna heima
— AFREK Hreins Halldórssonar á Evrópumeistaramótinu í
San Sebastian vakti gffurlega athygli ( Bretlandi, sagði Sigfús
Jónsson, hlaupari úr fR, sem dvelur ytra við nám, ( viðtali við
Morgunblaðið í gær. — Það var sjónvarpað frá mótinu í
Bretlandi, og kúluvarpinu voru gerð enn meiri skil fyrir það
að Bretar höfðu gert sér góðar vonir um sigur s(ns manns,
Geoff Capes. Þegar ég kom ( skólann á mánudaginn urðu
margir skólafélaga minna til þess að spyrja um hvort ég
þekkti þennan Halldórsson, og var ég maður að meiri þegar
ég sagði að við værum vel kunnugir. Til þes að krydda þetta
dálftið, sagði ég að Halldórsson væri maðurinn sem .æki
„strætóum" sem ég færi með f vinnuna á morgnana, og þótti
mörgum furðulegt að Evrópumeistarinn væri maður ( fullri
vinnu. ,
Sigfús sagðist vera óðum að ná sér á strik aftur eftir
nokkurt hlé sem varð á æfingum hjá honum vegna meiðsla.
Hann tók þátt f vfðavangsboðhlaupi fyrir skömmu og voru þar
hlaupnir 5x5 km. Hljóp Sigfús annan sprett fyrir félag sitt
og þegar hann tók við var það f 25. sæti. Sigfús hljóp mjög vel
og skilaði af sér ,sem tólfti maður. Tími hans var um 14:16
mfn. Um helgina tók Sigfús þátt f götuhlaupi f Hollandi, cn
þangað var honum boðið. Um páskana mun hann einnig taka
þátt f nokkrum hlaupum, en koma sfðan heim.
SEM kunnugt er náði frjáls-
fþróttakonan Lilja Guðmunds-
dóttir úr IR þeim glæsilega
árangri að verða bæði norskur og
finnskur meistari f frjálsfþrótt-
um nú nýverið. Sigraði Lilja f 800
metra hlaupi á meistaramótum
þessara landa, og varð auk þess f
þriðja sæti f 1500 metrum á
finnska mótinu. Er þetta ekki svo
lftil kynning á fslenzkum frjáls-
fþróttum f þessum löndum, og
áreiðanlega á þessi góði árangur
eftir að verða frj álsfþrótt afólki
til góðs. 1 tilefni þessa glæsilega
árangurs spjallaði Mbl. stuttlega
við Lilju.
„Ég er auðvitað mjög ánægð
með árangurinn á þessum
mótum,“ sagði Lilja í spjallinu.
„Fyrir norska mótið reiknaði ég
alls ekki með sigri, þar sem ég hef
aldrei verið neitt sterk í innan-
hússkeppni. Einhvern veginn
startaði ég hratt í því hlaupi, og
fyrr en varði vissi ég ekki fyrr en
ég hafði forystu. Nú, ég reyndi
bara að halda minu striki og
hlaupa eins hratt og mögulegt var
án þess þó að springa eða stífna
upp. Það var svo nokkuð mjótt á
munum í markinu, því ein norsk
stúlka kom upp að mér í lokin, en
ég náði að komast aðeins fram úr
er við fórum yfir markið. Það var
ólýsanleg tilfinning sem fór um
mig þegar ég gerði mér það ljóst,
að ég hafði sigrað.
Ekki gekk ég sigurviss til leiks
á finnska mótinu i Abo, því ég
vissi að finnskar stúlkur voru
betri en norskar í millivega-
lengdahlaupum. Ég var bara hörð
og ákveðin i að reyna allt hvað ég
gæti, og bæta tímann frá Noregi,
þvi ég þóttist engu hafa að tapa
en hins vegar allt að vinna. 1
stuttu máli gekk hlaupið svipað
fyrir sig og í Noregi. Ég tók strax
forystu og hljóp vel, þvi fyrstu
400 metrarnir voru á 62,5 sek. án
þess að ég fyndi nokkuð fyrir því.
Mér fannst ég vera létt og hélt
áfram að pressa þær sem fylgdu
eins og ég gat. Það var því engin
eftir þegar 600 metrar voru búnir.
Þá var ég laus frá þeim sem
fylgdu eftir, og í markinu skildu
um 6 metrar. Það var skemmtilegt
að ná betri tíma en I Noregi, en
verst var að vita ekki að vallar-
löt$ietrÖ,?lu- ekki nema lA sék'uiTdu ’ '
betra en ég náði, þ.e. 2:09,2 mín.
Við vorum 10 f hlaupinu í Finn-
landi, og sú sem varð önnur hljóp
á 2:10,6, en á bezt utanhúss um
2:05 mín. Ég hef að vísu sigrað þá
manneskju áður í Kalottkeppnun-
um, en hún heitir Aila Wirkberg.
Hún kvartaði eftir hlaupið um að
byrjunarhraði minn hefði sprengt
sig.
Bætti metið um 'A mfnútu
í 1500 metra hlaupinu daginn
eftir fannst mér ég vera nokkuð
þreytt i fótunum, og skipti mér
ekkert af hraðanum í fyrstu. Við
hlupum 5 i fremsta hópnum og
var hraðinn frekar hægur. Ég
reyndi svo að keyra upp seinni
hluta hlaupsins, en I Iokin fóru þó
tvær fram úr mér og varð ég því í
þriðja sæti. En timarnir voru
nokkuð jafnir, sú sem sigraði,
Sinikka Tyynela, fékk 4:26,2
min., Aila varð önnur á 4:26,7,4
min. Sú sem varð svo fjórða, Irja
Paukkonen, fékk 4:28,4 mín. Ég
setti markið á 4:30 fyrir hlaupið,
en bjóst hálfpartinn ekki við að
ná því, og er ég því nokkuð ánægð
með timann. Jú, Islandsmetið
fauk heldur betur, það var ekki
nema 4:57 mínútur.“ Aðspurð
sagði Lilja að aðstæður í Finn-
landi og Noregi hefðu verið mjög
góðar, eða eins og innanhúss-
aðstæður gerast einna beztar.
Ekki áhugi á EM
Þegar Lilja tjáði okkur, að með
þessum árangri í 800 metrum
væri hún önnur bezta á Norður-
löndum innanhúss i ár, spurðum
við hana hvort hugurinn stefndi
ekki á Evrópumeistaramótið
innanhúss. „Nei, ég hef engan
áhuga á því, árangur þar skiptir
engu fyrir sumarið, sem er mikil-
vægara. Miklu frekar hefði ég
áhuga á að fá styrk frá Frjáls-
iþróttasambandi íslands svo að ég
geti farið i æfingabúðir til
Júgóslavíu eða ítalíu í lok marz
eða byrjun apríl. Það mundi
skipta miklu fyrir sumarið að
geta æft í smátima við góðar að-
stæður. í þessu sambandi langar
mig að taka það fram, að ég fékk
ekki svo mikið sem einnar krónu
aðstoð frá FRÍ við að taka þátt í
mótunum í Noregi eða Finnlandi.
Öll fyrirgreiðsla og allur
^ostn^u^j.imnhan^^ið ^ jpóf,
var a kostnað félagsins sem ég
keppi fyrir hér í Norrköping, IF
Tywar Norrköping. Forráðafólk
félagsins, Inga Lisa og Stig
Jonsson, ásamt þjálfaranum
Zicka, hafa reynzt mér mjög
hjálpleg í þessu sambandi og jafn-
an verið tilbúinn að greiða götu
mína, en láta mun nærri að ferða-
kostnaðurinn einn á mótin sé um
1000 sænskar krónur."
Þjálfarinn bjartsýnn
Þegar við spurðum Lilju hvern-
ig henni litist á komandi sumar
hvað árangur snerti, þá sagðist
hún nú ekki beint vilja lofa nein-
um sérstökum árangri. „Þó tel ég
fullvíst, að ég muni hlaupa 800
metra á um 2:05 mínútum. Þá
gæti ég trúað, að ég hlypi 1500 m
á um 4:15 minútum, kæmist ég í
heppilega keppni. En ég mun
leggja mesta áherzlu á 800 metra í
sumar og hleyp því líklegast meir
400 metra i stað 1500. Ég þarf á
meiri hraða á að halda til að ná
öllu betur í 800, að ég held.
Það má þó taka fram hér, að
þjálfari minn, Zi,cka, virðist bjart-
sýnni en ég. Hann er alltaf að
telja mér trú um að ég hlaupi á
um 2:03 mín. i sumar, og miðar
æfingarnar við það. Ætli vonir
okkar eigi ekki bara eftir að mæt-
ast á miðri leið, þ.e. að ég hlaupi á
um 2:04 mínútum. Annars virðist
nokkuð að marka það sem Zicka
segir fyrirfram um árangur.
Hann sagði mér t.d. áður en ég fór
til Óslóar að hann vonaðist að ég
hlypi á um 2:10 í Noregi, en ég
hljóp á 2:09,9 þar. Þá bjóst hann
við að ég væri upp á 4:30 I 1500 í
Finnlandi, en mér tókst að fara
aðeins undir það, eins og kom
fram áðan,“ sagði Lilja.
Leggið hart að ykkur
Lilja bað okkur í lok viðtalsins
að skila beztu kveðjum til íslend-
inga, og sagðist vona að frjáls-
íþróttafólk heima legði hart að
sér við æfingar, svo að framfarir
yrðu i sumar. Er þessum kveðjum
hér komið til skila.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með árangri Lilju á hlaupabraut-
inni á næstunni, en Lilja segir sitt
næsta takmark vera Evrópu-
meistaramótið utanhúss 1978. Að-
spurð sagði hún að á næstu vikum
keppti hún í nokkrum viðavangs-
qqþlaiytva»^ð,ur,gn,sð,^ljrPíUi>ifiPfltj:
ég um kæmi. ágás.
Jóhannes Sigmundsson er
formaöur landsmótsnefndar
55. héraðsþing Héraðssambands-
ins Skarphéðins var haldið á
Hellu dagana 26.—27. febrúar s.l.
Var á þingi þessu endanlega
gengið frá þvf að HSK verður
umsjónaraðili næsta landsmóts
UMFÍ og verður það haldið á Sel-
fossi á næsta ári. Hefur verið
kjörin landsmótsnefnd til þess að
sjá um undirbúning mótsins og
eiga sæti f henni þeir Jóhannes
Sigmundsson, sem verður for-
maður nefndarinnar, Hjörtur
Jóhannsson, Gfsli Magnússon og
Már Sigurðsson. Auk þess tilnefn-
ir Ungmennafélag íslands einn
mann í nefndina.
Nokkrar breytingar voru gerð-
ar á lögum sambandsins á fundin-
um á Hellu, helztar þær að ákveð-
ið var að stjórn sambandsins
ásamt formönnum allra ung-
mennafélaga í sambandinu og for-
mönnum fastra starfsnefnda á
vegum þess mynduðu sambands-
ráð, sem koma skal saman minnst
einu sinni á hverju ári, og einnig
var stjórn heimilað að kjósa úr
sínum hópi þriggja manna fram-
kvæmdastjórn.
Margar samþykktir voru gerðar
á þinginu og má meðal þeirra
nefna að þingið mótmælti fram-
kominni breytingartillögu á
áfengislögunum þess efnis að
leyfa bruggun áfengs öls á íslandi
og skoraði þing HSK á alþingis-
menn að fella frumvarpið. Þá var
samþykkt að fela stjórn sam-
bandsins að gera könnun hjá sam-
bandsfélögunum um þá íþrótta-
legu aðstöðu, sem hvert félag býr
við í sínu sveitarfélagi, og lýst var
yfir eindregnum stuðningi við
brúarsmíði yfir Ölfusá við
Óseyrarnes, og taldi þingið að þar
Kristján Jónsson — nýkjörinn
formaður HSK
Ulja önnur bezta á Norður-
löndum í 800 m innanhúss
væri um að ræða nauðsynlega
samgöngubót fyrir allt héraðið.
Við stjórnarkjör hurfu allir
fyrri stjórnarmenn úr stjórninni.
Komu fram fjögur framboð í for-
mannssætið og hlaut Kristján
Jónsson frá Selfossi flest atkvæði.
Aðrir í stjórn voru kjörnir þeir
Kristján Ágústsson, Hreinn
Erlendsson, Páll Björnsson og
Finnbogi Jóhannsson, en í vara-
stjórn eiga sæti þeir Helgi
Stefánsson, Valmundur Gíslason
og Heiðar Ragnarsson.
Lilja Guðmundsdóttir.
SKÓLAMÓT KSÍ
STJÓRN Knattspyrnusam-
bands íslands ákvað nýlega að
knattspurnumót skólanna
skyldi framvegis fara fram i
október ár hvert. Reynslan hef-
ur sýnt, að ekki er alls kostar
heppilegt að leika á vorin, bæði
vegna ástands valla og eins og
ekki síður vegna anna skóla-
fólksins við lestur og próf.
Knattspurnumót skólanna
1977 fer því væntanlega fram í
október.
Ktn