Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 37

Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 37 a) bráð, án varanlegra Iungna- skemmda: frá (fluormegnuðu) ryki, b. Langvinn með lungnakvefi: (“chronic obstructive" lungna- sjúkdómar) þar sem um veranleg- ar lungnaskemmdir er að ræða t.d. Chronic bronchitis (langvinnt lungnakvef), asthma (occupational non allergic), emfysema (lungnaþan). Erting á sifmhfðir öndunarfæra með hósta: Brennisteinssvrslineur (S02) Köfnunarefnisdíoxíð (N02) Ozon (/3), getur valdið lungna- bjúg Klórgas (Cl2), getur valdið lungnabjúg. Ryk, allar tegundir. Flussýra (HF). Málmeimur. Krabbamein f nefholi og lung- um: Nikkel, frá rafsuðu. Chrom frá rafsuðu. Hitafár (malmfrossa): Frá ýmsum málmum t.d. Zinki. Krabbamein f nýrum, þvagrás og þvagfærum: Fjölhringa kolefnasambönd (PAH/PPOM) Bein og stoðvefur: Fluorisis (gaddur) vegna upp- töku fluors. Bráðar eitranir: Kolsýrlingseitrun Heyrnarskerðing: Vegna hávaða. Af þessari upptalningu sést að nær ekkert líffæri eða líffæra- kerfi er óhult vegna mengunar sem til staðar er við slíkan verk- smiðjurekstur. Eru þá nokkrir þessara sjúk- doma algengari við álbræðslu heldur en aðra verksmiðju- starfsemi? Svarið er jákvætt og eru það fyrst og fremst vissir sjúkdómar í berkjum og lungum auk fluorisis (gadds) sem taldir eru einkenn- andi atvinnusjúkdómar við ál- bræðslu. Bent skal á, af gefnu tilefni, að allir aðrir sjúkdómar sem hér að ofan hafa verið upp taldir eru atvinnusjúkdómar, sem þeim skil- yrðum fullnægt sem um getur í reglugeró nr. 24 frá 7. mars 1956 um skráningu og tilkynninga- skyldu atvinnusjúkdóma og ber að tilkynna þá til viðkomandi hér- aðslæknis. Atvinnusjúkdómurinn fluoros- is (gaddur) og orsök hans hefur verið þekktur í um það vil 45 ár en menn greinir á um það hve mikil hætta sé á þessum sjúkdómi vegna fluormegnunar á álverum. Eins og fyrr segir er það flussýra (HF) og fluorið ryk í andrúms- lofti sem geta valdið sjúkdómnum og þarf því að fylgjast með magni þessara efna í andrúmslofti starfsmanna, en nokkrar mæling- ar sem gerðar hafa verið erlendis benda til þess að um 80% fluor- magnsins í andrúmslofti starfs- manna í kerskálum sé i formi flussýru og 20% sem fluorið ryk. Fluor sem líkaminn fær í sig meðhöndlar hann á hinn flókn- asta hátt en 1' aðalatriðum gildir sú regla að megnið af fluornum skilur lfkaminn við sig í gegnum nýrun í þvagi fljótlega eftir upp- töku en fari magn fluors í likamanum upp fyrir ákveðin mörk safnast meira eða minna af honum í bein og staðvefi líkam- ans og veldur á þann hátt sjúk- dómnum fluorsis sem getur verið einkennalaus og bara greinst með röntgenmyndatöku eða alvarlegri með einkennum. Hver hin ákveðnu mörk eru fyr- ir styrkleika fluors í líkamanum, sem ekki má fara yfir eigi fluoros- is sjúkdómarurinn ekki að koma fram, er frekar óljóst en þó er miðað við af sumum að sé upp- taka likamans undir 4 mg F sé ekki hætta á þessum sjúkdómi, en þaö eins og annað getur verið mjög einstaklingsbundið og t.d. háð nýrnastarfsmi og vatnsupp- töku viðkomandi. Með þvi að mæla fluor styrk- leika i andrúmslofti starfsmanna er hægt að fylgjast með upptöku fluors og sjúkdómshættu en einn- ig eru framkvæmdar fluor- mælingar f þvagi, sem talið er gefa allgóða mynd af fluor- megnun sem einstakir starfs- menn verða fyrir, en er að sjálf- sögðu enginn mælikvarði á fluor- megnun andrúmslofts á vinnu- stöðum almennt eða fluormegnun i andrúmslofti viðkomandi starfs- manna, þar sem noktun ryk- eða gasgríma minnkar upptöku líkamans á þessum efnum. Hver eru hættumörk fyrir fluor í þvagi? Hér gildir hið sama og sagt er um fluorupptök að óvissa rikir um þau mörk sem almennt eru notuð í Evrópu og Bandarikjum Norður-Ameriku en þau eru 5 mg F-/liter þvags eftir 48 tíma frá siðasta vinnutima i fluormegnuðu andrúmslofti. Eru þessi mörk raunhæf? Norðmenn, sem hafa langa og mikla reynslu af áliðnaði og fluormælingum nota mörkin 5 mg F-/liter þvags sem hættu- mörk eftir vinnudag eða vakt sem varar 6—7 tíma og virðist það vera öllu raunhæfari mælikvarði á fluormegnun og upptöku við- komandi starfsmanns. Við mat á fluormegnun í andrúmslofti og heilbrigðishættu er í Noregi, Sviþjóð og Bandarfkjum Noðrur- Ameríku stuðst við hættumörkin 2,5 mg F-/m3 lofts fyrir fluorið og 3 ppm eða 2 mg/m3 lofts fyrir flussýru (HF). Þeir sjúkdómar í lungum og berkjum sem sannanlega eru flokkaðir sem atvinnusjúkdómar við álbræðslur eru svo nefndir „obstruktivir" lungnasjúkdómar en þeir einkennast af berkju- þrengslum með eða án lungna- kvefs, breytinga á þenslu- eiginleikum lungnavefs eða varanlegra lungnaskemmda. Þessum sjúkdómum var fyrst lýst fyrir 41 ári en siðan hafa af og til birst niðurstöður rannsókna frá ýmsum löndum, sem staðfest hafa að um er að ræða lungna- sjúkdóm með einkennandi sjúk- dómsmynd hjá mönnum sem vinna í álverum og þá fyrst og fremst kerskálum og hafa rann- sóknir sýnt að þar sem um er að ræða varanlegar lungnabreyting- ar þá eru þær alvarlegri en þær, sem vinlingareykingar gætu út af fyrir sig valdið — ennfremu hef- ur ekki alltaf verið hægt að sýna fram á að um sérstakt ofnæmi hafi verið að ræða hjá mönnum með þessar sjúkdómsbreytingar. Þannig geta þessir lungnasjúk- dómar orsakast af ertingu á slim- húð öndunarfæra frá ýmsum efn- um eða öðrum áhrifum án þess að endilega sé um að ræða sérstaka ofnæmissvörun sem hægt er að sannreyna með sérstökum og sér- hæfum ofnæmisprófunum eins og t.d. húðpróf eða mælingum á efn- um í blóði. Vegna þess að margar af fyrrnefndum rannsóknum hafa farið fram á starfsfólki álvera sem nota svonefnd „Söderberg" skaut skal tekið fram að í rann- sókn framkvæmdri í Noregi 1974 var lögð áhersla á það að auk þess sem áðurnefndir lungnasjúk- dómar hefðu fundist í álverum með Söderbergs skaut komu þeir einnig fyrir I verksmiðjum sem nota forbökuð eða „prebaked" skaut. Nákvæm vitneskja um tiðni þessara sjúkdóma liggur ekki fyr- ir en um nokkurra ára skeið hafa farið fram víðtækar rannsóknir á því og eru þær framkvæmdar af og i samvinnu milli eftirtalinna aðila: EPAA (European Primary Aluminium Association), IPAI (International Primary Alumin- ium Institute), UNEP (United Nations Enviromental Programme) en innan EPAA er starfandi atvinnusjúkdómanefnd (occuaptional health committe) og heilbrigðisnefnd Health committee) innan IPAI en UNEP hefur sýnt þessum málum athygli og hefur yfir að ráða nauðsynleg- um gögnum sem við koma þessum málum. Mun Swiss Aluminium Ltd. vera aðili að þessum samtök- um álframleiðenda. Sem dæmi um tíðni þessara lungnasjúkdóma í einni rannsókn reyndust 169 menn hafa einkenni sjúkdómanna af 3000 starfsmönn- um i (kerskálum og ingop-prants) yfir 5^.ára--timabil (1970—’74). Samkvæmt munnlegum upplýs- ingum trúnaðarlæknis ísals er honum kunnugt um 5—6 menn sem hætt hafa störfum við álverið vegna öndunarfærakvilla síðast- liðin 2 ár en engar samanteknar skýrslur um þessi mál eru þó til þegar þetta er skrifað. ILO (International labour organisation), eða alþjóðavinnu- málastofnunin í Genf mun og hafa fylgst með þessum málum en ekki eru fyrirliggjandi gögn frá henni þegar þetta er skrifað. Þess skal getið að áðurnefnd samtök eru einnig með rannsókn- ir í gangi á tjöruefnum og sjúk- dómum vegna þeirra i áliðnaði. Eftirlit fyrirtækjanna Öllum, sem til þekkja og vilja kynna sér megunarmálefni vinnustaða i álverum eða öðrum álika vinnustöðum, er ljóst að megnun andrúmslofts er mismik- il og ákvarðast af þeirri starfsemi sem fram fer á hverjum stað ásamt þeirri tækni sem beitt er til varnar menguninni auk annarra ytri sem innri aðstæðna. Sameiginlegt með öllum fyrir- tækjum sem viðhafa „góðar venjur í iðnaði" og þar flokkast öll álver sem við þekkjum til í iðnaðarlöndunum, að undan- skildu Isal, er að fyrirtækin sjá sjálf um megnunarmælingar á sínum vinnustöðum og bera sam- an við þau hættumörk sem í gildi eru en tilgangur mælinganna er fyrst og fremst að tryggja að mengunin sé undir hæstu leyfi- legum mörkum svo og til þess að við verði komið mengunarvörn- um, þar sem mengunin er vara- söm auk þess sem mælingar eru nauðsynlegar til að fylgjast með gagnsemi mengunarvarnanna. Opinbert eftirlit er fólgið i því að eftirlitsmenn framkvæma mælingar á mengun vinnustaða reglulega til þess að fylgjast með þvi að viðkomandi verksmiðju- rekendur fari að lögum og reglum um hollustuhætti og sjái til þess að mengun sé haldið innan þeirra hættumarka sem viðurkennd eru. Opinbert eftirlit þýðir ekki að ábyrgðarmenn iðjuvera þurfi ekki að uppfylla skyldur sínar um hollustu og heilbrigði eða megnunarvarnir á vínnustöðum eins og lög og reglur gera ráð fyrir, Sömu sögu er að segja um heil- brigðiseftirlit starfsmanna á vinnustöðum i álbræðslum þar sem viðhafðar eru góðar venjur í iðnaði að álbræðslurnar hafa sjálfar eða í samvinnu sín á milli fullkomna heilsugæsluþjónustu fyrir starfslið sitt og er þessi starfsemi víða undir eftirliti opin- berra aðila en alfarið á ábyrgð viðkomandi verksmiðja. Slík heilsugæslustarfsemi er rekin í sérstöku húsnæði þar sem öll nauðsynleg læknisfræðileg áhöld og tæki eru fyrir hendi. Stjórn hennar er í höndum sér- staks heilsugæslulæknis, en til að- stoðar er minnst einn hjúkrunar- fræðingur eða fleiri ef um mjög stórar verksmiðjur er að ræða. Nauðsyn samfelldrar heilsu- gæsluþjónustu er augljós og ákvarðast af þeirri starfsemi sem rekin er en er i grófum dráttum þannig: A. Frumverkefni heilsu- gæslunnar eru stöf sem miða að fyrirbyggjandi aðgerðum og unn- ið er að t.d. með fræðslu um heil- brigðis- og hollustumál almennt en þó sérstaklega með tilliti til þeirrar starfrækslu sem fram fer á viðkomandi stað. Til þess að geta veitt þessa fræðslu og upp- lýsingar verða bæði læknar og annað starfslið heilsugæslunnar að hafa kynnt sér sérstaklega þá heilsuspillandi þætti og önnur at-' riði tengd starfrækslunni og við- halda og auka þekkingu sína á þvi sviði. Eru fyrirtækin ábyrg fyrir því að svo sé. B. Reglubundnar árlegar eða tíðari heilbrigðisskoðanir á öllum starfsmönnum fyrirtækisins, þar sem áhersla er lögð á að leita þeirra sjúkdóma sem oftar koma fyrir við slíkan rekstur en á öðr- um vinnustöðum þ.e. atvinnu- sjúkdómaeftirlit en sérstakur lið- ur I heilsugæslunni við t.d. ál- bræðslur er skoðun allra nýráð- inna starfsm. þar sem áhersla er lögð á að fá fram hvort viðkom- andi sé hæfur til að gegna ákveðnum störfum t.d. er ekki æskilegt að starfsmenn með of- næmi (allergy) eða ofnæmis- kvilla starfi i kerskála álbræðslna því nær öruggt er að viðkomandi fær lungnakvilla við störf sín þar á skemmri eða lengri tíma, jafn- vel þar sem góðum mengunar- vörnum er beitt. Tíðari heilbrigðisskoðanir eru framkvæmdar eftir þörfum á þeim, sem vinna sérlega varasöm störf. C. Starfsmönnum er ætlaður ákveðinn timi hjá heilsugæslu- lækni þar sem þeir geta borið fram persónuleg vandamál sin varðandi heilbfigði eða annað skylt. D. Fullkomin slysaþjónusta með tækjum og öðrum aóbúnaði til bráðabirgðaslysaþjónustu við stærri slys er til staðar en að öllum minni háttar slysum eða öðrum kvillum er gert á staðnum á reglulegum vinnutima heilsu- gæsluliðsins. Fleira mætti til telja en að lok- um nefnt að slík heilsugæslu- þjónusta hefur tíðkast hjá mörg- um stærri fyrirtækjum í Noregi í um það bil 40 ár og hjá álverum þar I það minnsta 10 ár og er svipaða sögu að segja frá öðrum löndum í Evrópu en í Bandaríkj- um Norður-Ameríku mun slík þjónusta vera mun víðtækari og meiri en víða i Evrópu og hefur tiðkast um langt árabil þar. Ryk — Gasgrímur Þegar ryk- eða lofttegundir eru til óþæginda í andrúmslofti á vinnustað annaðhvort vegna þess að ekki er hægt af tæknilegum orsökum að halda styrk þeirra undir hættumörkum við einstök störf eða vegna þess að einstakir starfsmenn þola verr en aðrir ertingu frá þeim þrátt fyrir að styrkur þeirra er undir hættu- mörkum, er nauðsynlegt að nota rykgrimur til varnar ryki og gas- grímur til varnar lofttegundum. Stundum er hægt að sameina eig- inleika þessara gríma þannig að þær verji bæði gegn ryki og loft- tegundum og má i því sambandi nefna sem dæmi að til eru einnota grimur frá Alcoa og Minnesota Mining Co. (3 M-9706) sem verja gegn ryki sem hefur kornastærð- Framhald á bls. 45 1 Greinargerð frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins um álbræðslur með tilliti til ytri og innri mengunar ásamt hollustu- og heilbrigðiseftirliti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.