Morgunblaðið - 01.04.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 1977
5
Klukkan 20.30:
PRtJÐULEIKARARNIR eru á dagskrá sjónvarpsins f
kvöld að loknum fréttum og auglýsingum. Gestur leik-
brúðanna f þessum þætti er brezki gamanleikarinn
Bruce Forsyth.
Leikstjórinn Jonn f ora.
barn Sean O’Feeney, sem
var írskur innflytjandi. í
uppvextinum heyrði
hann sögur af braut-
ryðjendastarfi inn-
flytjendanna og uppvexti
Bandaríkjanna.
Átján ára gamall ákvað
hann að fara til Holly-
wood, þar sem eldri bróð-
ir hans, Francis, vann
sem leikstjóri og leikari
hjá Universal. Þar hóf
John Ford feril sinn og
var það allt á bak við
sviðið, þar sem hann
vann við uppsetningu og
aðstoðaði tæknimenn og
fleira. Með tímanum fékk
hann að koma sjálfur
smávegis fram á hvíta
tjaldinu og þá í myndum,
sem Francis Ford leik-
stýrði. John Ford leik-
stýrði sjálfur og skrifaði
handrit við sína fyrstu
kvikmynd „The
Tornado" árið 1917. En
saga kvikmyndaiðnaðar-
ins frá þessum tíma var
ekki skrásett á sama hátt
og í dag og því ekki til
tölur um þær myndir,
sem hann leikstýrði eða
kom nálægt fyrr en
hannivarð verulega
frægur árið 1924, en þá
hafði hann þegar leik-
stýrt nokkrum tugum
mynda. Myndin „The
Iron House“, sem hann
leikstýrði það ár vakti
verulega athygli og skap-
aði honum sess meðal
beztu leikstjóra þeirra
tíma. Hann græddi stór-
lega á myndinni „Four
Sons“, sem gerð var 1928,
en þar var Jon Wayne
aðstoðarleikstjóri.
Wayne hefur síðan leikið
í ótal myndum, sem Ford
hefur leikstýrt eins og
aðrir frægir bandarískir
leikarar, til dæmis Henry
Fonda, sem við sjáum í
myndinni í kvöld. Dudley
Nichols skrifaði mörg
handrit fyrir myndir
John Fords, en hann var
mjög kunnur bæði sem
handritahöfundur, leik-
stjóri og kvikmynda-
framleiðandi, en hann
lést árið 1960.
Fyrsta myndin, með
tali, sem John Ford leik-
stýrði, var gerð árið 1928
og hét sú Rakari
Napóleons. Kvikmynda-
verðlaun hlaut John
Ford árið 1935 fyrir
myndina „The Inform-
er“. Síðar hlaut hann
kvikmyndaverðlaun fyr-
ir myndirnar: „Þrúgur
reiðinnar“, „How green
was my valley“ og „The
quiet man“.
Lyfja-
tæknar
FYRIR nokkru útskrifuðust hjá
Lyfjatækniskóla Islands 23 lyfja-
tæknar, en skólanum er ætlað það
hlutverk að tæknimennta að-
stoðarfólk við lyfajgerð og lyfja-
afgreiðslu. Skólastjóri er Axel
Sigurðsson, lyfjafræðingur. Á
myndinni eru, aftari röð f.v.:
Ingigerður Marfa Jóhannsdóttir,
Else Zimsen, Margrét Jónsdóttir,
Birna Jóhannsdóttir, Sigurbjörg
Jónsdóttir, Hallfrfður Guðmunds-
dóttir, Kristjana Aðalsteinsdóttir,
Lára Erlingsdóttir, Guðlaug
Elfasdóttir, Kolbrún Magnúsdótt-
ir, Edda Lóa Skúladóttir, Stein-
unn Stephensen, Bjarndfs
Markúsdóttir, Ásdfs Magnúsdótt-
ir, Elín Þrúður Theódórs.
Fremri röð frá vinstri: Fanný
Guðjónsdóttir, Halldóra Teits-
dóttir, Marfa Jörgensen, Hafrún
Kristjónsdóttir, Axel Sigurðsson
skólastjóri, Ingibjörg Guðjóns-
dóttir, Ingibjörg Jónsdóttir,
Guðrfður Friðriksdóttir, Dagbjört
Þórðardóttir.