Morgunblaðið - 01.04.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. APRlL 1977
11
Hrafn Gunnlaugsson:
Að hafa efni
á lífinu
1. Rfkidæmi fyrir ösku-
karl
Að hafa efni á því að þurfa
ekki að drepa sig á yfirvinnu,
er að vera ríkur maður. Að hafa
efni á því að drekkja ekki
landinu í mengun frá stóriðju,
er að vera rík þjóð.
Þeirri hugsun er haldið fast
að fólki, að nauðsynlegt sé að
koma á fót stóriðju á Islandi til
að tryggja að við^verðum áfram
i flokki ríkustu þjóða heimsins
og til að við getum veitt okkur |
þann munað sem við girnumst.
En rfkidæmi felst samt ekki
alltaf í þvi að geta veitt sér
meira, heldur miklu fremur í
þvi að geta sloppið við alls kon-
ar áþján og leiðindi, sem sá
minna megandi verður að taka
á sig, vegna fátæktar.
En i hverju felst velmegun?
Ef við viljum nota ríkidæmi
okkar til að skapa betra um-
hverfi og betri lifskjör handa
ókomnum kynslóðum, verðum
við að varast að fórna þvi bezta
sem landið á: ómengaðri nátt-
úru og upprunalegri einstakl-
ingshyggju. Aðrar þjöðir hafa
neyðst til að sviða land sitt og
eitra vatnið til að tryggja efna-
hagslega velmegun. En erum
við ekki nógu rík til að hafa
efni á að sleppa slikum örþrifa
aðgerðum og lifa í sátt við
landið? Viljum við að sú óværa
sem mengunarspúandi stóriðja
er grasseri á íslenzkri grund?
Höfum við efni á hreinu
landi? Er til meiri munaður en
hreint land, á meðan stór hluti
mannkynsins er að drukkna í
eigin skit? Höfum við efni á
þeim munaði sem verður eftir-
sóttari með hverju ári sem
líður: óspilltri náttúru og að
geta um frjálst höfuð strokið.
2. Mannlífið á oddinn
Burt með spekúlanta stóriðj-
unnar sem hoppa á þrútnum
hagfæti um allar sveitir með
það eitt í huga að blóðmjólka
íslenzka náttúru.
Við þurfum forystumenn,
sem þora að setja mannlifið
sjálft á oddinn, en lifa ekki
fyrir það eitt, að skattpina allan
almenning, til að geta selt
ódýra orku til risafyrirtækja og
reist skammsýni sinni minnis-
merki.
Við þurfum nýtt verðmæta-
mat, þar sem byrjað er á því að
spyrja:
Höfum við efni á að vera
manneskjur, í stað þess að vaða
aurinn upp fyrir haus, til að
búa til bætt lifskjör, sem eru í
rauninni ekkert annað en múg-
mennska þrælsóttans.
Við þurfum að endurskoða
allt okkar frumhlaup eftir orku
og iðnaði, doka við og spyrja:
Hvað þýða orðin „bætt lifskjör"
eóa „velmegun"?
Þýða þau fleiri verkamenn,
gráa í ryki stóriðjunnar? — eða
frjálsa menn sem lifa á ávöxt-
um jarðar og hafsins í kring um
þá?
3. Öskraó f feninu
Viljum við lifa mannlífi eða
eins og maurar i þúfu? — úr-
gangsþúfu stóriðju, sem blæs
ryki yfir náttúruna og fyllir
landið af efnum sem eiga ekki
heima í íslenzkri jörð.
Höfum við efni á að vera til,
eða ætlum við að drabba niður
umhverfi okkar og drekkja þvi
í óþverra, til að geta öskrað eins
og brjálæðingar í feninu:
Húrra! Stóriðja, enn meiri hag-
vöxt og stóriðju.
Lionsklúbburinn
Muninn í Kópa-
vogi aðstoðar FEF
UM ÞESSA helgi eða á laugardag
og sunnudag munu félagar I
Lionsklúbbnum Muninn ganga í
hús í Kópavogi og bjóða til sölu
happdrættismiða Félags
einstæðra foreldra, en ágóði af
þessu happdrætti rennur til
breytinga og lagfæringa á húsi
félagsins að Skeljanesi 6. En jafn-
framt lagfæringunni verður
húsinu breytt þannig að gerðar
verða 6 litlar ibúðareiningar, svo
og verða einstaklingsherbergi og
setustofa á rishæð. í þessu húsi er
hugmyndin að starfrækja neyðar-
heimili fyrir einstæða foreldra
með börn, um stundarsakir eða
þar til rætist úr fyrir þeim.
Sá timi sem fólkið verður í hús-
næðinu mun veróa notaður til
þess að byggja það upp, hjálpa þvi
til að standa á eigin fótum —
bjarga sér.
Ennfremur er hugsað fyrir að
geta hjálpað einstæðum stúlkum i
námi, með barn á framfæri, þar
til þær hafa lokið námi eða starfs-
þjálfun.
Margir Kópavogsbúar eru í
þessu félagi — og með því að
kaupa happdrættismiða af félög-
um úr Lionsklúbbnum Muninn,
styðja Kópavogsbúar sina eigin
meðbræður.
Meðal vinninga er litasjónvarp
— dregið verður 6. apríl n.k.
(Fréttatilkinning frá
Lionsklúbbnum Muninn)
SLYSARANNSÓKNADEILD
lögreglunnar hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum ákeyrsl-
um. Þeir sem geta veitt upplýs-
ingar um þessar ákeyrslur eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við lögregluna strax:
Mánudaginn 21. marz. Ekið á
bifreiðina R-21835 Volkswagen
fólksb. árg. 1967 guldrapplitur.
Þetta gerðist um kl. 08.00 um
morguninn og sást til ferða ljós-
leitrar bifreiðar af gerðinni Saab
96, sem var að aka þarna á brott
og talin er vera tjónvaldur.
Skemmdir á bifreiðinni voru:
Vinstra framaurbretti dældað,
skemmdir á framhöggvara,
geymsluloki og ljósaumgjörð.
Þriðjudaginn 22. marz. Ekið á bif-
reiðina R-46687 Saab fólksbifr.
árg. 1975 rauðbrúna að lit, þar
sem hún stóð á bifreiðastæði á
móts við Arnarhvol á timabilinu
kl. 20.15 — 23.30. Skemmdir:
Dæld á hægra framaurbretti.
Rauður litur i ákomu.
Mánudaginn 28. marz. Ekið á bif-
Neísko!
Það eru komnar spánýjar mussur
Frá lögreglunni:
Auglýst eftir vitn-
um ad ákeyrslum
reiðina R-35700 Austin Alegro
fólksb. árg. 1977 rauða að lit, þar
sem hún stóð á móts við hús nr. 12
við Hagamel á tímabilinu kl. 20.45
— 23.30. Skemmdir: Dældir í
vinstri framhurð og framaur-
bretti. Þriðjudaginn 29. marz.
Ekið á bifreiðina Y-5400 Volks-
wagen sendiferðabifr. árg. 1971
hvíta að lit, þar sem hún stóð á
bifreiðastæði við Iðnskólann á
timabilinu kl. 17.00 — 18.00.
Skemmdir: Dæld á 50 cm hæð á
vinstra afturaurbretti framan við
hjól, svart klístur í ákomu.