Morgunblaðið - 01.04.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. APRlL 1977
29
— Alþingi
Framhald af bls. 27
Bygginga- sjóður og
eldra húsnæði
Ingvar Gíslason (F) flytur
frumvarp til breytinga á lög-
um um Húsnæðismálastofnun
rikisins. Veigamesta breyting-
in skv. frumvarpinu er, að
samkvæmt því verður eitt af
frumverkefnum byggingar-
sjóðs að lána fé til endurnýj-
unar á gömlu húsnæði, jafn-
framt lánum til nýbygginga,
svo og til kaupa á gömlu
húsnæði, ef það má verða til
þess að stuðla að sem hag-
kvæmastri nýtingu þess, þ.e.
til að auka endingu og nota-
gildi eldra húsnæðis.
Nýr rafsteng-
ur til
Vestmanrtaeyja
Garðar Sigurðsson (Abl)
hefur lagt fram svohljóðandi
tillögu til þingsályktunar:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórina að fela Rafmagns-
veitum ríkisins að hefja nú
þegarundirbúning að því að
nýr rafstrengur verði lagður
til Vestmannaeyja."
Atvinnumál
á Suðurlandi
Sami þingmaður flytur til-
lögu til þingsályktunar, þar
sem skorað er á ríkissjórnina
að gera nú þegar áætlun um að
treysta atvinnugrundvöll í
Suðurlandskjördæmi, einkum
í þeim hlutum þess, þar sem
atvinnuástand er verst og ný
atvinnutækifæri fæst. Þar er
einkum bent á stóraukna gras-
kögglaframleiðslu, fullnýtingu
hráefna frá landbúnaði, fram-
leiðslu úr gosefnum og
grasplötum, framleiðslu á rör-
um og iðnaðarvörum úr kast-
basalti, ylrækt og stórfram-
leiðslu á grænmeti til innan-
landsþarfa o.fl.
Sykur— hreinsunarstöð
Þórarinn Sigurjónsson (F)
hefur lagt fram fyrirspurn til
iðnaðarráðherra, hvað líði at-
hugun skv. þingsályktun á
hagkvæmni þess að setja upp
og reka sykurhreinsunarstöð
hér á landi.
Innheimta
söluskatts í
byggingariðnaði
Helgi F. Seljan (Abl) og
Ragnar Arnalds (Abl) hafa
lagt fram fyrirspurn til fjár-
málaráðherra: „Er fyrirhugað
að ráða bót á því misræmi, sem
er í innheimtu söluskatts eftir
því, hvort um er að ræða fram-
kvæmdir við byggingu íbúðar-
húsnæðis á byggingarstað eða
á verkstæðum og i verksmiðj-
um? Ef svo er, það hvernig?".
Virkjun við
Villinganes.
Páll Pétursson () o.fl. flytja
tillögu til þingsályktunar svo-
hljóðandi: „Alþingi ályktar að
fela ríkisstjórninni að gera nú
þegar ráðstafanir til þess að
hraðað verði svo sem frekast er
unnt undirbúningi að virkjun
Héraðsvatna hjá Villinganesi
og hönnun hennar, svo að þar
megi reisa næsta raforkuver á
Norðurlandi vestra.
Fæðingarorlof.
Meirihluti heilbrigðis- og
trygginganefndar (Jón Skafta-
son F, Þórarinn Sigurjónsson
F, Ragnhildur Helgadóttir S,
Karvel Pálmason SFV, Sigur-
laug Bjarnadóttir S, og
Guðmundur H. Garðarsson S)
hafa skilað nefndaráliti þar
sem mælt er með samþykkt
frumvarps til laga (er Ragn-
hildur Helgadóttir o.fl. fluttu)
um afnám skerðingarákvæða
vegna tekna maka eða atvinnu-
leysisbóta varðandi fæðingaror-
lof kvenna í aðildarfélögum
ASt. I álitinu segir og: í sam-
bandi við málið kom fram í
nefndinni áhugi á því að ríkis-
stjórnin hraðaði undirbúningi
löggjafar um fæðingarorlof
handa öllum konum í landinu
og tryggði tekjustofn til þess.
Þá hafa Þórarinn Þórarinsson
og Stefan Valgeirsson flutt
breytingartillögu um bráða-
birgðaákvæði (við frumvarpið)
svohljóðandi: Fyrir 1. janúar
1978 skal ríkisstjórnin láta
kanna á hvern hátt megi veita
öllum konum i landinu sam-
bærilegt fæðingarorlof og
tryggja tekjustofn í því skyni.
Niðurstöður þessarar könnunar
skal leggja fyrir Alþingi.
Alþjóðagjald-
eyrissjóður.
Fram er komið stjórnarfrum-
varp, er heimilar ríkisstjórn-
inni að staðfesta fyrir íslands
hönd breytingar og viðauka við
stofnskrá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sem samþykktar voru
af stjórn sjóðsins i marzmánuði
1976.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GI.YSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Enn nýjar ostatréttir:
Piparostur
Nýr ostur að erlendri fyrirmynd.
Ostur sem íslenskir sælkerar hafa beðið eftir
með óþreyju.
Piparostur er mjúkur ábætisostur
þakinn svörtum piparkornum,
s sem gefa honum hið eftirsótta heita bragð.
i Gerið svo vel - og verði ykkur að góðu.
ostur er veizlukostur
VÍnSflEIAR PCRfflÍnGARGÍAPÍR
Tjöld og tjaldþekjur
Prímusar
Svefnpokar
Vindsængur
Picnic-töskur
Snyrtitöskur
GEfsíP
H