Morgunblaðið - 01.04.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 1977
7
Sérstæð
vinnubrögð
á Alþingi
Það þótti tiðindum sæti
sl. þriðjudag, þegarforseti
sameinaðs þings kunn-
gerði úr forsetastóii, að
breytingartillaga við
Vegaáætlun (þ.e. tillögu
til þingsályktunar um
Vegaáætlun) væri þann
veg úr garði gerð, að ekki
væri einu sinni hægt að
bera hana upp til at-
kvæða. Hér var um að
ræða tillögu Karvels
Pálmasonar, Ragnars
Arnalds. Helga F. Seljan,
Steingrlms Hermanns-
sonar, Stefáns Jónssonar
og Sighvats Björgvins-
sonar um sérstakt hrað-
brautargjald á bensln og
dieselollu, 2 krónur á
hvern lltra sem bætast
átti við eldneytisverð á
þeim stöðum. er tengdust
vegum með varanlegu
slitlagi, þ.e. I Reykjavlk, á
Reykjanesi og á Suður-
landi.
I fyrsta lagi brýtur þessi
tillaga I bága við gildandi
lög um sölu á olfu og
benslni, þarsem kveðiðer
á um, að útsöluverð á
þessari vörutegund skuli
vera hið sama á öllum út-
sölustöðum I landinu. Hér
er ekki um frumvarp að
ræða til breytinga á þess-
um lögum, heldur
breytingartillögu við
þingsályktun, en
þingsályktun getur ekki
breytt lögum.
í breytingartillögu
þeirra félaga segir m.a.:
„Greiða skal skv. heimild
I 95 gr. vegalaga um um-
ferðargjald af bifreiðum
sérstakt hraðbrautargjald
á bensln og dieselollu á
þeim stöðum. . . o.s.frv."
Eggert Þorsteinsson al-
þingismaður spurðist fyrir
um. hvort þessi 95. grein,
sem vitnað væri til I
greinargerð þeirra félaga,
væri enn I gildi. Forseti
svaraði að svo væri ekki.
Sem betur fer skeður það
ekki á hverjum degi að
málatilbúnaður af þessu
tagi sjáist á Alþingi ís-
lendinga.
„Einstakir
menn hafa
látið veiðast”
Magnús Torfi Ólafsson
svarar \ rammagrein á for-
síðu síðustu „Þjóðmála"
(yfirskrift „Átján rang-
færslna faðir úr álf-
heimum") forustugrein
Benedikts Gröndals, for-
manns Alþýðuflokksins
sem birtist nýverið í Al-
þýðublaðinu, um Samtök
frjálslyndra og vinstri
manna. Hér verða hvorki
raktar árásir Benedikts á
SFV né svör Magnúsar.
Hins vegar vekur ein stað-
hæfing Magnúsar Torfa
verulega athygli: „Láta-
læti hans (Benedikts) eru
sprottin af þvf, að foringj-
ar Alþýðuflokksins og Al-
þýðubandalagsins hafa
undanfarin misseri unnið
að þvf f sameiningu að
liða Samtökin f sundur, af
þvf að foringjunum er ekki
gefið um þrýstinginn sem
frá þeim stafar. Flokks-
stjórnarfundurinn bar vott
um að þessi viðleitni hef-
ur engin áhrif haft á þorra
samtakafólks, þótt ein-
stakir menn hafi látið
veiðast."
Hér er sum sé staðhæft
að Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag hafi „f
sameiningu" sett sér það
mark að ganga af Sam-
tökunum dauðum. Þetta
er eftirtektarverð stað-
hæfing úr penna fyrrver-
andi ritstjóra Þjóðviljans.
Ekki síður sneiðin um að
„einstakir menn hafi látið
veiðast" (Farvel —
Karvel).
Alþýðuflokk-
urinn og
tómarúmið
Þessi fullyrðing
Magnúsar Torfa minnir á
fræga grein, sem Ragnar
Arnalds, formaður Al-
þýðubandalagsins, skrif-
aði á sinni tfð í Þjóð-
viljann. Þar var þvf fagnað
að Alþýðuflokkurinn væri
að syngja sitt sfðasta og
þvf jafnframt lýst yfir, að
Alþýðubandalagið hygðist
„fylla það tómarúm, sem
Alþýðuflokkurinn skildi
eftir sig." Þannig eru heil-
indin á svokölluðum
vinstri væng fslenzkra
stjórnmála. Viljinn til
samstarfs og sameiningar
virðist einvörðungu f þvf
fólginn, að koma hvor
öðrum, eða flokkssamtök-
um hvors annars, fyrir
kattarnef. „En bróðernið
er flátt mjög, og gamanið
er grátt. í góðsemi vegur
þar hver annan."
Menn geta sfðan velt
þvf fyrir sér hvers trausts
vinstri fylkingin sé verð-
ug; hverja gæfu þjóðin
myndi sækja f stjórnar-
samstarf, sem byggðist á
þvflfkum heilindum. Vafa-
mál er, þó að leitað væri
vítt um veröld, að finna
megi annað eins tætings-
lið, jafn sundurþykkt og
fullt af fláræði og það,
sem stendur að stjórnar-
andstöðu á Alþingi islend
inga f dag, eftir ummæl-
um foringja stjórnarand-
stöðuflokkanna um hvorn
annan að dæma.
Athvarf í alfaraleið þar sem hægt er að spjalla
fá sér matarbita og hressingu og njóta útsýnisins.
Jónas Þórir leikur á rafmagnsorgel
Skálafell, 9. hæð Hótel Esju.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
Þl’ AIGLÝSIR l'M ALLT
LAND ÞEGAR Þl ALG-
I.YS1R 1 MORGLNBLAÐINL
PÓLÝFÓNKÓRINN
20 ára
I Iátídahljómleikar
Efnisskrá: A. Vivaldi: Gloria
J. Bach: Magnificat
F. Poulenc: Gloria
Flytjendur: Pólýfónkórinn — Sinfónluhljómsveit
Einsöngvarar: Ann-Marie Connors, sópran. Elísabet
Erlingsdóttir, sópran, Sigriður E.
Magnúsdóttir, alto, Keith Lewis, tenór,
Hjálmar Kjartansson bassi.
Alls 200 flytjendur.
Stiórnandi: Ingólfur GuSbrandsson
Háskólablóá skirdag. föstud langa og laugard 7., 8 og 9 apríl
Aðgöngumiðasalan hafin hjá FERÐASKRIFSTOFUNNI ÚTSÝN, BÓKA
VERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR og HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR. Lauqav 96
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM TÓNLISTARVIÐBURÐI.
Sumaráætlun Akraborgar
frá 1. aprfi
Frá Akranesi kl. 8.30, 11.30, 14.30 og
1 7.30.
Frá Reykjavík kl. 10, 13, 1 6 og 19
Afgreiðslusími í Reykjavík er 1 6420 og 1 6050
Afgreiðslusími á Akranesi 2275.
Talstöðvarsamband við skipið og afgreiðslur á
Akranesi og i Reykjavík FR-bylgja rás 2.
Kallnúmer: Akranes 1192, Akraborg 1193 og
Reykjavík 1194.
þjónusta
Tökum að okkur viðhald og
Vcr hirðingu lóða, fyrir fjölbýlishús og
stofnanir. Garðsláttur, útplöntun, hirðing
blóma- og trjábeða, trjáklippingar,
áburðargjöf o.fl
Látið
fagmenn
vinna
verkið