Morgunblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 1
120. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. JtJNl 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Deilan út
af Dayan
sett niður
Tel Aviv, 31. mal. Reuter
LEIÐTOGAR Likud-flokksins
f lsrael voru þess fullvissir f
dag að þeir hefðu sett niður
deiluna við Lýðræðisbreyt-
ingaflokkinn, sem þeir vilja fá
til samvinnu f rfkisstjðrn, út
af valinu á Moshe Dayan f
stöðu utanríkisráðherra. I
kvöld ákvað Lýðræðisbreyt-
ingaflokkurinn að taka að
nýju upp viðræður við Likud.
Aðstoðarmenn Likud-
leiðtogans Menachem Begin
sögðu að hann hefði fullvissað
foringja Lýðræðisbreytinga-
flokksins um að boðið sem
Dayan hefði fengið um að taka
við embætti utanrfkisráðherra
væri aðeins tillaga. Hann sagði
að allir ráðherrar nýrrar
stjórnar yrðu að staðfesta val
manna f ráðherrastöður og
stjórnarstefnuna.
Lýðræðisflokkurinn sleit
viðræðum við Likud um
myndun nýrrar stjórnar þegar
Dayan var boðin staða utan-
ríkisráðherra. Likudleiðtoginn
Ezer Weizman kveðst þess
hins vegar fullviss að þær út-
skýringar sem leiðtogi
Lýðræðisbreytingaflokksins,
prófessor Yigael Yadin, fær
frá Begin geri flokknum kleift
að ganga til stjórnarsamstarfs
með Likud.
Valið á Dayan hefur sætt
mikilli gagnrýni í Israel enda
var honum almennt kennt um
áföll tsraelsmanna í upphafi
Framhald á bls. 25
Rhódesíumenn ná
200 mílna
lögsaga við
Svalbarða
Pierre Trudeau forsætisráðherra fer með syni sfna f skölann eftir skilnað hans og
konu hans að borði og sæng. Sjá frétt á bls 17.
Ósló.31. mat. NTB.
NORÐMENN munu taka sér 200
mflna fiskveiðilögsögu við Sval-
barða með konunglegri tilskipun
eftir nokkra daga samkvæmt
áreiðanlegum heimildum f dag.
Málið var rætt f Svalbarða-
Mólukkamir vilja
fá milligöngumenn
Haag, 31. maf. Reuter.
Hryðjuverkamennirnir frá
Suður-Mólukkueyjum fóru
þess á leit í dag vegna
harðrar afstöðu hollenzku
ríkisstjórnarinnar að skip-
aðir yrðu sérstakir sátta-
semjarar til að binda enda
á umsátrin í Norður-
Hollandi.
Stjórnin lofaði að athuga
málið, en ekki er vitað
hvort hermdarverkamenn-
irnir krefjast þess að velja
sjálfir sáttasemjarana.
Þetta er fyrsta bendingin
um að hryðjuverkamenn-
irnir vilji binda enda á um-
sátrin sem hafa staðið í
nefndinni f dag samkvæmt upp-
lýsingum NTB. Viðstaddir fund-
inn voru Knut Frydenlund utan-
rfkisráðherra og Everre Hamar
hershöfðingi, yfirmaður herafl-
ans.
Tilskipunin verður gefin út á
föstudag eða í næstu viku, það er
að segja áður en þingmenn fara í
sumgrleyfi.
öllum þjóðum verður leyft að
veiða i fiskveiðilögsögunni en
samkvæmt þeim reglum sem
Norðmenn ákveða. Einkum Rúss-
ar hafa verið sakaðir um að hafa
veitt mikið af smáþorski við Sval-
barða.
Framhald á bls. 25
Fridmælast nú
við Kúbumenn
Hundruð teknir
fastir í Angola
Washington, 31. maí.
NTB. Reuter.
CARTER forseti sagði í dag að
hann væri reiðubúinn að bæta
samskiptin við Kúbu eins fljótt
og Fidel Castró forseti vildi bæta
þau.
Forsetinn sagði að fyrsta skref-
ið hefði verið stigið og nú kæmi
til kasta Kúbumanna. Frú Rosa-
lynn Carter sagði f Kingston,
Jamaica, fyrsta viðkomustað
hennar á ferðalagi til sjö landa á
Karfbahafi og f Rómönsku Amer-
fku, að enn væru óleyst mörg
vandamál f sambandi við mann-
réttindi áður en samskiptin kæm-
ust f samt lag aftur.
Eitt helzta umræðuefni frú
Carter og leiðtoga þeirra landa
sem hún heimsækir er sambúð
Bandaríkjamanna og Kúbu.
Carter hefur aflétt banni við
ferðum bandarískra borgara til
Kúbu, samkomulag hefur tekizt
um fiskveiðilögsögu og nú er rætt
um möguleika á því að bandarísk-
ir diplómatar starfi í svissneska
sendiráðinu i Havana og kúbansk-
ir diplómatar i tékkóslóvakiska
sendiráðinu í Washington.
Forsetinn sagði í gær að hann
gerði ráð fyrir því að samkomulag
um þetta tækist fljótlega en i dag
var hann mjög tregur til að gefa
ákveðin svör við spurningum um
málið.
Fylgdarmenn frú Carters hafa
staðfest að viðræður standi yfir á
leynilegum stað í New York um
Framhald á bls. 25
átta sólarhringa. Fimmtíu
og níu gislar eru enn á
valdi Suður-Mólukka, fjór-
ir í skólanum i Bovens-
milde og 55 í járnbrautar-
lest nokkra km frá skólan-
um.
Hryðjuverkamenn neituðu f sið-
ustu viku að fallast á samninga-
viðræður fyrir miiligöngu sátta-
semjara og hótuðu að skjóta sátta-
semjara sem stjórnin kynni að
senda til samninga við þá. Hóf-
samir Suður-Mólukkumenn voru
milligöngumenn í samningum við
hryðjuverkamenn sem rændu lest
og réðust á ræðismannsskrifstofu
Indónesíu f Amsterdam 1975.
Hryðjuverkamenn krefjast þess
ekki lengur að gislarnir fari með
þeim úr landi. Stjórnin leggur þó
áherzlu á að endanleg lausn sé
ekki enn i sjónmáli og segir að
hryðjuverkamenn hafi oft dregið
loforð sin til baka og breytt af-
stöðu sinni.
Lusaka, 31. maí. Reuter.
HUNDRUÐ Angolamanna hafa
verið handteknir f Luanda eftir
byltingartilraunina á föstudag-
inn, þeirra á meðal varaforseti
herráðsins, „Monstro Imortal"
hershöfðingi, að þvf er haft er
eftir Agostinho Neto forseta.
Starfsmaður stjórnarflokksins
MPLA hafði eftir Neto að leið-
togar byltingartilraunarinnar
hefðu notið stuðnings á lands-
byggðinni og f fjöldasamtökum
og að útlendingar hefðu verið við-
riðnir hana.
1 kvöld neitaði Neto þvi að
kúbanskir hermenn hefðu tekið
þátt i að bæla niður byltingartil-
raunina. Hann sagði að hundruð
manna sætu i fangelsi i Luandá
og enn fleiri á landsbyggðinni.
Neto sagði að vissir leiðtogar
MPLA hefðu greinilega verið við-
riðnir tilraunina og nefndi i þvi
sambandi varaforseta herráðsins,
yfirmann stjórnmáladeildar her-
aflans, Bakalos, og héraðs-
kommisarann í Malanje.
Samkvæmt fréttum frá Luanda
hafa þar fundizt 22 brunnin lík i
viðbót eftir byltingartilraunina.
Talið er að uppreisninni hafi
stjórnað Nito Alves fyrrum inn-
anrikisráðherra sem rekinn hafði
verið úr miðstjórninni og er
sagður hafa snúizt gegn þeirri
stefnu Netos að hafa menn af
Framhald á bls. 25
bæ í Mozambique
Salisburry, 31. maí. Reuter.
YFIRMAÐUR Rhódesíuhers,
Peter Walls hershöfðingi, sagði í
dag að öryggissveitir sem réðust
inn f Mozambique á sunnudags-
morgun til baráttu gegn skærulið-
um blökkumanna hefðu tekið
bæinn Mapai, 75 km frá
rhódesfsku landamærunum.
Walls hershöfðingi sagði á
blaðamannafundi að Rhódesfu-
hermann yrðu um kyrrt f
Mozambique þar til þeir hefðu
útrýmt sveitum skæruliða á þess-
um slóðum og eyðilagt eða fjar-
lægt hergögn þeirra og skotfæri.
Mapai er við fljótið Limpopo suð-
austur af landamærabænum Vila
Salazar f Rhódeáu og Walls sagði
að bærinn hefði verið í höndum
Rhódesfumanna sfðan f gærmorg-
un.
Rhódesíumenn hafa mætt lítilli
mótspyrnu í sókninni inn i
Mozambique að sögn Walls hers-
höfðingja. Hann sagði að engir
óbreyttir borgarar hefðu verið í
Mapai þegar þeir sóttu inn í
bæinn.
Hann sagði að Rhódesíumenn
hefðu eytt fjórum stöðvum
skæruliða með stuðningi flugvéla
síðan á sunnudag og fellt að
minnsta kosti 32 óvini. Hann
kvaðst ekki óánægður með árang-
ur aðgerðanna, en þó hefði hann
vonað að menn hans felldu
„hundruð" skæruliða.
Leyniþjónustuupplýsingar
höfðu gefið til kynna að miklu
fjölmennari liðsafli skæruliða
væri á bessum slóðum en her-
mennirnir fundu. Walls hers-
höfðingi kvaðst telja að skærulið-
ar hefðu dreift sér þegar liðsafli
Rhódesiumanna nálgaðist.
Walls hershöfðingi sagði að
Rhódesíumenn hefðu ekki enn átt
i höggi við herlið Mozabique-
stjórnar, Frelimo. „Það er ekki
ætlun okkar að berjast við
Frelimo." sagði hann.