Morgunblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 20
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JUNÍ 1977
— Kröfur
sjómanna
Framhald af bls. 40
verkamenn og starfsstúlkur I Sig-
öldu hafa 633 krónur, flugfreyjur
hafa 1.140 krónur, 15 ára ungling-
ar hjá ÍSAL hafa 449 krónur á
dagvinnutimann, 16 ára ungling-
ar í samningi BSRB hafa 454
krónur og þannig mætti lengi
telja. Guömundur sagði að því
miður væri þetta staðreyndin og í
ljósi þessara dagvinnustundaupp-
hæða væri ekki að furða, þótt
menn fengju háar prósentutölur,
þegar allar kröfurnar væru tíund-
aðar og þær reiknaðar saman.
Hið sama kvað Guðmundur
Hallvarðsson upp á tengingnum,
þegar rætt væri um yfirvinnu-
kaupið. Lægsta yfirvinnukaup
hjá háseta er hið sama og dag-
vinnan fyrstu 10 tímana í yfir-
vinnu, en síðan 60% álag á það
sem er umfram 10 stundir í mán-
uði. Hann kvað menn hafa haldið
því fram að sjómenn þyrftu ekki
neinar greiðslur vegna óreglulegs
vinnutíma, þvi að þær væru innan
mánaðarkaupsins og þeir hefðu
möguleika á að afla sér yfirvinnu
á 8 stunda vinnuskyldunni á vökt-
um. Það kvað Guðmundur ekki
rétt vegna þess að þeir yrðu að
gegna störfum að hluta til á næt-
urnar. Þá er unnt að senda háseta
til þess að þvo gólf, i lest til að
athuga farminn. Ef hins vegar
sambærilegur maður, sem ynni i
Áburðarverksmiðjunni, væri að
fylla á poka eða lesa af mælum
yrði sendur í að hlaða vörubíl um
miðja nótt, þá yrði að greiða hon-
um sérstaklega fyrir það. Því eru
forsendur útgerðarmanna um
þetta brostnar — sagði Guð-
mundur Hallvarðsson.
Hæsta næturvinnukaup háseta
á byrjunarlaunum er 834 krónur.
Lægsta kaup næturvinnu hjá
hafnarverkamanni er 955 krónur,
menn á lyftara fá 978 krónur og
svona má lengi telja. Guðmundur
kvað sjómenn á kaupskipum hafa
dregizt mjög aftur úr miðað við
fólk í landi, svo að ekki væri talað
um samanburð við starfsbræður
þeirra erlendis. Hann kvað það
hafa komið fram í skólaslitaræðu
skólastjóra Stýrimannaskólans að
honum fyndist þróun mála
óhugnanleg, þar sem allir sem út-
skrifuðust úr 3. bekk færu til
vinnu erlendis. Svíar auglýstu ný-
lega eftir 400 stýrimönnum og
buðu þau kjör að fyrir hvern mán-
uð á sjó fékk maðurinn frí á full-
um launum í annan mánuð. í
ofanálag kvað hann farmgjöld á
íslandi vera með þeim hæstu,
þrátt fyrir lágt kaupgjald. Hann
kvað nýlega hafa verið útboð á
flutningi röra fyrir Hitaveitu
Akureyrar. Sá, sem annast flutn-
inginn bauð 22 milljónir, Eimskip
bauð 37 milljónir og þó segir út-
gerðarmaðurinn, sem flytur rörin
fyrir 22 milljónir, að hann sé með
120% álagningu á flutningsgjöld
eins og þau gerast t.d. í Miðjarðar-
hafinu.
Enska
* knatt-
spyrnan
Þau óvæntu úrslit urðu í
Brezku landsliðakeppninni í
gærkvöldi, að Wales vann Eng-
land 1:0 á Wembley. Sigur-
markið skoraði Leighton
James úr vitaspyrnu í fyrri
hálfleik.
— Flokkinn
skortir tengsl
Framhald af bls. 2
markaða sérhópa. Við Reyk-
víkingar viljum öfluga byggða-
stefnu, en fordæmum sýndar-
mennsku af því tagi, sem dæmi
eru nefnd um hér að framan.
Okkur þykir einnig sjálfsagt að
hagnýta krafta mennta- og lista-
manna, en teljum að ofgert sé
þegar af leiðbeinendum á
námsskeiði flokksins um
auðvald og verkalýðsbaráttu er
enginn úr verkalýðsfélagi.
Einnig að á baráttusamkomu
flokksins kvöldið fyrir fyrsta
maí skuli starfsmaður flokksins
vera sá eini af þeim sem fram
koma sem er meðlimur í
aðildarfélagi Alþýðusambands
Islands.
Til þess að breyta þessu,
þarft þú að koma í flokkinn.
í bæklingnum er varpað fram
eftirfarandi spurningum og
svör veitt jafnharðan:
I bæklingnum segir enn-
fremur, að án efa muni margir
telja að drefiblað af framan-
greindu tagi verði flokknum
skaðlegt. Félagar flokksins hafi
það hlutverk að telja honum
allt til ágætis. Aðstandendur
dreifibréfsins segjast á hinn
Bginn líta svo á að það sé hlut-
verk félaga í Albl. að stuðla að
raunhæfri umræðu um jafnt
vandamál líðandi stundar og
framtíðarmótun. Þeir geri sér
ljóst að þó að flokkurinn sé
eina stjórnmálaaflið sem rót-
tækt fólk geti fylkt sér um,
skorti á að hann sé eins og hann
eigi að vera.
— Efnahagsnefnd
Framhald af bls. 2
mun Bjarni Bragi Jónsson, for-
stöðumaður hagdeildar Seðla-
bankans, flytja þeim erindi um
íslenzk efnahagsmál og svara
fyrirspurnum þaraðlútandi. Þá
munu þingmennirnir kynna sér
nýtingu jarðhitans og heimsækja
dælustöðina á Reykjum i Mos-
fellssveit, þar sem Gunnar
Kristinsson, yfirverkfræðingur
Hitaveitu Reykjavikur, mun
kynna hitaveituna og einnig fara
þeir austur að Sogi, þar sem
Ingólfur Ágústsson, rekstrar-
stjóri Landsvirkjunar, kynnir
þeim vatnsaflsnýtingu á íslandi.
Auk þessa munu þingmennirn-
ir svo fara á Þingvöll.
í hópi erlendu þirtgmannanna
er Hull-þingmaðurinn Kevin
McNamara, sem hyggst kynna sér
sérstaklega stöðuna í fiskveiði-
deilunni vegna væntanlegra
viðræðna við EBE.
— VMSÍ og Sókn
Framhald af bls. 40
iðnaðarmannahópurinn, sem
fallizt hefur á samræmda af-
greiðslu sérkrafna enn sem komið
er.
Samkomulagið milli vinnuveit-
enda og Starfsstúlknafélagsins
Sóknar, sem tókst i gær, er þannig
að 2% af þessum 2!ó% fara í
starfsaldurshækkanir, en ‘A% fer
í ýmsar smálagfæringar á kjara-
samningi Sóknar. Samkomulag
Verkamannasambandsins og
vinnuveitend:, sem gert var á
hvítasunnudag er um lausn á sér-
kröfum verkamanna samkvæmt
tillögu sáttanefndar frá 17. maf,
þannig að breytingarnar, sem
samkomulagið felur í sér feli í sér
jafngildi 2'A% kauptaxtahækkun
fyrir Verkamannasambandið f
heild. í aðalatriðum er um tvenns
konar breytingar að ræða.
Þar er fyrst að nefna, að eftir
fjögurra ára starf f sömu starfs-
grein kemur 2,75% starfsaldurs-
hækkun og er þessi breyting
metin jafngíldi 1,25%
kauphækkunai hjá verka-
mönnum. Einu starfsaldurs-
hækkanirnar, sem Verkamanna-
sambandið hafði áður var 2%
hækkun eftir eitt ár í starfi. í
öðru lagi er skipan kauptaxta
endurskoðuð, þannig að megin-
kauptöxtum verkamanna er
fækkað úr 7 í 5 og bili milli taxta
breytt til samræmis við tillögu
Verkamannasambandsins frá þvf
á laugardaginn var, auk þess sem
nokkur störf eru færð milli taxta
og lagfæring gerð á launum
mánaðarkaupsmanna. Þessi atriði
eru metin til jafns við 1,25%
hækkun kauptaxta verkamanna,
þar af 0,2% vegna launa mánaðar-
kaupsmanna.
Samkomulagið er gert með
fyrirvara um að samkomulag
náist um önnur kjaraatriði milli
samningsaðiia og með þvf eru
leystar allar sérkröfur Verka-
mannasambandsins í þeim
samningum, sem nú standa yfir,
og hafa útgjaldahækkun í för með
sér. Vinnuveitendur undirrituðu
samkomulagið fyrir hönd allra
félagsmanna sinna og gengu út
frá þvf að fulltrúar Verkamanna-
sambandsins gerðu slíkt hið sama
og var þeim skilningi eigi mót-
mælt.
J sérkröfuviðræðum sátu í gær
byggingamenn, rafvirkjar ásamt
skriftvélavirkjum, útvarps-
virkjum og linumönnum, Þá
ræddu einnig sérkröfur bakarar,
netagerðarmenn og félagar Iðju-
félaganna, mjólkurfræðingar,
ASB, félag afgreiðslustúlkna f
brauða- og mjólkursölubúðum,
verzlunarmenn, járniðnaðar-
menn, ökuþór, bílstjórar úr
Borgarnesi, Bflstjórafélag Rang-
æinga og Bílstjóradeild Víkings,
svo og starfsfólk í veitingahúsum
og hljómlistarmenn.
Hvítasunnudagur og annar í
hvítasunnu fóru nær eingöngu í
sérkröfumálin. Á annan í hvfta-
sunnu var boðaður fundur með
aðalsamninganefndunum, en ekki
varð neitt úr honum vegna sér-
kröfuviðræðnanna. Björn Jóns-
son, forseti ASÍ, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ASl
hefði lagt á það áherzlu, að farið
yrði að ræða aðalatriði kjara-
samninganna, en vinnuveitendur
hefðu lagzt gegn því. Kvað Björn
sem svo virtist að sáttanefndin
hefði látið undan þeim kröfum.
Björn kvað sérkröfumálin nú á
góðri leið hjá mörgum félögum.
Nefndi hann þar sérstaklega
verzlunarmenn og Iðju. I gær-
kveldi var boðaður sáttafundur
með aðalsamninganefndunum
klukkan 21, en engar fréttir
höfðu borizt af honum, er
Morgunblaðið fór f prentun.
Björn sagði að fulltrúar ASÍ væru
að vona, að þá kæmist emhver
skriður á aðalmál samninganna,
þar sem raunverulega hefði
ekkert gerzt f þeim frá því er
sáttánefndin lagði fram umræðu-
grundvöll sinn hinn 17. maí. „Ég
þori þó varla að vera bjartsýnn,"
sagði forseti Alþýðusambandsins,
„en hins vegar þýðir ekki að vera
of svartsýnn, þvf að einhvern
tfma kemur að því að taka verður
þessi mál fyrir.“
Leiðrétting
Á laugardag var skýrt frá skóla-
uppsögn Menntaskólans í Reykja-
vik og var þess þá getið að Ólafur
Jóhannsson læknir hefði flutt
ávarp fyrir hönd 50 ára stúdenta.
F’öðurnafn Ólafs var mishermt í
frásögninni og er hann beðinn
velvirðingar á því.
íslands-
mótið
Akranes sigraði Fram á
Laugardalselli f gærkvöldi
2—1. Kristinn Björnsson skor-
aði bæði mörk Akurnesinga,
en Sumarliði Guðbjartsson
skoraði fyrir Fram. Á Kapla-
krikavelli vann Breiðablik FII
2:0
Leik ÍBV og KR var frestað.
Á Akureyri léku Valur og
Þór og sigraði Valur 2:0. Al-
bert Guðmundsson og Ingi
Björn Albertsson skoruðu
mork Vals.
Cl/AD MITT r; i MHÉ rl
J VMn mu 1 i
* jL jL
EFTIR BILLY GRAHAM
Vinsamlegast útskýrið þessa ritningargrein: „Ég
mun fyrirgefa misgjörð þeirra og ekki framar
minnast syndar þeirra „(Jeremfa 31,34).
Það er einkenni göfugs manns, að hann getur
fyrirgefið, og það er öruggt tákn um þvermóðsku að
vilja ekki fyrirgefa. Við menn eigum ekki þennan
hæfileika.Guðs að geta fyrirgefið og gleymt. Guð-
rækið, auðmjúkt fólk getur fyrirgefið, en það er
sjaldan, að það geti afmáð móðgun og særindi úr
huganum.
Það er stórkostlegt, að fyrirgefning Guðs skuli
vera algjör og eilíf. Það getur verið erfitt að gleyma
hrepparíg. Sumt fólk er enn að berjast við þá, sem
réðu yfir okkur í fyrndinni. Það er að reyna að halda
við átökum og deilum fyrri alda. Aðrir geyma
gamlar ávirðingar annarra í sinn garð og stytta líf
sitt með beiskju og ósáttfýsi. Dásamlegt er það, að
Guð, sem meir hefur þolað móðganir og tómlæti en
nokkur okkar, skuli segja: Ég minnist þeirra ekki
framar. Hann varðveitir ekki syndir okkar gegn sér
í huganum, heldur bíður okkar í kærleika, að við
komum og setjum traust okkar á hann.
Regnbogínn
noðnaraf stolti
HEMPEEs
þakniálning
þegar hann lítur niður á HEMPEEs
þöki n og sér hve fallegum Uæbrígðum
mánáúrlitumhans
Nú eru tyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL’S þakmálningu.
Um gæði HEMPEL’S þakmálningar þarf ekki að efast.
HEMPEL'S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar I heiminum.
Seltan og umhleypingarnir hér eru þvl engin vandamál fyrir sérfræðinga
HEMPEL’S MARINE PAINTS.
Framleiðandi á Islandi
Slippfélagið íReykjavík hf
Málningarverksmidjan Dugguvogi—Simar 33433 og 33414