Morgunblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JUNt 1977
17
Norður-suður viðræður:
Bedid ef tir viðbrögð-
um þróunarrík janna
París 31. maí — Reuter
í dag reynir á hvernig ríki
þriðja heimsins bregðast
við loforði Carters Banda-
ríkjaforseta um að vinna
að réttlátara skipulagi
efnahagsmála heims. Þau
19 þróunarlönd, sem sitja
ráðherra fund um hinar
svokölluðu norður-suður
viðræður, munu meta
fjölda tillagna frá Banda-
ríkjunum og öðrum
leiðandi iðnríkjum.
Cyrus Vance, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði fundinum i
dag að starf hans mætti ekki
undir neinum kringumstæðum
renna út i sandinn. Bandarikja-
menn hafa þvi látið i ljós ákveðni
um að norður-suður viðræðurnar
beri árangur og leggja fram styrk
sinn svo að það megi verða.
Fram til þessa hafa störf ráð-
stefnunnar gengið hægt. Þegar
ráðherrafundurinn hófst í gær
höfðu iðnríkin átta myndað með
sér samstöðu. Þau eru reiðubúin
að styðja tillögu um sameigin-
legan sjóð til stuðnings einstöku
hráefnasamkomulagi. Þó að þau
hafi ekki fallist á allar kröfur
þróunarlandanna, hvað þetta
snertir, þá hafa þau komið veru-
lega til móts við þróunarlöndin.
Annað meiriháttar boð iðn-
ríkjanna er eins milljarðs dollara
sjóður til aðstoðar fátækustu
þróunarlöndunum úr erfiðum
efnahagsvandamálum.
Mesta athygli i gær vakti
nákvæm skýring Vance á nýrri
afstöðu Bandaríkjastjórnar til
þróunarlandanna. Fyrstd- við-
brögð þróunarlanda voru misjöfn,
en leiðandi lönd eins og Alsír og
Jamaica fögnuðu breyttri tónteg-
und frá Washington.
Frú Trudeau:
Gætum sætztef
hann segði af sér
New York 31. maf — Reuter.
FRÚ Margaret Trudeau
segir að hún og Pierre
Trudeau, forsætisráð-
herra Kanada, muni ef
til viil ekki skilja að
borði og sæng og að þau
geti jafnvel sætzt ef hann
segi af sér.
„Það er alltaf hugsan-
legt að við skiljum ekki,
því við elskum hvort
annað á okkar hátt,“
sagði frú Trudeau í
viðtali við New York Post
áður en hún hélt frá
Mount Kosco, sem er
þorp skammt frá New
York.
Frú Trudeau eyddi
helginni með Yasmin
Khan, prinsessu, og öðr-
um vinum sínum, en til-
kynnt var á föstudag að
hún og eiginmaður
hennar hefðu slitið sam-
vistum. Prinsessan er
dóttir Aly Khans heitins
prins og leikkonunnar
Ritu Hayworth.
Frú Trudeau sagði að
hún hefði farið frá manni
sínum vegna þess að
hann hefði verið svo upp-
tekinn við að stjórna
landinu að hann hefði
ekki getað verið sá eigin-
maður, sem hún hafði
vænt sér. Þau hjónin
giftust fyrir sex árum
þegar Margaret, dóttir
James Sinclair, fyrrum
ráðherra, var 22 ára og
Trudeau 51 árs. Hún
sagðist hitta mann sinn í
London í júní, þar sem
hann mun verða
viðstaddur hátíðarhöld
vegna 25 ára drottningar-
afmælisins.
Þau hjónin munu eyða
sumarfríi saman i
Kanada í ágúst ásamt
þrem sonum sínum, sem
eru hjá föður sínum. Frú
Trudeau sagði að
sambúðarslitin hefðu
„átt að eiga sér stað fyrir
löngu. Ég vil ekki særa
hann eða stöðu hans með
því að vera frjálshuga, en
það virðist ég hafa gert.“
Hjónaband þeirra
hefur oft orðið að um-
ræðuefni vegna um-
búðarlausra ummæla
hennar um það sem hún
kallar leiðinlegar, opin-
berar skyldur sem hún
þarf að sinna sem for-
sætisráðherrafrú, og
óska hennar um að fá að
vera annað en eiginkona
og móðir.
Frú Trudeau segist nú
ætla að taka upp störf
sem ljósmyndari.
sölumet
fleiri litir
Góðir litir gleðja augað. Falleg
áferð og frábær ending Hrauns,
húsamálningarinnar frá Málningu
h.f., hefur stuðlað að vinsældum
hennar. Enda margfaldaðist salan
á s.l. ári.
Hraun hefur sýnt og sannað fram-
úrskarandi eiginleika; — við höf-
um dæmi um rúmlega 10 ára end-
ingu. Hraun er sendin akrýlplast-
málning, sem sparar vinnu: Betri
ending og færri umferðir. Ein um-
ferð af Hrauni jafngildir þrem um-
ferðum af venjulegri plastmáln-
ingu.
Nú bjóðum við ennþá meira litaúr-
val í Hrauni en áður. Lítið á lita-
kortið og fáið allar upplýsingar hjá
umboðsmönnum okkar.
HRAUN
SENDIN AKRÝLPLASTMÁLNING
málning'f
Borgarmálakynning Varðar 1977:
UMHVERFISMÁL
Kynning umhverfismála verður laugardaginn
4. júní í ValhölL Bolholti 7
Á KYNNINGUNA MÆTA BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON, BORGARSTJÓRI OG
ELÍN PÁLMADÓTTIR, BORGARFULLTRÚI, FORM. UMHVERFISMÁLARÁÐS
REYKJAVÍKURBORGAR OG FLYTJA STUTTAR INNGANGSRÆÐUR OG
SVARA SÍÐAN FYRIRSPURNUM FUNDARMANNA.
FUNDARMÖNNUM VERÐUR BOÐIN ÞÁTTTAKA í SKOÐUNAR- OG
KYNNISFERÐ UM BORGARLANDIÐ ÞAR SEM KYNNTAR VERÐA' FRAM-
KVÆMDIR Á SVIÐI ÚTIVISTAR OG UMHVERFISMÁLA.
ÖLLUM BORGARBÚUM BOÐIN ÞÁTTAKA
Laugardagur 4. júní — kl. 14 — Valhöll, Bolholti 7,