Morgunblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JUNl 1977 13 Stúdentar frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977. Menntaskólanum við Tjörnina sagt upp Nafni skólans breytt í sumar MENNTASKÓLANUM við Tjörnina var f fyrradag sagt upp f 8. sinn. Rektor skólans, Björn Bjarnason, flutti skóla- slitaræðu við brautskráningu f Háskólabfói og þar kom fram, að 821 nemandi stundaði nám f skólanum f vetur og vorpróf þreyttu 787. Ur fyrsta bekk tóku 192 nemendur próf, 233 úr öðrum bekk og 169 úr þriðja. Stúdentspróf hófu 193 nem- endur og 192 þreyttu öll prófin, þar af 4 utanskóla. Á málakjör- sviði stundaði 21 nemandi nám, 29 í félagssviði máladeildar, 16 á félagssviði stærðfræðideildar, 85 í náttúrufræðikjörsviði og 38 á eðlisfræðikjörsviði. Á tónlist- arkjörsviði í samvinnu við Tón- listarskólann í Reykjavík stunduðu 2 nemendur nám, en annar þeirra var eihnig í mála- kjörsviði. Hæstu einkunnir á stúdents- prófi hlutu, á málakjörsviði Kolbeinn Bjarnason, 8,5, á félagssviði máladeildar Örn B. Sveinsson og Helgi Gunnlaugs- son, báðir með 7,8 á félagssviði stærðfræðideildar Hjördis H:rðardóttir 9,0 á náttúru- fræðikjörsviði Hannes Jónsson 9,2 og á eðlisfræðikjörsviði Tómas Jóhannesson 9,3 en það var jafnframt hæsta einkunn á stúdentsprófi við skólann i ár. Rektor gat þess í skólaslita- ræðu sinni að þetta væri í sið- asta sinn er Menntaskólanum við Tjörnina væri slitið og i' ávarpi menntamálaráðherra, Vilhjálms Hjálmarssonar, kom fram að nafni skólans verður nú breytt og hann nefndur Menntaskólinn við Sund. Tekur breytingin gildi hinn 1. júli n.k. 21. skóla- slit Tón- listarskóla Akraness TÓNLISTARSKÓLINN á Akranesi lauk 21. starfsári sínu með skólaslitahátið i Akraneskirkju þann 15. mai s.l. Voru þetta jafn- framt þriðju vorhljómleik- ar skólans i ár. Auk hljóm- leika orgelnemenda skól- ans léku þrír strengjanem- endur þætti úr tríósónötu eftir Corelli og 25 manna hljómsveit tónlistarskólans skipuð strengja- og blást- ursleikurum lék tvo þætti úr L’Arlésienni svítum Bizets. í yfirlitsræðu skóla- stjórans, Þóris Þórissonar, um skólastarfið kom fram, að nemendur við skólaslit voru 121. Flestir eru hljóð- færanemendur í píanó- námi en auk fyrrgreindra hljóðfæradeilda er einnig nýhafin gítarkennsla við skólann. Skólinn starfræk- ir forskóladeildir fyrir 5—7 ára börn og býður upp á söngnám bæði fyrir börn og fullorðna og starfrækir barnakór. Á næsta skólaári veröur nám við skólann viðurkennt sem fjögurra stunda valgrein fyrir nem- endur efstu bekkja grunn- skólans. Er þetta merkileg- ur áfangi í baráttunni fyrir viðurkenningu tónlistar- námsins innan almenna skólakerfisins, sem von- andi verður tekið upp sem víðast á landinu. Kennarar við Tónlsistarskólann á Akranesi eru níu, ýmist fast- eða lausráðnir. Enn auðveldara að sauma. Svo er Singer fyrir að þakka. Þar er tæknin notuð til að auðvelda og auka ánægjuna við að sauma sjálf. Singer kenndi heiminum að sauma og hefur nú kennt saumavél að hugsa. Nýja Singer Futura er fyrsta saumavélin í heiminum með rafeindaheila. Engin önnur saumavél hefur slíkan búnað. Nú þarf ekki lengur að nota breytilegar handstillingar og rýna i sauminn til að ná góðum árangri. Gerð saumsins, stærð hnappagatsins, lengd mynstursins - nú er það sjálfstýrt eftir að búið er að ýta áhnapp. Sjálfvirk spólun og tveir htaðar. Heilinn í Singer Futura sér um að framkvæma hug- myndir þínar fljótt og örugglega. SÖLU - OG SÝNINGARSTAÐIR: Liverpool, Laugavegi 18 A, Domus, Laugavegi 91, Véladeild Sambandsins Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt.__________________ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA ^Véladeild ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.