Morgunblaðið - 16.07.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 16. JULl 1977
VINNINGUR BLAS-
IR VIÐ SPASSKY
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
5. einvfgisskák þeirra
Portisch og Spasskys var tefld í
gær f Genf f Sviss. Skákin fór f
bið eftir 40 leiki og er staða
Spasskys, sem hafði hvftt, talin
unnin.
Yfirdómara einvfgisins, Eng-
lendingnum Harry Golombek
fórust svo orð um skákina f
efnkaskeyti til Morgunblaðs-
ins:
„Byrjun skákarínnar var hin
sama og f fyrstu einvfgisskák-
inni fram f tfunda leik, en þá
valdi Portisch leið, sem leiddi
til mjög erfiðrar stöðu fyrir
hann. Spassky bætti sffellt
stöðu sfna og vann að lokum
skiptamun. Ekki bætti heldur
úr skák fyrir Portisch að undir
lokin lenti hann f tfmahraki og
varð að leika átta leiki á sex
mfnútum, en slfkt á afar illa
við ungverska stórmeistarann.
Þegar skákin fór f bið hafði
Spassky drottningu og hrók fyr-
ir hrók og tvo létta menn ung-
verjans. Spassky ætti þvf að
sigra örugglega og jafna þar
með metin.“
Hvftt: Boris Spassky
Svart: Lajos Portisch
Drottningarindversk vörn
I. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
Rc3(„Daufasta afbrigði skák-
fræðinnar“).4. g3 Bb7 5. Bg2
Be7 6. 0—0 (0—0 er ekki
Spassky að skapi, enda teflir
hann hverja skák til vinnings.)
Bb7 5. Bg5 h6 6. Bh4 Be7 7. e3
0—0 8. Bd3 c5 9. 0—0 cxd4 10.
exd4 d5?! (Leið sú sem
Portisch valdi í fyrstu skákinni,
10. . Bxf3 11. Dxf3 Rc6 12. Re2
verður að teljast öllu öruggari.)
II. Bxf6! Bxf6 12. cxd5 exd5
(Eftir 12.. ,Bxd5 13. Rxd5 Dxd5
14. Hcl Rc6 15. Hel stendur
hvítur einnig mun betur. T.d.
ekki 15.. .Rxd4 vegna 16. Be4
Rxf3+ 17. Dxf3 og vinnur
skiptamun) 13. Hel Rc6
(Stærsti gallinn við stöðu
svarts er áhrifaleysi biskupa
hans og hann reynir að bæta úr
því. 13.. .Rd7 var slæmt vegna
14. Db3) 14. Bb5 Re7 15. Re5!
(Mikilvægur liður i áætlun
hvfts. Hann hótar nú 16. Rd7)
Bxe5 (Nú má segja að staða
svarts sé „strategískt", eða
fræðilega töpuð.
Hvitum hefur tekist að ein-
angra veikleikann á d5, og
svarti biskupinn á b7. er gagns-
laus. Sterkur stórmeistari eins
og Spassky lætur slíkt tækifæri
að sjálfsögðu ekki úr greipum
sér ganga) Rg6 (En ekki 16...
Rc6 17. Bxc6 Bxc6 18. Db3) 17.
He3 Dg5 18. Hg3. (Kæfir gagn-
sókn svart i fæðingu) Df6 19.
Dd2 Had8 20. Hel Bc8 21. Ddl
Df4 (Betra var einfaldlega
21. . . Be6) 22. Hge3 Be6 32. g3
Dd6 24. Bd3 Re7 25. Bbl Hfe8?.
26. Dc2! rg6 (En ekki 26. . . Bf5
27. Dxf5 Rxf5 28. Hxe8+ Hxe8
29. Hxe8+ Kh7 30. Bxf5+ og
hvítur hefur fengið meira en
nægilegt lið fyrir drottning-
una).
27. Rb5 Db4 28. Rc7 Rf8 (Svart-
ur ákveður að gefa skiptamun,
en ekki betra var 28... Hc8 29.
Hc3) 29. Rxe8 Hxe8 30. 30. Dc3
Db5, 31. f4 Hc8, 32. Dd2 Dd7,
33. f5! (Smiðshöggið) Bxf5, 34.
He7 Dxe7, 35. Hxe7 Bxbl, 36.
Hxa7 Re6, 37. h4 Be4, 38. Db4
Hc2, 39. De7 Bg6,40. Ha4 Hd2.
Hér fór skákin i bið. Það virð-
ist aðeins tímaspursmál
hvenær Spassky innbyrðir
vinninginn.
Innritun við H.í. lauk í gær:
Aðeins þrír létu
skrá sig í guðfræði
UM sjö hundruð manns hafa látið
skrá sig til náms við Háskóla
Islands fyrir næsta vetur,
1977—78. Innritun lauk í gær 15.
júlf og hafði hún þá staðið yfir f
tvær vikur, þótt langflestir kæmu
Aðalfundur
Sambands breið-
firzkra kvenna
SAMBAND breiðfirzkra kvenna
hélt 44. aðalfund sinn f Tjarnar-
lundi í Saurbæ 5. — 6. júnf.
Þrúður Kristjánsdóttir setti
fundinn og gerði m.a. grein fyrir
starfsemi samtakanna.
Aðalfundurinn gerði tvær sam-
þykktir: Lýsti vanþóknun sinni á
myndefni leikinna íslenzkra kvik-
mynda sem sjónvarpið hefur látið
gera, og lýsir stuðningi við fram-
komið frumvarp Sigurlaugar
Bjarnadóttur um tónmennta-
fræðslu í formi námskeiðahalds í
grunnskólum dreifbýlis.
I fundarlok messaði sr. Ingi-
berg Hannesson í sóknarkirkj-
unni að Kirkjuhvoli. Stjórn
S.B.K. skipa nú: Ragnhildur Haf-
liðadóttir, formaður. Guðlaug
Guðmundsdóttir, gjaldkeri,
Kristín B. Tómasdóttir, ritari.
— Síldveiðibann
Framhald af bls. 1
hugað síldveiðibann í Norðursjó
verði einnig látið ná til Skagerak.
I kvöld var tilkynnt í Haag að
10 hollenzk fiskiskip, þar er fjórð-
ungur sildveiðiskipa Hollendinga,
færu á morgun til veiða við irland
og nokkur i viðbót á mánudag.
Önnur hollenzk fiskiskip fara til
Suðureyja þar sem veiðar eru
leyfðar til 21. júlí.
Talsmaður hollenzkra fiski-
skipaeigenda kvaðst ekki búast
við erfiðleikum þar sem hann
gerði ráð fyrir þvi að irska stjórn-
in mundi hlita úrskurði Evrópu-
dcmstólsins.
til að láta skrá sig f gær, að sögn
Elfnar Haraldsdóttur á skrifstofu
Háskólans.
Langflestir létu skrá sig til
náms i verkfræði BS eða 109
manns. 1 læknisfræði 72, í við-
skiftafræði 75, i félagsvisinda-
deild, 47, i hjúkrunarfræði 11, i
lyfjafræði lyfsala 19, 32 í sjúkra-
þjálfanám en þar komast aðeins
24 að. 12 létu skrá sig í tann-
læknanám, 55 í verkfræði 85
heimspekideild, 30 i lögfræði og
aðeins 3 í guðfræði.
— Þúsundir
Framhald af bls. 1
smáverzlanir i eigu einstaklinga,
sem vart eiga möguleika á þvi að
koma undir sig fótunum að nýju
af eigin rammleik. Hefur Beame
borgarstjóri þegar farið fram á
aðstoð frá Washington til að bæta
kaupmönnunum tjónið. I
Brooklyn jafnaði lögreglumaður
einn aðkomunni við Berlín eftir
loftárásir síðar heimsstyrjaldar-
innar.
Menn hafa i dag verið að bera
saman afleiðingar straumrofsins
að þessu sinni við það sem gerðist
árið 1965. Þá fór rafmagnið af
öllu norðvesturhorni landsins, en
nú fór það aðeins af New York og
útborgum hennar. Formaður
orkumálaráðs Bandarikjanna,
Richard Dunham, sagði að greini-
lega hefðu þær ráðstafanir, sem
gerðar voru I kjölfar straumrofs-
ins 1965 borið nokkurn árangur,
en sú staðreynd, að rafmagnið
hefði ekki farið víðar en raun
varð á nú, — þ.e. á orkusvæði Con
Ed-fyrirtækisins — sýndi svo ekki
yrði um villzt að fyrirtækið hefði
látið undir höfuð leggjast að búa
svo um hnútana að viðunandi
væri. Þegar i gær skipaði Beame
rannsóknanefnd vegna málsins,
og í morgun hófst rannsókn á
vegum orkumálaráðs Bandarikj-
anna. Hefur Carter forseti gefið
formanni ráðsins þau fyrirmæli
að rannsókninni skuli að fullu
lokið innan tveggja vikna.
Níu mánuðum eftir straumrofið
1965 fjölgaði mjög fæðingum á
rafmagnsleysissvæðinu, og nú er
haft á orði að fátt sé svo með öllu
illt að ekki boði eitthvað gott, og
verður nákvæmlega fylgzt með
fjöglunarmálum i kringum 13.
apríl 1978.
— N-Kóreumenn
Framhald af bls. 1
Carter forseti hefur þegar sagt
að hann vilji forðast það að málið
magnist stig af stigi og leiði til
árekstra og segir orsökina mistök.
Jafnframt hafa Norður-
Kóreumenn skýrt sína hlið á mál-
inu. Fréttastofa þeirra segir að
þyrlan hafi lent eftir að skotið
hafi verið á hana og þegar hún
hafi hafið sig aftur á loft hafi
Norður-Kóreumenn neyðst til að
skjóta hana niður.
Fréttastofan segir að atburður-
inn hefði ekki þurft að gerast ef
áhöfn þyrlunnar hefði ekki reynt
að flýja eftir lendingu.
— Erfir ríkið?
Framhald af bls. 1
væri ætlunin að kalla hana öll-
um þessum nöfnum alla jafna,
heldur yrði Viktoríunafnið lát-
ið nægja.
Litla prinsessan fæddist i
gærkvöldi i Karólinska sjúkra-
húsinu í Stokkhóimi. Hún vó
13 merkur og lengdin mældist
50 sentimetrar. Konungurinn
var viðstaddur fæðinguna, sem
gekk vel, en nokkrum klukku-
stundum siðar voru mæðgurn-
ar fluttar heim i konungshöll-
ina og eru báðar við beztu
heilsu.
Þetta er í fyrsta skipti i 178
ár að rikjandi konungshjónum
í Svíþjóð fæðist barn. Í sænsku
stjórnarskránni hefur fram að
þessu verið ákvæði um að kon-
ur geti ekki sezt í hásætið, en
nýlega var gengið frá frum-
varpi þar sem gert er ráð fyrir
jafnrétti kynjanna í þessu
efni, og er búizt við að það
verði lagt fyrir þingið síðar á
þessu ári. Þar sem um er að
ræða stjórnarskrárbreytingu
þarf að greiða atkvæði á tveim-
ur þingum, þannig að breyt-
ingin gæti ekki gengið í gildi
fyrr en í fyrsta lagi árið 1980.
Verkstæðiokkar verðurlokað
vegna sumar/eyfa, á tímabilinu
18. júlí — 16. ágúst.
BÍLARYÐVÖRNhf
Skeifunni 17
a 81390
11
EIMSKIP
Á NÆSTUNNI
FERMA SKIP V0R
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
ANTWERPEN:
Skógafoss 1 5. júli
Úðafoss 22. júli
Skeiðsfoss 26. júli
Úðafoss 2. ágúst.
ROTTERDAM:
Úðafoss 23. júli
Skeiðsfoss 27. júli
Úðafoss 3. ágúst.
FELIXSTOWE:
Dettifoss 1 9. júli
Mánafoss 26. júli
Dettifoss 2. ágúst
Mánafoss 8. ágúst
HAMBORG:
Dettifoss 21. júli
Mánafoss 28. júii
Dettifoss 4. ágúst
Mánafoss 10. ágúst
PORTSMOUTH:
Selfoss 21. júli
Bakkafoss 28. júli
Brúarfoss 29. júli
Goðafoss 9. ágúst
Bakkafoss 18. ágúst.
KAUPMANNAHÖFN:
Háifoss 1 9. júlí
Múlafoss 26. júlí
Háifoss 2. ágúst
Múlafoss 9. ágúst.
GAUTABORG:
Háifoss 20. júli
Múlafoss 28. júli
Háifoss 3. ágúst
Múlafoss 10. ágúst.
HELSINGBORG.
Álafoss 25. júlí
Tungufoss 1. ágúst
Álafoss 1 1. ágúst
Tungufoss 22. ágúst.
MOSS:
Álafoss 26. júli
Tungufoss 2. ágúst
Álafoss 1 2. ágúst
Tungufoss 23. ágúst
KRISTIANSAND:
Álafoss 27. júli
Tungufoss 3. ágúst
Álafoss 1 3. ágúst
Tungufoss 24. ágúst.
STAVANGER:
Álafoss 28. júli
Tungufoss 4. ágúst
Álafoss 1 5. ágúst.
TRONDHEIM
Urriðafoss 26. júli
GDYNIA/GDANSK:
Grundarfoss 27. júlí
Irafoss 8. ágúst.
VALKOM:
Grundarfoss 25. júli
írafoss 5. ágúst
VENTSPILS:
Grundarofss 26. júli
írafoss 6. ágúst.
WESTON POINT:
Kljáfoss 21. júli
Kljáfoss 4. ágúst.
Reglubundnar ferðir
á 10 daga frestii
frá STAVANGE'R.
KRISTIANSAND
®M0SS
0G HELSINGB0RG
ALLT MEÐ
EIMSKIP
I
1
I
I
I
i
i
I
i
>1
I
1
I
m