Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977
13
Skæruliðaforingi:
Vararfólkvið
Kanaríeyiaför
Bonn 15. júlí — Reuter.
LEIÐTOGI skæruliðahóps
hefur varað ferðamenn við
því að fara til Kanaríeyja
og segir í viðtali við þýzkt
blað að samtök sín ætli að
herða á baráttu sinni, með-
al annars með sprengjuár-
ásum.
Skæruliðinn, Antonio
Cubillo segir í viðtalinu að
fram til þessa hafi samtök
sin aðeins notað litlar
heimabúnar sprengjur,
sem aðeins var ætlað að
gera samtökin þekkt. Nú sé
tími til kominn að hefja
hina vopnuðu baráttu. Boð-
ar hann notkun mannskæð-
ari vopna, meðal annars
naglasprengja.
Samtök Cubillo berjast
fyrir sjálfstæði Kanarí-
eyja, og hafa þau aðal-
stöðvar í Alsír. Urðu sam-
tökin fræg á síðast liðnum
vetri þegar þau sprengdu
r
Irum ber
að hætta
aðgerðum
Brussel 14. júní — Reuter.
EMBÆTTISMENN Efnahags-
bandalagsins sögðu f dag að úr-
skurður Evrópudómstðlsins um
að trum bæri að hætta aðgerðum
sfnum til takmörkunar fisveið-
um, styrkti verulega fiskveiði-
stefnu framkvæmdanefndar
EBE.
Segja embættismennirnir að
úrskurður dómstólsins hafi jafn-
vel verið ákveðnari en fram-
kvæmdanefndin fór fram á. Dóm-
ararnir skipuðu Irum að létta af
banni sfnu við fiskveiðum stærri
togara innan 50 mflna lögsögu
sinnar frá klukkan 01 næstkom-
andi mánudag. Sögðu þeir að Irar
mættu ekki grfpa til annarra
verndunaraðgerða án vitneskju
framkvæmdanefndarinnar.
Allar slíkar aðgerðir verða að
samrýmast lögum EBE og sameig-
inlegri fiskveiðistefnu aðildar-
landanna. Embættismennirnir
segja að þessi úrskurður hljóti að
þýða að Irar verði að framkvæma
þær áætlanir, sem EBE lönd, sem
stunda veiðar við írland hafa sent
stjórninni í Dublin.
sprengju á Las Palmas
flugvelli. Sprengingin
leiddi til þess að flugvélum
var beint til Tenerife og
varð þar með óbeint valdur
mesta flugslyss sögunnar,
þegar tvær jumbóþotur
rákust á og fórust með
þeim 577 manns.
Liddy boðin
vinna í
„hlerana-
bransanum”
St. Catharines, Kanada 15.
júli — AP.
EINUM af syndaselum Water-
gatehneyklisins, Gordon
Liddy, hefur verið boðin yfir-
mannsstaða í kanadisku fyrir-
tæki, sem starfar við að kanna
hvort simar séu hleraðir.
James Miller, aðalforstjóri
Sexuricomm Canada Ltd,.
sagði í gær að hann hefði boðið
Liddy starfið vegna „reynslu
hans af hlerunarbransanum og
ómetanlegrar trúmennsku við
yfirmenn".
„Hann hélt sér saman af
einskærri trúmennsku, þó að
ég áliti að þeirri trúmennsku
hafi verið beint i ranga átt, og
ég met hann fyrir það“, sagði
Miller.
Liddy á von á náðun þann 7.
september og sagði Miller
hann hafa virzt áhugasaman
um starfið þegar þeir ræddu
saman i sima. Kvað Miller
hann hafa sagt að hann hefði
fengið tvö önnur atvinnutil-
boð.
MATAREITRUN — Myndin sýnir gesti á húsgagnasýningu í Osaka í Japan,
eftir að þeir höfðu fengið skæða matareitrun. Fólkið þjáðist af magakvölum og
sést hér bíða eftir flutningi á sjúkrahús.
Eritreumönnum
verður ágengt
Briissel, 15. júli. AP.
BELGÍSKA blaðið Le Soir
skýrði frá því í dag að upp-
reisnarmenn í Eritreu
hefðu beitt sprenguvörp-
um og stórskotaliði til þess
að ná virkisborginni Keren
úr höndum 4.000 manna
herliðs Eþíópíu, og jafn-
framt haldið eþíópska flug-
hernum í burtu með loft-
varnarskothrið.
Frétt Le Soir, sem send
er af blaðamanni blaðsins í
Eritreu, staðfestir fregnir
frá þjóðfrelsisfylkingu
Eritreu um að hún hafi
tekið 1.500 eþíópska her-
menn til fanga í Keren.
Talsmaður uppreisnar-
manna segir að um 2.500
Eþiópíumenn hafi fallið í
umsátrinu um Keren, sem
leiddi til töku borgarinnar
9. júlí. Le Soir segir hins
vegar að 2.000 Eþíópíu-
menn hafi fallið en 500
komist undan. Ekkert er
sagt um mannfall í liði
Eritreumanna.
Háttscttur yfirmaður i her Eþiópiu og óþekktir hermenn hans 1
fangabúðum Eritreumanna. Um 700 eþfópskir hermenn, auk þeirra
sem teknir voru f Kernen, eru f fangabúðum frelsishreyfingar Eritreu.
Talið er að um 30.000
skæruliðar berjist með
marxisku hreyfingunni
Eplf, og annarri hreyfingu,
þjóðfrelsisfylkingu
Eritreu, fyrir sjálfstæði
héraðsins, sem er hið
nyrsta í Eþíópíu.
Álítur eiginmann
sinn burtnuminn
Washington 15. júlf — AP
EIGINKONA sovézks flótta-
manns, sem gerðist bandarfskur
Mistök ollu blindu
og heilaskemmdum
London 15. júlí — Reuter
KONA sem lögð var inn á
sjúkrahús í London til venju-
legs gallblöðruuppskurðar kom
þaðan næstum alveg blind og
með varanlegar heilaskemmdir
vegna þess að hláturgas var not-
að á hana f staðinn fyrir súr-
efni, samkvæmt skýrslu hlut-
lausrar rannsóknarnefndar,
sem birt var f dag.
Konan, Elizabeth Shewan,
sem var kennari og kenndi í tvö
ár vió sendiráðsskóla i Tokyo,
eftir að hafa búið eitt ár i
Bandarikjunum, er nú á
þroskastigi þriggja ára barns.
Faðir hennar, John Shewan,
segir að nú sé hún „ekki annað
en lifandi lík“.
Shewan, sem er 28 ára gömul,
var ekið inn á skurðstofu West-
minster sjúkrahússins i
febrúar 1975, og þar var henni
fyrir mistök gefið hláturgas
(nitrous oxide).
I skýrslu nefndar, sem heil-
brigðisyfirvöld hverfisins
skipuðu til að rannsaka þetta
mál, kemur fram að „klúðurs-
leg“ viðgerð hafði farið fram á
svæfingartækjunum. Hosur
sem lofttegundir fóru um höfðu
verið tengdar öfugt eftir að
gólfhreinsunarvél hafði rifið
þær af stútunum.
I skýrslunni eru hlutaðeig-
andi einstaklingar ekki nefndir
á nafn, né gagnrýni beint að
skurðlæknum sjúkrahússins,
svæingarlæknum, hreinsunar-
manni eða tæknimanni. Gagn-
rýnin beinist aðallega að
ónefndum viðgerðarmanni,
sem notaði hvítt límband til að
festa of litlar tengingar við
hosurnar, sem fluttu hláturgas-
ið og súrefnið.
Skuldinni er einnig skellt á
framleiðanda svefnlæknis-
tækjanna og eftirlitsmann, sem
lét hjá líða að yfirfara tækin.
Skýrslan sem birt var er úr-
dráttur úr niðurstöóum og at-
hugunum nefndarinnar. Faðir
konunnar vill hins vegar fá að
sjá heildarskýrsluna, og segist
eiga siðferðislega heimtingu á
því. Hann nýtur stuðnings
þeirra starfsmanna West-
minster sjúkrahússins sem eru
i samtökum opinberra starfs-
manna, en forystumaður þeirra
hefur fordæmt skýrsluna og
segir hana tilraun til „hvít-
þvottar".
gagnnjósnari, bað í dag Jimmy
Carter, forseta, að reyna að kom-
ast á snoðir um afdrif manns sfns,
sem hún álítur að Sovétmenn hafi
rænt fyrir 18 mánuðum sfðan.
Bandarfska utanrfkisráðuneyt-
ið staðfestir að Nicholas Shadrin
hafi verið gagnnjósnari fyrir FBI
þegar hann hvarf f Vfn þann 20.
desember 1975, eftir að hafa farið
til að hitta njósnara sovézku
leyniþjónustunnar KGB.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að ráðuneytið hafi
fyllsta áhuga á þvi að ná Shadrin
aftur. „Hann er bandariskur
borgari og velferð hans varðar
okkur". Hvita húsið sagðist styðja
eiginkonu Shadrins, Blanka, og
að allt verði gert til að fá upplýs-
ingar um afdrif hans.
Lögfræðingur hennar segir
hins vegar að tveir bandariskir
utanríkisráðherrar og einn forseti
hafi talað við sovézka embættis-
menn um þetta, án árangurs.
ERLENT