Morgunblaðið - 16.07.1977, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977
flugið er I raun upphafið að
hinu sögulega N-
Atlandshafsflugi Loftleiða. Á
þessu árabili var Hamborg
ásamt Kaupmannahöfn aðal-
áfangastaður Loftleiða austan
hafs, og var þá venjulega ient
þar þrisvar i viku yfir sumar-
tímann og tvisvar á veturna.
Félagið galt þess hins vegar, að
það bauð verulega lægri far-
gjöld á þessari flugleið en önn-
ur félög, því að í Þýzkalandi
voru settar vissar takmarkanir
á auglýsingar félagsins i Þýzka-
landi. Leiddi þetta smám sam-
an til þess að félagið varð að
draga þar saman seglin, og
fengu Loftleiðamenn þá auga-
stað á Luxemburg, sem nú er
aðalviðkomustaður félagsins
austan Atlandshafs, eins og all-
ir vita. Hins vegar má eftir sem
áður segja að frá Luxemborg
sinni Loftleiðir áfram þýzka
markaðinum og allt fram til
þessa dags hefur það haldið
uppi föstum áætlunarferðum
með bilum frá Luxemborg til
Frankfurt með ýmsum við-
komustöðum í þýzkum borgum,
sérstaklega i Rinarlöndum.
Auk áætlunarflugsisn hafa
Flugleiðir einnig i vaxandi
mæli annazt leiguflug frá
Þýzkalandi til Islands með
þýzka ferðamenn, og á tímabil-
inu frá april til júní voru farn-
ar 12 slikar ferðir með alls um
1500 þýzka ferðamenn. Fram-
hald á þessu leiguflugi er síðan
áformað aftur í haust.
Arnarflug hefur einnig gert
samning við þýzkar ferðaskrif-
stofur um leiguflug hingað til
lands, en þessar ferðir eru ein-
ungis bundnar við þýzka ferða-
menn. Fyrirgreiðslu hér á landi
Myndin er tekin af Lorelei-klettinum og fyrir neðan eru grynningarnar, þar sem sjömennirnir steyttu skipum
sínum- Ljósm. Ól.K.M.
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR ferð-
ast lfklega mest allra þjóða í
Evrópu, og þykja víðast hvar
aufúsugestir vegna þess að i
pyngjum þeirra eru digrari
sjóðir en gerist og gengur með-
al ferðalanga af öðru þjóðerni.
Hins vegar fara ýmsar sögur af
hátterni Þjóðverja sem farða-
langa, en það er önnur saga og
ekki er ólfklegt að öfundin eigi
þar einhvern hlut að máli.
Island hefur sem betur fer
ekki farið varhluta af ferðaþrá
Þjóðverja, og áhugi Þjóðverja á
að kynnast landi hefur vaxið
ört á siðustu árum. Á sl. ári
voru þýzkir ferðamenn 10.100
af liðlega 70 þúsund erlendum
ferðamönnum. Nú koma hingað
margir og stórir hópar þýzkra
ferðamanna á vegum ýmissa
aðila, og i júnímánuði einum
var f jöldi þeirra rúmlega 1500.
Aðeins Bandaríkjamenn voru
fjölmennari, en þá er þess að
gæta að þeir hafa alla jafnan
skemmri viðkomu hér á landi,
og er þess vegna ekki óliklegt
að gjaldeyristekjur af ferða-
mönnum frá þessum tveimur
þjóðum séu svipaðar þrátt fyrir
töluverðan mun á höfðatölu.
Þótt viðskiptafjöfnuður V-
Þýzkalands og Islands sé okkur
verulega í óhag, er ferðamála-
jöfnuðurinn okkar verulega
hagstæður og má það vera
nokkur huggun. Nokkrir
Islendingar leggja þó jafnan
leið sina til Þýzkalands á
hverju ári, og fáeinar ferða-
skrifstofur hafa á boðstólnum
skipulagðar ferðir til Þýzka-
lands. Aðallega er þá ferðinni
heitið um Rinarlöndin.
Það verður að teljast ósenni-
legt að Þjóðverjum muni takst
að ná jöf nuði á þessu sviði i
næstu framííð, því að ferða-
máiamenn hér heima fyrir
íslenzkur ferðamannahópur á siglingu á Rín.
leggja allt kapp á að laða enn
fleiri Þjóðverja hingað til
lands, og virðist verða vel
ágengt. Er þess skemmst að
minnast, að Flugleiðir hófu í
fyrrasumar áætlunarflug til
nýs áfangastaðar í Þýzkalandi
— Dússeldorf — og heldur því
uppi yfir sumartimann viku-
legu áætlunarflugi til tveggja
borga í Þýzkalandi —
Dússeldorf og Frankfurt.
Það er Flugfélag lslands sem
annast báðar þessar flugleiðir.
Félagið hafði þó áður reynt fyr-
ir sér I Þýzkalandi, en þá ekki
haft árangur sem erfiði. Það
var árið 1955 að Flugfélagið hóf
reglulegt áætlunarflug til
Hamborgar, og var það fram-
hald af Kaupmannahafnarflug-
inu. Hamborgarflugið lagðist
þó af 1962, og var það ekki fyrr
en niu árum siðar eða 1971 að
félagið hóf á nýjan leik að fara
reglulega eina ferð í viku til
Frankfurt að sumrinu. Hefst
áætlunarflug félagsins á þess-
ari leið venjulega um miðjan
júni og standa fram til ágúst-
loka. Dússeldorf-flugið hófst
síðan í fyrrasumar eins og áður
segir og er haldið uppi frá því
snemma i júlí til ágústloka,
þannig að þessum ferðum er
beinlínis ætlað að sinna sumar-
ferðalögum Þjóðverja fyrst og
fremst.
Góð reynsla hefur fengizt af
báðum þessum flugleiðum, og
má t.d. nefna, að á Frankfurt-
leiðinni fékkst í fyrrasumar
réttum78+ sætanýting með
Boeing-þotu, sem tekur 126 far-
þega, en í sumar var ákveðið að
stórauka sætaframboðið með
því að setja DC-8 inn á þessa
leið, en hún tekur 248 farþega.
Dússeldorf-leiðinni er hins veg-
ar annað með Boeing-þotu eins
og i fyrra, en nýting þá var rétt
innan við 70%, sem þykir sér-
lega hátt hlutfall af nýrri flug-
leið að vera.
Loftleiðir fljúga hins vegar
ekki til Þýzkalands nú, en sú
var þó tiðin að vélar félagsins
voru tiðir gestir á flugvellinum
í Hamborg. Þetta var á árunum
1953 til 1962, og Hamborgar-
annast Samvinnuferðir, og er
gert ráð fyrir 6—7 ferðum í
sumar með um 20 manna hópa
en einnig hafa verið hér á ferð
stærri hópar eða allt upp i 170
manns, sem fyrst og fremst
hafa brugðið sér hingað i
helgarferð, búið á hótelunum í
Reykjavik en síðan keypt sig
inn í hinar ýmsu ferðir sem
bjóðast, bæði um Reykjavik og
til sögufrægra staða i nágrenn-
inu. Þá annast Samvinnuferðir
einnig móttöku tveggja
skemmtiferðaskipa, sem hér
hafa 7—8 viðkomur í sumar
með samtals um 2000—3000
manns, þar sem Þjóðverjar eru
yfirgnæfandi hluti farþega.
Úrval/Zoéga annast móttökur
flestra skemmtiferðaskipanna
sem hingað koma, og þar eru
Þjóðverjar stærsti hópurinn
Ferðaskrifstofa rikisins ann-
ast hins vegar móttöku flestra
þýzku ferðamannahópanna,
sem koma hingað til Iands i
sumar. Er þar um að ræða
skipulagðar hringferðir um
landið og er 31 slík í sumar
einvörðungu skipuð þýzkum
ferðamönnum, venjulega um 23
í hverri ferð. Þá er ferðaskrif-
stofan með 59 skipulagðar ferð-
ir fyrir ýmsa blandaða hópa, en
þar eru þó Þjóðverjar iðulega
verulegur hluti. Einnig hafa
hálendisferðir átt vaxandi að-
sókn að fagna, og þá ekki sízt
meðal þýzkra ferðamanna, sem
hingað koma, og bæði Ferða-
skrifstofa Ulfars Jakobssen og
Guðmundur Jónasson efna til
slikra ferða í sumar og næsta
sumar hefur Ferðaskrifstofa
ríkisins einnig i hyggju að
hefja slikar ferðir. Flest bendir
því til þess að hlutur Þjóðverja
I ferðamannaþjónustu hérlend-
is eigi enn eftir að vaxa á næstu
árum.
10.100 Þjóóverjar komu hingað á síðastliðnu ári
Vestur-Þjóóverjar næst fjölmennast-
ir erlendra ferðamanna hér á landi