Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NOVEMBER 1977
Nýja
giktarfrímerkið
SlÐASTLIÐINN miðvikudag
kom út nýtt frímerki, 90 kr., í
sambandi við svonefnt Alþjóð-
Iegt giktarár. Frá þessari út-
gáfu hefur áður verið skýrt hér
í þættinum, svo að ekki er
ástæða til að fara aftur mörgum
orðum um hana. En nú er frí-
merkið komið út, og ég get ekki
neitað því, að mér finnst það
engan veginn fagurt álitum
fremur en mörg önnur íslenzk
frimerki, sem komið hafa út á
undanförnum árum og auglýs-
ingateiknarar hafa teiknað. Þá
er það prentað með svokallaðri
sólprentunaraðferð, sem er sízt
til þess fallin að bæta um útlit
þess. Ég hitti nokkra safnara að
máli, þegar þeir voru að láta
stimpla þetta nýja merki með
útgáfudagsstimpli. Var það
samdóma álit þeirra, að fallegt
gæti það ekki talizt og litir of
skærir og allt að því glossalegir.
Einn sagði, að þetta merki væri
ekki betra en Alþýðusambands-
merkið frá í fyrra, og er þá
nokkuð langt til jafnað að min-
um og margra dómi. Eg held, að
ráðgjafanefnd sú, sem póst-
stjórnin íslenzka hefur sér við
hlíð við frímerkjagerð, þurfi að
íhuga betur þær teikningar,
sem berast að nýjum frimerkj-
um, og vanda betur val sitt viö
myndefni og liti en oft hefur
orðið raunin á nú á allra síð-
ustu árum. Ég held, að frí-
merkjasafnarar mættu að
ósekju hafa meiri áhrif innan
nefndarinnar en þeir hafa. Fé-
lag frímerkjasafnara átti lengi
fulltrúa i nefndinni, en missti
hann, þegar hún var síðast
endurskipuð, og þá kom auglýs-
ingateiknari í staðinn.
Engin 45 króna
frímerki fáanleg
á Jólapóstinn
Nú mun svo komið fyrir ís-
lenzku póststjórninni, að öll 45
kr. frímerki eru uppseld — eða
svo gott sem — og það rétt fyrir
jólin. Svo sem lesendur vita,
eru 45 kr. almennt burðagjald
undir einfalt bréf hér innan-
lands og svo til Norðurlanda.
Er því vissulega úr vöndu að
ráða, þegar svo tekst til fyrir
jólaösina. Sennilega hefur póst-
stjórnin búízt við að fá leyfi til
að hækka burðargjöld sín, svo
sem hún hafði farið fram á í
haust, en því var synjað fyrir
nokkrum dögum. Þegar þetta
er haft í huga, er ofurskiljan-
legt, að póststjórnin hafi átt
erfitt með að ákveða verðgildi
þess frimerkis, sem yrði al-
mennt burðargjald næstu mán-
uði, með nægilegum fyrirvara.
Þetta er ein af afleiðingum
hinnar gegndarlausu óðaverð-
bólgu, sem hér geisar. Hér hef-
ur póststjórnin þvi nokkrar
málsbætur. Aftur á móti verður
ekki fram hjá því gengið, að
hún hefur hin síðustu ár reynzt
of oft sein í svifum og frímerki
hennar verið of seint á ferð,
bæði með tilliti til þeirra at-
burða, sem minnzt hefur verið
með útgáfunum, og eins vegna
viðskiptavina hennar.
,<c€KUrv,
r. )g
^ • 'I ^
Svi'mt lio
Jólaundirbúningur í Svfþjóð.
Ný sænsk frímerki
I fyrradag, 17. þ.m., gaf
sænska póststjórnin út átta ný
frímerki. Ekki óska ég þess, að
íslenzka póststjórnin fari hér í
svipaða slóð og hin sænska um
fjölda merkja, en margt annað
getur hún lært af hinni sænsku
póststjórn. Um það bera vitni
myndir þær, sem fylgja þessum
þætti, ef þær prentast vel. Sex
frimerkjanna eru sér í flokki og
sýna jólaundirbúning í Svíþjóð.
Ef við höldum frá vinstri til
hægri, má sjá piparkökubakst-
ur og svo drengi bera grenitré
heim úr skóginum; menn setja
upp kornbundini, kona útbýr
svonefndan lutfisk og önnur
steypir kerti; loks er maður að
búa til hafur úr hálmi. Þeir
Islendingar, sem þekkja til
sænskra jóla, munu kannast við
flest af þessu, sem hér kemur
fram á merkjunum. I skýring-
um sænsku póststjórnarinnar
með frímerkjunum er nákvæm-
lega rakin sú saga,. sem hvert
merki lýsir, en því miður er of
langt mál að greina frá henni
hér.
Þennan sama dag sendi póst-
stjórnin sænska frá sér tvö
minningarfrímerki, þ.e. hin ár-
Iegu merki sín í sambandi við
Nóbelshátíðina.
Eru á þeim myndir þeirra
manna, sem verðlaun hlutu ár-
ið 1917 í bókmenntum og
læknisfræði.
Við báðar þessar útgáfur
voru notaðir sérstimplar, svo
sem er venja þar í landi. Mynd-
ir af þeim sjást hér með
merkjunum. öll eru frimerki
þessi einlit og mjög stílhrein og
skýr, enda grafin eftir ljós-
myndum af kunnum listamönn-
um og síðan prentuð með stál-
stunguaðferð. Þannig fer
sænska póststjórnin oftast að
við prentun frímerkja sinna,
enda hefur hún á að skipa hin-
um færustu-48Önnum til þeirra
verka og á sjálf sína eigin
prentsmiðju.
Nóbelsverðlaunahafar 1917.
JAROtLDAR A MEtMAgY 1973
ÍSLAMO as
Fátt er svo með
öllu illt. . .
Að þessu sinni er lán í óláni,
að íslenzka póststjórnin getur
nú losað sig við Vestmanna-
eyja- eða Heimaeyjarfrímerkin
frá 1975, 20 og 25 kr„ sem urðu
henni lítt nýt, þegar þau komu
út, þar sem hún fékk ekki þá
fremur en nú að hækka burðar-
gjöld sín um þá upphæð, sem
hún hafði ætlað. Lentu þau svo
beinlínis á milli gangna, því að
næsta hækkun fór svo upp fyrir
verðgildi þeirra, eins og menn
muna vafalaust. Nú koma þessi
merki hins vegar óvænt í góðar
Frlmerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
þarfir, þó að menn verði að
tefja sig við að líma tvö merki á
jólabréfin í stað eins merkis.
Ur því að ég nefni Heima-
eyjarfrímerkin, vil ég enn
benda póststjórninni á það, sem
ég gerði í þætti í janúar s.l., þ.e.
stærð islenzkra frímerkja. Ég
er örugglega ekki einn um þá
skoðun, að stærð sú, sem valin
var á Heimaeyjarmerkin, er
mjög hentug á venjuleg bréf.
Mætti póststjórnin að ósekju
gefa út fleiri merki af þeirri
stærð. Eins vil ég um leið
minna hana á stálstungu-
prentunina. Mér hefur verið
sagt, að svissneska prentsmiðj-
an, sem mest hefur prentað af
merkjum okkar i tæp 20 ár, geti
einnig notað þá aðferð, ef um
er beðið.
Dagur frímerkisins var hald-
inn 8.- þ.m. og fór fram hér í
Reykjavík með þeim hætti sem
boðað hafði verið og sagt var
frá í síðasta þætti. Sóttu safnar-
ar allvel samkomu þá á Hótel
Borg, sem efnt var til um kvöld-
ið, og betur en í fyrra. Engu að
siður heföu fleiri mátt koma
þar til að rabba um frímerki og
sameiginleg áhugamál önnur
yfir kaffibolla. Engar spurnir
hef ég haft af því, hvort eitt-
hvað hafi verið gert úti á landi
til að minnast dagsins. Ef svo
hefur verið, þætti mér vænt um
að heyra um það frá söfnurum.
Vil -ég svo að endingu minna
klúbba og félög á að hafa sam-
band við þáttinn, ef þau vilja
koma einhverju á framfæri og
þá ekki sízt um starfsemi sína.
Slíkar fréttir eru vel þegnar,
enda nauðsynlegt að auka fjöl-
breytni þessara þátta með að-
sendu efni.
Fræðsluskrifstofa
Reykjanesumdæm-
is í nýtt húsnæði
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA
Reykjanesumdæmis var opnuð I
fyrsta sinn að Lyngási 12 I Garða-
bæ sl. miðvikudag. Skrifstofan
verður opin á venjulegum skrif-
stofutfma. A skrifstofunni verða
starfandi Helgi Jónsson fræðslu-
stjóri, Margrét Sigrún Guðjóns-
dóttir og örn Helgason sálfræð-
ingur.
Fræðslustjóri tók til starfa i
Reykjanesumdæmi 15. febrúar
1976 en hefur ekki opnað skrif-
stofu fyrr en nú. Starfsaðstaða
embættisins hefur til þessa verið
á heimili fræðslustjórans, en auk
þess hefur embættið fengið inni i
litlu herbergi í menntamálaráðu-
neytinu. Sálfræðiþjónusta barna-
skóla i Reykjanesumdæmi var
stofnað árið 1969. Örn Helgason
sálfræðingur hefur frá upphafi
verið forstöðumaður sálfræði-
þjónustunnar, en hún starfaði á
vegum samtaka sveitarfélaga í
Reykjanesumdæmi þar til
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
^22480
J jnorðunblabib
fræðslustjóri tók við yfirstjórn
hennar á sl. hausti. Vonir standa
til að fljótlega verði hægt að bæta
við öðrum sálfræðingi.
Verkefni fræðsluskrifstofunn-
ar, sem ákveðin eru með lögum
um grunnskóla eru aðallega um-
sjón og eftirlit með skólahaldi,
kennslu og rekstri skólanna i um-
dæminu. — þ.á m. áætlanagerð og
fjármál auk ýmissar þjónustu við
skólana og skólahverfin.
Ný bók í flokknum
Lönd og Leiðir
BÖKAUTGAFA Menningarsjóðs
og þjóðvinafélagsins hefur sent
frá sér nýtt bindi í bókaflokknum
Lönd og Leiðir, sem fjallar um
Ungverjaland og Rúmeníu og er
höfundur bókarinnar Þórunn
Magnúsdóttir skólastjóri á Sval-
barðseyri við Eyjafjörð.
Höfundur segir itarlega frá
Ungverjalandi og Rúmeníu, þjóð-
unum, sem þessi iönd byggja, at-
vinnuvegum þeirra, sögu og
menningu. Meðal mynda í bókun-
um eru landakort af báðum lönd-
unum.
----29555------
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9 — 21
UM HELGAR FRÁ 13—17
SKIPASUND 100 fm
4 hb. risíbúð, útb. 5 m.
RAUÐIL/EKUR 64 fm.
mjög góð 2 hb. ibúð á 2. hæð +
bílskúr.
FAGRAKINN HFJ. 60 fm
2 hb. góð kj.ibúð sér inngangur,
útb. 4,5 — 5 m. makaskipti
möguleg á 3—4 hb. i Hafnar-
firði.
MIKLABRAUT 70 fm
2 hb. á 2. hæð, útb. 4—-4.5 m.
SLÉTTA-
HRAUN HFJ. 60 fm
2 hb. góð ibúð, útb. ca. 5 m.
HVERFIS
GATA HFJ. 80 fm
3 hb 2. hæð 9 ára gamalt sér
þvottur, útb. 5.5 m
HJALLAVEGUR 96 fm
3—4 hb. falleg íbúð, verð 9,5
m. útb. 6—6.6 m.
KÓPAVOGUR
VESTURBÆR
Holtagerði 3—4 hb. + bilskúr
og 3 hb. + bilskúr i sama húsi.
NJÁLSGATA 50 fm
3 hb. risibúð, útb. 3 m.
NORÐURBRAUT
HFJ. 65 fm
3 hb. + 20 fm góður vinnuskúr,
útb 4—4.5 m.
NÝLENDUGATA 80 fm
góð 3 hb. ibúð á 1. hæð, verð
tilboð, útb. 3,5 m.
RAUÐARÁR
STÍGUR 75 fm
3 hb. íbúðir á jarðhæð og 1.
hæð.
SÓLHEIMAR 75 fm
3 hb. íbúð á 1. hæð. Verð tilboð
útb. 5,5 — 6 m.
ÁLFASKEIÐ lOOfm
4 hb. góð ibúð sökklar að bil-
skúr. Útb. 7 — 7.5 m.
AUSTURBERG lOOfm
4 hb. falleg ibúð + bilskúr Verð
tilboð.
KVÍHOLT HFJ. 108 fm
3—4 hb. jarðhæð, verð tilboð.
KÓNGSBAKKI 108 fm
4 hb. falleg ibúð verð tilboð.
MIKLABRAUT 85 fm
4 hb. risibúð. útb. 2 m.
MÁVAHLÍÐ 1 37 fm
4 hb. á 2. hæð + bilskúrsréttur.
SKIPASUND 85 fm
3—-4 hb jarðhæð, íbúðir en öll
nýstandsett. laus nú þegar. Útb
5,4 m.
VALLARGERÐI 80 fm
l. hæð, 4 hb. + aukaherbergi í
kj. 4 hb. íbúð er í risi, selt saman
eða sér.
NORÐURMÝRI 137 fm
5 hb. góð íbúð + 40 fm bílskúr,
verð tilboð.
ENGJASEL 150 fm
5—6 hb. á 2 hæðum, bíla-
geymsla. Verð tilboð.
HVASSALEITI 11 7 fm
5 hb. góð íbúð + bilskúr. Verð
og útb. tilboð.
JÓFRÍÐASTAÐA-
VEGUR HFJ. 112 fm
5 hb. á 2 hæðum og kjallari, nú
endurbyggt, verð og útb. tilboð.
Makaskipti koma til greina á
eldra einbýli sem þarf lagfær-
ingu.
REYNIGRUND 126 fm
Viðl.sj.hús á 2 hæðum. Góð
eign. Verð tilboð.
GARÐABÆR 80 fm
Einbýli. Útb. 5,5—6 m.
MIÐVANGUR 1 50 fm
Raðhús + stór bílskúr. Glæsileg
eign. Verð tilboð.
ÚTI Á LANDI
HVERAGERÐI LÓOIR.
Á BYGGINGARSTIGI
HVERAGERÐI PARHÚS
verð tilboð, útb. 2,2 m.
SELFOSS — EINBÝLI
ÞORLÁKSHÖFN — EIN-
BÝLI
ATVINNUREKSTUR
380 fm verkstæði + 2ja hæða
tvíbýli. Mikill möguleiki.
ÁRTÚNSHÖFÐU
Til leigu 600—1000 fm. 1
til 2 hæðir að hluta henta fyrir
heildsölu, lager iðnað. Tilboð á
skrifstofu.
HÖFUM KAUPANDA
að gúðu einbýli eða raðhúsi í
Austurborginni. Verð allt að 30
m. Mikil útborgun.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55
SÖLUM. Hjörtur Gunnarsson, Lárus Helgason, Sigrún Kröyer.
LÖGM. Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.