Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NOVEMBER 1977
11
BLðM
VIKUNNAR 1 ¥
UMSJÓN: ÁB. ®
Aðventuskreytingar
EFTIR vikutíma gengur jólafastan í garó og eflaust munu þá
margir fara að huga að skreytingum bæði nýjum og eins þeim
gömlu sem kannski mætti hressa eitthvað upp á. I því efni geta
þær þrjár myndir sem fylgja þættinum 1 dag e.t.v. komið að
einhverju gagni.
A flestum heimilum fellur Jafnan til eitthvað af plastumbúdum sem nota má á ýmsan
hátt sé hugmyndaflug fvrir hendi. f þessu tilfelli sem botn f aðventuskre.vtingu.
Skrautiö er ekki margbrotið. hvft kerti og slaufur og litlir könglar. „Fuglaparið" setur
mikinn svip ð skreytinguna.
Á gömlum gylltum myndaramma er komið fyrir litlum bast* eða tágamottum sem
útbúnar eru sem stjakar fyrir kertin. en þau eru hvít. Skreytt með greinum af
norðmanns- eða nobílisgreni. gulum slaufum. könglum og ólituðum stráum.
Tágakransinn er alltaf f fullu gildi og má skreyta hann á marga vegu. Hér er hann
skreyttur með greinum af norðmannsgreni, hvftum snúnum kertum, rauðum slaufum
könglum og auk þess gervi-berjum og sveppum sem jafnan eru á boðstólum f hverri
blómabúð í jólakauptfðinni.
Því miður eru ekki tök á að gefa nánari leiðbeiningar um þessar
skreytingar en þess má geta að á næsta fræðsiufundi G.í. sem
haldinn verður í Félagsstofnun stúdenta mánudagskvöld 28. þ.m.
er fyrirhugað að fagmenn sýni blóma- og jólaskreytingar. Ums.
O. Johson og Kaaber:
Ný pökkunaradferd kaff-
is — lofttæmdar umbúðir
(Ijósm Frlðþjófur)
Lofttæmingarvélin er samstæða þriggja véla og fer kaffiS i hana lengst til
vinstri á myndinni og síðan ganga pakkamir í gegnum lofttæmingarútbúnað-
inn á miSri mynd og aS lokum er pökkunum raSaS samna í stærri pakkningar
lengst til hægri.
Kaffibrennsla O.Johnson og
Kaaber h.f. hefur tekið upp
nýja aðferð við pökkun kaffis,
en það er svonefnd loft-
tæmingarpökkun og frá og
með mánudeginum 21.
nóvember munu allar fjórar
kaffitegundirnar. sem kaffi-
brennslan framleiðir verða
pakkaðar i hinar nýju umbúð-
ir.
Ólafur Ó. Johnson forstjóri
Ó. Johnson og Kaaber kynnti
fyrir fréttamönnum þessar um-
búðir nú fyrir helgina og sagði
hann að í þeim geymdist kaffið
mun betur en í eldri umbúðun-
um. Þegar pakkað var i
pappírsumbúðirnar, sagði Ólaf-
ur, þurfti helzt að nota kaffið
sem fyrst eftir pökkun, þar sem
súrefnið í loftinu getur haft
slæm áhrif á bragðið og jafnvel
skaðleg. Reynt var að minnka
áhrif súrefnisins eftir föngum
með því að vélarnar þrýstu loft-
inu úr pökkunum en lofttæmdu
þá ekki fyllilega, enda voru
pokarnirekki loftþéttir.
Ólafur Ó. Johnson sagði að
þegar það hefði verið ákveðið
að breyta umbúðunum frá
pappírsumbúðunum í umbúðir
úr plasti og álþynnum hefði
einnig verið ákveðið að koma í
veg fyrir að súrefni kæmist í
umbúðirnar með því að beita
lofttæmingaraðferð við
pökkunina, þannig að komið
væri í veg fyrir að súrefni lofts-
ins gæti skaðað bragðgæði vör-
unnar og að sögn Ólafs er talið
að geymsluþol kaffisins þannig
sé næstum ótakmarkað.
Hin nýja pökkunarvél er
samstæða þriggja véla og
sagðist Ólafur ekki enn vita
nákvæmlega hvað uppsetning
hennar kostaði, en það væri
mílli 40 og 50 milljónir króna
Bændur
athugið
Að gefnu tilefni viljum vér upplýsa að verð það, sem auglýst er i
Sambandsfréttum og aftur í Fóðurmöppu KEA, sem verð á
fóðurvörum, frá KFK, er verð, sem gilti hjá oss fyrir 20. október
sl. Annað i plöggum þessum tökum vér ekki til oss.
Verð á fóðurvörum hjá oss er nú þetta:
Laus
heim komin
A-blanda 14/98 kr.
A-blanda 14/100/4% feit kr 40 300 -
B-blanda 1 2/102/4% feit kr 40 300 -
C-blanda 9/92 kr.
Sóló heilfóður kr. 45.900.—
Becona sláturgrisafóður kr. 45.800. —
Bændur verzlið þar sem saman fer
lágt verð, 1. flokks vara og góð þjónusta
Sekkjað
i húsi
kr. 42.900 -
kr. 43.100 -
kr. 43.100,-
kr. 43.000 -
kr. 48 500 -
kr. 47.500 -
BÚSTÓLPI FYRIR BÆNDUR
Strandgötu 63, Akureyri simi 96-22320