Morgunblaðið - 19.11.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
19
Svar forsætisráðherra: Ég geri
mér grein fyrir þvi, að innheimta
söluskatts á siðasta dreifingar-
stigi hefur i för með sér mikla
fyrirhöfn. Aftur á móti tel ég, að
sá kostnaður, ef hann yrði viður-
kenndur, og greiddur leiddi til
hækkunar söluskatts, ef rikissjóð-
ur á að verða skaðlaus. Eg tel
eðlilegast, að álagningarreglur
væru ekki svo naumt skornar, að
innheimtulaun þyrftu til að
koma, en nú stendur til að breyta
söluskatti í virðisaukaskatt og
Ijóst er að innheimta hans dreifist
þá á fleiri aðila. Það var þessi
fyrirhöfn i sambandi við inn-
heimtu söluskatts, sem höfð var i
huga, þegar fjárveiting var veitt
til hagræðingar i verzlun, en það
hefur verið svo litið, að það er
varla orð á því gerandi. En ég vil
ekki gefa vonir um það, að smá-
salan fái þóknun fyrir innheimtu
söluskatts. Ég tel, að ihuga verði
það mál í tengslum við kerfis-
breytingu með virðisaukaskatti.
5) Vill Sjálfstæðisflokkurinn
gangast fyrir samræmdri löggjöf
um land allt um afgreiðslutfma
sölubúða?
Svar forsætisráðherra: Eg segi
það hreinskilningslega, að þetta
var erfiðasta mál, sem ég fjallaði
um sem borgarstjóri og dreg þá
ekkert mál undan og hafði satt að
segja vonast til þess að þetta mál
mundi ekki elta mig inn á þing!
Eg varpa því fram, hvort vanda-
málið er ekki að einhverju leyti
bundið ófrelsi i verðmyndun. Ef
frelsi ríkti, gæti átt sér stað
ákveðin starfsskipting innan
verzlunarinnar t.d. möguleiki á
þvi, ef þörf væri talin fyrir þjón-
ustu utan venjulegs vinnutíma, að
vörur yrðu seldar á dýrara verði.
Eg er þess fullviss, að borgar-
stjóri er reiðubúinn til samstarfs
við samtök kaupmanna og laun-
þega og neytenda um þessi efni.
Úskar Jóhannsson varpaði fram
þeirri spurningu, hvort unnt væri
að fá endurgreiddan kostnað
vegna innheimtu söluskatts og
sagði, að mikil vinna væri fólgin i
þvi að skila söluskattsskýrslum,
sérstaklega eftir að sumar vörur
voru undanþegnar söluskatti.
Svar forsætisráðherra: Við
þessari fyrirspurn kom fram sam-
hljóða svari hans við svipaðri
fyrirspurn frá Jónasi Gunnars-
syni.
Úskar Jóhannsson taldi nauð-
synlegt að leiðrétta lægstu álagn-
ingarliði:
Svar forsætisráðherra: Ég tel
það skyldu verðlagsnefndar að
taka til meðferðar allar rökstudd-
ar beiðnir um leiðréttingu á
ákvæðum. Það var viss efi i mín-
um huga um að fara i beina hækk-
un yfir linuna nú vegna þess að
grunnurinn væri orðinn svo
skekktur, að það gæfi ekki þann
árangur, sem að var stefnt. En
mikilvægt var að nokkur leiðrétt-
ing fékkst.
Þegar frumvarpið hefur verið
afgreitt beini ég þvi til ykkar að
nýta þetta frelsi og sannfæra al-
menning um, að tortryggni í garð
verzlunarinnar er ekki rétt.
Abyrgð fylgir frelsinu og kaup-
mann eru menn til að axla þá
ábyrgð.
Guðlaugur Bergmann bar fram
eftirfarandi fimm spurningar:
1) . Eg vil spyrja hæstvirtan for-
sætisráðherra hvort hann hafi
rætt verðlagsmál við hæstvirtan
viðskiptamálaráðherra, og ef svo
er, hver niðurstaðan af umræðun-
um hafi verið?
Svar forsætisráðherra: Vita-
skuld hef ég oft rætt verðlagamál
við vipskiptaráðherra. Niðurstað-
an er m.a. sú, sem fram kemur í
aðgerðum stjórnvalda.
2) . Telur hæstvirtur forsætisráð-
herra þetta nýja frumvarp nægi-
lega ftarlegt hvað niðurfellingu
álagningarreglana viðvfkur og
hefur það nægilegt fylgi til að
„fara í gegn“ eins og sagt er?
Svar . forsætisráðherra: Nýja
frumvarpið verður málamiðlun
og ég vænti þess, að það verði
samþykkt. Eg legg áherzlu á að
það fáist samþykkt, en það getur
verið, að við þurfum að ganga
lengra f málamiðlun en við erum
ánægðir með, en samt er mikil-
vægt að fá breytingu og opna
dyrnar, þótt það verði ekki nema í
hálfa gátt. Það er mikilvægt spor i
rétta átt.
3) . Telur hæstvirtur forsætisráð-
herra viðskiptamálaráðuneytinu
vel borgið fyrir okkur kaupmenn
f höndum núverandi viðskipta-
málaráðherra?
Svar forsætisráðherra: Eg er
forsætisráðherra í samsteypu-
stjórn. Ég treysti þeim ráðherr-
um, sem ég starfa með. Kaup-
menn verða að gera það upp við
sig, hvort þeir treysta einstökum
ráðherrum og þar á meðal mér.
4) Telur hæstvirtur forsætisráð-
herra að verzlun sé ein af höfuð-
atvinnuvegum þjóðarinnar?
5) Telur hæstvirtur forsætisráð-
herra að verzlun fái réttlátt hlut-
fall af þvf fjármagni, sem veitt er
til atvinnuveganna?
Svar forsætisráðherra: Ég hef
svarað þessari spurningu f frum-
ræðu minni. Eg þarf vist hvorki
að visa til ætternis eða uppruna
eða fyrsta starfsferils í þvi sam-
bandi, Þjóðviljinn sér um það.
Meðan jafnvægisleysi ríkir á fjár-
magnsmarkaðinum er útilokað að
svara því, hvort sérhver atvinnu-
grein fái réttlátt hlutfall lánsfjár-
magns. Það er einvörðungu, ef
jafnvægi ríkir, sem það kemur
fram, hvar fjármagnið á að vera
og hvar það nýtist bezt.
Sigurður E. tlaraldsson: Það
hafa komið fram tillögur um að
fresta tollalækkunum. Ég er
hræddur um, að ef það verður,
geti það orðið til lengri tima. Hver
er skoðun Geirs Hallgrímssonar á
þvi máli?
Svar forsætisráðherra: Sigurð-
ur Haraldsson vísar til tillagna
iðnrekenda. Þær eru til athugun-
ar i ríkisstjórninni. Nefnd fjallar
um málefni iðnaðarins og aðlögun
hans að EFTA-aðild og samningn-
um við Efnahagsbandalag
Evrópu. Tilgangurinn með þeim
samningi og þeirri aðild var að
skapa frjálsa verzlun og þróa sam-
keppnishæfni iðnaðarins. EFTA-
aðild og samningurinn við EBE
hefur haft áhrif til breytingar á
uppbyggingu iðnaðarins. Reynsl-
an sýnir, að hlutur iðnaðarins hef-
ur farið vaxandi og að það hefur
orðið iðnaðinum til heilla og þjóð-
inni í heild. Eg býst við því, að
það sé erfiðleikum bundið að fá
samþykkta frestun á tollalækkun-
um, þótt einhverja framlengingu
megi kannski fá gagnvart þeim
greinum, sem sérstakrar aðlögun-
ar þurfa með, en að öðru leyti vil
ég ekki segja neitt frekar um
þetta á þessu stigi.
Axel Lárusson: Hvernig stend-
ur á því, að SlS fær 38% aukn-
ingu lána, en verzlunin 17%? Ég
gerði könnun á innflutningi á vör-
um ferðamanna og það kom í ljós,
að í 60 manna hópi, sem var á
ferðalagi erlendis voru keypt
fimm pör af skóm á mann, sem
enginn tollur var borgaður af. Eg
borga hins vegar toll af sýnis-
hornum af skóm, sem engum
koma að gagni. Eiga kaupmenn að
treysta Sjálfstæðisflokknum? Ég
held að mælirinn sé orðinn fullur.
Svar forsætisráðherra: Auðvit-
að hljótum við að stefna að því, að
fólk kaupi heldur vörur innan-
lands en að það fari í innkaupa-
ferðir til útlanda. Ég held að það
sé reynsla margra ferðamanna að
sums staðar sé alls enginn ávinn-
ingur af því að kaupa erlendis.
Sums staðar eru vörur jafnvel
dýrari en hér, en þvi er ekki fyrir
að synja, að einkum á Englandi sé
hagstætt vöruverð, og það eru
ekki bara tslendingar, sem gera
innkaup á Englandi, heldur ven-
ur fólk af meginlandinu og frá
Norðurlöndum komur sinar þang-
að í sama tilgangi. Við hljótum að
hafa það að markmiði að fólk
verzli fyrst og fremst innanlands.
Við skulum líka hafa i huga, að
rnargir segja, að lækka eigi beina
skatta en hækka eigi óbeina
skatta. Það þýðir, að vörur verða
dýrari en ráðstöfunarfé almenn-
ings meira. Og sjálfstæðismenn
vilja að fólk hafi meira ráðstöfun-
arfé. Eg ætla ekki að skírskota til
ykkar um það, hvaða flokki þið
viljið treysta, ef þið ætlið að
bregðast Sjálfstæðisflokknum, en
Sjálfstæðisflokkurinn er t eini
Framhald á bls. 29.
r --------\
Prófkjör ti! Alþingis í Reykjavík:
FRAMBJÚÐENDUR KYNNTIR
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins til alþingiskosninga í Reykjavfk fer fram dagana 19.—21. nóvember
n.k. t framhoði í prófkjörinu eru 43 frambjóðendur. t þvf sk.vni að gefa væntanlegum kjósendum f
prófkjörinu kost á að kynnast f stórum dráttum sjónarmiðum og viðhorfum hinna einstöku
frambjóðenda, hefur Morgunblaðið lagt fyrir þá eina spurningu, sem er svohljóðandi: Hvert er
viðhorf þitt til þjóðmálanna og starfa Alþingis?
1 blaðinu f dag birtast svör 7 frambjóðenda við þessari spurningu, en 24 svör voru f blaðinu í gær.
Væntir blaðið þess, að þessi kynning á skoðunum frambjóðenda geti orðið kjósendum að gagni.
\ii /
Bjarni
Guðbrandsson
pfpulagninga-
maður, 45 ára
Ljárskógum 4.
Maki: Guðrún G.
Ingvarsdóttir.
i
Öll umræða um islenzk þjóðmál i dag hlýtur að
hefjast á verðbólguvandanum. Lengi hefur tíðkast
tilgangslaust hjal um lausn þessa vanda án raun-
hæfra aðgerða og er senn mál að linni. Nauðsynlegt
er að taka upp verðtryggingu allra fjárskuldbind-
inga, stórra og smárra, en færa um leið vexti niður í
eðlileg arðsemismörk fjármuna. Aðeins stöðugt
verðgildi og eðlileg arðsemi geta tryggt gengi
íslenzku krónunnar. Efla verður atvinnurekstur í
höndum einstaklinga en ekki mun það takast fyrr
en ríkissjóður hættir óeðlilegum yfirborgunum í
kapphlaupinu um sparifé landsmanna. Jafna verð-
ur stöðu byggðarlaga og höfuðatvinnuvegir lands-
manna verða að sitja við sama borð að því er tekur
til tolla, lánamöguleika og opinberrar fyrirgreiðslu.
Löngu er augljóst, að aukning kaupmáttar og kjara-
bætur nást ekki með síhækkuðum kauptöxtum, eða
niðurgreiðslu á vöruverði. Eina raunhæfa leiðin til
kjarabóta, er sú, að ríkissjóður dragi úr skatt-
lagningu og jafnhliða minnkandi ríkisumsvifum
verði kappkostað að nýta betur en nú er gert það fé
sem af Iandsmönnum er haft. Reynist nauðsynlegt
að bæta landbúnaðinum missi niðurgreiðslna verð-
ur að gera það eftir leiðum, sem ekki hvetja til
aukinnar offramleiðslu. í utanríkismálum ber
íslendingum hér eftir sem áður að gæta hagsmuna
sinna i hafréttarmálum á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og efla samstöðu sína með nágranna-
þjóðum um utanríkis- og varnarmál. Störf Alþingis
hafa undanfarið sætt nokkurri gagnrýni og munu
jafnvel alþingismenn hafa haft við orð, að virðing
þingsins fari þverrandi. Það mega þingntenn vita,
að ekkert mun auka virðingu fyrir Alþingi nema
markviss störf. þeirra sjálfra að lausn þjóðmála.
Guðmundur
m
Amundason,
bifreiðastjóri
45 ára
Akurgerði 16.
Maki: Margrét
Úlafsdóllir.
Alþingis og þeirra manna sem til þess verða kjörn-
ir að ráða þar málum. bíóa mörg og vandasöm
úrlausnarefni, og er mér þar efst í huga hin marg-
ne,'nda verðbólga sem landsmenn eru farnir að lita á
sem sjálfsagðan hlut. Skuldasöfnun þjóðarinnar er
orðin geigvænleg og er það sannarlega ekki glæsileg
vöggugjöf sem hver nýr þjóðfélagsþegn f:er nú i dág.
Engum treysti ég betur til en Sjálfst:eðisflokknum
að hafa kjark og frumkvæði að ráðstöfunum gegn
þessari öfugþróun. Það þarf að standa vörð um Irelsi
einstaklingsins til orðs og athafna. en reyna að draga
úr ríkisumsvifum.
Umferðar- og vegamál eru mér hugleikin og er þar
rnikið verk að vinna, leita þarf fleiri leiða en þeirrar
að sækja allt fjármagn til þeirra hluta i vasa bifreiða-
eigenda. Skattlagning rikis á bifreiðar og rekstur
þeirra er þegar í hámarki, þar sem hifreiðin, sem
atvinnutæki og til einkanota, er nauðsynjal;eki i
nútimaþjóðfélagi.
Efla þarf iðnaðinn og gæta þess að liann njóti
jafnréttis á við aðra hiifuðatvinnuvegi þjóðarinnar,
þar sem fyrirsjáanlegt er að hann er sú grein sem
taka verður við auknu vinnuafli í framtiðinni. Leið-
rétta þarf þá öfugþröun sem orðið hefur undanfarið,
að höfuðborgin fari halloka fyrir landsbyggðinni i
sambandi við ýmsa opinhera fyrirgreiðslu og upp-
byggingu atvinnurekstrar hér á Heykjavikursvæð-
inu.
Að lokum vil ég láta i Ijós þá skoðun mina að v;egi
atkvæða landsmanna þurfi að jafna, svo að allir hafi
sama rétt til að velja nafn á Alþingi, en þar nuetti
sjálfsagt koma við betri skipulagningu sem yki af-
kastagelu þess. Gtiðm. Amundason.
Eggert Hauksson:
Ójafn leikur
Okkur er öllum ætlað að greiða
það sem keisarans er, bæði sam-
kvæmt fyrirmælum frelsarans
og þess opinbera.
Ríki (og sveitarfélög) inn-
heimtir ýmis gjöld, sem fyrir-
tæki þurfa að standa skil á.
Bregði út af liggja við þung
viðurlög. Hér fara 3 dæmi:
SÖLUSKATTUR: Dragist
greiðsla leggjast 2% dráttar-
vextir á dag við söluskattsupp-
hæðina fyrstu 5 daga eftir ein-
daga, síðan 1,5% mánaðarlega.
Lokað er fyrir starfsemi sölu-
skattsgreiðanda að meðaltali 3
mánuðum eftir gjalddaga hafi
hann þá ekki staðið í skilum.
LAUNASKATTUR: Ef skatt-
urinn er ekki greiddur á ein-
daga bætist 25% álag við skatt-
inn.
GJALDHEIMTAN: Sé
greiðsla ekki innt af hendi á
eindaga falla annars ógjald-
fallnar eftirstöðvar i gjalddaga
og reiknast 3% dráttarvextir á
mánuði af þeirri upphæð.
Undan þessum greiöslum og
viðurlögum vegna vanskila
hefur fyrirtæki það, sem ég
starfa við, i sjálfu sér ekkert að
kvarta. Gamanið gæti hins veg-
ar farið af, ef getan til að greiða
þessi gjiild væri háð skilvisi
opinberra stofnana. Þá gilda
þær leikreglur, sem kötturinn
setur músinni.
Vmsar stofnanir rikis og
sveitarfélaga skipta við mitt
fyrirtæki sem iinnur. Ef svo
fer, sem stundum gerist, að ein-
hver þessara stofnana sténdur
ekki við greiðsluskuldbinding-
ar sínar, — jafnvel mánuðutn
saman, — hvar stend ég þá?
Um geta verið að ræða fjár-
hæðir, sem skipta milijónum
króna og samsvara samanlagt
greiðslu á söluskatti, launa-
skatti og öðrum opinberum
álögum fyrir heilan ársfjörð-
ung.
Má mitt fyrirtæki beita hið
opinbera sömu viðuiiögum
vegna vanskila og það myndi
beita mig?
Kggert Ilauksson
Fær initt fyrirlæki frest á
greiðslum til þess opinbera á
meðan það stetidur ekki skil á
sinu?
Svar við báðum þessum
spurriingum er nei!
Afleiðingarnar kurma að
reynast sliiðvun atvinnurekstr-
ar vegna vanskilu á siiluskatti;
lögtak vegna vanskila við (ijald-
heimtu; stiiðvun á eijendum
viirukaupalánuin vegnu van-
skila við erlenda lánadiottna.
Ailt vegna þess, að stofnanir
þess opiribera standu i‘kki skil á
upphæö, sem er st;erri en sii,
sem það á irini hjá fyrirta'kinu
í almenrium viðskiptum er
reynt að halda uppi ákveðnu
siðgæði, — en það ij- erfitt,
þegar hið opiribera kýs heldur
að neyta aflsinunai