Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977
29
Samtök ungra jafnaðarmanna á íslandi og Norðurlöndum:
Halda ráðstefnu hér
um auðlindir hafsins
RÁÐSTEFNA, sem ber nafnið
„Auðlindir hafsins" hefst að Hót-
el Loftieiðum sunnudaginn 20.
nóvember og stendur hún í sex
daga. Það eru samtök ungra jafn-
aðarmanna á Norðuriöndum,
FNSU, sem standa fyrir þessari
ráðstefnu og af tslands hálfu
Samband ungra jafnaðarmanna,
sem boðaði til blaðamannafundar
af því tiiefni Frá SUJ voru mætt-
ir Sæmundur Pétursson formað-
ur, Bjarni Magnússon og Gunn-
iaugur Stefánsson. Sögðu þeir að
SUJ hefði um alilangt skeið verið
aðili að erlendum samskiptum
ungra jafnaðarmanna innan
FNSU og IUSY, sem eru alþjóð-
leg samtök ungra jafnaðarmanna.
Fyrir tveimur árum ákvað þing
SUJ að hrinda af stað nýju átaki
er miðaði að því að stórefla þátt-
töku og áhrif SUJ á alþjóðavett-
vangi,. að því er þeir félagar
sögðu. Enn fremur að SUJ tæki
nú fullan þátt í starfi FNSU og
IUSY. Og beindist sú þátttaka i þá
átt að efla áhrif jafnaðarmanna í
islenzku stjórnmálalífi.
Ráðstefnan, sem nú verður
haldin að Hótel Loftleiðum og
FNSU og SUJ gangast fyrir, fjall-
ar um auðlindir hafsins og er
þetta í fyrsta sinn sem FNSU
gengst fyrir ráðstefnu með þátt-
tökulöndum utan Norðurland-
anna.
Um 35 erlendir fulltrúar munu
sitja ráðstefnuna frá samtökum
ungra jafnaðarmanna i Bretlandi,
Hollandi, Frakklandi, Norður-
Irlandi, Belgiú, Vestur-
Þýzkalandi, Portúgal, Möltu auk
Norðurlandaþjóðanna. Fimm aðil-
ar frá SUJ munu sitja ráðstefn-
una. Að því er kom fram á fundi
með SUJ-mönnum er markmið
ráðstefnunnar að samræma sjón-
armið ungra jafnaðarmanna um
jafnréttisskipan á hafinu.
Ráðstefnan er fjármögnuð af
10 þúsund tonn
seld af mjöli
2000 TONN FARA TIL ÍRANS
UNDANFARNA daga hefur verið
selt nokkuð af fiskmjöli úr land-
inu og eftir því sem Morgunblað-
ið kemst næst, þá hafa verið seld-
ar hátt f 10 þúsund lestir síðustu
daga, langmest af þessu mjöli er
loðnumjöl, en eitthvað hefur ver-
ið selt af þorskmjöli. Mjölið á að
fara til nokkurra landa, meðal
annars til Irans, en þangað hefur
verið gengið frá sölu á 2000 lest-
um og er ekki vitað til að mjöl
hafi áður verið selt frá tslandi til
trans.
Agætt verð hefur fengizt fyrir
mjölið eða 6.95—7.05 dollarar fyr-
ir proteineininguna. Mest af því
mjöli, sem nú var selt, verður
afgreitt á þessu hausti, en einnig
var samið um fyrirframsölu á
nokkrum þúsundum tonna af
Endurmenntun-
arnámskeið
í þjóðhagfræði
Viðskiptadeild Háskóla tslands
efnir til endurmenntunarnám-
skeiðs i þjóðhagfræði fyrir kandi-
data i viðskiptafræðum. Leiðbein-
andi er dr. Guðmundur Magnús-
son prófessor. Kennt verður á
mánudögum og fimmtudögum
klukkan 17.15—19.00 næstu fjór-
ar vikur. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast viðskiptádeild hið
fyrsta.
— Þrautgóðir
á raunastund
Framhald af bls. 2
legt, þar sem þeim fækkar sem
muna þá tíma, sem bókin fjailar
um eða hafa lifað þá atburði, sem
hér er greint frá. Því hefur í
vaxandi mæli verið leitað að rit-
Evrópska æskulýðssjóðnum, sem
kostar til hennar fimmtíu þúsund
frönskum frönkum og með þátt-
tökugjöldum þátttökulandanna.
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra opnar ráðstefnuna form-
lega, Benedikt Gröndal mun
flytja fyrirlestur, svo og Gunnar
Sætersdal frá norsku hafrann-
sóknastofnuninni.
loðnumjöli, sem á að afgreiða á
tímabilinu janúar — marz.
Það var sjávarafurðadeild Sam-
bandsins sem gekk frá sölu á
mjölinu, sem á að fara til Irans.
Ólafur Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri sjávarafurða-
deildarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að mjölið sem fara
ætti til Irans væri frá Síldarverk-
smiðjum ríkisins og væri það selt
í gegnum danskan aðila, sem síð-
an selur mjölið áfram til Irans.
Kvaðst Óláfur ekki vita til að Is-
lendingar hefðu áður selt mjöl til
Irans, en að þvi er hann bezt vissi,
þá væri mjölnotkun töluvert mik-
il þar.
Auk mjölsins, sem fer til Irans,
hefur nú verið selt mjöl til Finn-
lands, Tékkóslóvakíu og Eng-
lands.
— Vegir ruddir
Framhald af bls. 48
frétta, að Klettháls var ófær, stór-
ir bílar komust yfir Hálfdán, en
Dynjandisheiði og Hrafnseyrar-
heiði voru ófærar, ennfremur
Breiðdals- og Þorskafjarðarheiði,
Eins og fyrr segir var snjó rutt
af Norðurlandsvegi í gær til Ak-
ureyrar, og mokað var til Siglu-
fjarðar. Frá Akureyri var fært
eftir Svalbarðsströnd um Dals-
mynni til Húsavíkur, mokað var á
Tjörnesi, einnig í Kelduhverfi og
á Sléttu, þannig að fært var alla
leióinatil Raufarhafnar.
Frá Austfjörðum bárust þær
fréttir, að fært var frá Egilsstöð-
um að Fossvöllum um Hróars-
tungu, vegurinn til Borgarfjarðar
eystra var einnig fær í gær, og
Fjarðarheiði var fær stórum bíl-
um. Þá var verið að moka veginn
yfir Oddsskarð.
Síðari hluta dags í gær snjóaði
nokkuð á Suðausturlandi og var
jafnfallinn snjór á Breiðamerkur-
sandi, og var þar ógreiðfært fyrir
minni bíla, en er komið var vestur
fyrir Öræfi var góð færð til
Reykjavíkur.
— Konu dæmdar
1,5 milljónir
Framhald af bls. 48
ekki eignast börn Vaknaði grunur
um að læknisaðgerð, sem fram-
kvæmd var á konunni á Siglufirði
fyrir mörgum árum, væri orsökin.
Eiginmaður konunnar hafði sam-
band við landlækni og var mál
þetta kannað. Viðurkenndi þáver-
andi sjúkrahúslæknir að hafa
framkvæmt þessa aðgerð á kon-
unni, en hún var þá 19 ára að
aldri. Kvaðst hann hafa vanað
konuna að beiðni aðstandenda en
það mun hafa komið fram í mál-
inu, að aðgerðin var framkvæmd
eftir beiðni fórstu konunnar en
ekki aðstandenda hennar og án
vilja og vitundar konunnar sjálfr-
ar.
Jafnhliða rannsókn á málinu á
vegum landlæknis og læknaráðs
höfðaði konan eirjkamál fyrir
borgardómi Reykjavíkur og
krafðist skaðabóta og féll sem
fyrr segir héraðsdómur í því máli
ígær. _____ _ _______
— Nígeríu-
mennirnir
og skreiðin
Framhald af bls. 48
eða 152.800 ballar, en í hverjum
balla eru 4—5 kíló. Hver balli er
nú metinn á um 200 dollara,
þannig að heildarverðmæti
skreiðarinnar, sem nú liggur í
landinu, er yfir 6.4 milljarðar
sagði Magnús.
Morgunblaðið spurði Magnús
hvað hægt væri að geyma skreið-
ina lengi án þess að hún
skemmdist. Kvað hann það ekki
vitað með vissu, en á sínum tíma
hefði nokkur skreið verið geymd í
þrjú ár eða frá 1968—1971.
Þá sagði Magnús, að ef litið
væri á stöðu fiskverkunar um
þessar mundir, yrði þetta vanda-
mál ekki til að bæta stöðuna.
Mikið af skreiðinni væri veðsett
og verkendur þyrftu aö borga háa
vexti af lánunum og enginn vissi
hve langur tími liði þar til
skreiðin færi úr landi.
— Prófkjörið
Framhald af bls. 48
staðaatkvæðagreiðsla alla vikuna
og hafa í henni á annað hundrað
manns þegar greitt atkvæði, en
henni verður síðan haldið áfram
um helgina. Á meðan kosning
stendur yfir er starfrækt sérstök
upplýsingamiðstöó og eru þar
veittar allar nauðsynlegar upplýs-
ingar, sem varða prófkjörið. Sími
upplýsingamiðstöðvarinnar er
82900.
Að lokum skal þess getið, að
kjósendur í prófkjörinu skulu
greiða atkvæði á kjörstaó þess
hverfis þar, sem þeir áttu lög-
heimili 1. desember 1976, en þeir
er öðluðust lögheimili i Reykjavík
eftir 1. desember 1976 skulu
greiða atkvæði í þvi kjörhverfi,
sem þeir eru búsettir í.
— Frjálsræði í
verðmyndun
Framhald af bls. 19
flokkurinn, sem er þess megnug-
ur að hafa forystu um frelsi i
viðskiptum, sem kemur öilum at-
vinnuvegum til góða, en er þó
fyrst og fremst öllum almenningi
til hagsbóta.
1 lok fundarins mælti Björn
Guðmundsson nokkur orð og fjall-
aði um tillögur iðnrekenda, sem
komið höfðu til tals eins og getið
er hér að framan og sagði, að
iðnaðurinn þyrfti á að halda góðu
dreifingarkerfi og nauðsynlegt
væri að gagnkvæmur skilningur
rikti milli kaupmanna og iðnaðar-
ins. Hann sagði, að iðnaðurinn
gerði aðeins kröfu til jafnréttis.
Um það snérust kröfur iðnrek-
enda. Þeir vildu jafnrétti gagn-
vart innlendum og erlendum aðil-
um.
Bikarmót Fimleikasambands íslands
Bikarmót 3ja deild verður sunnudaginn 20. nóv. kl. 15 í íþróttahúsi
kennaraháskólans. Komið og sjáið spennandi keppni.
F.S.Í.
r
uðum heimildum, en einnig þær
hafa verið af nokkuð skornum
skammti.'* Aö lokum þakkar
Steinar forystumönnum slysa-
varnadeilda víða um land, sem
hafi lagt mikið og óeigingjarnt
liðsinni við samningu ritverksins.
Bókin er 189 bls. og prýdd
mörgum myndum. Hún var filmu-
sett í Prentstofu G. Benediktsson-
ar, prentuð í Offsettækni en káp-
an, sem Hilmar Þ. Helgason gerði
í Prenttækni. Arnarfell hf. sá um
bókband.
- Fundinum
var lokað
Framhald af bls. 2
þess að tilnefna eftirmenn
sina. Á þessum lokaða fundi
var siðan höfð skoðanakönnun
um það hvern fundarmenn
vildu fá til að gegna forystu-
störfum i flokkinum næstu ár-
in. Niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar eiga að vera leyni-
legar.
í
8
J L
MIKLABK.
—I CT"
fcPW | HÖtÐABAKKt 9
opio
HUS!
Opið hús í dag
frá kl. 10—16.
Komið og skoðið hin ýmsu framleiðslustig
við gerð leirmuna.
Matar- og kaffisett, blómapotta,
skrautlampa, vasa, platta, öskubakka
og m.fl.
GLIT
HÖFÐABAKKA 9.
SÍMI85411.
ák
Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík
PÁLL S. PÁLSS0N
Kosningaskrifstofan að Bergstaðastræti 14, 2. hæð er opin allan laugardaginn
og sunnudaginn. Símar 24200 — 23962. stuðniimgsmeivin