Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
2t)«r0unl>U)bit>
AUGLYSINCASÍMrNN ER:
22480
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
Nígeríumenn;
Neita að taka við skreið
fyrir 6,5 milljarða króna
STJÓRNVÖLD í Nfgerfu hafa neitað að taka við 153 þúsund böllum af
skreið frá Islandi að verðmæti hátt f 6.5 milljarða króna, en á s.I. ári
voru samningar undirritaðir f Nfgerfu um sölu á þessari skreið
þangað. Atti skreiðin að afgreiðast á þessu ári, en er á leið sumarið
kom f Ijós, að Nfgeríumenn ætluðu ekki að standa við gerða samninga.
Frá þeim tfma hafa fulltrúar íslenzku seljendanna dvalið langtfmum
saman f Lagos f Nfgerfu og rætt við þarlenda ráðamenn vegna þessa
máls. Nú sfðast voru f Nígerfu Sigurður Bjarnason sendiherra, Bjarni
Aldrei fleiri árekstrar
MIKIÐ var um árekstra i hofuðborginni i gær og á timabilinu frá kl. 6 i gærmorgun fram til kl. 23 urðu árekstrar
alls 45 og er ekki vitað til þess a8 fleiri árekstrar hafi orSið á einum degi. Flest urðu óhöppin skömmu eftir
hádegi, en þá var mikil hálka á götum borgarinnar. Skömmu eftir hádegiS komu 8 árekstraútköll á skömmum
tima. og gat lögreglan ekki sinnt öllum útköllunum i einu. í flestum tilfellum var um litlar skemmdir að ræða og
slys á fólki voru ekki teljandi.
Myndina hér að ofan tók RAX yfir ein af gatnamótum borgarinnar i hriðarmuggunni i gær.
Magnússon frá Islenzku umboðssölunni og Bragi Eirfksson frá
Skreiðarsamlaginu. Ræddu þeir við fjölda ráðamanna f Nígerfu, þar á
meðal nokkra ráðherra, án þess að nokkuð gengi. 1 gærmorgun ræddu
þeir við ráðherra þann, sem fer með skreiðarmálin, og að þvf er
Morgunblaðinu var tjáð f gær, kom fram hjá ráðherranum, að ekki
yrði tekið við skreiðinni að sinni, en athugandi væri að taka upp
viðræður á ný á næsta ári. Að loknum þessum fundi lögðu tslendingar
af stað heim.
„Þau tíðindi, sem nú hafa borizt
frá Nigeríu, eru ekki gleðileg, en í
bili er ekki mikið hægt að gera og
mér er ekki kunnugt um neinn
tiltækan markað, sem getur tekið
við þessari afurð,“ sagði Olafur
Jóhannesson viðskiptaráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
„Ég vil ekki spá neinu um fram-
haldió fyrr en sendinefndin frá
Nigeríu er komin heim og hefur
gefið skýrslu um viðræðurnar.
Samningurinn er i gildi, það fer
ekki á milli mála, og því tel ég
hugsanlegt að hægt sé að láta
þetta mál fara i einhvers konar
gerðardóm, en áður en farið
verður að hreyfa frekar við mál-
inu þarf skýrslu framleiðenda, “
sagði Ólafur Jóhannesson.
Magnús Friðgeirsson hjá
sjávarafurðadeild Sambandsins,
en sjávarafurðadeildin er þriðji
söluaðili skreiðarinnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að upphaflega hefði verið gengið
frá þessum skreiðarsamningi við
Nígeríu á s.l. ári og lengi vel hefði
allt virzt vera með felldu, eða þar
til útflutningur átti að hefjast.
— Magnið sem hér er um að
ræða eru 37.800 ballar af fram-
Ieiðslu siðasta árs og 115 þúsund
ballar af þessa árs framleiðslu,
Framhald á bls. 29.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Kosið á 7 kjörstöðum
víðsvegar um bæinn
Sjá nánar upplýsingar I fjórblöðungi.
PRÓFKJÖR Sjáifstæðisflokksins
f Reykjavfk hefst f dag klukkan
14.00 á sjö kjörstöðum í bænum
og verður kosið fram á mánudags-
kvöld. Atkvæðisrétt í prófkjörinu
hafa allir stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins í alþingiskosning-
Vegir víða
ruddir í gær
FÆRÐ ER nú vfðast hvar þung á
vegum landsins, en víða var rutt f
gær, og varð þá fært milli Reykja-
vfkur og Akureyrar og reyndar
allt austur á Sléttu.
A Vesturlandi var víða jafnfall-
inn snjór, en hvergi það mikill að
vegir yrðu ófærir á láglendi. Hins
vegar var hætta á hálku ef frysti.
í gær var vegurinn yfir Fróðár-
heiði ruddur og eins um Kerling-
arskarð, fært var um Heydal vest-
ur í Reykhólasveit.
Af Vestfjörðum var það að
Framhald á bls. 29.
um, sem náð hafa 20 ára aldri 25.
júní 1978 og lögheimili eiga í
Reykjavfk, einnig meðlimir sjálf-
stæðisfélaganna f Reykjavík, sem
ná 18 ára aldri 25. júní 1978 eða
fyrr og eiga lögheimili í Reykja-
vfk.
Kjörstaðir verða eins og áður
sagði sjö talsins eftirtöldum
stöóum: KR-heimiIinu við Frosta-
skjól; Grófinni 1; Templarahöll-
inni við Eiriksgötu; samkomusal
Kassagerðar Reykjavíkur við
Kleppsveg; Valhöll við Háaleitis-
braut 1; Verksmiðjunni Vxfílfelli
við Dragháls í Árbæjarhverfi og i
Breiðholti, á Seljabraut 54.
Til þess að kosning verði bind-
andi fyrir kjörnefnd þurfa rúm-
lega 8000 manns að taka þátt í
prófkjörinu og auk þess þurfa
einstakir frambjóóendur að fá
minnst 50% greiddra atkvæða. I
sambandi við útfyllingu atkvæða-
seðils skal það tekið fram, að á
atkvæðaseðli er nöfnum fram-
bjóðenda raðað eftir starfrófsröð.
Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur
og flest 12, en það skal gert með
því að setja kross fyrir framan
nöfn frambjóðenda.
I dag, laugardag, og á morgun
verða - kjörstaðir opnir frá
14.00—19.00, en á mánudag verð-
ur aðeins kosió í Valhöll og opið
frá klukkan 15.30—20.30, en þeg-
ar hefur farið fram utankjör-
Framhald á bls. 29.
Launahækkun 1. desember n.k.;
ASÍ-laun hækka um
14.319 kr. - BSRB-
laun hækka frá kr.
14.428 til 38.819 kr.
KAUPLAGSNEFND hafur reiknað út verðbólgubætur, sem koma á
laun 1. desember n.k.. Mánaðarlaun samkvæmt samningum ASt og
VSt hækka um 9.319 krónur og einnig kemur til útborgunar 5000
króna hækkun, sem samið var um að kæmi 1. desember n.k.: samtals
hækka launin þvf um 14.319 krónur. Laun opinberra starfsmanna
hækka um 14,02%: það er 9,63% verðbólgubætur 1. desember, eins og
hjá hinum, en auk þess koma 4% verðbólgubætur fyrir tfmabilið fram
að 1. september, sem aðrir voru búnir að fá, en opinberir starfsmenn
eru nú f fysta skipti að fá greidd laun samkvæmt samþykktum
samningum sfnum. Þannig hækka laun lægsta taxta BSRB um 14.428
krónur, 5. flokkur hækkar um 16.740 krónur, 10. flokkur um 20.293
krónur, 15. flokkur um 24.270 krónur, 20. flokkur um 28.247 krónur,
25. flokkur um 33.105 krónur og 31. og efsti flokkurinn hækkar um
38.819 krónur.
Til þessara útreikninga notar
kauplagsnefnd svokallaða verð-
bótavísitölu, sem er miðuð við 100
stig 1. mái sl. Þessi vísitala er 1.
desember 114,02 stig, sem er 10.02
stiga hækkun frá 1. september, en
það þýðir 9,63% hækkun.
Samkvæmt ASI-samningunum
eiga mánaðarlaun að hækka um
930 krónur fyrir hvert sitg, sem
verðbótavísitalan hækkar, en það
gerir 9.319 króna kækkun á
og samsvarandi
koma á viku- og
mánaðarlaun
hækkun á að
tímakaup.
A tímabilinu til 1. september
hækkaði verðbólguvísitalan úr
100 í 104 stig, sem félagar ASl
fengu bætt 1. september, en
BSRB-félagar fá nú inn i sin laun
sem fyrr segir.
Konu dæmdar 1,5 milljón-
ir kr. í bætur vegna vön-
unar án hennar
DÓMUR var kveðinn upp f borg-
ardómi Reykjavfkur f gær f máli,
sem kona ein höfðaði á hendur
sjúkrahúsinu í Siglufirði og
sjúkrahúslækni vegna vönunar,
sem framkvæmd var á konunni f
sjúkrahúsinu án vitundar hennar
sjálfrar að þvf er hún sjálf hélt
fram. Niðurstöður dómsins urðu
þær, að læknirinn og bæjarsjóður
Siglufjarðar f.h. sjúkrahússins
vorú dæmdir til þess að greiða
konunni 1.5 milljónir króna f
bætur auk vaxta frá 4. febrúar
1972.
Þá voru læknirinn og bæjar-
sjóður dæmdir til þess að greiða
250 þúsund krónur í málskostnað,
en þar sem gjafsókn var í málinu,
mun ríkissjóður greiða konunni
málskostnaðinn. Dóminn kvað
upp Friðgeir Björnsson borgar-
dómari. Magnús Thorlacius hrl.
flutti málið f.h. konunnar, Logi
Guðbrandsson hrl. f.h. læknisins
og Hörður Einarsson hrl. f.h. bæj-
arsjóðs Siglufjarðar.
Umrædd kona giftist fyrir
nokkrum árum og þegar hún gat
Framhald á bls. 29.