Morgunblaðið - 06.04.1978, Blaðsíða 48
\t <;IASIV; \SIMIN\ ER:
22480
iWorfliinWnötí)
jrcgipttitMftfrifr
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1978
Loftleidadeilan:
Félagsdómur sker
úr í vísitölumálinu
Flugmenn aftur til starfa eft-
ir sólarhrings-vinnustöðvun
FLUGMENN Loftleiða ákváöu í gærkvöldí aö hefja aftur vinnu eftir
sólarhringsvinnustöövun vegna ágreinings um launauppbætur samkvæmt
vísítölu, en deiluatriöi petta verður lagt fyrir Félagsdóm. Vegna
skyndivinnustöövunar flugmanna Loftleiða í fyrradag tepptust 500 farpegar
á landinu og samkvæmt upplýsingum sem stjórnarnefnd Flugleiða veitti
blaðamönnum um gang mála í gær er fjárhagslegt tjón Flugleiða vegna
pessara 500 farþega alls 44 millj. kr., en um er aö ræða hótelkostnað, auka
flugfargjöld og sitthvað fleira.
Flugmenn Loftleiöa sendu Flugleiðum í gær bréf par sem peir kváöust
mundu hefja vinnu aftur ef Flugleiðir féllust á að greiöa peim fullar
vísitölubætur, en deilumálið yröi jafnframt lagt fyrir Borgardóm
Reykjavíkur. Flugleiðir svöruöu flugmönnum um miðjan dag í gær og
kváðust reiðubúnir að leggja málið fyrir Félagsdóm eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær og féllust flugmenn á það og tilkynntu að peir myndu
hefja vinnu aftur. Flugleiðir munu pví ekki greiða fullar vísitölubætur að
kröfu flugmanna, en Félagsdómur mun skera úr um málið. Þotur Flugleiða
hefja aftur flug í dag.
Á blaðamannafundi stjórnar-
nefndar Flugleiða sögðu stjórnar-
menn að vísitölumáliö væri aðeins
hluti af stærra máli sem um væri
deilt í sambandi við kjarasamninga
og fleiri atriði í rekstri Flugleiða.
Nefndu Þeir kröfur flugmanna
Loftleiöa um að fá störf hjá Air
Bahama, ósamræmi í starfsaldurs-
skiptingu, sjálfan kjarasamninginn
og jafnframt kváðust peir hafa gert
flugmönnum grein fyrir pví að staða
félagsins væri ekki sterk um pessar
mundir og félagiö gæti ekki starfaö
á peim grundvelli aö eiga stöðugt
yfir höfði sér ólöglegar vinnustöðv-
anir.
Örn Ó. Johnson lýsti því yfir í
upphafi fundarins aö íslendingar
aettu heimtingu á því að fá greinar-
góðar upplýsingar um gang mála og
stöðu þegar samgöngur við landið
lömuöust, því slíkt væru alvarlegir
atburðir. Kvað Örn vinnustöðvun
flugmanna hafa komið Flugleiðum í
opna skjöldu, því kjarasamningar
stæðu yfir við flugmenn og hefði
verið fundur í fyrradag þegar vinnu-
stöðvunin var tilkynnt fyrirvaralaust
og þá hefði verið búið að boða annan
fund í dag.
Örn kvað flugmenn Flugleiöa hafa
fengið vísitöluuppbætur samkvæmt
framfærsluvísitölu, en munur á henni
og verðbótavísitölu er um 1% og er
framfærsluvísitalan hærri, en hins
vegar kvað hann túlkun þeirra á
efnahagsráöstöfunum ríkisstjórnar-
innar vera þá að lögin ættu aö ná til
allra verðbóta og því eðlilegt að þau
komi jafnt niður á öllu starfsfólki
Flugleiða sem annarra landsmanna.
Framhald á bls. 26
Bandarískir skólanemar á Keflavíkurflugvelli í gær að taka flugvél til London til þess að komast þá
leið til Bandarikjanna, en skólafólkið var á vesturleið í fyrradag með Loftleiðaþotu sem „strandaði“ á
Keflavíkurflugvelli vegna vinnustöðvunar flugmanna. Á minni myndinni er breiðþota frá Finnair sem
kom við á Keflavíkurflugvelli í gær á leið vestur um haf og tók liðlega 200 Loftleiðafarþega. Finnska
þotan er þarna að hefja sig til flugs en stélið til vinstri er af Loftleiðaþotu á hlaði flugstöðvarinnar
í Keflavik. Sjá bls. 24 og 25. Ljósm. Mbl.i Ól.K.M.
VMSÍ um framkvæmd útflutningsbanns:
Ef togararnir sigla, biðjum
við um löndunarbann erlendis
Vinnuveitendur bíða og sjá framkvæmd bannsins áður en gagnráðstafanir verða ákveðnar
„EF fryslihús eða útgerðaraöilar
hugsa sér að bjarga sér meö pví að
láta togara sigla með afla, pá er
Ijóst að erlendir fiskmarkaðir þola
ekki allan togaraflotann, en verði
brögð að því, munum við beita
okkur fyrir því að afgreiðsta veröi
stöðvuö á íslenzkum fiskiskipum
erlendis. Hafa ráðstafanir veriö
gerðar til þess að hafa samband við
félaga okkar í Þýzkalandi, Bretlandi
og í Færeyjum, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambands íslands, á blaða-
mannafundi í gær en tilkynnt var
útflutningsbann, sem taka á gildi
dagana 12., 13., 14. og 15. apríl
næstkomandi. Ólafur Jónsson, for-
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra:
títflutningsbann til þess fallið
að eyðileggja markaði erlendis
— og bitnar fyrst og síðast á þeim sem að standa
GEIR Hallgrímsson, for-
sætisráðherra, sagði í við-
tali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, um þá ákvörðun
verkalýðssamtakanna að
efna til útflutningsbanns,
að það væri til þess fallið að
eyðileggja markaði fyrir
afurðir okkar eriendis og
mundi fyrst og síðast bitna
á þeim, sem að því standa.
Forsætisráðherra sagði
ennfremur, að hann gæti
ekki orða bundizt um þau
áform Verkamannasam-
bandsins að ætla að hvetja
til löndunarhanns á íslenzk-
um fiski í nágrannalöndum
okkar. í þrjá áratungi höf-
um við barizt fyrir því,
samhliða útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar, að eiga ó-
hindraðan aðgang að þess-
um mörkuðum, sagði Geir
Hallgrfmsson, og þvf tak-
marki er nú náð. Það væri
sorglegt, ef fslenzk verka-
lýðshreyfing yrði fyrst til
þess að spilla þeim árangri
og banna fslenzkum sjó-
mönnum að bjarga sér.
Forsætisráðherra sagði, að
efnahagsráðstafanir ríkis-
Framhald á bls. 27
maður Vinnuveitendasambands is-
lands, sagðí í gær að vinnuveitend-
ur hefðu engar gagnráðstafanir
ákveðið enn. Þeir vildu fyrst sjá
hvernig útflutningsbannið yrði út-
fært. Þá er ákveðinn fundur vinnu-
veitenda með ríkisstjórn á morgun
klukkan 16, þar sem til umræðu
veröur samningagerðin og viðræður
þeirra við ASÍ.
Þeir forystumenn VMSÍ, sem sátu
fundinn með blaðamönnum, voru
Guðmundur, Karl Steinar Guðnason,
varaformaður sambandsins, Þórir
Daníelsson, framkvæmdastjóri þess,
og Haukur Már Haraldsson, blaða-
fulltrúi Alþýöusambands islands. Þeir
félagar lögðu áherzlu á að með
þessari aðgerð, útflutningsbanni,
væru þeir alls ekki að stöðva
atvinnurekstur, heldur aöeins flutn-
inga frá landinu á afurðum. Hins
vegar kvað Guðmundur J. Guð-
mundsson áhrifin af banninu verða
ákaflega margþætt. Hann kvaö sölur
á mjöli vera aö hluta til bundnar viö
ákveðnar dagsetningar hvað afhend-
ingu viðkemur og því væri hætta á aö
samningar um sölurnar rynnu út, ef
afhending gæti ekki átt sér stað. Þá
nefndi hann aö saltfiskur þyldi illa aö
standa í pokum, hann rýrnaði, en
hins vegar myndi VMSÍ haga fram-
kvæmd útflutningsbannsins þannig,
að framleiðsla sjávarafurða stöðvað-
ist ekki fyrr í einu byggöarlagi en
öðru.
Guðmundur kvaö mikinn kostnað
fylgja því að starfrækja álverksmiðju
en geta ekki selt afurðirnar og Ijóst
væri að útflutningsbann hefði gifur-
leg áhrif, þegar fram í sækti.
Fjárstreymi til landsins stöövaðist og
kostnaður atvinnurekstursins, vaxta-
greiðslur af birgðum, myndi marg-
faldast og verða margfalt hærri en
það myndi kosta atvinnureksturinn
að greiða fullar vísitölubætur. Banniö
myndi hrífa strax, en áhrifin færu
vaxandi með hverjum degi sem liði.
Bannið stöðvaði hins vegar engan
rekstur strax.
Blaðamönnum var á fundinum
Framhald á bls. 26
Eyjabát
urmeð
50 tonn
VESTMANNAEYJABATAR hafa
aflað mjög þokkalega undanfar-
ið og sólarhringsaflinn hjá neta-
og trollbátum veriö milli 400 og
500 tonn síðustu dagana, að
sögn Stefáns Runólfssonar,
framkvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar í Eyjum.
Fiskurinn sem veiðist er góöur
þorskur og vænni en menn hafa
átt aö venjast á síöustu tyeimur
vertíðum. Afli netabátanna í gær
var 10 til 20 tonn, en aflinn daginn
þar áður var enn betri, en þá kom
t.d. Þórunn Sveinsdóttir að landi
með 50 tonn af fiski, að vísu 2ja
nátta en sem fengizt hafði eftir
eina lögn. Sagði Stefán að slíkur
afli hjá bát væri orðinn næsta
sjaldgæfur.