Morgunblaðið - 07.05.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.05.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1978 # / Megas klæddur og kom- inn á ról. Megas á megin- landinu Þessa dagana er Megas á hljómleika- ferðalagi í Evrópu. Sam- tök íslendinga í Kaup- mannahöfn, Árósum og Lundi buðu Megasi í þessa reisu og stendur hún í þrjár vikur. Á þessum tíma mun Megas halda hljómleika á slóðum fyrrnefndra íslendingasamtaka og auk þess væntanlega í Ósló, Stokkhólmi og París. Nýlega lauk Megas við fimmtu hljómplötu sína. Ber hún nafnið „Nú er ég klæddur og kominn á ról“ og hefur að geyma íslensk barna- lög, eins og Slagbrandur hefur áður getið. Platan er væntanleg á markað í byrjun júní. - SIB S________________J Káttí þrátt fyrir efaraddir um gæði hljóm- sveitarinnar Stranglers Það virtust skiptar skoðan- ir um ágæti rokkhljómsveit- arinnar Stranglers sem þrumaði yfir íslenskum ung- mennum í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið. Með því að þenja raddböndin hressi- lega tókst undirrituðum að kanna hug nokkurra gesta til hljómsveitarinnar meðan á leik hennar stóð og fylgja hér nokkur svör: „Já, þeir eru svo sannar- lega góðir." Af hverju? „Nú það er trukkið; finnurðu ekki trukkið maður?“ „Þeir eru hálf krumpaðir greyin. Ég kann ekki að meta þetta.“ „Sannkallaðir stuðkallar og skemmtilegir á sviði.“ „Ekki eins góðir hljóðfæra- leikarar og ég hélt, Póker eru betri.“ „Ég veit það ekki. Annars lætur maður svona lagað ekki fram hjá sér fara. Það er ekki á hverjum degi, sem er boðið upp á popphljómleika hér á íslandi." Hljómsveitin Póker komst vel frá sínu, þrátt fyrir slæma hljóðblöndun í byrjun. Þeir hefðu þó mátt vera hressari á sviðinu en sem hljóðfæraleikarar voru þeir mun betri en erlendu gestirnir. Bassa leikarinn og gítaristinn þeir Jean- Jacques Burnel og Ilugh Cornwell voru hinir líf- legustu á svið- inu. Leikfimi þeirra átti sinn þátt í því, að ná upp stemmn- ingunni. Ljósm. RAX Yngri krökkunum þótti greinilega meira til hljóm- sveitarinnar koma en þeim eldri, sem margir hverjir létu sér fátt um finnast. Engu að síður var skemmtilegt and- rúmsloft ríkjandi í Höllinni þetta kvöld — það var eins og fólkið væri staðráðið í því að skemmta sér, hvað seta á dyndi. Framan til í salnum mátti sjá hópa af vel skreyttu fólki í „ræflastíl", hampandi aðalsmerkinu þ.e. nælunni, og út með veggjum var stiginn dans af mikilli innlif- un. Grínistarnir Halli og Laddi byrjuðu hljómleikana og vöktu kátínu að vanda. Þeir hafa líklega aldrei verið betri en nú. Þá gengu Þurs- arnir á sviðið, þó ekki til að leika heldur til að boða forföll. Hvað sem segja má um ákvörðun þeirra var alla vega heiðarlega að henni staðið — þeir láta greinilega ekki bjóða sér hvað sem er. Um samningsbrot var að ræða, þar sem þeir fengu ekki að stilla saman hljóð og hljóðfæri fyrir hljómleikana. Hins vegar létu strákarnir í Eftirvæntingin leynir sér ekki í augum unglinganna við skemmtu sér konunglega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.