Morgunblaðið - 01.06.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
11
ólafur Þ. Kristjánsson
Ólafur Þ.
Kristjáns-
son for-
maður Ætfc-
fræði-
félagsins
ÆTTFRÆÐIFÉLAGIÐ hélt aðal-
fund sinn hinn 25. apríl s.l. Þar
kom fram að setning á 1. bindi af
manntalinu 1801 er um það bil
hálfnuð. en félagið hefur með
höndum útgáfu þess. Þetta bindi
nær yfir Suðuramt frá Lónsheiði
að Hvítá í Borgarfirði, en á því
landsvæði bjuggu um 17 þúsund
manns árið 1801. Gert er ráð
fyrir að manntalið allt verði þrjú
bindi.
Manntal þetta er elsta
allsherjarmanntaí okkar næst
manntalinu frá 1703 og hin
merkasta heimild, ekki aðeins
ættfræðilega heldur engu að síður
hagfræðilega á margan hátt, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá félaginu. Félagið hefur áður
gefið út manntal frá 1816, en það
er ekki til úr nærri öllum sóknum
á landinu. í manntalið frá 1801
vantar hins vegar ekkert.
Skýrt var frá því á fundinum að
Námsflokkar Reykjavíkur hefðu
staðið að tveim námskeiðum í
ættfræði á síðastliðnum vetri, en
slíkt námskeið er alger nýjung hér
á landi og þótt víða væri leitað.
Ekki voru námskeið þessi ætt-
fræðifélaginu viðkomandi að öðru
en því að formaður félagsins var
þar leiðbeinandi. Alls sóttu nám-
skeiðin 42 menn á öllum aldri, en
konur í miklum meiri hluta.
Á aðalfundinum flutti Sigurgeir
Þorgrímsson erindi um Ólaf Snók-
dalín ættfræðing og ættabækur
hans.
Stjórn félagsins var endurkosin,
en hana skipa þeir Ólafur Þ.
Kristjánsson formaður, Bjarni
Vilhjálmsson, Jakobína Péturs-
dóttir, Jóhann Gunnar Ólafsson og
Pétur Haraldsson.
Félagsmenn í Ættfræðifélaginu
geta allir orðið sem áhuga hafa á
ættfræði og vilja hlynna að henni
og útgáfu heimildarrita um þau
efni.
Jeppakeppni
álaugardag
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
heldur sína árlegu jeppakeppni
n.k. laugardag austan við Hellu
við Varmadalsía'k. í keppninni er
keppt um veglegan verðlaunabik-
ar, verðlaunapeninga og peninga-
verðlaun. Þegar hafa nokkrir
skráð sig til keppni, segir í frétt
frá Flugbjörgunarsveitinni.
Alyktanir Bandalags
íslenzkra listamanna
EFTIRFARANDI ályktanir voru
samþykktar á aðalfundi Banda-
lags íslenzkra listamanna nýver-
iði
Stuðningur við
Alþýðuleikhúsið
Aðalfundur Bandalags íslenskra
listamanna, 7. maí 1978, bendir á
það að full þörf er hér, ekki síður
en annars staðar, á frjálst starf-
andi leikhúshópum.
I framhaldi af því krefst aðal-
fundur B.I.L. þess að fjárveitinga-
valdið geri þegar skyldu sína og
veiti fé til Alþýðuleikhússins svo
að það geti starfað áfram.
Stuðningur við
Leikfélag Akureyrar
Aðalfundur Bandalags íslenskra
listamanna, 7. maí 1978, vekur
athygli á fjárhagsvandræðum
Leikfélags Akureyrar en nú er svo
komið að forráðamenn leikhússins
sjá vart aðra leið færa en leggja
niður atvinnuleikhús á Akureyri.
Aðalfundurinn beinir því til
bæjarstjórnar Akureyrar og fjár-
veitinganefndar Alþingis að
tryggja það að atvinnuleikhús á
Akureyri leggist ekki niður.
Þá hvetur B.I.L. stjórn Leikfé-
lags Akureyrar til að láta ekki af
baráttunni fyrir tilveru leikhússins
og heitir fullum stuðningi sínum í
þeirri baráttu.
Ályktun um uppsögn
Dómkirkjuorganleikarans
Aðalfundur Bandalags íslenskra
listamanna, 7. maí 1978, harmar að
Ragnari Björnssyni skuli hafa
veríð sagt upp störfum við Dóm-
kirkjuna. Átelur fundurinn hvern-
ig að þessari uppsögn var staðið og
skorar á forráðamenn kirkjunnar
að endurskoða afstöðu sína til
þessa leiðindamáls.
Til sölu — Til leigu
Til sölu er aöstaða ffyrir nokkrar verzlanir í verzlunarhúsinu Haffnarstræti 20
(Lækjartorg).
Ennffremur er til leigu aöstaöa ffyrir veitingarekstur á 1. hæö hússins.
Þá er til leigu aöstaöa ffyrir verzlanir á 2. hæö hússins.
Á 3. hæö hússins veröur leigt út 300 til 400 fermetra húsnæöi. Hér er um
aö ræöa aöstööu sem á sér enga hliöstæöu í borginni.
Þeir sem áhuga haffa á aö kynna sér húsnæöi Þetta vinsamlegast haffi
samband viö skrifstoffu Eignamarkaösins Austurstræti 6, Reykjavík. Steffnt er
aö bví aö opna verzlanir og veitingarekstur í húsinu í nóvember 1978.
=jr; •
1 l nHMIWlli |
§P VCRZLUN 2
1 I
♦
1
Ath. verzlunaraöstaöan
er í eftirtöldum stæröum
Nr. 1 er 67.12 fermetrar.
Nr. 2 er 62.04 fermetrar.
Nr. 3 er 32.88 fermetrar.
Nr. 4 er 67.24 fermetrar.
Nr. 5 er 68.83 fermetrar.
Nr. 6 er 42.37 fermetrar.
Eigna* •
markaðurinn
Austurstræti 6, s. 26933 og 26113.
s