Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978 23 Heilbrigðisþjónustan: Samstarf og samhæf- ing sjúkrastofnana Sænskir sérfræðingar um skipulag heilbrigðismála væntanlegir Fyrir skemmstu Kekkst Fé- lag lorstöðumanna sjúkrahúsa fyrir ráðstefnu um heilsuhaíf fra'ði. sem kunnir sænskir og bandarískir sérfræðingar fluttu fyrirlestra á. Ráðstefnan hefur vakið verðskuldaða at- hygli og umfjöllun í fjölmiðl- um. m.a. nokkur hlaðaskrif. Af þessu tilefni sneri Mbl. sér til Davíðs Gunnarssonar. aðstoð- arframkvæmdastjóra ríkisspít- alanna. og bað hann að gera grein fyrir félaginu. ráðstefn- fjárveitingarvald og stjórnun heilbrigðismála, ekki sízt bætta starfsaðstöðu og upplýsingaöfl- un við ákvarðanatöku. Hér væri og kveikjan að þeirri ráðstefnu um heilsuhagfræði, sem félag forstöðumanna sjúkrahúsa heitti sér fyrir, og kunnir sænskir og bandarískir sérfræð- ingar á þessu sviði fluttu fyrirlestra á. Hvað er heilsuhagfræði? Jú, heilsuhagfræðí er fræði- grein, úrvinnsla tiltækra stað- reynda og þekkingar, sem hjálpa á stjórnmálamönnum að ákvarða, hve stórum hluta þjóðartekna skuli varið til heil- brigðismála, — og stjórnendum heilbrigðismála og heilbrigðis- stofnana að ákvarða, hvern veg fjárveitingum til heilbrigðis- mála skuli skipt innan heil- brigðisgeirans. Heilsuhagfræði er safn fræðilegra aðferða, sem nýta má við verkefnaval og verkefnaröðun (forgangsröðun verkefna) í þessum þætti samfé- lagsþjónustunnar. Nei, heilsuhagfræðin metur ekki líf fólks til peningaverðs. Henni tengjast að vísu þjóðfé- lagslegar staðreyndir um heil- brigðisarðsemi. Heilbrigðis- þjónustan lengir starfsævi manna og fækkar fjárvistardög- um frá starfi í þjóðarbúskapn- um. En hlutur hennar í aukinni vellíðan og lífshamingju ein- staklinganna verður ekki mæld- ur í krónum. Heilsuhagfræði er fræðigrein, sem stuðlar einfald- lega að sem hyggilegastri nýt- ingu takmarkaðs fjármagns á afmörkuðu en afgerandi sviði samfélagsins. íslenzkt dæmi til skýringar , Ég man t.d. eftir fyrirburði, Davíð Gunnarsson. aðstoðar- framkvæmdastjóri ríkisspítal anna. Rætt við Davíð Gunnarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóra ríkisspítalanna, um heilsuhag- fræði o.fl. Nýíætt barn í öndunarvél. unni og helztu atriðum heilsu- hagfræðinnar. Félag for- stöðumanna sjúkrahúsa Davíð Gunnarsson sagði til- gang félagsins vera, eins og segði í lögum þess, að stuðla að samstarfi forstöðumanna, er sjá um rekstur sjúkrahúsa, elli- heimila, heilsugæzlustöðva og hliðstæðra stofnana, með funda- höldum og annarri upplýsinga- starfsemi í þágu stofnananna og félagsmanna. Starfsemi félags- ins hefði verið í þessum anda: að stuðla að aukinni þekkingu og hæfni framkvæmdastjóra sjúkrahúsa, yfirlækna og hjúkr- unarstjóra á sviði stjórnunar- fræða. í þeim tilgangi hefði félagið ráðist í útgáfu tímarits, sem fjallaði um stjórnunarmál heilbrigðisstofnana. Einnig hefði félagið staðið fyrir ráð- stefnuhaldi um ýmsa þætti heilbrigðismála. Davíð sagði félagsmenn u.þ.b. 25 — en með tilkomu nýrra heilsugæzlustöðva mætti búast við fjölgun þeirra í næstu framtíð. Fimmfölduð heil- brigðisútgjöld frá 1950 Aðspurður um útgjöld heil- brigðisstofnana sagði Davíð að þau hefðu fimmfaldast að raun- verulegu verðgildi á árunum 1950—1977. Á sama tíma hefði þjóðarframleiðsla og einka- neyzla tvöfaldast, svo saman- burður væri gerður. Á þessu tímabili hefði barnadauði staðið í stað, en hann væri hér á landi einna lægstur í heiminum, og meðalaldur einnig verið sá sami, einkum síðari hluta tímabilsins. Þetta væri svipuð þróun og orðið hefði annars staðar á Norður- löndum. Útgjaldaaukning í heilbrigð- isþjónustu hefði kallað á vax- andi umræðu um heilsugæzlu, bæði hjá þeim er fara með Kleppsspítalinn. sagði Davíð, sem lá í gjörgæzlu- deild Landspítalans fyrir fáum misserum. Þá var þar engin öndunarvél fyrir börn. Líf þessa barns gat oltið á því, hvort keypt yrði slík vél fyrir um 2 m.kr. Þá var það ekki heilsuhag- fræðileg spurning, hvort slíka vél skyldi kaupa eða ekki. Það varð einfaldlega að gera. Ég geri ráð fyrir að skoðanir hvorki séu né verði skiptar í slíkum tilfell- um. Þáð eru fjölmörg atriði, sem hafa áhrif á aðgerðir í heilbrigð- ismálum, önnur en rekstur heilbrigðisstofnana. Ég get nefnt sem dæmi fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði slysavarna. Tiltekin slysategund kann að vera mun tíðari í einu landi en öðru, einum landshluta en öör- um. Heilsufræöileg athugun og samanburður geta e.t.v. sýnt fram á, hvar skórinn kreppir að, þar sem slysatíðnin er meiri, sem kallar síðan á fjárveitingu varðandi slysavarnir, þótt utan hins hefðbundna heilbrigðis- geira sé. Þegar við komum aftur að skiptingu fjármuna innan kerfis heilbrigðisstofnana þurfa stjórnendur og læknar að taka höndum saman um að ýta til hliðar togstreitu, sem í dag ríkir raunar um hverja krónu. Við getum einnig tekið dæmi um mörg aðkallandi verkefni: mál- efni aldraðra, málefni vangef- inna, hjartaskurðlækningar, meðferð illkynja sjúkdóma, gigtlækningar o.fl. Allt eru þetta þættir þar sem aðgerða er Blað forstöðumanna sjúkra- húsa. þörf: aðgerða, sem kosta meira en svo, að ráðist verði í lausn þeirra samtímis eða í sama vetvangi. Þá er komið að spurn- ingunni um forgangsröðun verk- efna. Við þessar aðstæður getur heilsuhagfræðin veitt stjórn- málamönnum sem ákvörðunar- vald hafa, nauðsynlegar við- bótarupplýsingar við þær læknisfræðilegu, til að auðvelda réttláta og hyggilega ákvarða- töku um skiptingu takmarkaðs ráðstöfunarfjár. Fjárveitingar til heilbrigðismála. Árið 1950 var heildarfjárveit- ing til heilbrigðismála 2.9% af vergri þjóðarframleiðslu. Árið 1977 var þetta hlutfall komið upp í 6.5%. eða hafði meir en tvöfaldast. Því miður er enn sem komið er ekki staðið nógu vel að undirbúningi ákvörðunartöku um t'járlagaframlög til heil- brigðisþjónustunnar, að mínu mati, þó að miði í rétta átt. Það hefur t.d. til skamms tíma verið vonlítið að fá fjárveitingar til vinnuaflssparandi tækja, jafn- vel þó að launakostnaður sé allt að 70 r/r í rekstrarkostnaði sjúkrastofnana. Hér þurfa vinnubrögð að þróast í rétta átt. Ekki má líta á heilbrigðisþjón- ustu sem eitthvert óarðbært fyrirbrigði. Skoða þarf heilsu- arðsemi í réttu ljósi og í samanburði við arðsemi ann- arra þátta þjóðfélagsins. Það nrat verður að vísu alltaf pólitískt. En það má byggja á Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.