Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978. Nazistaforingi talinn fundinn Sao Paulo. 31. niaí. Kcutor. MAÐUR sem hefur verið yfirheyrður í Sao Paulo í Brazilíu í sambandi við stríðsglæpi nazista viður- kenndi í dag að hann væri Gustaf Franz Wagner, fyrr- verandi næstráðandi í fangabúðunum Treblinka og Sobior, að sögn lögfræðings Gyðinga í málinu, dr. Yudel Aronis. Aronis kvaðst hafa fengið ljósrit af fingraförum Wagners og sagði að þau yrðu sýnd Iögreglunni. Hann sagði að lögreglan fengi einnig að hitta fyrr- verandi fanga sem gæti borið kennsl á hann. Simon Wiesenthal sem hefur staðið Böll fær ekkert Karlsruhc. 30. maí. Kcutcr. HÆSTIRÉTTUR Vest- ur-í>ýzkalands hefur hnekkt úrskurði undirréttar um að útvarpsmaðurinn Mathias Walden í Vestur-Berlín greiði rithöfundinum Hein- rich Böll 40.000 mörk í skaðabætur fyrir að halda því fram að hann (Böll) bæri andlega ábyrgð á glæpum hermdarverkamanna. Böll hafði krafizt 10.000 marka Ofí satíði Walden hafa ófrægt sig með því að senja í útvarpsþætti að hann on aðrir vinstrisinnaðir rithöfundar hefðu undirbúið jarð- veginn fyrir íílæpi hermdarverka- manna. Hæstiréttur safjði að Walden hefði vitnað rétt í Böll og yrði að njóta tjáningarfrelsis. Böll hefði afskipti af stjórnmálum og hefði vísvjtandi komið af stað opinber- um deilum með skrifum sínum. Hann verður því að vera reiðubú- inn að taka afleiðingunum sagði rétturinn. Utvarpsþátturinn var fluttur í nóvember 1974 eftir útför Gúnther von Drenkmanns dómara í Vest- ur-Ber!ín. Böll hlaut bókmennta- verðlaun Nóbels 1972. ERLENT fyrir leit að nazistum segir að Wagner beri ábyrgð á dauða 150.000 til 300.000 fanga. Talsmaður ísraelska dómsmála- ráðuneytisins sagði að órækar sannanir væru fyrir því að Wagn- er og maður sá, sem hefur verið yfirheyrður, væru einn og sami maðurinn. Aronis segir að vest- ur-þýzku ræðismannsskrifstof- unni í Sao Paulo hafi verið sendar óhrekjanlegar sannanir fyrir því að maðurinn væri Wagner. Dregið var í efa að maðurinn væri Wagner vegna þess að Ijósmynd af manni sem Wiesenth- al sagði að væri af Wagner reyndist ekki vera af manninum sem hefur verið yfirheyrður. Dr. Aronis sagðist ætla að útskýra ástæðuna fyrir lögreglunni. Maðurinn sem er sagður vera Gustav Franz Wagner gaf sig fram við lögregluna í gær þegar hann frétti að hans væri leitað vegna stríðsglæpa. Hann neitaði því þegar hann gaf sig fram, að hafa verið næstráðandi í tveimur umræddum fangabúðum og kvaðst hafa verið byggingaverkfræðingur í Sobibor. Lögreglan kveðst gefa yfirlýs- ingu þegar borin hafi verið saman fingraför hins raunverulega Wagners og mannsins sem er grunaður um að vera Wagner. VEÐUR víða um heim Amsterdam 27 sólskin Apena 26 skýjaó Berlín 28 skýjaö Brússel 29 sólskin Chicago 29 skýjaö Frankfurt 26 heióskírt Genf 21 sólskin Helsinki 21 heiöskírt Jóhannesarb. ekki vitað Kaupmannah. 27 sólskin Lissabon 24 sólskin London 25 sólskin Los Angeles 29 skýjaö Madrid 21 sólskín Malaga 20 léttskýjaó Miami 28 skýjaö Moskva 19 skýjaö New York 30 skýjað Ósló 27 sólskin Palma, Majorca 23 léttskýjaó París 27 bjartviöri Róm ekki vitað Stokkhólmur 26 sólskin Tel Aviv 26 skýjað Tokyó 23 sólskin Vancouver 17 heiöskírt Vínarborg 18 heióskírt Þetta gerðist 1976 — Sýrlenzkt heriið ræðst inn í Líbanon til að binda endi á borgarastríðið og sækir tii Beirút. 1973 — Konungdæmi afnum- ið í Grikklandi. 1969 - Pompidou sigrar í fyrri umferð forsetakosninga í Frakklandi. 1958 - De Gaulle verður forsætisráðherra. 1943 — Enski leikarinn Iæsiie Hóward ferst í fiugvél sem Þjóðverjar skjóta niður. 1937 — Konoye prins verður forsætisráðherra Japans. 1932 — Franz von Papen myndar stjórn í Þýzkaiandi. 1883 — Stríð F'rakka á Mada- gaskar hefst. 1857 — Brezki flotinn tortím- ir flota Kínverja. 1733 — Danir fá yfirráð yfir St. Croíx (Santa Cruz) í vestur-Indíum. 1691 — innrás Noailles í Spán og enskur fioti sendur til að bjarga Barcelona frá Frókkum. 1671 — Tyrkir segja Pólverj- um stríð á hendur. 1664 — Ónnur styrjöld Eng- lendinga og Hollendinga brýzt út. 1586 — María Skotadrottning viðurkennir Filippus II af Spáni arftaka sinn. 1562 — Ferdinand II keisari og Suleiman 1 Tyrkjasoidán semja vopnahlé. Vance tekur á móti Gromyko í Washington. Viðsjár risaveldanna magnast stig af stigi Viðsjár Bandaríkja- manna og Rússa hafa stórum magnazt að undan- förnu vegna vaxandi ásælni Rússa í Afríku, baráttu þeirra gegn and- ófsmönnum heima fyrir og eflingar herstyrks þeirra í Evrópu. Tónninn í yfirlýs- ingu þeirra ráðamanna sem taka hörðustu afstöð- una í Washington jaðrar við að vera orðinn eins herskár og hann var þegar and kommúnisminn var f algleymingi á árunum um og eftir 1950. Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum í haust og bandaríska stjórnin stefnir að því að fá Rússa til að draga í land og sannfæra kjósendur um að stjórnin sé vakandi fyrir þrýstingi Rússa. Sá sem aðal- lega ræður ferðinni er ráðunaut- ur Carters forseta í þjóðarör- yggismálum, Zbigniew Brezez- inski, sem hefur fengið forset- ann til að gagnrýna Rússa óspart og kveða fastar aö orði en hann hefur gert hingað til. Brezezinski var eitt sinn’ talinn fylgjandi því að draga úr kalda stríðinu en hann er orðinn harðasti andstæðingur Rússa. Nýlega var haft eftir honum að „hver sá væri kjáni sem héldi því fram að menn yrðu að vera sjálfum sér samkvæmir í öllum skoðunum áratug eftir áratug." Bandaríkjastjórn hefur hafið herferð til að iýsa áhyggjum sínum af fyrirætlunum Rússa þótt því fylgi sú áhætta að ekki takist samningar við Sovét- stjórnina um takmörkun kjarn- orkuvígbúnaðar og þeir hafi veriö á lokastigi. Cyrus Vance utanríkisráðherra hefur viður- kennt að lítið hafi miðað áleiðis í viðræðum um málið við Andrei Gromyko utanríkisráðherra Rússa um helgina þótt Carter skærist í leikinn. Nú er svo komið að vinir manna um skjótt samkomulag og fyrirhugaðan fund Carters og Leonid Brezhnevs, forseta Sovétríkj- anna, hafi dvínað. Rússar hafa áhuga á að fullgera samninginn og gera sér grein fyrir þeim neikvæðu áhrif- um sem ævintýrastefna þeirra í Afríku hefur á samningsgerðina en haft er eftir bandarískum embættismönnum að Rússar séu reiðubúnir að taka þá áhættu. Haft er eftir öðrum embættismanni að þegar and- kommúnismi grípi um sig fyrir alvöru í Bandaríkjunum sé erfitt að stöðva hann, svo erfitt að hvers konar samningar við Rússa séu tortryggðir jafnvel um menningarmál. En bandaríska stjórnin hefur kosið að taka harða stefnu af því Rússar og Kúbumenn hafa aukið íhlutun sína í Afríku þótt Rússar hafi lofað því í marz að hafa taumhald á Kúbumönnum. (Síðan Vance ræddi við Anatoly Dobrynin sendiherra hefur kúbönskum hermönnum í Afríku fjölgað úr 24.000 í 38.000). Auk þess verður Carter að sýna fram á vegna þrýstings heima fyrir að hann sýni fulla festu gagnvart Rússum þrátt fyrir tilraunirnar til að semja við þá um að draga úr vígbúnaði og hætta öllum kjarnorkutil- raunum. Þar að auki hefur hann orðið fyrir þrýstingi frá hófsöm- um ríkisstjórnum í Afríku og Arabaheiminum sem vilja að forsetinn aðhafist eitthvað til að snúa við framsókn Rússa. Því hefur stjórnin ákveðið að kanna í samráði við bandalags- ríkin í Vestur-Evrópu í París í næstu viku leiðir til að styðja við bakið á vinveittum Afríku- ríkjum, ef til vill með því að senda þeim hergögn og veita þeim aðra aðstoð fyrir milli- göngu NATO. Auk þess skilst Framhald á bls. 24 Skotárás á lögmann hryðjuverkamanna Bcrlín. 31. maí. AP. DÓMSKIPAÐUR lögíræð- ingur eins sakbornings í réttarhöldum í máli fimm 1533 — Anna Boleyn krýnd Englandsdrottning. 1524 — Bændauppreisnin í Suður-Þýzkalandi hjfst. Afmæli dagsinst John Drink- water brezkt skáld (1882—1937) — Sir Frank Whittle, brezkur flugvélaverkfræðingur (1907— ----) — John Masefield enskt skáld (1878-1967) - Brigham Young bandarískur mormóna- leiðtogi (1801-1877). Orð dagsinst Ef guð væri ekki til yrði að finna hann upp — Voltaire franskur heimspeking- ur (1694-1778). manna sem eru ákærðir fyrir morðið á Giinther von Drenkmann dómara og rán- ið á Peter Lorenz í Vest- ur-Berlín særðist þegar skot* ið var á hann úr bifreið sem ók fram hjá honum í dag. Nokkrum klukkustundum síðar fann annar verjandi sakborninga í réttarhöldun- um sprengju sem hafði verið fest við framöxul bifreiðar hans þar sem hann hafði lagt henni fyrir framan aðlstöðvar lögreglunnar í Vestur-Berlín. Heinrich Lumner, leiðtogi kristilegra demókrata í öldunga- deild Vestur-Berlínar, sagði að árásirnar á lögfræðingana miðuðu að því að grafa undan réttarhöld- unum sem hófust 1. apríl og talið er að muni standa í eitt ár. Annar stjórnmálamaður kallaði þetta „hryðjuverkastarfsemi í ítölskum stíl“. Lögfræðingurinn sem varð fyrir skotárásinni, Dietmar Hohla, særðist á fæti en fékk að fara heim þegar gert hafði verið að sárum hans í sjúkrahúsi. Hann var að ganga heim til sín frá bíl sínum í Wilmerdorf-hverfi þegar skotið var á hann í fæturna. . Miklar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar vegna réttarhaldanna og talsmaður borgaryfirvalda sagði að tíu dómskipuðum lög- fræðingum í málinu hefði verið boðin vernd en nokkrir hefðu hafnað henni. Allir lögmenn sak- borninganna hafa verið hvattir til þess að skoða bíla sína áður en þeir nota þá. Þeir átta lögfræðingar sem sakborningar hafa valið birtu yfirlýsingu þar sem þeir hörmuðu Framhald á bls. 24 Mannrán Purchase. New York. 31. maí. Kcutcr. KÓLOMBÍSKUM forstjóra útibús Texaco í Bogota hefur verið rænt að sögn talsmanns fyrirtækisins. Fyrirta'kið rcynir að afla sér nánari upplýsinga um málið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.