Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
21
80 fulltrúar sitja
fulltrúaþing SÍB
Margeir Pétursson Jóhann Hjartarson
Jóhann og Margeir
tefia á heimsmeist-
aramótum unglinga
TUTTUGASTA og fimmta full-
trúaþing Samhands íslenzkra
barnakennara verður sett á Hótcl
Loftleiðum í dag klukkan 14.00.
Þingið stendur í þrjá daga og
sitja það 80 fulltrúar víðs vegar
að af landinu. Aðalmál þingsins
verða að venju starf grunnskól-
ans. kjaramál kennarastéttarinn-
ar og starfsemi SÍB. segir í frétt
frá Sambandi íslenzkra harna-
kennara.
I upphafi þingsins munu þeir dr.
Wolfgang Edelstein og prófessor
Sigurjón Björnsson flytja erindi er
þeir nefna: „Nokkrar niðurstöður
rannsókna á börnum í Reykjavík
og hugsanleg þýðing þeirra fyrir
skólann."
RoyðaríjörAur 31. maí.
Um hvítasunnuna var haldið á
Egiisstöðum Austuriandsmót í
sveitakeppni í bridge. Keppt var
um veglegan farandbikar. sem
Aðaisteinn Jónsson framkvæmda-
stjóri á Eskifirði gaf til keppninn-
ar.
Ellefu sveitir mættu til leiks og
voru fyrst spilaðar 2 umferðir með
svonefndu hraðsveitarkeppnis-
formi. Síðan spiluðu 4 efstu sveit-
irnar til úrslita. Þær sveitir sem
korriust í úrslit voru sveitir
SKÁKSAMBAND íslands
hefur valið þá tvo skák-
menn, sem tefla munu fyrir
íslands hönd á heimsmeist-
aramótum unglinga í haust.
Heimsmeistaramót unglinga
undir 17 ára aldri verður haldið í
Cagnes Sur Mer í Frakklandi
dagana 8.—19. september. Mun
Kristjáns Kristjánssonar með 1,259
stig, Aðalsteins Jónssonar 1,181
stig, Þórarins Hallgrímssonar 1,153
stig og Bergs Sigurbjörnssonar
1,089 stig.
I úrslitu'num sigraði síðan sveit
Aðalsteins með 45 stig, sveit
Kristjáns varð önnur með 38 stig og
sveit Þórarins þriðja með 37 stig.
Spilhrar í sigursveitinni voru Aðal-
steinn Jónsson, Sölvi Sigurðsson,
Kristinn Jónsson, Bogi Nilsson og
Kristinn Jónsson.
Gréta
Jóhann Hjartarson tefla fyrir
Islands hönd og reyna að verja
heimsmeistaratitilinn, sem Jón L.
Arnason vann til á þessum sama
stað í fyrrahaust. Er stefnt að því
að Jón verði aðstoðarmaður
Jóhanns.
Heimsmeistaramót unglinga
undir 20 ára aldri verður haldið í
Gratz í Austurríki dagana 3,—17.
september og hefur Margeir Pét-
ursson verið valinn til þátttöku í
mótinu, en Margeir var sem
kunnugt er aðstoðarmaður Jóns L.
Árnasonar í fyrra. Þá hefur
Skáksambandið, að sögn Einars S.
Einarssonar, ritað FIDE bréf með
ósk um að Jón L. Árnason fái
einnig að taka þátt i mótinu, þar
sem hann sé núverandi heims-
meistari sveina. Bjóst Einar við
því að þessari málaleitan yrði vel
tekið.
Þá er þess loks að geta, að Elvar
Guðmundsson mun taka þátt í
opna danska unglingameistara-
mótinu í júní og þann sama mánuð
mun Jóhannes Gísli Jónsson
dvelja í skákbúðum í Svíþjóð. Allir
þessir ungu skákmenn eru í
Taf'félagi Reykjavíkur.
11 sveitir á Aust-
landsmóti í bridge
Akranes:
Meðfylgjandi mynd var tekin í Akraneshöfn í vikunni. Jóhannes Guðjónsson stýrimaður á Gróttunni
spjallar við Sigurð Hallgrímsson bifreiðastjóra. Ljósm. Júlíus.
Haraldur AK afla-
hæstur á vertíðinni
Már Magnússon syng-
ur í Norræna húsinu
Á AÐALFUNDI Bandalags
kvenna voru að venju gerðar
ýmsar samþykktir. Sam-
þykktir um heilbrigðismál
voru í fimm liðum:
1. Aðalfundur fagnar því, að
stofnuð hefur verið heilsugæslu-
stöð í Árbæ, og tilkomu nýrrar
heilsugæslustöðvar í Asparfelli.
Telur fundurinn þetta mikið fram-
faraspor í heilbrigðismálum
höfuðborgarinnar, sem mun bæta
aðstöðu almennrar heilbrigðis-
þjónustu. Jafnframt bendir
fundurinn á, að æskilegt væri, að
heilsugæslustöðvar og Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur stefndu
að því að hjúkrunarfræðingar
verði starfandi í samvinnu við
lækna á kvöld-, nætur- og helgi-
dagavakt.
2. Aðalfundurinn leggur áherzlu
á, að efld verði fræðsla um hollar
neysluvenjur og heilsufar. í því
sambandi ber að fagna framtaki
lyflæknadeildar Landspítalans og
Efnafræðistofu Raunvísindadeild-
ar Háskóla íslands, sem stóðu að
merkri og gagnlegri ráðstefnu um
þetta efni í apríl. Ráðstefnan
markar óneitanlega spor, hefur
Höfðingleg
gjöf tíl
Krabbameins
félagsins
haft áhrif á neysluvenjur og vakið
áhuga mikils fjölda fólks á þessu
máli frá heilsufarssjónarmiði.
Fundurinn beinir þeim tilmælum
til K.í. að kynna rit það, sem
fyrirhugað er að gefa út af
fyrrnefndum aðilum með fyrir-
lestrum frá ráðstefnunni, t.d. í
Húsfreyjunni og sjá svo um, að
það verði fáanlegt á skrifstofu K.í.
fyrir félagskonur og aðra.
3. Aðalfundurinn skorar á hæst-
virt Alþingi, að skipuð verði hið
bráðasta milliþinganefnd til að
endurskoða lög, sem varða at-
vinnumál, lífeyristryggingar og
aðrar félagslegar aðstæður aldr-
aðra í þjóðfélaginu. Markmið
lagabreytinga á þessu sviði yrði að
nýta sem best starfskrafta og
reynslu aldraðra með því að
tryggja þeim tækifæri til að starfa
svo lengi sem heilsa og starfsgeta
endist, án tillits til aldurs.
4. Aðalfundurinn skorar á heil-
brigðisyfirvöld að hefjast nú þegar
handa um nauðsynlegar endur-
bætur á Kópavogshæli, svo að
stofnunin geti gegnt hlutverki sínu
sem virk þjálfunar- og meðferðar-
stofnun. Með slíkum endurbótum
mætti auka tengsl vistmanna við
samfélagið, miðað við það ástand,
sem nú ríkir.
5. Aðalfundurinn fagnar þeim
áföngum, sem náðst hafa fyrir
aldraða langlegusjúklinga hér í
Reykjavík, en telur þörfina ríka
fyrir áframhaldandi framkvæmdir
á þessu sviði.
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur
hefur verið afhent hálf milljón
króna sem frú Pálína Þorláks-
dóttir, Vesturgötu 44 í Reykjavík,
ánafnaði félaginu að sér látinni.
Pálína sem lést hátt á níræðisaldri
23. apríl s.l. var aila tíð traustur
stuðningsmaður félagsins eins og
þessi höfðinglega gjöf ber vitni
um. Stjórn Krabbameinsfélags
Reykjavíkur er þakklát hinni
látnu fyrir gjöfina og góðan hug til
félagsins. Án velvildar almennings
og stuðnings í stóru og smáu gætu
krabbameinsfélögin í landinu litlu
til leiðar komið.
þroskanetaskipin 2830 lestir
í 522 sjóferðum og togararn-
ir 2744 lestir. V/S Ilaraldur
AK. 10 varð með mestan
afla, 528 lestir. Næstir
komu: V/S Reynir með 525
lestir og V/S Grótta með 516
lestir.
Skuttogarinn Krossvík
kom til hafnar í gær með um
100 lesta afla, mestmegnis
Þorsk og ufsa, eftir 6 daga
veiðiferð.
Nú er farið að þrengjast
geymslurými frystihúsanna,
og það mun koma að því að
biðja verður um leyfi A.S.Í.
til útflutnings, ef menn
halda áfram að framleiða
útflutningsvöru. -Július.
Akranosi. 30. maí.
AFLI Akranesskipa varð
5574 lestir samanlagður á
vertiðinni sem var að líða.
Þar af öfluðu línu- og
Landsbankinn á Snæfellsnesi:
MÁR Magnússon óperu-
söngvari heldur söngtón-
leika í Norræna húsinu ann-
að kvöld klukkan 20.30 og
verður undirleikari hans
Jónína Gísladóttir. Á efnis-
skránni verða íslenzk og
ítölsk sönglög svo og
óperuaríur.
Már Magnússon stundaði
nám í Vínarborg og starfaði
þar við eina þriggja ópera um
skeið. I vetur hefur Már
dvalið hér á landi við kennsiu,
m.a. við Söngskólann.
Sólon R. Sigurðsson er fæddur
1. mars 1942 og hefur starfað í
Landsbanka Islans frá 4. október
1961. Hann hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum við bankann,
nú síðustu ár sem forstöðumaður
víxladeildar aðalbanka. Sólon
hefur verið formaður S.Í.B.,
heildarsamtaka bankamanna,
undanfarin ár.
Sólon er kvæntur Jónu Árna-
dóttur og eiga þau 3 börn.
Sólon Sigurðsson
ráðinn útibússtjóri
Á FUNDI bankaráðs Lands-
banka íslands 26. maí s.I. var
samþykkt að ráða Sólon Rúnar
Sigurðsson útibússtjóra Lands-
banka íslands á Snæfellsnesi
frá og með 1. júní 1978.
Bandalag kvenna
um heilbrigðismál